Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 5. APRlL 2004 Fréttlr DV Alblóðugur og brjálaður Lögreglan handtók 17 ára pilt í einni af sundlaugum borgarinnar um þrjúleytið í fyrrinótt. Pilturinn hafði ráðist á öryggisvörð laugar- innar er meinaði honum inngöngu. Til átaka kom milli mannanna og rúða var brotin. Þegar lögreglu bar að réðist pilturinn alblóðugur og kolvitíaus á lögregluþjón. Hami var handtekinn og gisti fangageymslur. Piltur- inn er talinn hafa verið und- ir álirifum áfengis eða ann- arra vímuefna. Lóan er komin Einn þekktasti vorboði landsins, lóan, er komin. Hópar af þessum geð- þekka fugli sáust á flugi við Bessastaði og víðar í gærdag. Þetta er óvenju- snemma sem lóan kemur til landsins en komur fuglsins hafa stöðugt færst nær áramótum á síðustu árum. Þarf ekki aö leita lengur en áratug aftur í tímann að merkilegt þóttí ef lóan kom fyrir 1. maí. Flugóhapp við Hellu Lítil eins hreyfils flugvél fór út af brautarendanum í flugtaki á flugvelli skammt austan við Hellu um fimm- leytið í gær. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vom þrír um borð auk flugmannsins en engan þeirra sakaði. Flugvélin mun hins vegar vera töluvert skemmd eftír óhappið. Til- drög óhappsins em ókunn en fufltrúar Rannsóknamefndar flugslysa komu á vettvang um kvöldmatarleytið og hófu rannsókn á slysinu. Skjálfta- hrina við Kópasker Jarðskjálftahrina hófst um hádegið í gær skammt fr á Kópaskeri. íbúar urðu þó ekki varir við skjálftana þar sem þeir vom fremur litíir, sá öflugasti rúmlega þrjú stig á Richter kom laust fyrir kl. þrjú. Sam- kvæmt upplýsingum ff á skjálftavaH Veðurstof- utmar er ekki hægt að spá um hvort búast megi við fleiri eða stærri skjálftum en upptök skjálftanna vom í öxarfirði, um 14 km frá Kópaskeri. Alda Hafnadóttir, móðirin unga, neyddist að sögn föður hennar til að yfirgefa heimilið á föstudaginn. Var það vegna ágangs barnsföðurins, Kristófers Más Gunn- arssonar. Faðir stúlkunnar neitar að leyfa drengnum að sjá barnið. Segjast haia kant barnsfööurinn fyrin kynterðíslega misnotkun „Maður sem sendir fteirí menn hingað inn tíi að berja á mér hefurekki mikinn áhuga á barni sínu." Móðirin unga Alda Hafnadóttir og Qölskylda hennar þurftu að yfirgefa heimili sitt í Grafarholti um helgina vegna áreitis barns- föður hennar sem kastaði grjóti að húsi fjölskyldunnar, braut rúðu og ónáðaði með hótunum og leiðindum. Á föstudagskvöldið vildi barns- faðirinn sjá barn sitt en var meinað um það af afa barnsins, Hafna Rafnssyni. Hann sagðist ekki kæra sig um piltinn, sem er á sautjánda ári, inn á sitt heimili. „Það hefur verið stirt á milli okkar síðan piltur- inn lét annan mann ráðast að mér og berja mig. Dóttir m£n var aðeins 12 ára þegar hún varð barnshafandi og ég var ekki mjög hress með það. Taldi raunar að hann hefði brotið lög með því að misnota hana,“ seg- ir Hafni sem segist hafa kært barns- föðurinn fyrir að misnota dóttur sína. Ekki fyrsta árás barnsföður- ins Hafni segir að í byrjun hafi allt verið gert til að samband föður og barns rofnaði ekki. Þau hafi sótt fundi hjá barnaverndarnefnd og sálfræðingum í þeim tilgangi að samskipti gætu orðið góð. „Ég tel að reiði hans sé tilkomin vegna þess að við vildum ekki að hann kæmi inn á heimilið nema í fylgd foreldra sinna. Það getur hann ekki sætt sig við og þetta er ekki fyrsta árásin sem hann gerir á heimilið," segir Hafni. Á föstudaginn sáu for- eldrar móðurinnar ungu ekki annan kost en senda dóttur sína út úr bænum til ættingja. Hafrii segir að þegar þeim hafi orðið ljóst að það dygði ekki til þá hafi þau ákveð- ið að fara öll úr bænum. Lög- reglan hafi komið en ekki getað gert neitt. „Hann var á brott þegar þeir komu og þeir sögð- ust ekki geta far- ið inn í hús og náð í hann. Ómögulegt var að vita hvað hann myndi gera og við sáum því ekki aðra leið en fara á brott til að fá frið.“ Segist hafa fengið morðhót- anir Hafni segist hafi fengið morð- hótanir frá piltinum en það vaki ekki fyrir honum aðsjábarnið, held- ur sé ástæðan að hann vill vera í samskiptum við móðurina ungu sem ekki vill neitt með hann hafa. „Hann hefur aldrei sýnt að hann hafi áhuga á barninu. Hann hefur meiri áhuga á þessum látum. Mað- ur sem sendir fleiri menn hingað inn til að berja á mér hefur ekki mikinn áhuga á barni sínu,“ segir Hafni. - Mæðgurnar þrjár Mamman, barnið og amman.Afinn neitar að leyfa barnsföðurnum um að sjá barnið og segist hafa kært drenginn fyrir kynferð- islega misnotkun. Hann er 17 ára gamall. Löggan á línunni Svarthöfði er að hugsa um að ganga í lögguna. Hann hefur oft látið sig dreyma um hvað það hljóti að vera gaman að fá að spranga um í einkenn- isbúningi og njóta óskoraðrar virðing- ar og aðdáunar samborgara sinna, eins og raunin er um íslensku lögg- una. Og það hefur blundað í Svart- höfða hvort kvenfólk myndi ekki bein- lrnis flykkjast að honum ef hann væri kominn í úníform, þótt hann viður- kenni þá draumsýn nátúirlega aldrei opinberlega, enda myndi kona Svart- höfða, Svarthöfða, síst kunna að meta slíka hreinskilni. En nú hefur Svarthöfði fengið upp í hendumar aðra ástæðu til að ganga í Ip m Svarthöfði heimildir lögreglunnar til hlerana og eftirlits með borgurunum og Svart- höfði hugsar sér gott til glóðarinnar að komast í einhverja sýslan af því tagi. Eins og kunnugt er drögum við ís- lendingar mjög dám af okkar sessu- nautum í hinum vestræna heimi og nú þegar þar er aflt vaðandi í áhyggj- um út af hryðjuverkamönnum og alls konar glæpalýð, þá segir það náttúr- lega til sín hér á landi lika. Við þurfum absólútt að hafa hér nokkrar orrnstu- þotur til að verjast öflum þeim arab- ísku hryðjuverkamönnum sem anri- lögguna. Nú á sem sagt að auka mjög I „Ég hef það mjög gott; var að koma úr sundi á Seltjarnesinu og er á leiðinni í ferming- m arveisiu. Er hægt að hafa það betra á sunnudegi?" seglr Guðmundur Ingi Þorvaldsson, ieikari. „Ég er nýbyrjaður sem rödd Sýnar og finnst það mjög skemmtilegt enda góðir Í drengir sem ég er að vinna með. Annars er bransinn óútreiknanlegur. Það lítur út fyrir ' að eftirpáska fariég að vinna með Dramasmiðjunniíverkisem heitir Kartafla." ars mundu vera sprengjandi hér á öll- um götuhomum til dýrðar Allah, þótt Svarthöfði skilji reyndar ekki alveg í því hvernig einhverjar orrustuþotur eiga að koma í veg fýrir það. Nóg eiga bæði Bandaríkjamenn og Spánverjar af orrustuþotum, jafnvel af nýjustu gerð, og kom samt ekki í veg fyrir hryðjuverk í þeim löndum. En fyrst bæði Davíð og Hafldór segja að þot- umar séu nauðsynlegar, þá er það nógu gott fyrir Svarthöfða. Og nú segja þeir, blessaðir stjómarherramir, að við þurfum meiri símhleranir og stóraukið eftirlit til að koma í veg fyrir bæði hryðjuverk og almennari glæpi eins og líkamsárásir og þess háttar, og Svarthöfði trúir því og treystir að þetta sé allt mjög nauðsynlegt. Nema hvað Svarthöfði ætíar samt ekki í lögguna til þess að hindra glæpi og hryðjuverk, heldur einfaldlega til að fá tækifæri til að forvitnast dálítið um samborgara sína. Það er til dæmis gráupplagt að byrja bara að hlera sím- ann hjá nágrönnunum og síðan, þeg- ar í ljós kemur að hann hefur ekkert beinÚnis saknæmt unnið, þá hættir Svarthöfði bara hlerununum svolitía stund en verður ekkert refsað fyrir til- efiiislausar hleranir. Því svoleiðis verður alveg heimilt hverjum lög- regluþjóni. Og þeir geta eftirleiðis skemmt sér konunglega við að njósna um hvem þann í samfélaginu sem þeim sýnist. Og Svarthöfði ætíar sko ekki að missa af fjörinu. Minnist þess héðan í frá, lesendur góðir: næst þegar þið far- ið í símann - Svarthöfði gæti verið á línunni. Svartböfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.