Akranes - 01.09.1950, Blaðsíða 21
ANNÁLL AKRANESS
Gjafir og greiðslur til blaðsins,
sem það þakkar innilega:
Frá Guðbrandi Björnssyni prófasti f. 1949 og
1950, 100 kr. Frá Sigurði Þorkelssyni kaupm.
umfram greiðsla 20 kr. Frá frú Vigctósi Áma-
dóttur f. 1950 50 kr., frá Lárusi Rist 100 kr.
frá Sigurði Sumarliðasyni skipstjóra Akureyri
50 kr., Gísli Magnússon rakari Borgarnesi 30 kr.
f. 1951, frú Ragnhildur Björnsson Borgarnesi 30
kr. f. 1951, Jón Sigurðsson Reynistað Akranesi
umfram greiðsla 10 kr., Bergur Bjömsson próf-
astur Stafholti f. 1950 50 kr., Stefán Stefánsson
kaupm. Siglufirði go kr. f. 1930.
Til Bjargar Gísladóttur
frá Árnýju Filipusdóttur 100 kr., Þorvarði
Björnssyni yfir-hafnsögumanni 100 kr.
Varkárni við matargerð.
Það er hin mesta nauðsyn að jjeir sem fást við
matargerð séu hreinlega til fara og með hreinar
hendur. Þá verður fólk að gæta þess að vera
ekki með opin sár eða skurði á höndum við mat-
artilbúning. Matur sá sem tilreiddur er undir
slíkum kringumstæðum getur orðið hættulegur
þeim sem neyta.
Kvæði Jónasar Guðmundssonar
á Ölvaldsstöðum, er hann kvað við fráfall Ein-
ars Þorvarðarsonar 1864, og birt cr á bls. 103, er
sent Akranesi af Jóni bónda Samúelssyni að Hof-
stöðum í Álftaneshreppi á Mýrum. Hann er þrátt
fyrir háan aldur, em vel og stálminnugur, fræða-
og kvæðaþulur liinn mesti. Þakkar blaðið Jóni
fyrir þessa hugulsemi hans.
Gagnfræðaskólinn
var settur í kirkjunni hinn 30. september s. 1.
og er nú fluttur í gamla barnaskólahúsið við
Skólabraut. Nokkur breyting er á kennaraliði skól-
an.s. Magnús Jónsson hverfur frá skólanum og
hefur verið settur námsstjóri við skóla landsins
í handavinnu.
Þessir kennarar eru nýir: Síra Bergur Björnsson
prófastur í Stafholti. Sigrún Ingimarsdóttir, (sem
undanfarin ár hefur verið stundakennari i handa-
vinnu). Þorvaldur Þorvaldsson, stúdent frá Hafn-
arfirði, (með kennarapróf að auki). Þórunn
Bjarnadóttir frá Vigur, stúdent, og hefur auk þess
lesið við háskólann. Alfreð Einarsson frá Siglu-
firði, er stundakennari. Hann er stúdent og hefur
auk þess stundað nám við enskan háskóla. Um-
sjónarmaður skólans er ráðinn Guðmundur Jós-
efsson frá Georgshúsi.
Bjarnalaug.
Nú hefur verið sett þak á laugina og gluggar
á suðurgafl. Sundlaugarsalurinn sjálfur hefur ver-
ið málaður og er nú upphitaður. Vatnið í laug-
inni mun nú vera 24 stiga heitt. Hún var opnuð
fyrir almenning á ný hinn 1. nóvember og er
aðsókn mjög mikil, sérstaklega bama og unglinga,
stundum milli go—60 í einu. Einn daginn sóttu
laugina 376 baðgestir.
Byggðasafn.
Menningarráð hefur beitt sér fyrir því, að safn-
að yrði hér saman gömlum munum eða góðum
gripum, sem nú eru óðum að hverfa úr notkun.
Er ætlunin að koina þeim síðar fyrir á góðan
stað, þar sem þeir gætu verið almenningi til
sýnis. Af þessu tilefni hafa verið send ávörp um
þetta efni í hvert hús í bænum, þar sem þess er
farið á leit við þá sem eiga kynnu slíka muni,
að þeir létu þá góðfúslega af hendi, helzt nú þeg-
ar eða síðar ef eitthvað hamlaði afhendingu þeirra
nú. Ef eitthvað sögulegt væri hægt að segja um
þessa muni, má ekki draga það undan. Nær-
sveitimar hér verða beðnar um þetta sama, því
ætlunin er að þetta verði Byggðasafn Akraness og
nágrennis.
Vonandi tekur fólk almennt vel í þetta, því
ýmislegt í sambandi við fortíðina og störfin eins
og þau voru unnin, er nú að hverfa fyrir óðul.
Vinnuskólinn.
Honum var haldið áfram aftur í sumar, svipað
og í fyrra. 32 unglingar voru í skólanum, sem
hófst um 20. maí. Þar voru fjórir aldursflokkar,
11, 12, 13 og 14 ára. Unnið var við sama land og
í fyrra, en það er ca. 2,6 ha. að stærð. Auk þess
voru settar rófur og kartöflur í skurðruðninga um
U/2 dagslátta að stærð.
Hvert barn fékk 80 fermetra lands til eigm
umráða og áburð og útsæði í það. Kartöflum var
sáð i ca. 1 ha. og rófum í annað eins og enn voru
7000 kálplöntur settar niður. Alla umhirðu um
þetta önnuðust börnin sjálf. Uppskeran af rófum
var ágæt, 2go—300 tunnur. Af kartöflum í meðal-
lagi, ca. 80 tunnur fram yfir útsæði. Kálið var
sæmilegt, en þurrkar háðu þvi nokkuð, einkum
blómkáiinu. Mikið af uppskerunni er enn óselt.
Bærinn lét búa til jarðhús til að geyma upp-
skeruna í.
Kennari var Þorvarður ömólfsson frá Reykja-
vík, til 20 ágúst. Meðstarfsmaður allan tímann
var og Guðmundur Jónsson garðyrkjuráðunautur,
sem einnig tók við af kennaranum eftir 20. ágúst.
Hjónavígslur:
21. okt. Bragi Níelsson, stud. med., frá Seyð-
isfirði, og Sigríður Árnadóttir, stud. phil. Vestur-
götu 61.
Dánardægur:
g. ág. Kristleifur Friðriksson, vélstjóri, Suður-
götu 126, 37 ára. F. ig/8 1912. Siðast vélstjóri
á m.b. Keili og drukknaði af honum í Siglufjarð-
arhöfn.
íx. sept. Jóhannes Jónsson, skrifstofumaður, Suð-
urgötu 122. F. 17/9 1883. Lærður skósmiður og
stundaði sjálfstætt iðn sina framan af ævi. Vann
lengi við afgreiðslustörf hjá kaupfélaginu í Búð-
ardal. Fluttist til Akraness 1949.
7. sept. Jóhanna Kristín Böðvarsdóttir, ekkja
Gunnars Gunnarssonar í Vík (d. 1947). F. 18/4
1884. Dó á sjúkrahúsi i Reykjavik.
23. sept. Marsibit Gísladóttir, húsfrú, Kirkju-
braut 14. F. ig/3 1879. Giftist 1904 Guðmundi
Hanssyni. Andaðist á sjúkraliúsi í Reykjavik. Átti
um mörg ár við heilsubrest að striða.
Aflaskýrsla:
Bátan.: sept. okt. Samt. kg.
Aðalbjörg 56205 17505 737io
Bjarni Jóhannesson 107705 31345 139050
Ásbjörn 140245 40213 180460
Ásmundur 94075 21865 115940
Böðvar 144170 25590 169760
Farsæll 110410 22155 131565
Fram 30360 32565 62925
Fylkir frá 14/10 .... 14720 14720
Haraldur 11725 8020 19745
Hrefna frá 30/8 .... 214015 9760 223775
Keilir 167845 30910 198755
Sigrún 76960 23920 100880
Sigurfari 99795 37380 137175
Sveinn Guðmundsson 166200 46330 212530
Svanur 137625 39480 177105
Valur 21570 1750 23320
Ölafur Magnússon . . 61755 39175 100930
Guðm. Þorl. frá 30/9 59io 37460 43370
Gotta VE 23730 23730
Fanney RE 850 850
Alls 1.670.300 479-995 2.150.295
Nýting aflans:
Til beitu ......................... 290,130 kg.
Saltað til útflutnings .......... 1367,060 kg.
Til bræðslu ....................... 293,103 kg.
Samtals 2,130,293 kg.
Karfaveiðar.
B.v. Bjarni Ölafsson fór aftur á karfaveiðar
hinn 24. okt. og landaði hér úr þeirn túr 2.
nóv. 289,560 kg. aðallega af karfa. Karfinn var
flakaður og frystur fyrir Ameríkumarkað, en úr-
gangur allur fór til vinnslu i verksmiðjunni.
Fiskþurrkunarhús.
1 sumar hafa verið sett hér upp þrjú fiskþurrk-
unarhús. Eru þau á allan hátt fullkomnari en hin
gömlu voru, og munu sérstaklega spara vinnu og
erfiði. Er á allan hátt reynt að nota fullkomnari
vinnutækni en éður. Húsin eru hjá Haraldi Böð-
varssyni & Co., Ásmundi h.f. og Fiskiver h.f.
Virðist þurrkun hafa gengið vel í þessum húsum
það sem af er. Ef til vill verður þessu lýst nánar
siðar.
Skrúðgarðsmálið á
góðum vegi.
Bærinn leggur til land undir skrúðgarðinn, en
meginið af því hafa fjórir menn á erfðafestu.
Vonir standa til að þeir láti það allir af hendi
fyrir sanngjamt verð. Sumir þessara manna hafa
mjög mikinn áhuga fyrir framgangi þessa nauð-
synjamáls og vilja á engan hátt tefja það.
Bærinn ætlar svo að brjóta landið og gera i
það nauðsynlega skurði. Skógræktarfélag Akra-
ness leggur fram 15 þúsund kr. til girðingar og
annarra byrjunarframkvæmda. Þá hafa öll fé-
lagssamtök i bænum mikinn áhuga fyrir málinu
og munu styðja það með ráðum og dáð, með
vinnu-framlögum og á annan hátt.
Ef allir leggja saman verður þess ekki langt
að bíða, að þar eignist bæjarbúar sameiginlegan
„sœlureit.“
Frá blaðinu
Þeir sem skulda bláÖinu enn, eru
vinsamlega beÖnir aÖ greiða það
sem allra fyrst.
Þeir sem ekki endursenda blað-
ið, teljast kaupendur að því.
AKRANES
117