Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Síða 15
I>V Fréttir
MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 15
Drakk kók og
missti hárið
Japani búsettur í
Indónesíu missti hárið og
hefur farið í mál við gos-
drykkjarisann Coca-Cola.
Hann segir ástæðu hármiss-
ins vera þá að hann hafi
skömmu áður drukkið kók
og fundið mýflugu í flösk-
unni. Fyrirtækið samþykkti
að borga sjúkrahúsgjöld
hans og gaf honum kassa af
kóki í sárabætur, þrátt fyrir
að læknar segi ekkert ama
að honum. Manninum
finnst þó ekki nóg að gert og
krefst skaðabóta jafnframt
því sem hann vill að allt kók
í Indónesíu verði afturkallað
þangað til gengið hafi verið
úr skugga um að það inni-
haldi ekki mýflugur.
Sveitarstjóri
fær borgað
Hæstiréttur staðfesti á
fimmtudag dóm héraðs-
dóms Norðurlands vestra
um að sveitarfélagið
Skagafjörður skyldi borga
Snorra Bimi Sigurðssyni
orlof á fasta yfirvinnu fjög-
ur ár aftur í tímann, eða
fýrir þann tíma sem hann
var sveitarstjóri á Sauðár-
króki og síðar í Skagafirði
frá 1998 til 2001. Hafði
Snorri tekið eftir því árið
2002 að aðrir starfsmenn
hans fengu slíkar greiðsl-
ur. Dómurinn kvað á um
að Skagafjörður greiddi
honum 1,2 milljónir króna
og 800 þúsund í kostnað
vegna málshöfðunarinn-
ar.
Fækkar á
biðlistum
Fækkað hefur á nær öll-
um biðlistum eftir aðgerð-
um á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi. Á skurðsviði er
fækkunin mest. f mars í
fyrra biðu 3.663 eftir skurð-
aðgerð en nú bíða 2.400
manns eftir aðgerð. Fækk-
unin nemur um 35%.
Skurðaðgerðum fjölgaði í
janúar og febrúar um 5,7%
frá fyrra ári.
Ófleygurhaf-
örn flaug
Haföm, sem talinn var
ófleygur, fannst við Sogið
á laugardag. Veiðimaður
varð var við hann og var
hann í slæmu ásigkomu-
lagi. Að sögn hafði hann
að öllum líkindum farið í
ána og færst of mikið í
fang. Örninn var allur
rennblautur og gat ekki
flogið. Lögreglan á Sel-
fossi tók málið að sér og
Kristján Skarphéðinsson
fuglafræðingur var feng-
inn til þess að meta ásig-
komulag fuglsins. Reynd-
ist ekkert að erninum og
þegar hann var orðinn
þurr flaug hann burtu.
Notkun á tauga- og geðlyfjum stóreykst þótt innlagnir á geðdeildir og viðtöl hjá
geðlæknum standi í stað. Þetta kemur m.a. fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar um lyfjakostnað hérlendis.
Notkun á tauga- og geðlyfjum
hefur stóraukist hérlendis á
síðustu árum þótt innlagnir á
geðdeildir og viðtöl hjá geð-
læknum standi í stað. Þetta
kemur m.a. fram í nýrri skýrslu
Ríkisendurskoðunar um lyfja-
kostnað hérlendis.
Segir í skýrslunni að lyfjanotkun í
heild hafi vaxið meira árlega en
hægt sé að útskýra með fólksfjölgun
og breyttri aldurssamsetningu
landsmanna. Til dæmis hafi lyfja-
notkun aukist um tæp 19% á milli
áranna 1999 og 2003 mismikið eftir
lyfjaflokkum.
Ríkisendurskoðun segir athyglis-
vert að skoða hvemig neysla tauga-
og geðlyfja hefur vaxið í samanburði
við hin Norðurlöndin. „Árið 1990
notuðu íslendingar mun minna af
tauga- og geðlyfjum en hinar þjóð-
irnar, t.d. notuðu Danir þá 60% meir
af þessum lyfjum. Árið 2002 var
neysla íslendinga hinsvegar orðin
18% meiri en Dana og 45% meiri en
Norðmanna.“ segir í skýrslunni.
Rannsóknir skortir
Ríkisendurskoðun telur að það
hafi verulega þýðingu að leitað sé
skýringa á aukinni lyfjanotkun svo
hægt sé að meta ábatann af henni í
samanburði við kostnað og einnig
hugsanlegar neikvæðar afleiðingar.
Hins vegar hafi fáar slíkar rann-
sóknir verið gerðar hérlendis. Er
bent á að fyrir nokkrum árum hafi
nefnd sem kannaði notkun geð-
deyfðarlyfja og þunglyndisraskanir
komist að þeirri niðurstöðu að
þrátt fyrir meiri lyfjanotkun hefði
innlögnum vegna þunglyndis á
geðdeild Landspítalans ekki fækkað
né heldur viðtölum hjá geðlækn-
um. Einnig hefði tíðni sjálfsvíga
haldist óbreytt en þekkt eru tengsl
þunglyndis og sjálfsvíga. Nefndin
benti á nauðsyn rannsókna til að
kanna hvaða árangri mikil notkun
þessara lyfja hefði skilað en ekki er
að sjá að niðurstöðum nefndarinar
hafi verið fylgt mikið eftir.
Meiri kostnaður
Mikil notkun tauga- og geðlyfja er
ein af höfðuðástæðum þess að lyíja-
kostnaður hér er méiri en gerist hjá
nágrannaþjóðum okkar. Þessi lyf em
að jafnaði mun dýrari en mörg önnur
lyf. Kostnaður við þessi lyf hérlendis
var um 28% af heildarlyfjakostnaði
landsmanna í íyrra en til samanburðar
nam hann um 22% að meðaltali í Dan-
mörku og Noregi. Það má einnig geta
þess að hlutdeild þessa lyfjaflokks í
heildarlyfjakostnaðin árið 1990 var um
15%. Kostnaðurinn hefur því nær tvö-
faldast á sl. þrettán árum.
Þunglyndi Miðað við lyfjakaup Islend-
inga erþunglyndi vaxandi vandamál
meðal þjóðarinar.
y—.-.
Islendingar ern
trekkSr á taugnlyfjum
Meintir hryðjuverkamenn sprengja sig í
loft upp
Fjórir látast i tilræöií
Madríd
Þrír menn sem em gmnaðir um að
hafa átt aðild að lestarsprengingunum
í Madríd sprengdu sig í loft upp þegar
lögreglan umkringdi þá. Einn lög-
regluþjónn lést og 11 særðust í spreng-
ingunni. Atvikið átti sér stað í bænum
Leganes, sem er í útjaðri Madríd. Lík
hinna grunuðu grófust undir bygging-
unni þegar hún hrundi við sprenging-
una. Mennirnir vom af norður-afrísk-
um uppruna og að minnsta kosti einn
þeirra var gmnaður um aðild að til-
ræðinu í Madríd sem kostaði 191
mann lífið. Þegar mennimir uppgötv-
uðu að þeir vom umkringdir flúðu
þeir inn í fjögurra hæða íbúðarhús og
samkvæmt innarfldsráðherra Spánar,
Angel Ancebes, hófu þeir þá að skjóta
og syngja á arabísku áður en þeir
sprengdu sig í loft upp.
Á föstudag réðist lögreglan í
Þýskalandi til inngöngu í hús í Darm-
stadt, eftir að spænska lögreglan
hafði tilkynnt þeim að einn hinna
gmnuðu dveldist þar. Einn 28 ára
gamall Marokkómaður var handtek-
inn. Sama dag ákærði spænskur
Hinir grunuðu Lögreglan á Spáni leitarnú
þessara manna.
dómari annan Marokkómann í Ma-
dríd fýrir aðild að tilræðinu en alls
hafa 12 manns verið ákærðir og sex
til viðbótar em grunaðir. Árásirnar á
Bandarfldn 2001 vom skipulagðar á
Spáni og í Þýskalandi og grunur leik-
ur á að árásimar á Spáni hafi einnig
verið skipulagðar í Þýskalandi. Að-
gerðir lögreglunnar í Þýskalandi áttu
sér stað á sama tíma og leiðtogar Evr-
ópusambandsins fúnduðu í Bmssel
ásamt leiðtogum þeirra tíu þjóða
sem fá inngöngu 1. maí en stóraukið
samstarf til að koma í veg fyrir
hryðjuverk er eitt helsta málið á dag-
skránni.
róflestu
I • A C T ■ V E
Yfirburða næringarmagn.
Súrefnistæmdar umbúðir.
IS09001 IS014001.
Kj. Vottað lífrænt.
Fæst í apótekum