Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 48
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað ÍDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ 24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000
• Hópur þýskra blaðamanna er
staddur hér á landi vegna útgáfu
á helstu lögum
i Stuðmanna í
Þýskalandi.
Blaðamennirnir vildu
að sjálfsögðu fá að sjá
Stuðmenn á sviði en
þá var úr vöndu að
ráða. Stuðmenn voru
nefnilega bókaðir á árshátíð
Lögfræðingafélagsins á Hótel
Sögu í kvöld og ekki þótti við
hæfi að fara með þýska blaða-
menn á slíka samkomu. Var því
úr að Stuðmenn hituðu upp fyrir
í svörtum fötum á Nasa í
gærkvöldi en það mun í fyrsta
sinn sem Stuðmenn hafa hitað
upp fyrir aðra...
• Barnaníðingurinn Ágúst
•"^lagnússon er nú á leið á bak
við lás og slá, dæmdur fyrir
djöfulskap sinn. Færri vita að á
sama tíma og hann vann ódæði
sín gegn ungum drengjum starf-
Ég sem drakk alltaf
í eldhúsinu!
aði hann á útvarpsstöðvum Fíns
miðils sem þá var til húsa £
Aðalstræti. Þar lék Ágúst létt lög á
síðkvöldum og spjallaði við hlust-
endur. Hafði hann sæmilega
útvarpsrödd sem var ekki £ neinum
tengslum við útlit hans eða
innræti...
• Útvarpsmaðurinn Ágúst var
duglegur að hlaupa i skarðið þegar
þurfti og var £ útsendingum þegar
aðrir vildu helst vera að gera
annað, svo sem um jól og
páska. Þó runnu tvær grfm-
ur á yfirmenn hans þegar i
ljós kom að vinnutfm-
ann notaði Ágúst ekki
si'st til að hlaða klámi inn á vinnu-
staðatölvu sfna. Var hann látinn
hætta og þá frekar vegna vinnu-
svika en þess sem nú er komið á
daginn og engan £ raun óraði
fyrir...
Opin eldhús og Unditli Úr tfski 2010
Tfskan er töff. Allir að fá sér opin
eldhús og hætta að drekka. Svo sem
ágætt. Eldamennskan rennur saman i
eitt við lífið f sjónvarpsholunni og fólk
hættir að verða sér til skammar fyrir
ffaman alþjóð og bömin sín. Þegar
Baltasar Kormákur hættir að drekka
er línan gefin. Þegar Björk fær sér
opið eldhús hrynja milliveggir hjá
öðmm.
En tískan er dýr. Svona eldhús
kostar ekki undir milljón og það hefur
reynst mörgum manninum dýrt að
hætta að drekka. Þá borga menn
reikninga frekar en bjór. Og bjórinn er
ódýrari en reikningar. En það má
ýmsu til kosta til að fjölskyldan
sameinist bláedrú í opnu rými.
í öllum menningarríkjum hefur
kvenfólk um aldaraðir búið tii mat í
litlum eldhúsum. Lokuðum rýmum
sem ekki vom allra. Gömul orðatil-
tæki segja okkur að betri matur sé
búinn til f litlum eldhúsum. Gott ef
það stendur ekki í Biblíunni. Að sjálf-
sögðu voru höfundarnir karlmenn
sem þannig vörðu rými sitt á heimil-
inu og settu konuna afsfðis með
eldamennskuna. Þeir gátu verið fullir
frammi á meðan. Spriklandi í sprútti.
Tískan hefur snúið sögunni upp á
kant. Og þegar þannig er snýst hún
aftur í fyrra horf fyrr en varir. Þegar
búið verður að brjóta niður alla milli-
veggi f húsum á íslandi og allir standa
í opnum eldhúsum, allsgáðir yfir
pottunum, knýja breytingarnar á.
Liggur í eðli hlutanna.
Spái því að þetta taki fimm ár.
2009 eða 2010. Þá verður milliveggj-
unum skutlað upp aftur og eldhúsið
lokað af. Tappar teknir úr rauðvíns-
flöskum í öll mál. Bjórinn sötraður
þess á milli.
Legg þó til að fólk bfði með
breytingar og detti ekki endilega í það.
Því opnu eldhúsin og sjálfssprottið
átak þjóðarinnar til að halda sér edrú
á eftir að dúkka upp aftur. Efúr svona
fimmtán ár. 2019 eða 2020.
Vinsælasti fjölskyldumeölimurinn - 7 sæta
<r
á
HYunam
Aðalstyrktaraöili
Hyundai Trajet GLS - 7 manna, sjálfskiptur kr. 2.390.000 / beinskiptur kr. 2.290.000
Kr. 25.651* á mánuði fyrir beinskiptan Trajet
Mánaðargreiðsla miðast við 70% bílalán af grunnverði til 84 mánaða meðalgreiðsla.
HYUnDFII
hefur gæðin
:-'GrjQthálsi-l' síml.575 -1200 www.bl.is