Akranes - 01.09.1950, Síða 11

Akranes - 01.09.1950, Síða 11
Traustir skulu hornsteinar Hugleiðingar um þjóðleikhús Áliugi Lárusar fyrir þessum málum er rikur allt frá barnæsku, og eins og oft á sér stað, hefur hann eflst og þroskasl vnð nánari kynni og meiri vinnu á þessu sviði. Hann tók 1922 þátt í skólaleikun- um, sem þá höfðu legið niðri frá 1916. Árið 1930 varð hann framkvæmdarstjóri Leikfélagsins er það sameinaðist áhuga- manna-leikflokki Haralds Björnssonar, sem að stofni var Leikfélag stúdenta. — Hann var einnig formaður félagsins frá 1933—’35- Grúsk Lárusar i hinum óplægða akri íslenzkra leikbókmennta gaf honum mörg umhugsunar- og rannsóknarefni. Honum nægði ekki að safna að sér öllu, sem ritað hafði verið um þetta efni hér á landi frá fyrstu tíð, heldur og það, sem um sama efni hafði verið ritað á erlendum mál um. Hann athugaði það, sem Austurrikis- maðurinn Poestion og Kiichler hinn þýzki höfðu ritað um ísl. efni á þessu sviði. Þeir gerðu báðir litið úr fyrstu isl. leikritunum, eins og t. d. Sperðli, Snorra Björnssonar. En þar sem Lárusi fannst, að þessir ága'tu fra'ðimenn skoðuðu ýmsa hluti í þessu sambandi eingöngu með augum útlendingsins, fór hann að kynna sér nánar dóm þeirra og þau gögn er þeir reistu dóma sina á. Rækilegri athuganir hans á þessu eíni varð svo til þess, að hann komst að öðrum og ólik- um niðurstöðum um samhengi miBi leiklistar-viðleitni skólapilta annars vegar, og almennra gleði- leika landsmanna hins vegar. — Eins og þeir birtast í vikivaka- leikunum og öðrum skcmmtun- um í bæ og byggð. Þetta bókasafn Lárusar Sigur- björnssonar er um 3000 bindi, og eingöngu um allt er varðar leik- list, hvar sem er i heiminum. í því eru erlend safnverk leikrita, sérstaklega frá Norðurlöndum og Irlandi og mikið af handbókum um leiklist — á fjölda tungu- mála. — Þarna eru eigin-handrit Lárusar, öll prentuð ísl. leikrit og leikskrár, sem einar eru yfir 30 bindi. Allt þetta safn hefur Lárus ánafnað Þjóðleikhúsinu að sér látnum, eins og áður er sagt. En stjórn Þjóðleikhússins hefur þegar óskað eftir að fá það nú þegar til varðveizlu og afnota, að því er tekur 1il ísl. leikrita og al- mennrar leiksögu. Hún hefur einnig óskað þess, að Lárus haldi áfram að vinna að viðgangi safns- ins, og mun hann gera það. FRAMHALD Ennfremur er nú komið í hendur Þjóð- leikhússins mjög merkilegt handritasafn Leikfélags Reykjavíkur, er nær allt til ársins 1933, en auk þess gaf félagið, eða ánafnaði Þjóðleikhúsinu á 50 ára starfs- afmæli félagsins mjög fallega bókagjöf. Þá gaf British Council þýðingarmikið safn enskra leikrita, sem einnig er komið á þennan sama stað. Kjarninn í þessu safni — segir Lárus, — verður þó að teljast safn Indriða Ein arssonar, er hann ánafnaði Þjóðlcikhúsinu á dánardægri, en það voru öll ísl. leikrit hans. Utan um þessa framsýnu gjöf hefur safnið verið sto*fnað, segir hann enn- fremur. X. Bóndi bjargar leikriti frá glötun. Meðal þeirra leikrita, sem eru i leik- ritasafni Lárusar, er uppskrift í isl. þýð- ingu, á helgi-leikriti frá Miðöldum, sem hingað til hefur verið lítill gaumur gefinn, en verður nú fyrir milligöngu próf. Jóns Helgasonar í Kaupmannahöfn, gefið út af hinu Isl. Fræðafélagi i Kaupmannah. Gublnugur Rosenkranz, Þjóbleikhússíj. Þetta leikrit nefnist Belials-þáttur, og er nánar til tekið „Hvurnig Belíal upp- byrjar lagaþrætur í móti Kristó, fyrir það, hann hafði niðurbrotið djöfulsins ríki“. Leikritið er ævagamalt. Samið eftir Italskri ifyrirmynd frá 14. öld, en hingað komið — að tilgátu Lárusar — um miðja 17. öld frá Kaupmannahöfn. Leikrit þetta er ekki til í heild í hándritasöfnum á Norðurlöndum, og í Bretlandi er það að- eins þekkt vegna sýningar stúdenta á því í Aberdeen 1471. Þannig hefur ísl. þýðandinn, Björn Snæbjamarson, rektor í Skálholtsskóla með þýðingu sinni varðveitt þetta leikrit frá glötun. Frumrit hans er nú glatað eins og svo mörg önnur merkileg frumrit. En þar sem svo er, hefur hér komið til hjálpar einn af hin- um ódrepandi uppskrifurum handrita og fræðagrúskara 18. aldarinnar, og því í þessu tilfelli tekizt að varðveita óbætanlegan dýrgrip, þótt ekki sé liann ásjá- legur í augum nútíma manna. Þetta er í svo til samtíða upp- skrift Þorsteins bónda og lirepp- stjóra Halldórssonar í Skarfanesi á Landi, frá 1779 og uppskrift frá Skálholtsskóla frá 1787. Ef að líkum lætur, mun erlendum fræðimönnum þykja fengur í þvi að eignast heilan og óskertan miðalda leik af þessari sérstöku gerð, sem islenzkir alþýðumenn hafa þannig bjargað frá glötun. Er merkilegt, livað elja og áhugi þessara manna hefur megnað — þrátt fyrir torfið og fúann — að varðveita ýmsa þá dýrgrípi, sem fóru l’orgörðum í höllum er- lendis. Þetta eina dæmi, sem hér var nefnt, staðfestir áþreifanlega það, sem sagt var í upphafi þessarar Indribi Einarsson, rithöfundur. ÁKRANES 107

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.