Akranes - 01.09.1950, Qupperneq 6

Akranes - 01.09.1950, Qupperneq 6
lagði á stað heim, til þess að reyna að fá þar bót meina sinna. 1 október það sama ár fékk hún í hendur skýrslu frá sjúkra- húsi því í Canton, er þau störfuðu við, en þar var þess getið, að á þessu umrædda tímabili, hefði 500 manns verið forðað frá algerðri blindu. Þegar hún sá þessa skýrslu, varð fögnuður hennar fyrst full- kominn yfir því, að maður hennar hafði orðið eftir, því að óvíst er, að annars hefði svo mörgum verið hjálpað. Steinunn fékk mikla bót þessa leiða kvilla. Maður hennar kom síðar vestur, og notaði enn sem fyrr — og ávallt síðar -— hvíldarár sín til þess að auka við þekk- ingu sína og starfshæfni á sem flestum sviðum, sérstaklega þó á sviði lækna- vísinda. IV. Bylting í Kína. Raunverulega má segja, að heiðingja- trúboðið hafi fært Kína fram á leið til frelsis, menntunar og þroska. Þar hafa kristniboðar rekið sjúkrahús og skóla víðs- vegar í landinu frá 1827. — Fyrsta sjúkra- húsið var reist i Canton, í þeirri borg, sem þau Hayes-hjónin störfuðu lengst. — Landið var þó í rauninni lokað fyrir vestrænum áhrifum og menningu, voru fordómarnir ógurlegir á ýmsum svið- um. — Starfið var því oftast erfitt og áhættusamt, þar sem stjórmrnar, voldug- ir og vesælir börðust hatramlega gegn öll- um breytingum á hvaða sviði sem var. Hið markvissa starf kristniboðanna bar þrátt fyrir þetta ótrúlega mikinn ávöxt, og varð hinni fjölmennu, kínversku þjóð margvíslega til blessunar bæði í bráð og lengd, eigi aðeins i andlegum, heldur og í timalegum efnum. Ýmsir tóku trú og gáfaðir kínverjar sáu hinn margvíslega og mikilsverða árangur, bæði í siðrænu tilliti og á sviði hinna ógurlegu sjúkdóma, sem þjakaði þessa gömlu, fornfrægu menningarþjóð. Faðir byltingarinn í Kína 1911, hét Sun Yat-sun. Faðir han var fátækur bóndi og var kristinn. Sun Yat-sun var fæddur 1867. Hann hlaut kínverska menntun að hefðbundnum hætti, en samhliða nokkra nasasjón af vestrænni menntun, þar sem faðir hans var kristinn og hafði náið sam- band við kristniboðana, og þar fékk hann frekari menntun, að ósk föður hans. Hin kínverska menntun var fordómakennd og harla lítið í ætt við heilsu-eða hagfræði- formúlur hinna vestrænu þjóða. Sun Yat-sun tekur nú að lesa læknis- fræði í Kína. Tekur þátt í leynilegum bylt- ingafélagsskap, er gerir beinlínis upphlaup 1895. Uppreisnin var bæld niður með harðri hendi, flestir upphlaupsmennirn- ir drepnir, en Sun Yat-sun komst þó und- an. Nokkru seinna fer hann til Englands, til þess að afla sér víðtækari þekkingar. Áður en hann fór til Englands, var farið að taka mikið tillit til hans, og stjómin ha>fði svo miklar áhyggjur af framferði hans, að hún bauð miklar fjárfúlgur hon- inn til höfuðs. Svo mjög var henni í mun, að hún lét kinverska sendiráðið i London taka hann á laun, en enskir vinir hans og félagar fengu þó bjargað honum. Árið 1911 kom Sun Yat-sun svo af stað blóðugri byltingu, sem varð mjög útbreidd og alger. Keisarinn var Mansjúríumaður, — og því af Sun Yat-sun, og hans fylgi- mönnum talinn útlendingur. — Fyrir tilverknað þessa mikla manns, var nú landið opnað fyrir veslrænni menn- ingu og áhrifum, en samhliða brotnir á bak aftur hinir hættulegustu fordómar og það, sem óþarfast var og feisknast i gamalli menningu þessarar miklu þjóðar austursins. Aðstaða kristniboðanna varð nú allt önnur og breytingin gagnger til bóta. Því að nú voru þeir og starfsemi þeirra vel séð af stjórninni og undir hennar vernd- arvæng, að svo miklu leyti, sem hún gat að gert í þessu fjölmenna, víðáttumikla landi, þar sem ólga var enn í landinu, órói og uppreisnartilraunir tiðar gagnvart hinni nýju stjórn. Sun Yat-sun var mikilmenni á marga lund, og er enn í dag talin þjóðhetja Kin- verja, á sama hátt og Jón Sigurðsson hjá okkur. Sun Yat-sun andaðist 1925 og gerði ráðstafanir til þess, að útför sín yrði gerð að hætti kristinna manna, og tók sjálfui til þá sálma, er syngja skyldi yfir hon- um. Einn þeirra var „Bjargið alda, borgin mín“. Hann var jarðsettur á kostnað rík- isins í höfuðborg landsins, V. Eftir byltinguna. Eins og áðm er sagt, var Kína í raun- inni allt annað land eftir byltinguna. — Batnaði þá aðstaða til kristniboðs, líknar- verka og lækninga ákaflega mikið. Hin nýja stjórn var þeim nú vinveitt, gagn- stætt hinum fyrri stjórnum. Þau Hayes-hjónin höfðu ákaflega mik- ið að gera, þar sem starf þeirra var svo margþætt og umfangsmikið. Þau eignuð- ust þarna fjölda vina og öfluðu sér aukins trausts og ástsældar með ári hverju. Það gerði þau ekki værukær, heldur jók áhuga þeirra og elju i að vinna að líkamlegri og andlegri heill þeirra, sem þau voru send til. Þegar þau gátu illa eða ekki annað því, sem gera þurfti, fengu þau kínverska vini sína, karla og konur, sér til aðstoð- ar við hin ýmsu verkefni, til dæmis að prédika. Nú var hofunum breytt i skóla, bæði fyrir pilta og stúlkur, — því að nú var lika hætt að reyra fætur stúlkubamanna. — Skurðgoðin á götum og torgum voru nú brotin niður o. s. ífrv. Þetta má þó ekki skilja svo, að öllum áhyggjum og erf- iðleikum hafi verið létt af kristinboðun- um, síður en svo, — ekki einu sinni enn i dag. — Eins og fyrr voru gerðar upp- reisnarlilraunir gagnvart hinni nýju stjórn. Var vitanlega mikil ólga og and- staða gagnvart þeirri stjórn, sem steypti af stóli -—• eigi aðeins stjórn landsins — heldur aldagömlum venjum. Þá — og enn i dag — er og í landinu mikill fjöldi bófa- flokka, sem herja landið eins og vikingarnir forðum og þyrma þá oftast engu. Fengu þau Llayes- hjónin og aðrir kristniboðar oft að kenna á þessum óaldarflokk- uiu. í landi uppreisnanna. Kinaveldi er mikið landflæmi og þar búa nú upp undir 500 milljónir manna. Þar í landi hef- ur um tugi ára raunverulega aldrei verið friður. Á þeim 40 árum, sem Hayes-hjónin dvöldu í Kína, urðu þau oft að þola mikl- ar mannraunir og erfiðleika i starfi sínu af þessum sökum. Á árunum 1925—1927 var þar mikil uppreisn kommúnista, er þeir náðu Kan- ton á sitt vald, — borginni sem þau störi- uðu mest og lengst í. — Þá ákváðu þeir að drepa alla útlendinga, og var þegar ákveðinn dagurinn er slátrunin skyldi hefjast. Sendiráð Bandaríkjanna fyrirskip- aði að flytja skyldi þegar á brott allar konur og börn. Frú Steinunn þverneitaði að fara og vildi að eitt gengi yfir bæði, — sig og mann sinn. — Áður en til þessa kæmi, réðist ræningjaherforingi einn meö mikið lið að borginni og sigraði kommún- ista. Var þá ógurlegt blóðbað í borginni og óttalegt ástand. Líkin lágu eins og hrá- viði um alla borgina og var safnað saman og ekið á kerrinn í fjöldagrafir. I landinu hafa verið tíðar blóðugar borg- arastyrjaldir. Þjóðin hefur orðið að þola ógurlegar hörmungar, bæði af þekking- arskorti, og af hendi þeirra, sem viljað hafa drottna yfir henni. Framhald í nœsta blaÖi. 102 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.