Akranes - 01.09.1950, Qupperneq 19

Akranes - 01.09.1950, Qupperneq 19
SERA FRI6RIK FRIBRIKSSON: STARFSÁRIN III. Svo eftir kvöldsamkomuna dreifðust menn út um lystigarð- inn og i kring um skólann. Ég rakst þar á ungan vin minn frá skipinu, Svend Olaf. Hann sagð: mér að gefnu tilefni, að hann væri ennþá ekki kominn til meðvitandi trúar, en hann vonaði að það yrði á þessu móti, því móðir sín hefði beðið um það, að hann mætti öðlast vissu og gleði trúarinnar. Það rann út í fyrir honum, er hann sagði mér þetta. Við gengum nokkra stund saman i nokkurs konar leynigangi í lystigarðinum. Gangurinn var myndaður af tveimur jafnháum trjám, fullum af laufi, svo að ekki sást í gegnum. Við settumst niður á bekk þar inni og svo bað ég fyrir honum. Litil klukka hékk yfir höfuðdyrum skólans. Kl. 10 var klukk- unni hringt og söfnuðust þá allir saman á hinum breiðu stein- þrepum. Þar fór ifram kvöldsöngur. Sálmar og andleg ljóð voru sungin. Síðan kallaði formaður mótsins á mig til að enda með bæn. — Svo var sagt: góðar nætur! og allir fóru inn í svefn- sali sína. — Brátt lagðist friður og kyrrð yfir staðinn. Skólastjóri kom til mín og bauð mér inn í sína einkaíbúð. Voru þar komnir foringjar mótsins og drukkum vér kaffi saman hjá skólastjóra. Nú vil ég kynna lesendum mínum foringjasveit- ina. Harald Jessen og konsúl Axelsen hef ég þegar talað um. einnig kaupmann Dalgaard. Svo var Pétur Jessen, kaupmaður frá Silkiborg, bróðir Haraldar, en hann á eftir að koma svo mjög við sögu mina, að ég gef hér ekki frekari lýsingu á honum. Svo var kaupmaður Sören Aaen frá Skanderborg, sem einnig á eftir að verða kunnugur lesendum mínum. Af framkvæmdarstjórum K.F.U.M. voru þeir Christiansen, ég man ekki hvaðan hann var, Andreas Nielsen frá Silkiborg, Gunntopt frá Randers, útlærður söngvari af konunglega konservatoriunu, en hafði helgað sina miklu og hljómfögru söngrödd í þjónustu guðsríkis. — Ég var í senn heiðursgestur mótsins og starfsmaður. — En því langar mig til að lýsa þessu móti svo ítarlega sem ég get, til þess að geta seinna sagt lauslega frá hinum öðrum mótum i þessari grein, sem ég hef tekið þátt í. Ég hef verið á 12 slíkum mótmn og hafa þau haft mikla þýðingu fyrir mig, og aflað mér svo margra tryggðarvina meðal kaupmanna og verzlunarmanna í þessari grein í Danmörku. Ég vaknaði kl. 7, er klukkunni var hringt til fótaferða. Fimmt- án mínútum seinna, leit ég út um gluggann og sá að lærling- arnir stóðu í röðum á grasvellinum fyrir framan húsið og voru að æfa sig í morgunleikfimi. Svo klukkan rétt fyrir 8 var aftur hringt og söfnuðust þá allir kringum fánastöngina og sungu fánasöng meðan fáninn rann hægl og hátíðlega upp að hún og var svo fagnað með kröptugu hyllingarópi. Síðan var gengið inn til morgunverðar og sunginn morgunsálmur. — Svo var nokkurt hlé eftir matinn, og kl. 9 byrjaði árdegissamkoman. Hinn lands- frægi prestur, Gunnar Engberg, sem lengi hafði verið fram- kvæmdarstjóri í K.F.U.M. í Kaupmannah. og nú var prestur í Stryney, nálægt Langalandi, hélt afar skemmtileg erindi, bæði fróðleg og hvetjandi. Hann þótti einn af snjöllustu ræðumönn- um þess tíma. — Síðan var nokkurt hlé og kl. 10.30 skiptust fundarmenn í flokka til biblíulestrar, voru í hverjum flokki tveir leiðbeinendur, einn framkvæmdarstjóri úr K.F.U.M. og einn kaupmaður. Voru ákveðnir kaflat lesnir og útskýrðir og svo sam- tal um hið lesna. Sama efnið var í öllum flokkunum. — Ég hafði leiðbeininguna í einum flckknum með samstarfi við An- dreas Nielsen. Miðdegisverður var haldinn kl. 12. Þar á eftir voru ýmsar skemmtanir og íþróttir og annars voru menn frjálsir, nema hvað foringja-flokkurinn hélt samræðufund og komu sér niður á hvað gjöra skyldi eftir kaffitíma kl. 3.30. Var svo sameiginleg bæna- stund um blessun fyrir mótið og daginn. — Eftir kvöldverð var fáninn tekinn niður og kvaddur. Svo var kvöldfundur með guðs- þjónustu kl. 8—9, og svo reikuðu menn saman í lystigarðinum og töluðu saman í hópum eða gengu tveir og þrír úti í samtali um alvarleg efni. Ég reikaði um í samtali við ýmsa. Ungur piltur, lærlingur við eina stóra verzlun í Álaborg bað mig um samtal. Hann hét Pétur Sörensen og var 18 ára. Við gengum saman á afvikinn stað í lystigarðinum. Hinar kristilegu spurn- ingar ólguðu og gerjuðu í honum. Hann langaði til að komast til fullvissu trúarinnar, og gjörði mig að trúnaðarmanni sínum. Hann fann mjög til syndugleika síns og var mjög. hryggur yfir sjálfum sér. Við töluðum lengi saman og settumst i horn eitt í leynigarðinum. Svo byrjaði kvöldsöngurinn á tröppunum. Söng- urinn hljómaði út þangað, sem við Pétur sátum. Það var hálf- rökkur í kring um okkur. Við sátum hljóðir og hlustuðum á. Svo allt í einu heyrðum við einsöng sunginn með nokkuð djúpri karlmannsrödd. Þar var söngvarinn Gundtopte, sem söng. Það var söngur eftir séra Svein Rehiing, sem lengi var með beztu starfsmönnum í K.F.U.M., seinna prestur við Garnisonkirkjuna í Kaupmannah. — Viðlagið var sérlega hrifandi, — lauslega þýtt svona: „Golgata! Á Golgpta, þar Guðsson lét stg pína. Bót mér gafst í blóði hans, sem burt tók þrenging mína.“ — AJlt í einu mitt undir söngnum, fann ég að pilturinn hallaði sér upp að mér og brast í grát. Ég gat ekki annað en grátið með honum, og beðið fyrir honum. Svo er söngurinn var endaður, þá varð löng þögn. Svo leit hann upp og hvíslaði: „Nú veit ég að Jesús á mig“. Það var ein af minum sælu stundum. Daginn eftir var Pétur fullur af gleði og frelsis-vissu. — Nú er hann fyrir löngu orðinn kaupmaður og einn í stjórn Kristilega kaup- manna'félagsins og stoð og stytta í K.F.U.M. í Álaborg. — Heim- ili hans er mér ávallt opíð, eitt af mínum mörgu heimilium i Danmörku. — Um kvöldið er kvöldsöngurinn á tröppunum var búinn og lokabænin var enduð, skildumst við og hann fór upp í svefnsal sinn. Ég var í þann veginn að fara upp til skólastjóra, er piltur frá Friðrikshöfn kom til mín og bað mig um að koma upp í herbergi eitt, því að Svend Olaf væri í sálarneyð. Ég fór þangað. Þar var ungi vinur minn frá Herning. Hann var mjög sorg- bitinn og voru nokkrir trúaðir piltar hjá honum og reyndu til að hjálpa honum. Ég talaði við hann nokkur orð, og svo sagði ég að við skyldum halda sameiginlega hænastund. Svo bað ég fyrir honum. Svo lyfti hann upp rödd sinni, og bað: „Drottinn Jesús, miskunnaðu mér“. Svo gat hann ekki meira og brast í grát. Svo báðu ýmsir. Litli Guðmundur, er sótti mig, sagði með allri ákefð sinnar ungu trúar. „Frelsaðu hann nú!“ Það hljóm- aði fremur sem skipun en sem bæn. Þegar ég hugsaði mn þetta seinna gat ég næstum ekki annað en brosað. — Svo er bæna- stundinni var lokið, lét ég þá alla fara út, og bað ég með hon- um trúarjátningu postulanna og faðir vor og lagði yfir hann drottinlega blessun, og sagði: „Flýttu þér nú í rúmið og hugs- aðu svo um Jesús, meðan þú ert að sofna“. Svo fór ég upp til mín. Ég liitti iföður hans á leiðinni. Hann sagði að hann væri viss um að Svend Olaf kæmist á rétta leið, þó að síðasta árið hefði verið fullt af tregðu. Ég vissi í kvöld að hann var í neyð en ég vildi ekki ef til vill vera til hindrunar. Þegar ég var að klæða mig, kom drengurinn inn til min og sá ég strax á gleðibragði hans, að nú væri hann búin að með- taka náðina með vitund og vilja. Ég tók á móti honum með orð- um Davíðs: „Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að A K R A N E S 115

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.