Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 13

Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 13
tungan, haftið og neðri gómurinn nuddast við geirvörtuna. Meðferð: Klippa á tunguhaftið sem allra fyrst og fá síðan barnið til að taka geirvörtu og vörtubaug vel aftur í munninn. SOeppas'Jking Sy>eppas'Jking (þmska) Sýking í geirvört- um af völdum Candida Albicans. Kemur oftast á báð- ar geirvörtur á sama tíma. Húð á geir- vörtu og vörtubaug verður rauð, upphleypt og flagn- andi. Stundum sjást litlar hvítar skellur og sár sem vessar úr. Þessu fylgir sviði og kláði. Oft sést þruska í munni barnsins, en það er ekki algilt. Meðferð: Þvo geirvörtur og vörtubauga vel með hreinu vatni eftir hverja gjöf. Bera síðan Mycostatin munnskol á sýktu svæðin og láta það þorna vel áður en fatnaður er látinn yfir. Nota innlegg í brjóstahaldara sem ekki heldur raka að húðinni og skipta um innlegg við hverja gjöf og ef þau blotna milli gjafa. Þvo hendur vel fyrir og eftir gjafir og vita- skuld við WC ferðir og bleiu- skipti. Gefa barninu 1 ml. (100.000 einingar) af Mycostatin munnskoli eftir gjafir 4 sinnum á dag. Gefa þessa meðferð í 2 vikur og /eða a.m.k. 3 daga eftir að einkenni eru með öllu horfin hjá móður og barni. Ekki er ólíklegt að konan sé með einkennalausa sýkingu í leggöngum sem þarf að meðhöndla ef sýking kemur á geirvörtur trekk í trekk. í sumum Ijölskyldum gengur krónísk sveppasýking og getur þá þurft að meðhöndla alla fjölskylduna og endurskoða mataræði hennar þar sem Candida sveppurinn þrýfst á sykri og geri. ■Keðferð sára á geirbörtum Ef svo illa vill til að kona fái sár er mikilvægt að meðhöndla þau á réttan hátt þannig að þau grói sem fyrst. Almenn meðferð sára á geirvörtum, fyrir utan að lagfæra undirliggjandi orsök, er að gefa oft og byrja gjöfina þá á skárra brjóstinu meðan losunarviðbragð- ið er að koma, viðra brjóstin með mjólk á eftir gjafir, athuga að ekki sé of mikill og þéttur fatnaður yfir brjóstunum svo loft geti leikið um þau og bera e.t.v. mýkjandi og græðandi áburð á geirvörtur og vörtubaug (athuga þó að vörturnar soðni ekki undan honum og að hann sé ekki ofnæmisvekjandi eða skaðlegur barninu). Gæta ber ýtr- asta hreinlætis við alla meðhöndl- un brjóstanna til að ekki berist í þau sýking í ofanálag. Mörgum konum finnst gott að hafa brjósta- skeljar yfir geirvörunum til að halda fatnaði frá meðan þær gróa. Ef sárin eru það slæm að konan treystir sér ekki til að gefa, þarf hún að handmjólka sig a.m.k. 5-6 sinnum á dag þar til þau hafa gróið það vel að hægt er að leggja barnið á, það tekur yfirleitt ekki meira en 2-3 daga. Best er að barnið fái þá mjólkina úr staupi þannig að það tileinki sér ekki rangara sog en það hefur nú þegar. Kona sem er með sár á geirvört- um líður vítiskvalir og sár eru ein algengasta orsök þess að konur gefast upp á brjóstagjöfinni. Það er því mikilvægt að ljósmæður kunni ráð og geti veitt stuðning og von á svo erfiðum tímum. Dagný Zoega Ljósmóðir & IBCLC br i óstae i afarráð 2 i afi * Öfug sprauta: Takið 10 ml. sprautu, takið stimpilinn úr og skerið fremsta hlutann af henni. Setjið stimpilinn aftur í þeim megin sem skurðflöturinn er og þar hafið þið tceki tit að sjúga út geiröörtur. Til að lagfozra brjóstagjöf sem ekki gengur nógxt óel þarf fyrst að finna orsökina Úr Is he biting again? eftir Neil Matterson. Marion Books 1984 13 ljósmæðrablaðip

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.