Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Side 30
30 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004
Fókus DV
Börn drepa börn Strákamir hittu
James I verslunarmiðstöð en James
hafði týnt mömmu sinni.
Árið 1993 myrtu tveir tíu ára
drengir, Robert Thompson og
Jon Venables, hinn tveggja ára
James Bulger. Bretar og allur
heimurinn var skelf-
ingu lostin yflr at-
burðinum en
drengirnir rákust á
Bulger í verslunarmið-
stöð þar sem hann
hafði týnt mömmu
sinni. Þeir gengu með
hann marga kílómetra
á meðan þeir íhuguðu
hvað gera skyldi við
drenginn. Að lokum
börðu þeir hann með
grjóti og járnstöng og
lögðu hann svo, nær
dauða en lífi, á járn
James Bulger
Hinn tveggja
ára James var
ieiddur marga
kilómetra þar
sem hann var
barinn og
drepinn.
brautarteinana. Lestin klippti
líkamann í tvennt. Eftir 8 ár, 4
mánuði og 10 daga sluppu
ungu morðingjarnir úr fangelsi
sem fullorðnir menn. Til að
tryggja öryggi þeirra fékk lög-
reglan þeim ný persónuskilríki
en yflrvöld á Nýja-Sjálandi hafa
boðið mönnunum landvistar-
leyfi svo þeir geti byrjað nýtt líf.
Góðlegi strætó-
bílstjórinn
í Frakklandi er
þessa dagana
réttað yftr sjötug-
um, fyrrum
strætóbflstjóra,
Emile Louis. Aðalvitn-
in gegn honum eru eiginkona
hans, dóttir og stjúpdóttir. Þær
hefur hann kvalið reglulega
síðasta áratug; nauðgað þeim,
bundið, keflað, skorið og meitt.
Dóttirin segist hafa lifað við
þetta frá fimm ára aldri, því
hún hafi aldrei horft í augu
hans eða kallað hann föður.
Hann sé ekkert annað en rán-
dýr, velji fórnarlömb sín af
kostgæfni, njóti þess að veita
þeim eftirför og sé ekki eins
geggjaður og hann láti. Þar vís-
ar hún til annarra glæpa Emile
Louis, réttarhöld vegna þeirra
hefjast á hausti komanda. Þá
svarar hann fyrir rán, nauðg-
anir og morð á sjö ungum
stúlkum í sinni heimasveit.
Dóttir hans segir hann að auki
líta á innbrot og þjófnaði sem
hvert annað tómstundagaman.
Emile Louis neitar staðfastlega
öllum ásökunum.
Lyric Benson var ung og myndarleg leikkona í New York. Líf hennar breyttist í
martröö þegar hún vildi losna úr sambandi við kærastann sinn.
Heitan eftirmiðdag í apríl 2003 gekk Lyric Benson ásamt móður
sinni í neðra hverfi Broadway í New York-borg. Lyric stöðvaði
göngu sína og leit upp á stórt auglýsingaskilti. „Sjáðu mig! Ég er
stærri en lífið!“ Sagði hin 22 ára leikkona og fyrirsæta og benti á
myndina af sjálfri sér. „Þetta var í fyrsta skiptið í marga mánuði
sem ég heyrði hana hlæja," sagði móðir hennar Debra Jacicke
lögreglunni nokkrum dögum seinna.
Sérstæð sakamál
„Hún hafði verið mjög annars
hugar upp á síðkastið, alltaf með var-
ann á sér ef Ambrosino lét sjá sig.
Hann var að eyðileggja líf hennar."
Robert Ambrosino var 33 ára al-
ræmdur kvennamaður. Velklæddur,
tungufimur sjarmör sem drakk að-
eins besta viskflð og borgaði alltaf
reikninginn. Hann var ávallt með
seðlabúntin á sér og vinir hans
ákváðu fljótt að forvitnast sem
minnst um alla þessa peninga. Hann
var hress og bókað mál var að ef
Ambrosino mætti var alltaf mikið
stuð enda þekktur djammari. Allir
barþjónar og dyraverðir hverfisins
þekktu hann og hann naut mikilla
vinsælda. En vinir Lyric drógu aðra
og dökkari mynd upp af fyrrverandi
kærasta hennar. Síðan þau höfðu
hætt saman íyrir fimm vikum hafði
Lyric verið dauðhrædd við hann.
Hann bar alltaf með byssu á sér og
elti hana hvert sem hún fór og neit-
aði að skilja að hún vildi ekkert með
hann hafa.
Skrautleg fortíð
Þau hittust fyrst þegar Lyric hafði
fengið skólastyrk í Yale fýrir leik-
listarhæfileika sína. Eitt haustkvöld
árið 2000 hafði hún tekið upp sím-
ann á skólavistinni og hringdi í út-
varpið til að biðja um óskalag. Lagið
var „All by Myself' en Lyric hafði ný-
lega hætt með kærastanum sínum
og flutt langt fr á fjölskyldu sinni til að
einbeita sér að náminu og leiklistar-
ferlinum. Þetta kvöld var Ambrosino
að vinna í útvarpinu og sagði lagið
líka uppáhaldið sitt og hversu fallega
rödd hún hefði. Þau ákváðu að hitt-
ast og byrjuðu fjótt saman. Vinir Lyr-
ic höfðu efasemdir um þennan eldri
mann með dularfullu fortíðina en
Lyric lét sér ekki segjast. Vinkona
Hæfileikarík Lyric hafði fengið litið hlutverk
í Law and Order.
hennar, Paloma Nuntzia, minntist
Ambrosino sem hermannaklæddum
manni sem ávailt bar á sér byssu og
dreifði myndum af sjálfum sér. Hann
sagðist meðlimur í leynilegum hern-
aðarhóp og hafa tekið þátt í hernað-
araðgerðum um allan heim. Annarri
vinkonu sagðist hann vera í CLA.
Sannleikurinn var fjarri lagi. Hann
hafði verið í hernum en var rekinn
eftir tvö ár og þar eftir unnið á út-
varpsstöð. Hann hafði lokið nám-
skeiði fyrir verðandi slökkviliðsmenn
og beið eftir að komast að hjá New
York-borg. Hann var á sakaskrá fyrir
ólöglega byssueign og lítið magn af
kannabis.
Eftir útskrift dreif Lyric sig til New
York og fékk vinnu á veitingastað á
milli þess sem hún mætti í pmfur. I
maí 2002 ákvað hún að flytja inn til
Ambrosino og fékk vinnu á Balthaz-
ar, bar sem var í nágrenninu.
Ambrosino leit við öll kvöld og fljót-
lega höfðu allir heyrt hans útgáhi á
afrekum hans. „Hann kom hingað
nær öll kvöld," sagði Jimmy Holt,
barþjónn á Balthazar. „Vinir mínir
sögðu mér að hann væri dópsali en í
hvert skipti sem ég spurði hann um
staríið skipti hann um umræðuefni.
Ailir hér þekktu hann undir nafninu
.„Fast Bobby" og honum líkaði það
nafn enda passaði það vel við hann.
Fyrir ca. mánuði gekk ég inn á hann
þar sem hann var að sjúga kók í nef-
ið. Þegar hann klæddi sig í jakkann
sá ég glitra í byssuna og spurði hvað
í andskotanum
hann væri að gera
með byssu."
Ambrosino sagð-
ist þurfa á henni
að halda því í
hans bissness
yrði maður að
hafa varann á.
Lyric gekk
alltaf betur og
betur í bransan-
um, þrátt fyrir að
Ambrosino gerði
allt sem hann
gæti til að draga
úr sjálfstrausti hennar. Fyrsta breikið
kom þegar hún fékk lítið hlutverk í
lögregludramanu „Law and Order:
Criminal Intent", og eins kaldhæðið
og það er þá fjallaði þátturinn um
mann sem elti fyrrverandi kærustu
sína hvert sem hún fór.
Robert Ambrosino
Eiskaði Lyric svo mik-
ið að hann gat ekki
lifað án hennar.
Lyric Benson Ung og upprennandi leikkona og fyrirsæta sem átti framtíðina fyrir sér.
Hvert sem ég lít sé ég hana
Um svipað leyti sneri Lyric sér
aftur að trúnni. Hún hafði verið alin
upp í kristinni trú og ákvað að mæta
aftur í messur en fannst óþægileg að
búa ógift með manni og var orðin
þreytt á stjórnseminni f Ambrosino.
I febrúar 2003 flutti hún út og fann
sér litla íbúð í Kínahverfmu. „Við
báðum hann að hætta að elta
hana," sagði Holt. „En ég sá hann
bíða eftir henni þegar hún kláraði
vaktir og hann hringdi stöðugt í
hana, jafnvel tíu sinnum í röð. Hann
var farinn að hringja í mig, grátbiðj-
andi um að tala við hana." Lyric var
orðin svo hrædd að hún bað móður
sína að koma til sín. Við komu
Debru slakaði hann aðeins á og vin-
ir hennar sáu Lyric brosa aftur í
fyrsta skiptið í langan tíma. En ró-
legheitin stóðu ekki lengi yfir.
Ambrosino fann sér nýja íbúð í ná-
lægð við Baltazar. Þegar hann sá
veggspjöldin af henni brjálaðist
hann. „Hvert sem ég lít sé ég hana.
Hún er alltaf í andlitinu á mér. Ég
get ekki haldið áfram að lifa svona,"
sagði hann leigusala sínum.
Kvöld eitt seint í aprfl gengu þær
mæðgur í rólegheitum heim úr
kirkju og tóku ekki eftir Ambrosino
hangandi í skugganum. Þegar Lyric
snéri lyklinum í skránni stökk hann
úr myrkrinu og skaut hana af stuttu
færi í andlitið. Móðir hennar æpti
upp yfir sig í örvæntingu um leið og
Ambrosino skaut sjálfan sig í haus-
inn. Lyric náði aldrei meðvitund og
lést eftir að móðir hennar hafði
heimilað líffæragjöf. Enginn sakn-
aði Ambrosino og enginn nálgaðist
eigur hans. Hann hafði skilið eftir
bréf til ættingja sinna en enginn
sýndi því áhuga. „Þetta er eins og í
Rómeo og Júlíu," sagði fyrrverandi
leigufélagi Ambrosino. „Hann
elskaði hana svo mikið að hann gat
ekki lifað án hennar." Vinir Lyric litu
öðrum augum á atburðinn. Þegar
Paloma vinkona hennar kom heim
daginn eftir beið hennar bréf frá
Lyric. í bréfinu var útklippt auglýs-
ing af vinkonu hennar og texti með.
„Nú þegar ég er stjarna gleymi ég
ekki vinum mínum." „Þvflík sóun,"
sagði Paloma. „Lyric var virkilega að
slá í gegn."
Drap börnin í von um
að ná kærastanum aftur
Nokkrum dögum eftir hvarf barna sinna viðurkenndi Susan Smith að saga
hennar um atburðarásina væri lygi. Susan hafði drekkt börnum sín-
um með því að láta bfl sinn renna ofan í á, í von um að kærastinn tæki
hana aftur nú þegar börnin voru úr sögunni. Mörg hundmð leitar-
menn og sjálfboðaliðar tóku þátt í leit að manni sem Susan sagði
hafa brotist inn á heimilið og tekið börnin og bflinn. Susan fór í
beina útsendingu í sjónvarpinu þar sem hún
grátbað um börnin og fékk samúð frá millj-
ónum manna sem trúðu sögu hennar. Á
þeim tveimur vikum sem rannsóknin
stóð yfir áætlaði lögreglan að um 40 börn
hefðu verið drepin af mæðmm sínum í
Bandaríkjunum. Susan slapp við raf-
magnsstólinn en mun sitja inni ævilangt án
möguleika á áfrýjun.
hættulegustu glæpa-
■ mennirnir á lista FBI.
§ 50 þúsund dollumm er
JL heitið íyrir upplýsingar
sem leiða til handtöku þeirra. Þeir
em allir taldir vopnaðir og gríðalega
hættulegir.
Osama Bin Laden: Tengist
ýmsum hryðjuverkaárás-
um sem dregið hafa fjölda
manns til dauða.
Michael Alfonso: Sat fyrir og drap
tvær fyrrverandi kæmstur sínar.
Hopeton Eric Brown: Morð, eitur-
lyfjasala, morðtilraun á vitni.
James J. Bulgen Morð, peninga-
þvætti, eiturlyfjasala.
Victor Manuel Gerena:
w ^ Rændi 7 milljónum doll-
Genero Espinosa Dorantes: Pyntaði
fjögurra ára stjúpson sinn til dauða.
Glen Stewart Godwin:
Braust út úr fangelsi eftir
að hafa framið nokkur
morð.
Donald Eugene Webb:
Skaut lögregluþjón til
bana eftir að hafa barið
hann með járnröri.
Robert William Fishen Drap konu
sína og tvö böm.
Richard Steve Goldberg: Sekur um að
misnota fjöldann allan af börnum.