Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 Sport DV Larsson sagði nei við United Sænski markahrókurinn Henrik Larsson, sem leikur með Celtic í Skotlandi, hefur viðurkennt að hafa neitað Manchester United þegar það var á höttunum eftir honum tveimur árum eftir að hann gekk til liðs við Celtic. „Ég hafði verið hjá Feyenoord í Hollandi, þar sem fjölskyldunni gekk illa að koma sér fyrir. í Skotlandi voru hins vegar allir ánægðir og ég vildi ekki fara að rífa upp fjöl- skylduna og fara til Eng- lands án þess að vita hvernig lífið yrði. Ég sé ekki eftir því að hafa haldið áfram hjá Celtic þó að ég sé fullkomlega meðvitaður um það hversu góðum árangri Manchester United hefur náð," sagði Larsson en hann hefur verið einstak- lega farsæll hjá Celtic. Kompanytil Chelsea? Chelsea hefur áhuga á því að kaupa belgíska landsliðsmanninn Vincent Kompany frá Anderlecht sem stóð sig vel með liði sínu í meistaradeildinni fyrir jól. Kompany, sem er aðeins sautján ára, þykir vera einn efnilegasti varnarmaður megin- landsins og renna mörg af stórliðum Evrópu hýru auga til kappans. Hann skrifaði undir nýjan samning við Anderlecht í október en það er allt falt ef rétt verð er boðið. Á sama tíma að ári íslandsmeistarar IBV og bikarmeistarar Hauka í kvennahandboltanum tryggðu sér sæti f úrslitaleik SS-bikarsins annað árið í röð með sigrum í fyrra- kvöld. ÍBV vann tíu marka sigur á FH, 34-24, í Eyjum en Haukar unnu Gróttu/KR á Seltjarnarnesi, 31-32, eftir framlengdan leik. ÍBV (2001, 2002) og Haukar (2003) hafá unnið þrjá síðustu bikarmeistaratitla og munu mætast í bikar- úrslitaleiknum í þiðja sinn á fjórum árum. Formaður handknattleiksdeildar Hauka, Eiður Arnarson, hefur farið huldu höfði síðan Viggó Sigurðsson var rekinn sem þjálfari félagsins. DV Sport tókst loksins að ná tali af Eiði eftir margar tilraunir en hann hafði lítið að segja. Kemur engum viö Það er ekki ofsögum sagt að það hafi verið auðveldara að ná tali af sjálfum forsetanum en Eiði Arnarsyni, formanni handknattleiksdeildar Hauka, undanfarna daga. Það vakti að vonum gríðar- lega athygli að hann og félagar hans í stjórn Hauka skyldu segja Viggd Sigurðs- syni upp störfum í upphafi vikunnar. Engar útskýringar hafa hingað til fengist á því að þeir ráku Viggó og af hverju þeir völdu að gera það nokkrum dögum fyrir fyrsta leik Hauka eftir frí. Eiður var þurr á manninn, er DV Sport náði í hann í gær, og hafði litlar sem engar útskýringar á því að þeir ráku Viggó. DV Sport náði reyndar upp- haflega tali af Eiði seinni partinn á miðvikudag. Blaðamaður spurði Eið fyrst að því hvort hann væri í felum þar sem hann hefði ekkert svarað í síma allan daginn. Hann játti því og viðurkenndi reyndar að hann hefði ekki svarað símanum ef hann hefði vitað hver væri á hinum enda línunnar. Þá vildi hann nákvæmlega ekkert tjá sig en fékkst svo til að segja nokkur orð í gær: „Það er á milli okkar Viggós. Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Ég sé enga ástæðu til þess. Það kemur engum við," sagði Eiður, frekar pirringslega, spurður um ástæðu þess að stjórn Hauka rak Viggó. Skynsamlegt að breyta til Blaðamaður spurði í kjölfarið hvort honum fyndist að minnsta kosti ekki eins og stjórnin skuldaði stuðningsmönnum félagsins út- skýringu á því af hverju þeir ráku þjálfara sem hafði unnið níu titla á þremur árum með félagið. „Þeir eru nálægt okkur og ég er búinn að segja þér það sem ég ætla að segja um málið. Eins og þjálfaramál ganga fyrir sig er það þannig að á einhverjum tímapunkti telja tnenn skynsamlegt að breyta til og við töídum að það væri skynsamlegt að gera það núna. Ef hann hefði klárað þennan vetur hefði hannátt fjögur góð ár hjá okkur. Þannjg virkar þetta í þessum bransa," sagði Eiður. Heiðarleg tímasetning Tímasetningin á uppsögninni vakti mikla athygli og telja margir hana afar óskynsamlega. Eiður er ekki á sama máli. „Hún er í sjálfu sér ekkert óskynsamleg. Mér finnst nú frekar að það hafi verið heiðarlegt að gera þetta á þessum tíma. Annars ætla ég ekkert að tjá mig meira um þetta. Þetta er bara svona," sagði Eiður og vildi augljóslega fara að ljúka samtalinu. Blaðamaður var ekki sáttur við þau svör sem hann hafði fengið fram að þessu og spurði næst að því hvort stjórnin hefði virkilega haft trú á því að Viggó myndi klára tímabilið, vitandi að hann hefði ekki stuðning stjómarinnar. Gamli, nýi og formaðurinn Viggó Sigurðsson, fráfarandi þjálfari Hauka, Páll Ólafsson, arftaki Viggós, og Eiður Arnarson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, á meðan allt lék f lyndi á Ásvöllum. Svara ekki fleiri spurningum „Já, við gerðum það. En annars svara ég ekki fleiri spurningum," sagði Eiður og blaðamaður bað bara um að fá að spyrja einnar spurningar í viðbót en fékk neikvætt svar við þeirri bón. Spurningin var engu að síður látin fjúka, og snerist hún um það hvort fjárhagur handknattleiks- deildar Hauka væri í rúst og hvort það væri ástæðan fyrir því að Viggó hefði verið látinn fara. „Nei, það er úr lausu lofti gripið og algjörlega ótengt þessu máli." herry@dv.is Páll Ólafsson er tekinn við Haukaliðinu af Viggó Sigurðssyni en hefði gjarnan viljað taka við liðinu við aðrar aðstæður Klaufalegt mál í heild sinni Páll Ólafssön VaV f gær ráðirtn þjálfari meistaraflokks karla Hauka í handknattleik í stað Viggós Sigurðssonar. Páll var aðstoðarþjálfari hjá Viggó og mun stýra liðinu út þessa leiktíð. Páll segir að Viggó , Sigurðsspo eigi stóran þátt í ákvörðun sinni en Viggó vildi gjama að | PáiL .héjtji starfi þeirra félaga áfram. „Ég er búinn að ræða við forráðamenn Hauka og niðurstaðan úr þeim viðræðum er sú að ég mun stýra liðinu út þessa léiktíð," sagði Páll í samtali við DV Sport í gær. Páll sagði spurður að starfið legðist ágætlega í sig þótt vissulega hefði hann kosið að aðstæðurnar væm öðmvísi. „Þetta leggst ágætlega í mig. Maður hefði gjarna viljað koma öðruvísi að þessu en svona er þetta bara. Það er ekkert annað að gera en að kýla á þetta og gera bara gott úr því," sagði Páll og bætti við að markmiðin væru þau sömu og fyrr í vetur þrátt fyrir breyttar aðstæður. „Markmiðið hjá liðinu er að fara alla leið. Við höfum aðeins verið að hiksta undanfarið og það eru einhver smá meiðsl í gangi sem ég á eftir að skoða betur. Samt sem áður er takmarkið að vinna það sem í boði er hverju sinni." Erfitt að skorast undan Páll segir að hann hafi aldrei sett sér það markmið að verða aðalþjálfari liðsins. „Það vaf aldrei markmið hiá mér að verða aðaíþjálfari liðsinsí 1*g var bara að vinna með Viggó en úr því sem komið var þá átti maður erfitt með að skorast undan þegar leitað var til manns. Mér þykir vænt um félagið og ef ég get aðstoðað það í þrengingum þá er ég tilbúinn," sagði Páll og bætti við að það væri ágætis hljóð í mannskapnum. „Ég held það sé bara gott. Ég er reyndar aðeins búinn að vera utangátta síðustu tvo daga en það sem ég hef heyrt og veit er ágætt hljóð í leikmönnum." Átti ekki að fara svona Eins og áður segir hefði Páll kosið að taka við liðinu undir öðruvísi kringumstæðum og hann gefur ekki mikið fyrir það hvernig forráða- menn Hauka hafa unnið sína vinnu. „Mér finnst þetta mál klaufalegt f heild sinni. Ég held að þetta hafi farið klaufalega fram og því farið úr „Mér fínnst þetta mál klaufalegt í heild sinni. Ég held að þetta hafí farið kláufalega framog því farið úr böndunum." böndunum. Ég held að þetta hafi ekkert átt að fara svona," segir Páll, sem þrátt fyrir það ákvað að taka verkefnið að sér, og ein helsta ástæðan fyrir því var sú að Viggó hvatti hann til þess. „Ég ræddi við Viggó og hann sagði að ég ætti að taka verkefnið að mér. Það hafði mikið að segja." Eiður ánægður Eiður Arnarson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, var ánægður með að hafa fengið Pál sem aðalþjálfara í stað Viggós Sigurðssonar. „Palli er mikill Haukamaður. Var náttúrlega aðstoðarþjálfari og því er gott að halda honum áfram." henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.