Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 Fréttir DV Háskólinn bakkar Háskólaráð hefur ákveðið að láta undan kröfum stúdenta um að fresta greiðslu skráningargjalds. í stað þess að greiðslufrestur nái til 26. mars, eða byrjun maí, eins og síðar varð, gefst stúdentum nú kostur á að greiða gjaldið fram til 4. júní. Hingað til hefur fresturinn gilt til 20. ágúst. Horið er hollt Austurríski vísinda- maðurinn Friedrich Bischinger heldur því fram að þeir sem bori í nefið séu heilbrigðari, hamingju- samari og í betra sambandi við eigin líkama en annað fólk. Þeir sem bora í nefið styrkja ónæmiskerfið. Sprengjumaður fékk 1.600 14 ára gamall palestínskur drengur, hlaðinn sprengiefnum, var stöðvaður af ísraelskum hermönnum við öryggishlið nærri borginni Nablus á Vesturbakkanum á miðvikudag. Drengurinn fékk ígildi 1600 íslenskra króna, eða hundrað sjekel, fyrir viðvikið en móðir hans átti að fá peninginn. Forsjáll pólitískur langhlaupari, sem setursér markmið langt fram í tímann. Einstaklega greiðvikinn og hjálpsamur við fólk og gengur undir högg fyrir vini sína þegar að þeim er veist. Gríðarlega vinnusamur og sér um að öll verk séu framkvæmd. Sífellt í símanum að reka erindi og að setja sig vel inn í mál. Eigandi skammbyssunnar í Selfossmálinu segir byssuna hafa verið geymda í læstum skúr. Sonur hans, fyrir áeggjan félaga síns á Selfossi, hafi platað móður sína til að opna skúrinn. Byssan hafi verið í kassa í skúrnum eftir nýafstaðna flutninga. Hann segir byssuáhuga sinn vera horfinn og muni aldrei vakna aftur. Strákar lugu sig inn í skammbyssuskúr „Ég var búinn að segja við konuna að hleypa krökkunum alls ekki inn í bílskúrinn,“ segir Hilmar Þór Karlsson, sjómaður og fyrrverandi skammbyssueigcmdi í Hveragerði. Það var úr Ruger-skammbyssu Hilmars Þórs sem skot hljóp í höfuð Ásgeirs heitins Jónsteinssonar á Selfossi. Byssan var geymd í bílskúr Hilmars. Hilmar Þór Karlsson er sjómaður á frystitogara. Hilmar kom af sjónum á fimmtudag eftir fimmtán daga úthald. Þá voru liðnir tíu dagar frá voðaatburðinum á Selfossi. Sögðust ætla að ná í fjarstýrðan bíl Hilmar segist hafa flust með fjölskylduna frá Suðurnesjum til Hveragerðis fyrir stuttu. Ruger- skammbyssan hafi enn verið, ásamt ótal öðrum hlutum úr búslóðinni, í kössum út í bílskúr þegar hann fór á sjóinn um daginn. Hilmar segir byssuna í raun hafa verið geymda á tryggilegan hátt. „Ég er nýfluttur og það var allt meira og minna ennþá ofan í pappakössum. í þessum flutningum raskast mikið hjá manni. Ég var með byssuna í tösku og geymda ofan í kassa. Skotin lenda á svipuðum stað og byssan. Síðan var bílskúrinn læstur og ég reiknaði ekki með að þeir kæmust í þetta," segir Hilmar. Áður en Hilmar fór á sjóinn segist hann hafa gefið konu sinni áðurnefnd fyrirmæli um að opna ekki skúrinn fyrir börnunum. „Ég vissi af byssunni og var búinn að fara út í skúr að leita að henni en fann hana ekki í öllu dótinu. En sonur okkur og þessi drengur frá Selfossi plata lykilinn út úr konunni með því að segjast ætla að ná í fjarstýrðan bíl sem þar var,“ segir Hilmar. Sonurinn æstur upp í að taka byssuna Hilmar segir son sinn hafa vitað af byssunni og sagt vini sínum frá henni. Þeir séu félagar frá því fjölskyldur þeirra beggja bjuggu í sama bæjarfélagi suður með sjó. „Hinn æsir hann upp í að fá lyklana, fara inni í bílskúrinn og taka byssuna. Þeir fela byssuna og skila lyklunum. Síðan fara þeir og leika sér með byssuna fyrir utan bæinn," segir Hilmar Þór. Drengurinn af Selfossi náði í vopnið á felustaðinn mánudaginn 15. mars. Ásgeir Jónsteinsson varð fyrir skoti úr byssunni um klukkan hálfátta að kvöldi þess dags. Hilmar segir skotvopn ekki vera hættuleg í höndum manna sem kunni með þau að fara. „En um leið og þau eru komin f hendurnar á þeim sem kunna ekki með þau að fara eru þau orðin stórhættuleg," útskýrir hann. „Það er bara vitleysa. Þessi byssa hefur aldrei verið biluð. Það er eitthvað annað en byssan sem er bilað." Ekkert mál að kaupa byssur Að þvf er Hilmar segir keypti hann skammbyssuna fyrir sjö árum. Það segist hann hafa gert þegar hann var í fríi í Evrópu en vill ekki segja til um í hvaða landi það var né hvernig hannn flutti byssuna til landsins. „Það er alls staðar hægt að kaupa byssur á svarta markaðnum," segir hann. Lögregla hefur . rannsakað þá kenningu að skammbyssan hafi verið biluð; hafi staðið á sér og ekki alltaf hleypt af skotum þegar tekið var í gikkinn. Þessu hafnar Hilmar: „Það er bara vitleysa. Þessi byssa hefur aldrei verið biluð. Það er eitthvað annað en byssan sem er biluð." Ég framdi ekki verknaðinn Hilmar hefur verið yfirheyrður hjá lögreglu. Hann segist eiga von á einhverjum eftirmálum hvað sig snerti. „Byssan er óskráð og þar af leiðandi er ég brotlegur. En ég framdi ekki verknaðinn. Minn feill er að ég á þetta vopn. Þetta endaði með skelfingu. Það er svakalegt að verða fyrir þessu. Öll fjölskyldan er miður sín,“ segir Hilmar. Sjálfur segist Hilmar aðeins hafa verið á að giska tíu ára strákur í sveit þegar hann fyrst meðhöndlaði skotvopn. „Þetta var áhugamál hjá mér en ég er búinn að losa mig við mín vopn að mestu," segir Hilmar aðspurður hvort hann sé með fleiri byssur. „Byssuáhuginn var farinn að minnka - og nú er hann horfinn. Byssur verða aldrei aftur mitt áhugamál," segir Hilmar Þór Karlsson. gar@dv.is Landsbankinn stelur aðallögfræöingi frá Fjármálaeftirlitinu Fylgdist með Landsbankanum, ráðinn til hans Landsbankinn hefur ráðið Hannes Hafstein einn af aðallögfræðingum Fjármála- eftirlitsins sem lögfræðing á verðbréfasviði. Hann er hættur en tekur ekki til starfa hjá Landsbankanum fyrr en eftir mánuð. Fyrir fáeinum mánuðum var Hannes lykilmaður í því að setja eigendum Landsbankans skilyrði til að þeir gætu eignast ráðandi hlut í bankanum og hann hefur einnig tekið þátt í rannsókn eftirlitsins á viðskiptunum' 18. september þegar fjölmörg fyrirtæki skiptu um hendur. Þar lék Landsbankinn lykilhlutverk í umbreytingunum og í þeim dansi, stofnuðu eigendur ráðandi hlutar í Landsbankanum félagið Samson Global Holding sem þátttakanda í atburðarásinni. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að Hannesar verði vissulega saknað en þetta sé veruleikinn sem Fjármálaeftirlitið búi við; það sé í samkeppni við fjármálafyrirtæki um gott starfsfólk. „Starfsfólk okkar hefur byggt upp þekkingu sem nýtist fjármálafyrirtækjum þannig að það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að bankar sækist eftir þeirra starfskröftum," segir Páll Gunnar. Hann tekur fram að þau verk sem Hannes hafi tekið þátt í hafi verið hópvinna. Ársæll Hafsteinsson fram- kvæmdastjóri lögfræðisviðs Lands- bankans segir að ákvörðun hafi verið tekin um að styrkja lögfræðihliðina á verðbréfasviðinu. „Við leituðum að góðum manni sem hefði þekkingu á verðbréfa- viðskiptum og bankalögum og teljum okkur hafa fundið hann í Hannesi," sagði hann. Ársæll aftekur með öllu að ráðning Hannesar tengist nokkuð því að hann hafi verið að vinna í málum Landsbankans hjá Fjármála- eftirlitinu. „Þetta er ótengt hans fyrri vinnu," segir hann. kgb@dv.is Páll Gunnar Pálsson Forstjóri Fjármálaeftirlitsins sér á eftir lykilstarfsmanni til Landsbankans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.