Einherji - 22.12.1985, Blaðsíða 17
Sunnudagur 22. desember 1985
EtNHERJI
17
Stefanía Ólöf Jóhannsdóttir
MINNING
Stefanía fæddist 15. maí árið
1912 að Brekku í Svarfaðardal.
Hún var dóttir hjónanna Jó-
hanns K. Sveinbjörnssonar
bónda þar og síðan tollþjóns á
Siglufirði og konu hans Sesselju
Jónsdóttur frá Skeiði. Stefanía
átti sex systkini og er nú eitt
þeirra á lífi, Tómas sem lengst
af bjó hér á Siglufirði, en er
fyrir nokkrum árum fluttur til
Reykjavíkur.
Stefanía giftist Maroni
Einarsyni sjómanni og eignuð-
ust þau tvær dætur, Nönnu sem
búsett er í Bandaríkjunum,
hennar maður er Georg Scarles
sem er af grískum ættum. Eiga
þau tvö börn Jimmy og
Stefaníu Ólöfu. Hin dóttirin
Hanna býr á Ólafsfirði gift
Árna Sæmundssyni. Þau eiga
fimm börn: Nönnu, Agnar,
Jón, Sæmund og Maron.
Stefanía missir mann sinn árið
1941 þegar togarinn Gullfoss
fórst. Bjó hún þá í Reykjavík.
Árið 1947 gengur hún að eiga
eftirlifandi mann sinn Jón
Andersen vélstjóra við Skeiðs-
fossvirkjun, en Jón hóf störf þar
haustið 1946. Jón var ekkju-
maður og ólu þau Stefanía upp
böm hennar. Einnig var Maron
sonur Hönnu hjá þeim þar til
hann fór til foreldra sinn í
Ólafsfirði til að fara í Gagn-
fræðaskóla. En hann er nú
skipstjóri á m/b Guðmundi
Ólafi ÓF. 91 og er hann einn af
eigendum bátsins.
Ég kynntist Stefaníu fyrir
tuttugu árum þegar ég tók við
starfi rafveitustjóra á Siglufirði.
Hagaði þannig til við Skeiðs-
fossvirkjun að ekki var rekið
mötuneyti þegar unnið var við
viðhald og endurbætur á
mannvirkjum. Kom í hlut Jóns
og Stebbu eins og við oftast
nefndum hana daglega, að taka
menn í fæði. Mminnist ég þess
að oft voru hjá henni í fæði allt
að tuttugu menn auk heimilis-
fólks. Engar aðstæður voru á
heimilinu til þessarar þjónustu,
en Stebbu tókst að framkvæma
þetta á sinn hljóðláta hátt án
þess að heimilisbragurinn
raskaðist. Eignaðist hún marga
góða vini í hópi verka- og
iðnaðarmanna sem dvöldu við
virkjunina á þessum árum. Er
mér bæði ljúft og skylt að þakka
henni þessi störf að leiðarlok-
um.
Þegar að því kom að Jón
hætti störfum við virkjunina
árið 1978 sökum aldurs, var
ekki um að ræða annað en þau
flyttu til Siglufjarðar. Festu þau
kaup á Eyrargötu 9 og bjuggu
þau sér þar til hlýlegt og nota-
legt heimili þar sem þau hafa
búið síðan.
Ég minnist þess að þegar að á
flutningi þeirra stóð þá trúði
Stebba mér fyrir því að hún
hefði eiginlega aldrei fest rætur
í Fljótunum þrátt fyrir að hún
átti þar heimili yfir 30 ár.
Vissulega var einangrun mikil
og færri tækifæri til afþreyingar
og samgöngur verri en nú er.
Engu að síður eignaðist hún
góða vini í sveitinni svo sem
þessi kveðja ber með sér sem
barst við útför hennar.
Hinsta kveðja frá vinkomt:
Er leiðir skiljast þakka vil ég þér
þína tryggð á mínum
raunastundum.
Af eigin reynslu miðlaðir þú
mér
og margt við ræddum oft á
þessum fundum.
Nú ljóssins englar lýsi veginn
þinn
þeir leiði þig í nýrri og betri
heima.
Ég minnist þín með þökk í
sérhvert sinn
og seint ég okkar vináttu mun
gleyma.
Ég óskaði þess að þau Jón og
Stefanía mættu eiga saman sem
flest ár hér á Siglufriði eftir að
þau fluttu hingað. En heilsu
hennar fór að hraka og síðast-
liðið ár dvaldi hún á Sjúkrahúsi
Siglufjarðar. Engu að síður
vonaðist hún til þess að geta
komið heim um jólin. Af því
varð ekki, útför hennar var gerð
frá Siglufjarðarkirkju þriðju-
daginn 17. þ.m. við mikið fjöl-
menni og blómahaf.
Um leið og ég votta Jóni
Andersen, dætrum hennar,
tengdasonum, börnum þeirra
og ættingjum mínar innilegustu
samúðarkveðjur, vil ég færa
þakkir Rafveitu Siglufjarðar og
starfsmanna fyrir óeigingjörn
störf og vináttu.
Blessuð veri minning hennar.
Sverrir Sveinsson.
HÚSMÆBUR!
Munið eftir í jólaveislurnar:
ístertur og Kaffitertur
Frostrós og Lukkuskei
Skafís (vanillu og krókant)
1 ltr. íspakki 6 tegundir
Ostakaka e*
ísbióm og Ishopp
GLEÐILEG JOL!
Mjólkursamsalan,
Siglufirði
INNILEGAR ÞAKKIR fyrir auðsýnda samúð, aðstoð og
virðingu við andlát og útför konu minnar, móður okkar og
ömmu,
STEFANÍU ÓLAFAR JÓHANNSDÓTTUR,
Eyrargötu 9, Siglufirði.
Jón Andersen Jimmy og Stefanía Ólöf Scarles
Nanna Maronsdóttir Nanna, Agnar, Jón, Sæmundur
Hanna Maronsdóttir og Maron Björnsson
Kristín Jónsdóttir
INNILEGT ÞAKKLÆTI fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug, við andlát og útför sonar okkar og bróður,
GUÐMIJNDAR GÍSLA KONRÁÐSSONAR
Pálína Ingimarsdóttir
Konráð Konráðsson
Systkini og aðrir vandamenn.
ULKYNMNG
Eins og að undanförnu er fólki gefinn kostur á að
lýsa upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þurfa öll Ijós-
astæði að vera komin í garðinn í síðasta lagi 18.
desember. Þeir sem síðar koma með Ijósastæði,
eiga á hættu að fá þau ekki sett í samband. Öll Ijós-
astæði skulu vera vel merkt eiganda.
Nánari upplýsingar gefa starfsmenn Rafveitunnar.
RAFVEITA SIGLUFJARÐAR
SÓKNARNEFND SIGLUFJARÐAR.
1 Óskum
mmtwnuMMnuHi oq ollum láiiinXitííitui u ttí
f qícMlcqm jóta,
{: (írs oq frtðar
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
T
m\
IUAUtHlU* Itnillu
Uii
PlA1
©sfeum föagsmönnum
borum, starföliöi og
lanösmönnum öllum
(Sleöiltgtajfdla
og farsæls feomanöi árs
meö þöfefe fprir þaö,
semeraö liöa
RAUPFÉLAG
EYFIRÐINGA
Siglutirði