Akranes - 01.09.1950, Blaðsíða 4

Akranes - 01.09.1950, Blaðsíða 4
enga vini eða skyldmenni. En mjög í þann mund, sem hún tók þessa ákvörðun sína, var vinstúlka hennar — í Reykjavík — á förum 1ii Ameríku, og var Steinunn ekki lengi að ákveða, að fylgjast með henm til hinnar ókunnu álfu, þótt hún þekkti þar engan mann og kynni þvi nær ekkert í málinu. Hún flutti ekkert fémætt^ að heiman nema fötin, Hallgrímskver og Passíusálmana. En þessar bækur, ásamt enskri biblíu hefur hún flutt með sér, hvort sem haldið hefur verið í austur eða vestur, norður eða suðnr. Fyrst eftir að hún kom til Winnipeg voru verkefnin ýmisleg, stundum þau, sem fáar stúlkur vildu vinna. En allt þetta var hinni ungu stúlku næsta gagnlegur skóli, m. a. til að læra málið til hlitar. En það er eins og allt, sem hún tekur sér fyrir hendur, sé sérstaklega gagnlegur undirbúningur fyrir það lífsstarf, sem henni 'enn er hulið. Tiltölulega fljótt hefur Steinunn fengið svo mikið vald á málinu, að hún er fengm til að takast á hendur ferð til Nort-Dakota til fyrirlestrahalds, sérstaklega um menntun kvenna. Samhliða seldi him blaðið Success, en það lagði megin áherzlu á að leiðbeina ungmennum -— piltum og stúlkum — hvernig verja ætti lífinu og komast áfram, svo að velfarnaðar mætti vænta, fyrir sjálfa sig og samferðamenn- ina. Þessir fyrirlestrar Steinunnar urðu svo vinsælir, að hún fór um allt fylkið þessara erinda. Jafnhliða seldi hún svo mikið af fyrrnefndu blaði, að það veitti henni góð verðlaun fyrir metsölu. Þessi verðlaun notaði hún vitaniega fyrst og fremst til að mennta sig og gekk þá um eins árs skeið í góðan skóla í Grand Forks í North-Dakota. Eftir það gekk hún í guðfræðiskóla í Chicago í tvö ár. Fór svo í eitt ár að Moody Bibel Institute. En allt þetta varð henni næsta þarfur undirbún- ingur undir hið mikilsverða ævistarf. Fyrsti íslenzki kven-prestur og kven-læknir. Þegar hér var komið mátti segja, að framtíð Steinunnar væri ráðin. Líf hennar og ákvörðun um lífsstarf komið í þær skorður eða farveg, sem það gat ógjarnan vikið úr. Hún hafði gengið í kirkjufélag baptista. Nú gerðist Steinunn aðstoðar- prestur í Indiana-fylki í Bandaríkjunum og síðar í Origon-fylki, en þangað var hún send til að prédika fyrir kínverskum innflytjendum. Sxrniir þeirra voru fluttir þangað fyrir nokkru, en aðrir nýlega. — Sum böm innflytjendanna voru fædd í Bandaríkjunum. Þá voru fáir kínverskir innflytjendur kristnir. Þama var hún í eitt ár. Þessu næst fer Steinunn til Kaliforníu í því augnamiði að reyna af fremsta megni að lækna eða lina þjáningar enskrar vin- stúlku sinnar, er hafði fengið berkla. — Vinkona hennar dó fljótlega, en þar gerð- ist Steinunn enn aðstoðarprestru um eins og hálfs árs skeið, hjá fólki af hinum ólíkustu þjóðernum. Farið og prédikið. Enn er eins og óvænt atvik leiði Stein- unni til nýrra staða og starfs: — hin sjúka vinstúlka hennar.. — 1 Kaliforniu ákveð- ur hún að ganga í fullkominn læknaskóla, og er þar við nám í 4 ár. Að því loknu gengur hún svo í spítala í 1 ár. I lækna- skólanum kynntist hún amersíkum manm af góðum ættum. — Þau giftust síðar. — Til þessa var hans lærdómsferill hinn sami sem hennar, aðeins einu ári á undan henm í læknaskólanum. Það litur út fyrir, að þau hafi átt að mætast þarna til ákveðins mikilsvægs starfs. Til þess að boða gleði- boðskapinn sameiginlega og sitt í hvoru lagi. Til þess að líkna og lina þjáningar þúsunda, og leiða fjölda þeirra samhliða að lindum hjálpræðisins. Nú voru þau bæði ákveðin i því að 'fylgja hinu gamla KventrúboÖar, kínverskir og útlendir. Frú Herborg Olafsson lengst til hœgri. og nýja boði Drottins, að gera eitthvað fyrir heiðingjana. Bæði höfðu hjónin fengið gott kristi- legt uppeldi, undir handleiðslu góðra for- eldra, sem skildu hve kristindómurinn er mikill og nauðsynlegur aflgjafi til góðra verka og gæfuríkara lifs. Á báðum heim- iluniun, — þótt langt væri á milli þeirra, — var guðs orð um hönd haft að staðaldri, og þeim bent á að styðjast við orð Drott- ins í blíðu og striðu. Héðan af átti eitt yfir bæði að ganga. Þau giftu sig 11. febr. 1902, og eftir 8 daga voru þau komin af stað til Kína. Það var þeirra brúðkaups- ferð. Hún stóð lengi og var árangursrík. Þau sáu aldrei eftir þeirri för. Þau voru leidd þangað af Drottni og unnu þar miskunnarverk um meira en fjóra ára- tugi, óttalaust í anda Hans, sem gjörði þau staðföst og styrk. III. í»ar, sem verkefnin eru óþrotleg. Til skamms tíma — og jafnvel enn, — hefur fjöldi fólks hér á landi, litið á kristniboð sem vonlaust verk eða mjög vafasamt. ’Ý’msir líta kristniboða horn- auga og er ekkert um þá gefið, aumkva þá jafnvel og láta orð falla um, að vafa- samt sé, hvort þetta sé sálarlega heilbrigt fólk. Það sé oftast ofstækisfullt, og eigi sjaldan samleið með venjulegu — borg- aralegu — fólki. Um þetta skal ekki fjölyrt hér. En það er áreiðanlega víst, að þeir, sem hata 'fengið köllun til slíks líknar- og mannkær- leikastarfs, studdir af hinum styrka staf Drottins, spyrja ekki um álit „borgar- anna“ né um óvissuna og erfiðleikana, sem þvi er samfara, og eru á hverju leiti. Ekki heldur um hætturnar, sem því er samfara, að inngangast kaunum hlaðið fólk og Guð-vana. Kristniboðarnir hugsa ekki um annað en þeir séu sendir af Drottni, til þess að lækna og líkna af þeim kærleika, sem allt sigrar og á upp- tök sín hjá höfundi lífs og ljóss. Fyrst voru þau hjón send til Suður- Kína, en fljótlega til borgar um það bil 90 mílur inn í landinu, þar sem kristin trú hafði aldrei verið boðuð, og almenn- ingur var hræddur við útlendinga. Þau gátu ekki talað málið, svo að þeim var send kona' til aðstoðar frá Canton, sem talaði kínversku ágætlega. Hún fékk að- eins leyfi til að vera þarna í tvær vikur. Hún var Evangelisti og notaði tímann vel, fór hús úr húsi og prédikaði Guðs orð. Hún gerði ítrekaðar tilraunir til að fá aðgang að því húsi borgarstjórans, sem kven'fólk bjó í, en það tókst engan veginn. Skömmu seinna lagðist hin unga kona embættismannsins á sæng og leið miklar kvalir, því að fæðingin gekk illa. Þegar öll venjuleg tilbeiðsla hafði farið fram, og öll hugsanleg ráð að þeirra siðvenju, —- og ekkert dugði, — var sent eftir þeim hjónum, en á móti vilja eiginmannsins. Þau fóru þangað fljótt og fúslega og gerðu það, sem þeim fannst viðeigandi undir slíkum kringumstæðum. Fljótlega var þar svo í heiminn borinn myndarlegur dreng- ur, — fyrsti og einasti sonur þessa aldr- aða embættismanns. — Hann varð frá sér numinn af gleði og tilkynnti, að hann mætti til að kunngera borgarbúum, hve dásamlega hluti Guð útlendinganna hefði gert. „Ég þarf ekki skurðgoð lengur“, sagði hann. Nokkru seinna fór bróðir ungu kon- unnar til Canton til þess að gerast boðberi kristinnar trúar. Þannig varð lækningin til leiðbeiningar þessari fjölskyldu. Það var vegur Guðs til hjálpar hinum sjúku og útbreiðslu trúarinnar. I annarri borg, langt frá okkur, bjó vel- metinn höfðingi. Hafði hann orðið 'fyrir því óláni að fá stórt kýli á andlitið. öll hugsanleg ráð höfðu verið notuð, en ekki borið neinn árangur. Að lokum var hon- um ráðlagt að leita til sjúkrahúss kristni- boðsins. Hann ákvað að reyna þetta, en 100 AKRANES

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.