Akranes - 01.09.1950, Blaðsíða 13
')ri;i Og álfameyjarnar.
að eftir þennan fullnaðarsigur Lucifers
og sendir hann nú Astaroth og Belsehuh
til að hafa upp á þeim mikla meistara
Gerli, „sem öxina steypti úr klukkumálm-
inum,“ til að smíða Helvíti stærra. En
sendimennirnir eru vart lagðir af stað,
þegar Belphagar stöðvar þá og segir þeim
þau sorglegu tíðindi, að í Helvíti sé „á
þessum degi skeð stór neyð og sorg.“ Þeir
snúa sér þá við og sjá Lucifer bundinn,
en hann segir þeim: „I morgxm var ég
yfirunninn af Jesú, hann hefur mig til
fanga og banda tekið og öllu mínu ríki
komið í stóra neyð.“
Þetta eru hin fyrstu snöggu umskipti
í leiknum, sem annars eru furðu fá sam-
anborið við marga aðra helgileiki. Astar-
oth furðar sig á því, að I*ristur, dauður
og grafinn í hörðum steini, skuli hafa
bundið Lucifer, en Lucifer segir hann
aftur upprisinn „og langtum sterkari en
i hann var fyrri.“ Kristur hefur að sögn
Belphagars „rænt og ruplað allt Helvíti
og flutt á burtu allar sálir og hvað hann
þar fann í djúpum Helvítis afgrunni.“
Til að rétta hlut sinn kemur djöflunum
ásamt um að stefna Kristi fyrir yfir-
gang og rán, því „Guð er réttlátur og
engum synjar hann laganna.“ Fær Belíal
fullmagt Lucifers til að reka málið og
tekur hann Astaroth með sér til aðstoðar.
Ganga þeir nú bur l, en „Guð kemur inn
í spilhúsið og setur sig niður, tveir Engl-
ar eru með honum.“ Ber nvi Belial upp
erindið og er sæmilega tekið, en þessi orða-
skipti eiga sér stað:
Gii8: Seg þú mér Belial, hver viltu, að
dómari sé yfir yður?
Belial: Þó að ég vildi helzt kjósa yðar
maistet til yfirdómara, þá hefur þessi
A K R A N E S
Jesús látið oftsinnis á sér heyra, að
yðar guðdómur sé sinn faðir. Nii vit-
ið þér vel, að hvað sem soninn áhrær-
ir, það snertir föðurinn. Þar fyrir bið
ég yðar guðdómlegu tign, að þér
vilduð tilsetja hér út í einn skyn-
saman dómara, upp á það, að eng-
inn grunsemd verði fundin á neinu
síðar, að fullur dómurhalfi hér um
gengið.
Guð: 1 hverju léni eða sýslu er Jesús?
Belial: Hann er fæddur í Nazaret.
GuS: Er það sú sem liggur nærri Jerú-
salem? Ef þér svo lyndir, þá máttu
fá þann sem gefur þér úrskm-ð.
Belial: Sá staður er góður, því þar mega
názt skynsamir menn.
Guð: Seg mér Belial, viltu taka þann
fróma kóng Salamon til yfirdómara?
Belial: Hann fellur mér vel í geð. Hann
er vís og réttsýnn.
GuS: Far þinn veg, ég skal hið fyrsta láta
birta fyrir Salómoni þína klögun, svo
að hér verði dómur á.
Belial hleypur nú i burtu með sinum
selskap."
Guð sendir nú Gapríel engil til Saló-
mons, sem hann skipar dómara og að
vörmu spori kemur Belial fyrir hann með
innsiglað bréf í hendi. 1 þessu háalvarlega
leikriti gefur hér tilefni til hláturs, þvi
kallari Salómons verður hræddur, þegai
hann sér Belial nálgast og hrópar: „Be-
vari oss guð. Ö, herra kóngur. Hvað er á
ferðum? Ég er hræddur. Hér kemur svart-
ur maður til vor og trúi ég víst það sé
sjálfur djöfrdlinn.“ Belial færir nú dóm-
aranum fullmaktsbréf sitt til að reka mál-
ið fyrir hönd Lucifers, en að lestri þess
loknum og eftir að hafa heyrt sakargiftii’,
lofar Salómon að láta stefria Jesú „á
morgun“ svo Belial fái „lög og rétt sem
annar.“ — Ganga þeir nú burt allir sam-
an en Jesús gengur inn með lærisveinum
sínum, Pétri og Jóhannesi, sem eiga að
fara að prédika evangelium fyrir allri ver-
öldinni Kemur sendimaður Salómons nú
til hans með stefnuna, en Jesús segir hon-
um, að hann vilji „gjarnan forsvara sig,
þó ég hafi þar ei tíma til, en ég skal þang-
að senda minn trúa þénara Móses, minn
fullmegtugan umboðsmann.“
Endar fyrsti þátturinn -—• eða partur-
inn — á því að Móses tekur að sér máis-
vörnina, en honum til aðstoðar er skipað-
ur Daníel spámaður.
Annar þáttur hefst á því, að sendimað-
urinn kemur aftur frá Nazaret að loknu
erindi og dómarinn lætur kunngera fyrir
mannsöfnuðinum (áhorfendum leiksins)
„að hver sá sem nokkuð hefur að útrétta
eða klaga fyrir konungl. maistet, þá komi
hann án forsómunar." Ákærandi og verj-
andi ásamt aðstoðarmönnum ganga nú
inn og hefst þá réttarhaldið með ákæru
Belíals og vamarræðu Mósesar að fram-
lögðu umboði hins síðara.
Kærir Belial sem fyrr Ivrist fyrir ofbeldi
og rán, en Móses svarar því til, að hann
hafi einungis tekið erfðagóss sitt og þurfi
ekki að svara til saka, þar sem hann er
réttur konungur á himni og á jörðu og
undir. Belial mótmælir ekki öllu tilkalli
Krists til valda í Helvíti, og verður nú
úr þessu mikið þras og langar vitnaleiðsl-
ur, þvi að Móses leiðir 8 vitni um kon-
ungsrétt Krists yfir gervallri veröld, þá
Abraham, fsak, Jakob, Davíð konung, Jó-
hannes skírara og heiðingjana Aristóteles,
Virgilius og Hippocrates. Hallar málinu
mjög á Belial, enda þótt hann sem dug-
andi lögfræðingur reyni að kasta rýrð á
vitnin fyrir yfirsjónir þeirra i lifanda
lífi, minni Móses á „þann egypzka mann,
sem hann helsló“ og reyni að erta hann
með þvi, að hann sé lítill ræðumaður og
Sœnska óperan: Brúðkaup Figarós, lokaati'iðið.
109