Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 Fréttir DV Velja ekki slysatryggingu Innan við 40% framtelj- enda óskuðu eftir því á síð- asta ári að kaupa slysatrygg- ingu á heimilum með því að samþykkja 400 króna greiðslu iðgjalds á skatt- framtali samkvæmt upplýs- ingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Framtalsfrestur ein- staklinga er að renna út en með því að merkja við reit á skattframtalinu sem merkt- ur er: „slysatrygging við heimilisstörf ‘ geta framtelj- endur keypt sér tryggingu. Skattalækkun íhættu Boðaðar skattalækkanir stjórnvalda eru í hættu. Alla- vega myndu þær ekki sam- ræmast boðaðri stefnu um aðhald í peningamálum eins og og stefnir með þróun efnahagslífsins. Samkvæmt tölum Hagstofunnar var halli á fjármálum hins opin- bera á síðasta ári 11 millj- arðareðal,4% aflands- framleiðslu. Bæði ríkissjóður og sveitarfélögin voru rekin með halla en munurinn er sá að á meðan hallinn á fjár- málum sveitarfélaganna minnkar eykst halli ríkis- sjóðs hratt á milli ára. Átröskun langveiki Böm með átröskun em nú skilgreind lang- veik vegna geðröskunar- innar lystarstols og for- eldrar þeirra eiga rétt á fjárhagsaðstoð frá Trygg- ingastofnun ríkisins vegna veikinda bamanna og útgjalda í tengslum við meðferð. Átraskanir em alvarlegar geðraskan- ir sem í sinni alvarlegustu mynd leiða til dauða. Bílainnbrot í liðinni viku hefur tals- vert verið um innbrot í bfla á svæði Hafnarfjarðarlög- reglunnar. Þannig hefur verið tilkynnt um níu slík innbrot frá mánudegi til föstudags. Lögreglan í Hafnarflrði vill hvetja íbúa til að læsa bflum sínum og geyma ekki verðmæti á glámbekk. Einnig er al- menningur beðinn um að tilkynna gmnsamlegar mannaferðir til lögreglu. Anna Heiða Pálsdóttir, skrifstofustjóri Fjarðaáis. Sjómaður í Hafnarfirði stendur í baráttu við fyrrverandi eiginkonu sína í Vestmannaeyjum fyrir héraðsdómi Suðurlands. Segir að meðlagskrafa konunnar sé ávísun á gjaldþrot. Eiginkonan segir að meðlagskrafan sé formsatriði af hálfu lögfræðings og ekki komi til greina að þiggja svo háa Qárhæð þótt hún sé dæmd henni. Kralinn um nífalt mefilag með hremur börnum f héraðsdómi Suðurlands er nú rekið mál Davíðs Þórs Einars- sonar sjómanns í Hafnarfirði gegn fyrrverandi eiginkonu sinni Maríu Pétursdóttur hárgreiðslukonu í Vestmannaeyjum. Um er að ræða forsjármál en þau eiga þrjár dætur saman. f málinu er gerð krafa um að Davíð greiði allt að nífalt rrieðlag með þessum þremur börnum eða tæplega 150.000 kr. á mánuði. Davíð segir að þetta sé ávísun á gjaldþrot hans. María segir á móti að þessi krafa sé aðeins formsatriði af hálfu lögfræðings hennar og ekki komi til greina að þiggja svo háa fjárhæð þótt hún verði dæmd henni. Hún hafí reynt að fá lögfræðing sinn til að breyta þessari kröfu og segir að einfalt meðlag með dætrunum sé nóg. Davíð Þór er óánægður með þann mismun sem gerður er á föður og móður í málum sem þessum. Hann nefnir sem dæmi að hún fái gjafsókn í málinu en hann hafi neyðst til að selja bflinn sinn til að greiða lögfræðing sínum. „Hún hefur börnin hjá sér og vill að ég taki þau aðra hverja helgi. Þau verða að koma með flugi og slíkt kostar mig um 40.000 krónur á mánuði," segir Davíð. Valborg Snævarr lögmaður Maríu leggur áherslu á að krafan sé „allt að“ og að hún áskilji sér rétt til lækkunar á kröfunni í samræmi við tekjur föðurins. Krafan sé eingöngu sett fram til að fá uppgefið hverjar tekjur föðurins séu í raun. Erfitt að komast frá vinnu Davíð segir að hann eigi erfitt með að taka við dætrum sínum fast aðra hverja lrelgi vegna vinnu sinnar. Hann er lausamaður á báti frá Reykjavík og ef hann verður dæmdur til að taka dætur sínar að sér með þessum hætti verði hann að missa af öðrum hvorum túr með bátnum. Slíkt sé ekki gott upp á fjárhaginn. Hann vill heldur að hann fái að sjá um dætur sínar eftir lauslegra plani. Garðar Baldvinsson formaður Félags ábyrgra feðra segir að félagið hafi gert tillögu um það að í tilfellum þar sem feður eigi erfitt með að sinna umgengniskyldum sínum gagnvart börnum verði þeim gert að umgangast börnin 118 daga á ári. eftir aðstæðum hverju sinni. „Það hefur verið einblínt einum of lengi á þessa aðra hverja helgi eins og einhvern stóra sannleik í umgengni feðra við börn sín segir Garðar. Vil að hann sinni skyldum sínum María Pétursdóttir segir að hún vilji einfaldlega að Davíð Þór sinni skyldum sínum sem faðir gagnvart dætrum þeirra. Hún segir einnig að krafan um meðlög sé ekki frá henni komin eins og að framan greinir enda er henni enginn akkur í að Davíð sé gert ókleyft að hitta dætur sínar vegna skorts á peningum. „Ég vil bara að hann taki þátt í fram- færslu barna okkar eins og lög gera ráð fyrir," segir María. Ekki hagur barnsins Davíð Þór segir að í þessu máli sé María ekki að hugsa um hag barna þeirra heldur sé málareksturinn til kominn vegna „græðgi" hennar. „Hún rekur hárgreiðslustofu og samt sem áður gefur hún aðeins upp tekjur upp á um 47.000 krónur á mánuði," segir Davíð Þór. „Frá upp- hafi vildi ég að við hefðum sameigin- legt forræði með börnunum en það hefur hún ekki viljað fallast á en gerir kröfu í staðinn upp á nífalt meðlag." Davíð Þór Einarsson Meðlagskrafan erávisun á gjaldþrot. I love you... í draumum sínum á Svarthöfði sér ástmey á laun. Eins gott að segja það og skrifa. Dorrit Moussaieff er Svarthöfða hugleikin á þann hátt sem jákvæðastur þykir í sam- skiptum kynjanna. I dag stígur Svarthöfði fram og játar ást sína á Dorrit því honum ofbýður ýmislegt sem forsetafrúin hefur þurft að þola frá íjölmiðlum sem sjást ekki alltaf fýrir þegar hún er annars vegar. Dorrit Moussaieff hefur flest það til að bera sem góða konu prýðir. Ekki þarf annað en að sjá bros Hvað liggur á? „Ég hefþað stórfint - gæti varla haft það betra. Veðrið er búið að vera svo yndislegt og vinnan gengurvel. Það gengur allt vel hér þó það sé leitt að heyra siæmar fréttir utan úr heimi." Svarthöfði hennar til að lifna við. Jafnvel þó það sé aðeins á prenti. Að auki er Dorrit heimskona sem bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferða- mennirnir hvort sem hún ferðast með Iceland Express eða Icelandair. Þar sem Dorrit flýgur verður flugið ævintýri. Hún er lflcust prinsessu í fallegri sögu þar sem allt byrjar vel og endar enn betur. Þá hefúr Svarthöfði alltaf verið veikur fyrir klæðaburði hennar. Dorrit hefur efni á að klæða sig vel og gerir það. Ógleymanlegar eru myndir af henni í Trabant-partíinu á Bessastöðum í latex-vesti og stíg- vélum í stfl. í raun æsandi fögur. Og hún kann líka að stemma stigu við öfgum í klæðaburði og er oftar en ekki settleg til fara og ekki bara forsetanum heldur allri þjóðinni til sóma. Á íslandi hefði aldrei fundist kona sem lyft hefði getað forseta- embættinu yfir dægurþras og til- gerðarlega hálfvelgju opinberrar sýndarmennsku. Dorrit er sönn og heil þar sem hún fer. Og Bessastaðir og forsetinn fylgja með. Það er von Svarthöfða að Dorrit reki augun í þessar línur og því kýs hann að Ijúka orðum sínum á ensku: Dear Dorrit! I love you very much. You 're the queen of my dreams and the sunshine ofmylife. Isincerely adore yourstyle. Iknowthatyou willnever be mine but I will dream on and hope. With love and best regards, Blackhead

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.