Akranes - 01.12.1944, Qupperneq 28
160
AKRANES
ANNÁLL AKRANESS
Gjafir og greiðslur til blaðsins.
Björn Hjaltested f. II. og III. árgang 50 kr.
Sig. Magnússon skipstj. f. II. og III. árg. 40 kr.
Petrónella Kristj ánsdóttir 50 krónur.
Magnús Jónsson Borgarnesi f. III. árg. 30 kr.
Guðm. Jónsson Rafnkellsst. f. III. 100 krónur.
Ólafur Jónsson Sandg. f. I.—III. árg. 100 kr.
Jón Benónýsson Vestm. f. III. árg. 50 krónur.
Kristján Sighvatsson Rvík f. III. árg. 50 kr.
Guðjón Bachmann Borgarn. f. III. árg. 25 kr.
Frú Helga Björnsd. Borgarn. f. III. árg. 25 kr.
Ragnar Jónsson Rvík f. II. og III. árg. 100 kr.
Blaðið þakkar innilega þessa rausn og vel-
vilja.
Sjúkraskýlissjóði Akurnesinga
hafa borist eftirtaldar gjafir:: Ónefndur kr.
15,00 afhent af settum bæjarfógeta Ármanni
Snævar kr. 300,00, Þorleifur Sigurðsson og frú
Nesi kr. 100.00. — Með þökkum móttekið.
Akranesi 11. des. 1944
f. h. Sjúkraskýlissjóðs Akurnesinga
Petrea G. Sveinsdóttir.
Breyting á samgöngum enn.
Borgnesingar hafa ákveðið að kaupa Laxfoss
endurbyggðan fyrir 1,8 milljón kr.
Þrátt fyrir lítinn samvinnuvilja um sam-
göngumálin undanfarið, buðu þeir Akurnesing-
um nú þátttöku í þessari dýru endurbyggingu
hins gamla skips. Akurnesingar neituðu því, en
vildu vera með þeim í félagsskap um bygg-
ingu nýs „moderne“skips. Þeir töldu, að end-
urbygging Laxfoss væri alltof dýr, og mundi
tefja verulega fyrir þeirri lausn málsins sem
breyttir tímar gera kröfu til. Akurnesingar
sömdu því við Borgnesinga um að taka að sér
ferðir hingað með fólk og flutning. Þeir þurfa
sjálfsagt á öllu sínu að halda við rekstur hins
dýra skips. Með hliðsjón af því er rétt og sjálf-
sagt að „konkurcra" ekki við þá á þessari leið
í bili.
Kirkjutónleika
hélt kirkjukórinn á Akranesi í kirkjunni hér
nýlega. Söng kórinn 9 lög, en auk þess sungu
frúrnar, Hulda Jónsdóttir og Sigríður Sigurðar-
dóttir einsöng í 2 lögum hvor. Söngstjóri var
Ólafur B. Björnsson, en við orgelið organistinn
Bjarni Bjarnason. — Söngmálastjóri Sigurður
Birkis hafði þjálfað kórfélaga i nokkra daga
áður. — Söngurinn þótti takast vel þrátt fyrir
fáar æfingar að þessu sinni. í kórnum eru svo
góðar raddir að óvíða munu hér betri vera.
Mundi það sannast ef hann æfði að staðaldri
og fengi góða þjálfun.
Nú er orðið þröngt fyrir dyrum.
Af hernaðarástæðum er nú — a. m. k. í bili
— búið að loka öllum fiskimiðum í hinni miklu
„gullkistu“ Faxaflóa.
Héðan hafa fáir bátar farið á sjó í haust og
afli verið tregur.
Allir aðilar sem þetta veiðibann verkar á,
verða að krefjast þess einarðlega að því verði
aflétt í byrjun venjulegrar vertíðar. Ekki ein-
asta vegna sjálfra sín og sinnar afkomu, heldur
engu síður vegna nauðsynjar alþjóðar.
Afmæli.
Bjarni Ólafsson Ólafsvöllum verður 70 ára
19. des. n. k.
Frú Ólöf Guðmundsdóttir Tungu verður 50
ára 30. des. n. k.
Lagnhciður Ásgrímsdóttir Neðri Teig varð 85
ára 1. des. s. 1.
Sigurður Jörundsson Melstað varð 80 ára 28.
nóv. s. 1.
Matreiðslunámskeið.
Ungfrú Rannveig Kristjánsdóttir, sem starfar
á vegum Kvenfélagasambands íslands heldur
hér um þessar mundir 4—5 mánaða matreiðslu-
mámskeið að tilhutun Kvennadeildar Verklýðs-
félagsins. Eru þar um 10 nemendur. Ennfrem-
ur hefur ungfrúin haft hér 6 daga sýningarnám-
skeið í matreiðslu fyrir Kvenfélag Akurnesinga
og hafa 40—50 konur sótt það námskeið.
Iínattspyrnufélag Akraness
er nú 20 ára og minntist þess með hófi 4. nóv.
s 1. Til þeirrar skemmtunar var vel vandað og
fór hið bezta fram.
Félagið gerði Ólaf Finsen fyrv. héraðslæknir
að heiðursfélaga sínum. Hann er fyrsti maður
sem kenndi leikfimi hér. Það var 1894.
V estf irðingaf élagið
hélt árshátíð sína 24. nóv s. 1. með mikilli
prýði svo sem í fyrra. Fóru þar saman ágæt
skemmtiatriði og háttvísi í hvívetna.
Seiðurinn mikli
heitir lítil bók sem Pétur Sigurðsson hefur
saman tekið. Eru það smákaflar eftir ekki færri
en 50 þjóðkunna og heimskunna menn. Þetta er
ágætt rit en ákaflega ódýrt því það kostar ekki
nema 5 krónur.
Hjúskapur.
Hinn 25. nóv. voru gefin saman I hjónaband
af próf. Þorsteini Briem: Kristjana Jónsdóttir
frá Skálholti og Sigurður Gunnarsson frá
Hraungerði. Enfremur Margrét Einarsdóttir úr
Reykjavík og Guðleifur Sigurðsson frá Lundi.
Vestur-íslendingar
þrá og vænta meira samstarfs og skilnings
héðan að heiman en enn er. Það væri þeim ekki
aðeins nauðsyn og ávinningur, heldur engu að
síður einstaklingum hér og þjóðarheild. Von-
andi fer það samstarf og skilningur í vöxt á
báða bóga. — Þið sem eigið vini og vanda-
menn vestra, haldið sambandi við þá með því
að skrifa þeim, og á annan hátt. Kaupið og
lesið blöð þeirra og rit eftir því sem þið getið.
Ungmenni bæjarins
ganga með mikilli atorku að byggingu íþrótta-
hússins. Næsta sporið verður átak allra bæjar-
búa um byggingu 1. fl. samkomuhúss fyrir öll
félög og samkomur bæjarbúa. Takmarkið á að
vera fullkomið hús og fallegar skemmtanir sem
göfga og gera alhiða gagn.
Dánardægur.
29. okt. s. 1. andaðist hér gamall góður dreng-
ur og barngóður með afbrigðum, Einar Hannes-
son í Kothúsum. Dugnaðarmaður, kátur og
hress í lund. Kona hans var Jórunn Þorkels-
dóttir, er andaðist 1918. Einar var fæddur 26.
maí 1863.
Unnendur blaðsins
og ágætir stuðningsmenn, fjölgið kaupendum
þess, svo fljótlega verði hægt að auka lesmál
blaðsins með því að fella niður auglýsingar að
mestu leyti.
Báruhúsið selt.
Núverandi eigandi Báruhússins hefur nú selt
það Haraldi Böðvarssyni sem ætlar að nota það
fyrir „Bragga". Þetta hús er búið að vera frá
1906 aðal- og einasta samkomuhús á Ákranesi.
Þessum málalokum ber nú að ýmsu leyti að
fagna, og ýtir sjálfsagt undir byggingu nýs sam-
komuhúss. — Hið núja væntanlega samkomu-
hús má vera stórt og vel úr garði gert ef það
á að verða hlutfallslega betra og meira átak en
þegar Báruhúsið var byggt 1905 og 1906 af fé-
lagi sem ekkert átti til. (Þetta er náttúrlega
ekki rétt. Þvi það átti til fórnfúsa félaga sem
brutust í að byggja með rögg og prýði).
Þakkarávarp.
Við þökkum hjartanlega öllum þeim, sem
sýndu okkur hluttekningu og samúð við and-
lát og jarðarför Einars Hannessonar frá Kot-
húsum.
Aðstandendur.
Hjónaefni.
Ungfrú Sólveig Pálsdóttir Reykjavík, og
Magnús Kristófersson, Götuhúsum.
Aheit á Bjarnalaug.
„Vinur“ hefur heitið á Bjarnalaug 50 kr.
„Það gekk vel eftir" sagði hann.
Kærar þakkir. — Ól. B. Björnsson.
Saga vélbátaútgerðarinnar.
Það er gott til þess að vita að nokkrir menn
hafa nú tekið sér fram um að safna til, og rita
um þennan mikilvæga þátt í atvinnusögu lands-
ins. Það má nefnilega ekki seinna vera, því nú
fer óðum að fækka þeim mönnum sem muna
vel, eða voru viðriðnir fyrstu byrjun þessarar
nýsköpunar.
Allar upplýsingar um þetta efni — hvaðan
sem væru af landinu — eru kærkomnar rit-
stjóra þessa blaðs.
Nýtt fyrirtæki
er tekið hér til starfa, sbr. auglýsingu hér í
blaðinu. Það tekur að sér fatahreinsun og press-
un. Fyrirtækið er til húsa á Baugastíg 6 A og
er eigandinn Þórður Hjálmsson.
Þó nokkuð hefur verið gert að því að senda
föt í hreinsun til Reykjavíkur. Má því telja víst,
að nokkur þörf sé orðin fyrir slíkt fyrirtæki
sem þetta. Góð hirða á fötum sparar fatakaup,
auk þess sem í því felst mikil og auðsæ menn-
ing að ganga vel til fara.
Mikil framför.
Þess var getið í síðasta jólablaði, að Guðm.
Jónsson, sem þá var á förum til Ameríku, væri
efnilegur söngmaður.
Eftir að hafa nú heyrt Guðmund á ný, hefur
spáin ekki verið út í bláinn, því mikið hefur
honum farið fram á ekki lengri tíma. Ef allt fer
með felldu, mun hann eiga mikla framtíð sem
söngmaður.
Áhcit á Akraneskirkju.
Óþekkt kona 20 kr. Óþekktur 150 kr. Bj. 100
kr. Til minningar um Hallgrím Guðmundsson
Söndum 200 kr. — Þakkir. — Viktor Björnsson.
Ifvers vegna fæst ekki smjör?
Vill ekki nýja stjórnin framkvæma nýsköpun-
ina gagnvart mataræði manna, t. d. um smjör-
framleiðslu, svo ekki þurfi a. m. k. eingöngu að
leggja sér til munns smjörlíki, sem er nú mun
ógeðslegra en nokkru sinni fyrr, og ef til vill
ekki eins vitamínauðugt!!!!
Næsta átak
er eining allra félaga í bænum, ungra sem aldr-
aðra um byggingu myndarlegs samkomuhúss til
frambúðar.
Hefjið undirbúning. Stöndum öll saman sem
einn maður. Það er eina ráðið til sæmilegs ár-
angurs.