Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004
Síöast en ekki síst DV
Glæpaganga í Reykjavík
Glæpaganga verður farin um
miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn
19. febrúar. Það er Borgarbóka-
safnið sem stendur að göngunni
en í henni verða helstu staðir
glæpa í íslenskum sam-
tímabókmenntum heim-
Ha?
sóttir.
Gengið verður frá Ingólfstorgi
upp í kirkjugarðinn við Suðurgötu
þar sem líkið fannst í Dauðarósum
Arnalds Indriðasonar. Alþingis-
húsið verður heimsótt, en þar var
einmitt framið morð í einni af bók-
um Stellu Blómkvist. Staldrað
verður við í fjörunni við Skúlagötu
í anda Margeirs lögreglumanns í
sögum Gunnars Gunnarssonar
yngri, og svo mætti lengi telja.
„Við verðum aðallega í Þing-
holtunum, enda virðast þau vera
vinsæl í íslenskum glæpasögum og
þar búa glæpamenn og löggur
þvers og kruss," segir Ævar Örn
Jósepsson rithöfundur, sem ráðinn
hefur verið aðstoðarleiðsögumað-
ur í Glæpagöngunni sem endar á
Næsta bar í Ingólfsstræti þar sem
Árni lögreglumaður sat oft og
hugsaði sitt ráð, en Árni er einmitt
persóna í glæpasögum Ævars Arn-
ar; Skítadjobb og Svartir englar.
Næsti bar ÞarendarGlæpaganganáslóð-
um Arna lögreglumanns.
• Það er kalt á toppnum og ein-
manalegt. Og kóngum hættir til of-
sóknaræðis. Þó svo að Spaugstofu-
menn ættu að geta vel við unað og
talið sig sæmilega örugga með sína
stöðu innan RUV í ljósi 70 prósenta
áhorfs
heyrast nú
raddir úr
þeirra her-
búðum að
þeim sé
ekki með öllu rótt. Þeir eru þegar
farnir að horfa til næsta árs með til-
liti til þess að vera áfram með
þátttaröð sína. Hins vegar þykjast
þeir finna fyrir kulda frá æðstu
Síðast en ekki síst
stöðum, og þá vegna þess hversu
mjög þeir Davíð Oddsson og Hall-
dórÁsgrímsson fá í sífellu á bauk-
inn í þáttunum. Og þegar hátíða-
dagskrá í Þjóðminjasafninu vegna
afmælis heimastjórnar á íslandi var
sýnd, þar sem fáir komu fram utan
sjálfstæðismanna, töldu Spaug-
stofumenn sig sjá þess merki að
næst hygðust sjálfstæðismenn
koma sínum mönnum að við
gríniðju í RÚV. Hins vegar er
kannski djúpt á góðum spaugurum
innan þeirra raða. Þó er þá að
finna: Jóhann Sigurðarson leikari
og Rúnar Freyr Gíslason þykja vel
liðtækir þegar sprellið er annars
vegar...
• Leikfélag Reykjavíkur var bak-
grunnur pólitískra átaka í menn-
ingarmálanefnd Reykjavíkur fyrr í
vikunni. Reykjavíkurlistinn ákvað
að auka fjárframlag til leikfélagsins.
Sjálfstæðismennirnir og fóstbræð-
urnir Gísli Marteinn Baldursson
sjónvarpsmaður og
Rúnar Freyr Gísla-
son leikari sögðu
við það tækifæri að
málinu „hefði auð-
veldlega verið
hægt að ljúka
miklu fyrr, ef
dugnaður, metn-
aður og framsýni
hefði verið fyrir hendi hjá borgar-
fulltrúum R-listans“. Fulltrúar R-
listans, Stefán Jón Hafstein, Ár-
mann Jakobsson og Ásrún Krist-
jánsdóttir brugðust illa við þessu:
„Bókun fulltrúa D-lista er ekki
svaraverð að öðru leyti en því að
Reykjavíkurborg hefur margsannað
góðan vilja í garð LR,“ sögðu full-
trúar Reykjavíkurlistans...
• Jói Fel, bakar-
inn knái, vann
mikið afrek í 70
mínútum í fyrra-
dag þegar hann
lyfti Pétri stjórn-
anda, og var hann
ber að ofan við þá
iðju. Þetta vakti
enga smá lukku hjá kvenþjóðinni,
sem fjölmennti í búðina hans strax
í gærmorgun. Enda vilja stelpurnar
bara fá hann í vaxtarræktarkeppni.
Það myndi alla-
vega trekkja. Þær
ykkar sem misstuð
af meistaranum
verðið bara að bíða
endursýningar
láANNAt) PLÚS BIRTIR NÚ RUSLAÐA SAMLA £'■■
SÖSU, EINUM OS HÁLFUM M/NUei EFTTR AB
i HER Á SÍÐUM DV. ^ .
ir.*,r\ /• „ _ /‘ n „ /sr/
ÞETTA ER SERT FRÍTT!
LESENDUM A£> KOSTNAÐARLAUSU,
ENDA ER ÍAANNAD ÞEKKT FYRIR -
ÚRVALSÞJ ÓNUSTU!
y,y/
: IZLJtTj ■AtWUbhAStúrhm i
”—"^'5
Kolbrún Halldórsdóttir alþingis-
kona hefur ákveðið að taka sér
mánaðar frí frá þingstörfum til að
leikstýra kabarettsýningu í Borgar-
leikhúsinu. Stefnir Kolbrún að
frumsýningu 20. mars:
„Atli Gíslason lögmaður tekur
sæti mitt á meðan og þiggur laun
mín. Ég tel það kost að þingmenn
eigi sér annað líf fyrir utan Alþingis-
húsið,“ segir Kolbrún, sem ætlar nú
að láta gamlan draum rætast og
setja upp sýningu sem byggist á
ljóðum franska skáldsins Jaques
Prévert við tónlist Joesph Cosma.
„Þetta er svona París millistríðsár-
anna, sem hefur sterka skírskotun
til lífsins hér á landi í dag, þegar fólk
lifir sumt eins og hver dagur sé sá
síðasti," segir hún.
Það er leikflokkurinn Á senunni
sem stendur að sýningunni en
flokkinn stofnaði Kolbrún ásamt
Felix Bergssyni fyrir fimm árum og
stóð þá mikið til. „En þá féll ég allt í
einu inn á þing og hef verið þar síð-
an. Því hefur minna
orðið úr leikhús-
vinnunni en ég gerði
ráð fyrir."
Inn í sýninguna
verður skotið efni úr
kvikmyndum sem
Jaques Prévert skrif-
aði handrit að, en
annars verður þetta
söngur og dans þar
sem Jóhana Vigdís
Arnardóttir verður í
aðalhlutverki ásamt
Felix Bergssyni: „Þetta
er algjör hvfld. Ég var
að koma af fyrstu æf-
ingunni," segir Kol-
brún, ánægð með
skiptin á leikhúsinu og þinghúsinu.
fer leikhús
Lárétt: 1 næturgagn, 4
hörfa, 7 sýni, 8 sögn, 10
nöldur, 12 hest, 13 áslátt-
arhljóðfæri, 14 ekra, 15
trekk, 16 höfuðfat, 18
bylgja, 21 kjarr, 22
demba,23 skip.
Lóðrétt: 1 slóttug, 2 strit,
3 lundi, 4 hugsun, 5
kúga, 6 deila, 9 trufla, 11
jörð, 16 rámur, 17 dygg,
19 mjúk, 20 hagnað.
Lausn á krossgátu
■Qieoz 'U!|6l'nJUt's?1
91 'puntB tl 'egeuo 6'66e 9'e>|0 s'6ue6e>|uecj fr'jnjsejojd £ '|nd j'uæ^ \
'Qou6 £3'jn>|s zz'munj tð'epie 8L 'liet)
9t 'ðns si 'jn>|e f t ‘es\ed £t '>|?1 Zt '66eu ot 'O|ou 8'>|eiJn l 'e>|oc| p 'ddo>| t :n?Jen
Veðrið
-4 * *
Nokkur
vindur
týStrekkingu
-5
♦ *i
Nokkur
vindur
8* ♦ Strekkingur
e*a allhvasst
Strekkingur
* f
*
' ♦ ♦ Allhvasst eða
hvasst
*>
° Nokkur
vindur
’ 1 Nokkur
vindur