Einherji - 22.12.1985, Page 6

Einherji - 22.12.1985, Page 6
6 EIHHEBJI Sunnudagur22. desember 1985 f ANDLÁT Fimmtudaginn 21. nóvem- ber s.l. andaðist Jón Kj'artans- son, forstjóri, fyrrum bæjar- stjóri á Siglufirði, á heimili sonar síns í Hamborg. Hann var jarðsettur að við- stöddu miklu fjölmenni, frá Háteigskirkju, þriðjudaginn 3. desember. Með Jóni er genginn einn mætasti sonur Siglufjarðar. Á bæjarstjórnarfundi 12. desem- ber minntis forseti bæjarstjórn- ar, Bogi Sigurbjörnsson, Jóns í upphafi fundar, en forseti var jafnframt sérstakur fulltrúi bæjarstjórnarinnar við útför Jóns í Reykjavík. JÓN KJARTANSSON, forstjóri Kveðja frá Siglufirði Fimmtudaginn 21. nóvem- ber s.l. varð Jón Kjartansson fyrrum bæjarstjóri í Siglufirði bráðkvaddur. Með Jóni Kjartanssyni er genginn einn mætasti sonur Siglufjarðar, sem ætíð var reiðubúinn af fórna kröftum sínum fyrir málefni Siglfirðinga og Siglufjarðar. Þegar fréttin um lát þessa trausta og góða vinar Siglfirð- inga barst til bæjarins, var fólki efst í huga söknuður og þakk- læti. Söknuður vegna vinar í stað, sem ætíð leit á Siglfirðinga sem eina heild, hvort sem var heima eða heiman og þakklæti fyrir öll þau fómfúsu og óeigingjörnu störf sem hann innti af hendi í þágu bæjarbúa allt sitt líf. Jón Kjartansson var fæddur 5. júní 1917, og var því 68 ára er hann féll frá. Fyrstu 40 ár ævi sinna átti hann heima á Sigluffirði, eða þar til hann gerðist forstjóri Áfengisverslunar ríkisins árið 1957. Á Siglufjarðarárum sínum gegndi Jón margvíslegum störfum, þar til hann gerðist bæjarstjóri Siglfirðinga árið 1949. Bæjarstjórastarfinu gegndi hann til ársins 1958. Á þessu tímabili voru miklir erfiðleikar hjá bæjarfélaginu, vegna brotthvarfs síldarinar, og þeirra áfalla sem bæjarfélagið varð fyrir þegar atvinnulífið hreinlega lagðist í rúst. í störfum sínum sem bæjar- stjóri sýndi Jón hversu gífuleg- ur baráttumaður hann var, er hann barðist fyrir endurupp- byggingu og endursköpum at- vinnulífs bæjarins á þessum tíma. Hann hafði forgögu af hálfu bæjarfélagsins um togaraútgerð. og að frystihúsrekstur og fisk- vinnsla var hafin, sem sókn til nýrrar atvinnuuppbyggingar, á þessum tíma. Sá sem þetta skrifar minnist skemmtillegrar « frásagnar Jóns, af ótrúlegri baráttu hans í Reykjavík, þegar hann fór suður, eins og sagt var, til þess að sækja togarann Haf- liða. Síldarverksmiðjur ríkisins, fyrsta stóriðjan á Islandi, hafa verið og eru, stærsti aflgjaldi 'atvinnulífsins á Siglufirði. þessu fyrirtæki tengdist Jón snemma, fyrst sem sendisveinn, en innan við tvítugt orðinn verkstjóri. í stjórn þessa fyrirtækis hefur hann átt sæti um árabil, og síðari ár sem varaformaður stjómarinnar. í stjórnarstörfuum sínum hjá þessu stóra fyrirtæki, sýndi hann eins og endra nær í störf- um sínum, dugnað, árvekni og fyrirhyggju, og fullyrða má að starfsemi Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði væri ekki með þeirri reisn sem nú er, hefði Jóns Kjartanssonar ekki notið við. Það var því örugglega með mikilli ánægju, sem þessi sanni vinur Siglufjarðar ræsti nýja tölvustýrða vélbúnaðinn hjá S.R. í haust við hátíðlegt tæki- færi, og þar með eina full- komnustu verksmiðju í heimi á þessu sviði. Með þessum fáu og fátæk- legu orðum vil ég fyrir hönd Bæjarstjómar Siglufjarðar og Siglfirðinga allra þakka Jóni Kjartanssyni öll þau ómetan- legu störf, sem hann hefur innt af hendi í þágu Siglufjarðar. Siglfirðingar sakna vinar í stað. Þómýju, börnum, tengda- börnum og bamabömum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Bogi Sigurbjörnsson forseti bœjarstjórnar. JÓN KJARTANSSON, forstjóri Kveðja frá fram- sóknarmönnum á Siglufirði Jón Kjartansson forstjóri andaðist 21. nóvember s.l. á heimili sonar síns í Hamborg. Jón fæddist á Siglufirði 5. júní 1917, sonur Kjartans Jónssonar byggingameistara og konu hans frú Jónínu Tómasdóttur kaup- konu. Jón ólst upp á Siglufirði og tók próf frá Samvinnuskólan- um árið 1935. Það ár varð hann verkstjóri hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins á Siglufirði og var það til ársins 1942, að hann tók við skrifstofustjórn hjá Þormóði Eyjólfssyni h/f. Jón hafði á þessum árum auk þess margvísleg önnur störf á hendi, hann var umboðsmaður Samvinnutrygginga, Flugfélags Islands, rak síldarsöltun og tók þátt í útgerð o.fl. Jón tók mjög virkan þátt í starfi Framsóknarfélags Siglu- fjarðar á þessum árum. Hann var kosinn formaður í félaginu í febrúar 1948 og form. trúnaðarráðs 1949. Það ár var Jón ráðinn bæjar- stjóri Siglufjarðar og gegndi hann því starfi í tvö kjörtímabil. Það voru erfið ár, eftir hvarf síldarinnar, við þær ytri að- stæður, þegar Siglufjörður var ekki lengur sú gullkista lands- manna, sem hann hafði verið undanfarna áratugi. Bæjarbúar voru þá á fjórða þúsundið og kreppa í atvinnu- lífinu. Reyndi þá mjög á Jón og sýndi hann þá einstakan dugnað, ósérhlífni og útsjónar- semi við endurreisn atvinnu- lifsins. Stofnuð var Bæjarútgerð Siglufjarðar, keyptur annar togari og Skeiðfossvirkjun stækkuð um helming svo nokkuð sé nefnt. Fleyg urðu sum samskipti Jóns við stjórnvöld á þessum árum, svo aðgangsharður gat hann verið við þau, því ekkert var Siglufirði of gott. Á Jón hlóðust margháttuð störf. Hann var í miðstjórn Framsóknarflokksins.frá 1946, sat í stjóm Síldarverksmiðja ríkisins frá 1947. Varaþing- maður á 9 þingum og eftir frá- fall Skúla Guðmundssonar 1969 þingmaður Norðurlands- kjördæmis vestra til 1971. Árið 1957 flytur fjölskyldan til Reykjavíkur og tekur Jón við forstjórastarfi Áfengisverslunar ríkisins sem síðan verður Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, sem hann sinnti til dauðadags. Hlóðust á hann margháttuð störf. Hann var í blaðstjórn Tímans, Blaðaprents h/f, for- maður í Siglfirðingafélaginu, ræðismaður Finnlands, svo eitthvað sé nefnt. I dagsins önn var gott að hitta Jón. Alltaf var hann með hugann við Siglufjörð, fólkið heima eins og hann gjarnan tók til orða, atvinnulífið og mann- lífið allt. Ekkert var honum óviðkom- andi sem snerti Siglufjörð. Fjölmargir Siglfirðingar sem fluttust til Reykjavíkur fengu hjá honum hvatningu og upp- örvun, auk annarrar hjálpsemi við búsetuskiptin, þar er nú skarð fyrir skildi. Ég minnist hans í haust þegar enduruppbygging S.R.46 var tekin í notkun og loðnuveiðar hófust, hversu glaður hann var þegar viss áfangi var tekinn í notkun og S.R.46 verksmiðjan sem hann sá rísa varð tækni- væddasta verksmiðja landsins. Hann hafði óbilandi trú á ís- lensku hugviti og dugnaði. Hann var ætíð fullur bjartsýni, góðvild og hjálpsemi voru hans bestu eiginleikar, þannig minnumst við hans. Um leið og ég þakka fyrir persónuleg kynni og samstarf, vil ég fyrir hönd Framsóknar- félaganna á Siglufirði senda eftirlifandi konu frú Þórnýju Tómasdóttur og ástvinum hug- heilar samúðarkveðjur. Sverrir Sveinsson.

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.