Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Side 22
22 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 Fókus DV Ungt fólk er alltaf upptekið. Samt er eins og það geri aldrei neitt. Allir vilja eiga allt en enginn nennir að vinna fyrir því. Samt virðist ungt fólk komast yfir eyðslu og neyslu sem slær allt út. Þetta er fólkið sem neitar að fullorðnast og taka á sig ábyrgð. Það vill helst spila tölvuleiki allan daginn, fara á fyllirí hverja helgi og eyða megninu afpeningunum sínum í föt. DV ræddi við nokkra einstaklinga afþessari kynslóð og spurðist fyrir um letina, neysluna, tímaskortinn og hvort allt væri raunverulega að fara til fjandans. Kynslóðin sem nú og síðustu ár hefur verið að skila sér út á vinnumarkaðinn hefur verið kölluð alls kyns nöfnum. Ekki hefur þó tekist að festa neitt ákveðið nafn á hana en rökréttast væri að kalla hana Pan-kynslóðina. Það er nefnilega einkennandi fyrir ungt fólk í dag að það neitar að sæta sig við gang lífsins og hina óhjákvæmilegu elli sem óðfluga nálgast. Þetta fólk á það sameiginlegt með Pétri Pan að neita að fullorðnast. Festust í afþreyingunni „Fólk af þessari kynslóð eignast börn miklu seinna en aðrir og lifir meira í einhverjum djamm- eða hobbítengdum heimi. Fyrir nokkrum árum var t.d. ekki eins mikið af 30 ára gömlu fólki á djamminu. Mér finnst þess vegna eins og að þessi kynslóð sé dálítið að fresta því að fara í fjöl- skyldupakkann," segir Pétur Yngvi Yamagata í versluninni Nexus. Margir hafa haldið því fram að kynslóðin í dag sé löt, neiti að takast á við lífið og vilji helst halda áfram að vera unglingar með litla sem enga ábyrgð. Þetta á að sjálfsögu ekki við um alla en drjúgur hluti þessarar svokölluðu Pankynslóðar virðist þó þjást af þessum einkennum. „í versluninni hjá mér er t.d. ekkert óal- gengt að sjá pabba koma inn með strákana sína og hafa alveg jafn mikinn, ef ekki meiri, áhuga á því sem þeir eru að skoða en krakk- arnir. Þetta kann að skýrast af því að afþreying var af skornum skammti hérna áður fyrr og að þeir sem ólust upp við að henda grjóti niðri í fjöru hafi hreinlega fríkað út með tilkomu tölvuleikja og vídeotækja," segir Pétur sem vill meina að börn nútímans eigi ekki eftir að fest- ast í afþreyingunni líkt og foreldrar þeirra eða eldri systkini. „Það læðist að mér sá grunur að krakkar á aldrinum 6-10 ára eigi bara eftir að mettast af tölvuleikjum og þess háttar þegar fram líður enda finnst mér ákveðin stöðnun hafa orðið í þeim geira.“ Siðferðisklikk og skuldasúpa Elísabet Ólafsdóttir háskólanemi og blogg- ari tekur undir með Pétri Yngva og segir um- rædda kynslóð vera einhvers konar umbreyt- ingakynslóð sem hafi flækst á milli bóka og tækninýjunga. Hún segir þetta fólk gera eins lítið og mögulegt er og vanta ákveðið vinnu- siðferði. „Þessi umbreyting frá bókum yfir í tölvur - reglu yfir í óreglu - varð þegar við vor- um unglingar og hefur eflaust ruglað marga í ríminu. Það er eins og það hafi orðið eitt- hvað siðferðisklikk hjá þessari kynslóð. Fólk gerir bara það sem það þarf að gera og ekkert meira. Mörg- um finnst t.d. ekkert sjálfsagðara en að nýta sér sína tvo veik- indadaga í mánuði bara af því að þeir eiga rétt á þeim,“ segir Beta sem telur þó að sín kynslóð muni leiða af sér margt gott fyrir þá næstu. Hún bendir líka á rannsóknir sem sýna fram á að kynslóðin á eftir, þ.e. börn sam- tímans, eigi miklu auðveldara með einbeit- ingu en ungafólkið í dag. „Ég get líka alveg verið sammála því að þessi kynslóð sé föst í unglingaímyndinni. Ef við gefum okkur að það að vera fullorðin sé t.d. að taka ábyrgð á sínum fjármálum þá sést vel að fólk er enn upptekið af ungdómnum. Það eiga allir allt en skulda miklu meira en þeir hafa hugmynd um.“ Þessar fullyrðingar Elísabetar eiga við rök að styðjast enda eru flestir á tvítugsaldrinum með yfirdrátt upp á nokkur hunduð þúsund, kreditkort, bílalán og alls kyns aðrar afborgan- ir á bakinu. Allt er þetta gert til að tolla í tísk- unni sem krefst gríðarlegra útgjalda og neyslu. Ég skal - ég vil - ég verð Bryndís Asmunds- dóttir leikkona segir kynslóðina sína vera nokkuð fasta í því að vera ung. Hún segir sjónvarpið oft ráða ferðinni og neyslu- þörfina fyrst og ffemst vera það afl sem fái fólk til að fara út á vinnumarkaðinn. „Auðvitað er gam- an að sleppa sér í kaupum á tækjum og tólum en ég set ákveð- ið spurningamerki við það og spyr mig stundum að því hvort við kunnum að lifa líf- inu á heilbrigðan máta. Ég hef jafn- vel staðið sjálfa mig að því að hlíða sjónvarp- inu þegar það er að segja mér að gera eitthvað ákveðið,“ segir Bryndís sem salmar þess stundum að hafa ekkert sjónvarp á fimmtudögum. Hún segir neysluna stundum vera yfirgengilega en dáist jafnframt af getu fólks til þess að komast yfir lífsgæðin. „Við erum rosa- lega upptekin af neyslunni og erum í stöðugum samanburði. Mér finnst okkar kyn- slóð samt vera duglega við að ná í það sem hún vill. Aðeins yngra fólk er dáfítið fast í „þetta reddast" hugsunar- hættinum á meðan við erum meira í „ég skal - ég vil - ég verð“ hugsun- arhættinum. Stundum er eins og neysluþörfin sé það eina sem hvetur fólk til að fara út á vinnumarkaðinn. Fólk þarf að komast yfir ótrú- lega margt á stuttum tíma, er alltaf upptekið og vantar samt alltaf auka 20 tíma í sólarhring inn.“ Þróuð sjónvarpskynslóð Lúlli Palli í Rottweilerhundunum telur kosti umræddrar kynslóðar vera hversu fljót hún sé að tileinka sér nýjung ar en segir helsta gallann vera letina. ,Allt er einhvern veginn miklu nær okk- ur vegna tilkomu GSM-símanna og Netsins og við emm fljót að tileinka okkur þessar nýj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.