Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 4

Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 4
Til Ljósmæðra á Islandi Ljósmæðrafélagi íslands hefur borist bréf frá Miss Hilary Ruhl, sem er Maternity Services Manager við Queen Charlotte's og Chelsea Hospital í London. í bréfi þessu segir hún frá því að í London sé vöntun á ljósmæðrum til starfa og verið sé að auglýsa eftir ljósmæðrum í öðrum löndum. Hún hefur áhuga á að skoða hvort ekki sé hægt að setja á laggirnar hjá sér dagskrá sem geri íslenskum ljómæðrum kleift að koma til starfa hjá þeim í eitt ár eða svo. Því sem hægt væri að koma í kring er: • Kynningu á heilbrigðiskerfi Englands • Kynningu á þjónustu við bameignarfjölskylduna • Mati á starfsmarkmiðum og þörf ljósmæðra fyrir frekari þjálfun • Skipulögðu eins árs nám sem leiði til skráningar hjá UKCC English language classes. Hún segir deild sína hafa sterk tengsl við Thames Valley University, The Post Graduate medical school og þeirra eigin miðstöð fyrir frekari þróun „evidence based midwifery practice“. Hér er spennandi tækifæri fyrir íslenskar ljósmæður að afla sér reynslu og þekkingar utan heimalands- ins. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Ljósmæðrafélags íslands. BankastjDrar í fæðingu Nýtt líf! Sú góða tilfinning sem fylgir því að geta sinnt bankaviðskiptum sínum í næði þegar manni hentar best, óháð afgreiðslutíma og erli hefðbundinna bankaútibúa er eins og að hefja nýtt líf. Enda fjölgar bankastjórum í Heimabankanum stöðugt. Heimabankastjórar geta sinnt sínum bankaviðskiptum heima eða í vinnunni, hérlendis eða erlendis þar sem netaðgang er að finna, á öllum tímum sólarhringsins. Þeir spara sér ótal ferðir til og frá banka, eru alltaf með bókhaldið á hreinu og geta treyst á fullkomið öryggi og leynd upplýsinga í Heimabankanum. Það kostar aðeins 80 krónur á mánuði að reka sitt eigið útibú í Heimabankanum! Bvrjaðu nýtt líf stra.x - en prófaðu samt fyrst! Kynntu þér sýnishorn af Heimabankanum á www.isbank.i8. Þar getur þú prófað hvernig það er að stjórna eigin útibúi áður en þú ákveður þig. Ileimabanki íslandsbanka er svo aðgengilegur að bankaviðskipti verða hreinn barnaleikur. C Wf ISLANDSBANKI 4 UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.