Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004
Fréttir DV
HKJL._____£_*_J
Græntte gegn
hvítblæði
Vísindamenn við Mayo
Clinic í Bandaríkjunum hafa
komist að því að efni sem
má finna í grænu tei hefur
góð áhrif á aigengustu teg-
und hvítblæðis. Efnið heitir
epigalloca techin -3-galla te
og það drepur hvítblæði-
frumur með því að eyði-
leggja samskiptamerkin
sem þær þurfa á að halda tO
að lifa. Líklegt er talið að
efnið vinni einnig gegn öðr-
um tegundum krabbameins
enda hafa faraldsfræðUegar
rannsóknir allt ffá árinu
1970 sýnt að sumar tegund-
ir krabbameins eru óvenju-
sjaldgæfar þar sem mikið er
drukkið af grænu tei.
E-vítamín gegn
Alzheimer
Líkur benda tíl að neysla
á E-vítamíni geti dregið úr
áhrifum Alzheimer-
sjúkdómsins en aðeins
ef þess er neytt nógu
snemma. Þetta er niður-
staða Domenico Praúcö
prófessors í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum og aðstoðar-
manna hans. Menn hefur
lengi grunað að E-vítam£n
ætti að geta hamlað gegn
Alzheimer en Ula hefur geng-
ið að fá það vísindalega stað-
fest og neyslu sjúklinga á því
hefur oft fylgt verulega erfið-
ar aukaverkarúr. Nú sýna
rannsóknir Praúcös og fé-
laga á músum að skammtar
af vítamíninu hægja mjög á
og stöðva jafnvel þróun sjúk-
dómsins en því aðeins að
mýsnar fái það áður en
hrömun af hans völdum
hefst að nokkm ráði.
Jáj, á, við erum sæmilega
hress þrátt fyrir leiðindaveður.
Og þó. Körfuboltaliðiö okkar
varaö tapa þýðingarmiklum
leik við Keflavík Hún Sigga I
útkeyrslunni, sem er mikill
Landsíminn
maöur liðsins, hún er ekki búin
að jafna sig enn,* segir Kol-
brún Einarsdóttir afgreiðslu-
stjóri á pósthúsinu I Grindavík
- besta pósthúsinu. .„Ég
byrjaði hér sextán en er sextug
núna, varð sextug um leið og
gíróið datt út hjá okkur. Já,
það hefur viljað loða viö að
maður sé kallaður Landsíma-
mær." Heimur Kolbrúnar er
stór þótt hún sé heimakær og
ekki sé Grindavlk heimsborg.
Hún heyrir I fólki um land allt.
Það er reyndar á hverfanda
hveli eftirskilnað Pósts og
Síma. „Það var sagt að maður
heyröi allt. En það er liðin tíð.
Nú fréttum viö ekki neitt. Þetta
breyttist mikiö með sjálfvirkn-
inni." Kolbrún tekur breyting-
um ekki fagnandi og segir þær
alltofmiklar í þjóðfélaginu.
„En eitt breytist ekki sem er
kirkjukórinn. Ég byrjaði í hon-
um á sama tíma og ég byrjaði
á Slmanum. Ha? Nei, maður er
lltið á djamminu orðið en
bregður sér af og til út á llfiö."
Fjárbændur í Vestmannaeyjum eru orðnir langþreyttir á nýjum garðyrkjustjóra
sem þeir fuUyrða að leggi þá í einelti. Hann gangi jafnvel svo langt að sviðsetja at-
burði en undirmaður hans Sigurður Páll Ásmundsson neitar að svo sé.
Segja eyjabændur
lagöa í einelti
„Við bændur hér í Vestmannaeyjum höfum grunsemdir um að
gaddavírskindurnar hafi verið sviðsettar af þeim sem leggja okk-
ur fjárbændur í einelti," segir Guðjón Jónsson frístundabóndi í
Vestmannaeyjum og vísar þar í frétt DV frá því á mánudaginn
þar sem sagt var frá kindum föstum í gaddavír.
Guðjón heldur því fram
að það sé með ólfldndum
að garðyrkjustjóri bæjarins
og hans aöstoðarmaður
skuli aOtaf vera úl taks þeg-
ar eitthvað fer úrskeiðis.
Hann segir enn fremur að
ósjaldan hafi kindum verið
sleppt úr girðingum til þess
eins að hægt væri að kvarta
yfir lausum kindum. „Það
þarf ekki annað en lesa
greinar inni á eyjar.com eft-
ir Kristján Bjarnason garð-
yrkjustjóra og undirmann
hans Sigurð Pál Ásmunds-
son tO að menn átti
hvað hér er um að vera,“
segir Guðjón. Hann segir að ekki sé
nýtt að menn séu ekki á eitt sáttir
um fjárbúskap í Eyjum en um þver-
bak hafi keyrt þegar nýr garðyrkju-
stjóri hafi tekið við fyrir fimm árum.
„Hann leggur bændur hér í Eyjum í
einelú og notar aðferðúr sem menn
standa ráðþrota frammi fyrir," segir
Guðjón.
Bóndinn í Lukku orðið harð-
ast úti
Gunnar Ámason bóndi hefúr
orðið hvað helst fyrir barðhiu á
garðyrkjustjóranum og er hann orð-
inn þreyttur á að bera af sér sakir.
Garðyrkjustjórinn og hans undirsát-
ar eru úti um aOt, alla daga og öU
kvöld á ftfllum launum hjá bænum í
þeirri von að geta fundið eitthvað
sem hægt er að kvarta yfir eða
kæra," segir Guðjón og neitar að
nefha fleixi dæmi, þeir viú hvernig
garðyrkjustjórinn vinni sem þekki tfl
mála. Sigmundur Ein-
arsson formaður fjár-
bænda í Eyjum segir að
fjárbúskapiu: sé í betra
horfi þar en víðast hvar
annars staðar. „Málið er
að þetta er einkastríð
Kristjáns Bjarnasonar
garðyrkjustjóra við fjár-
bændur. Bæjaryfirvöld
eru ekki að baM honum í
þessu stríði hans. Sig-
urður PáO Ásmundsson,
undirmaður hans, virðist
vera með myndavélina á
lofti þar sem hann fer og
það sýnO: sig þegar hann
tók myndir af kindunum
sem voru fastar að annað hvort var
hann með vélina á sér eða hann hef-
ur láúð kindumar bíða fastar á með-
an þeir fóru heim og náðu í mynda-
vélina," segir Sigmundur og vill ekki
gera mikið úr þessu máli, það sé
meira í blöðunum en veruleflcanum.
Ástand mála gott í bænum
Frosú Gíslason framkvæmda-
stjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Vestmannaeyjabæjar segir fjár-
bændur vera með fé sitt í mjög
góðu ástandi. Það er ekki verra en
annars staðar og í langflestum til-
fellum til fyrirmyndar. „Ég tek ekki
undir að þeir hugsi ekki um fé sitt
og girði ekki almennilega," segir
Frosú og bætir við að það sé eitt-
hvað annað sem valdi því að fé
sleppi út fyrir girðingar en bændur
hugsi ekki um það.
Sigurður PáO Ásmundsson að-
stoöarmaður garðyrkjustjóra neitar
Frosti Gfslason
Hann segir að ekki sé
vandi vegna fjár í Vest-
mannaeyjum og bænd-
sig á urhugsivel um það.
Vestmannaeyjar Menn eru ekki á eitt sáttir um hvort sauðafjárbændur hugsi ekki vel um fé
sitt og hleypi þeim á svæði þar sem landgræðslan er að græða upp.
að bændur séu lagðir í einelti.
Hann segir það afls ekki rétt að þeir
hafi sett kindurnar í girðinguna tfl
að geta tekið myndir. „Ég var með
myndavél á mér því ég vildi sanna
að þetta væri rétt," segir Sigurður
Páll og neitar því að þeim Kristjáni
garðyrkjustjóra sé í nöp við sauðfé.
Þeir vflji bara ekki að því sé beitt þar
sem verið sé að græða upp land.
Gunnar Árnason bóndi í Lukku
sagist ekki vOja tjá sig um þetta mál,
hann sé orðnin þreyttur og hvekktur
á þessu og það hafist ekkert upp úr
því að tala við dagblöð.
bergljot@dv.is
Þúsundir fiska voru sveltir eftir að Byggðastofnun tók við rekstri gjaldþrota fisk-
eldisstöðvar á Tálknafirði
Fiskar hafa tilfinningar
„Umhverfisstofnun ber ábyrgð
á öllum málum sem varða dýra-
verndunarlög," segir Sigurður örn
Guðleifsson, lögmaður umhverfis-
stofnunar. Tvær fiskeldisstöðvar,
Bleikjan Hf. og Eyrar, urðu gjald-
þrota á síðasta ári á Tálknafirði.
Byggðastofnun tók við rekstri
Bleikjunnar sem stærsti kröfuhafi í
þrotabúið. Allri starfsemi í fiskeld-
inu var hætt og um 400 þúsund
bleikjur látnar svelta.
Fjölmargar athugasemdir bárust
bæði Byggðastofnun og Umhverfis-
stofhun um slæmt ástand fisksins.
Meðal annars skrifaði Jón Bek, fisk-
eldisfræðingur og einn af eigendum
stöðvarinnar, Byggðastofnun fjöl-
mörg bréf þar sem hann varaði við
ástandinu. Yfirdýralæknir héraðs-
ins, Gísli Jónsson, varaði Umhverfis-
stofnun og eigendur stöðvarinnar
einnig við.
„Það á að fara vel með öfl dýr,"
Jón Bek, fyrrum Aðalsteinn Þor-
eigandi Bleikjunn- steinsson, forstjóri
ar Ræðst harkalega Byggðastofnunar
að Byggðastofnun. Auglýsir stöðina til
sölu.
segir Sigurður Örn sem lflcir þessu
máfl við það sem kom upp í Dals-
mynni fyrir skömmu. „Mér skflst að
fiskar hafi úlfinningar; að þeir geú
kvaflst og auðvitað verður Umhverf-
isstofnun að axla ábyrgð í málum
sem þessum."
Þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir var
ekkert aðhafst. Eftir m'u mánuði sáu
yfirvöld ástæðu úl að grípa inn, í en
Bleikjan Hf Fiskeldisstöðin sem varð gjaldþrota.
þá var eitthvað af fiski orðinn sjálf-
dauða og restin i það slæmu ástandi
að ekki kom annað tfl greina en að
farga honum.
Jón Bek, einn af eigendum
Bleikjunnar, hefur ásakað Byggða-
stofnun um að hafa vfsvitandi svelt
fiskinn og valdið tugnúlljóna tjóni
vegna deilna við landeigendur. Að-
alsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, segist hafna
ásökunum Jóns Bek á atburða-
rásinni. „Við munum skoða hvernig
stofnunin bregst við þéssum ákúr-
um en annars er ekkert að, gerast i
þessu máli nema það að stöðin er
úl sölu," segir Aðalsteinn.
simon@dv.is