Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004
Sport DV
Corey í banni í
leik fcvöldsins?
Corey Dickerson,
leikstjórnandi Snæfells, var
rekinn út úr húsi í öðrum
úrslitaleik Snæfells og
Keflavíkur á laugardaginn
og verður væntanlega í
banni í þriðja leiknum sem
fram fer í Stykkishólmi í
kvöld. Corey hrinti Arnari
Frey Jónssyni eftir að hann
hafði hent boltanum í Hlyn
Bæringsson en Arnar var
iðinn við að pirra Snæfell-
inga allan leikinn.
Brotthvarf Dickersons
kemur örugglega til með að
hafa mikil áhrif á leik
Snæfellsliðsins enda er
hann mikið með boltann og
enginn hefur skotið oftar á
körfuna í liðinu (166) eða
gefið fleiri stoðsendingar
(43).
Stjarnan fyrst í
undanúrslitin
Stjarnan úr Garðabæ
varð fyrsta liðið til að
tryggja sér sæti í
undanúrslitum í
úrslitakeppni RE/MAX-
deildar kvenna með eins
mark sigri á Gróttu/KR,
21-22, í öðrum leik liðanna
á Seltjarnarnesi á laugar-
daginn. Stjarnan vann fyrri
leikinn 23-18. ÍBVbættist
síðan í hópinn í gær en
liðið vann KA/Þór í tveimur
leikjum, 32-23 á laugardag
og 39-29 í gær en báðir
leikir fóru fram í Eyjum.
Víkingsstúlkur tryggðu sér
hins vegar oddaleik gegn
Val eftir 23-22 sigur á
laugardaginn.
Haukarunnu
úrvalsdeildina
Haukar tryggðu sér í gær
deildarmeistaratitilinn í
úrvalsdeild RE/MAX-
deildar karla í handbolta er
liðið vann 36-34 sigur á KA
á Ásvöllum. Á sama tíma
gerðu Valsmenn 24-24
jafntefli gegn HK og misstu
þar með toppsætið til
Hauka á markatölu en
innbyrðisviðureignir lið-
anna stóðu jafnar. ÍR-ingar
urðu síðan í þriðja sæti eftir
26-29 sigur á Stjörnunni í
Garðabæ.
Grótta/KR varð síðan
sjötta og síðasta liðið til að
tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni þegar liðið vann
Fram, 27-23, en HK þarf að
mæta FH í umspili um
síðasta sætið inn í
úrslitakeppnina.
Úrslitaeinvígi Snæfells og Keflavíkur hefur þegar skapað sér sérstöðu á síðustu níu
árum og margt bendir til að einvígið geti endað sem eitt það sögulegasta í 20 ára
tíð úrslitakeppni karla. Keflavík jafnaði metin í 1-1 í öðrum leiknum.
Það stefnir í jafnt og skemmtilegt einvígi um íslandsbikarinn í
körufbolta milli Snæfells og Keflavíkur ef marka má fyrstu tvo
leiki liðanna um titilinn. í bæði skiptin hafa heimaliðin unnið
eftir harða og grimma baráttu í 40 mínútur og heimavöllurinn
heldur því enn sem komið er en það er aðeins í annað skiptið frá
á árinu 1995 sem það gerist í fyrstu tveimur leikjum
lokaúrslitanna.
Keflvíkingar vörðu metið sitt frá
því í fyrra (sjö sigrar í röð) og urðu
jafnframt fyrstir til að vinna Snæfell í
úrslitakeppninni í ár þegar þeir
unnu annan leik liðanna 104-98.
Keflavík hafði frumkvæðið allan
tímann, leiddi með flmm stigum
eftir fyrsta leikhluta, 23-18, og náði
síðan mest 16 stiga forskoti í fjórða
leikhluta. Snæfellsliðið gafst þó
aldrei upp og kom sér ávallt aftur
inn í leikinn.
Að stjórna hraðanum
Snæfellingar héldu hraðanum
niðri í fyrsta leiknum og Keflavík
skoraði þá aðeins sex stig úr
hraðaupphlaupum. í öðrum
leiknum í Keflavík var allt annað
uppi á teningnum og leikmenn
Keflavíkurliðsins skoruðu 36 stig úr
hraðaupphlaupum. Nick Bradford
fór þar mikinn líkt og áður og
skoraði 13 stiga sinna úr hröðum
upphlaupum. Á þessarri tölfræði
sést vel hversu mikilvægt er fyrir
liðin að stjórna hraða leikjanna.
Snæfellingar hittu frábærlega
fyrir utan þriggja stiga línuna í
öðrum leiknum, skoruðu alls
þrettán þriggja stiga körfur og nýttu
meðal annars öll sex þriggja stiga
skot sín í öðrum leikhluta. Hlynur
Bæringsson skoraði síðan fjórar
þriggja stiga körfúr í seinni. hálfleik
þar af þrjár þeirra á síðustu þremur
mínútum leiksins og sýndi þar og
sannaði enn ffekar fjölhæfni sína.
Hjá Keflavík- voru þeir Nick
Bradford (26 stig, 9 fráköst, 8
stoðsendingar) og Derrick Allen (25
stig, 9 fráköst) allt í öllu en eins kom
Magnús Þór Gunnarsson sterkur
upp í lokin og skoraði 9 af 18 stigum
sínum á síðustu fimm mínútum.
Hjá Snæfelli var Dondrell
Whitmore með 25 stig og fimm
stoðsendingar, Hlynur Bæringsson
skoraði 23 stig, tók 19 fráköst og stal
fimm boltum og Corey Dickerson
var með 22 stig en þurfti til þess 23
skot auk þess sem að hann tapaði 12
boltum í leiknum.
Það hefúr aðeins munað 4 og 6
stigum á liðunum í þessum fyrstu
leikjum og Keflavík hefur skorað
tveimur stigum fleira en Snæfell í
þessum leikjum. Liðin eru jöfn og
með gríðarlega sterka heimavelli
sem eru líklegir til að halda lfkt og
þeir hafa gert hingað til í
úrslitakeppninni en Snæfell hefur
unnið alla fjóra heimaleiki sína og
Keflavík hefur unnið alla flmm
heimaleiki sfna í þessarri
úrslitakeppni og alls tíu heiirialeiki í
röð í úrslitakeppni.
Síðustu þrjú árin hefur staðan
verið 2-0 eftir tvo fyrstu leikina og
einvígið þar með nánast búið ef
sagan er skoðuð því ekkert lið hefur
komið til baka í sögu úrslita-
keppninnar sem hefur tapað fyrstu
tveimur leikjum sínum.
Sex leikir á 10 dögum
Liðin spila þriðja leikinn í kvöld
fen hann er sá þriðji í einvíginu á
aðeins fimm dögum en því má ekki
gleyma að þetta er „aðeins" þriðji
leikur Snæfells á síðustu tíu dögum
en sá sjötti hjá Keflavík sem þannig
spila tvöfalt fleiri leiki á síðutsu tíu
dögum sem er mjög mikill munur á
leikjaálagi. Eftir leikinn í kvöld
kemur síðan fimm daga hvíld en
Qórði leikurinn hefur verið settur á í
Keflavík á laugardaginn.
ooj@dv.is
Verður sárt saknað Corey Dickerson verður
væntanlega I leikbanni I kvöld þegar Snæfell-
ingar taka ámóti Keflvlkingum IStykkishólmi i
þriðja úrslitaleik liðanna um’lslandsmeistara-
titilinn I körfubolta. Corey hefur skorað 27,5 stig
að meðaltáli í úrslitunum. DV-mynd Hari
STAÐAN EFTiR 2. LEIK
Þetta er aðeins í þriðja sinn frá
árinu 1997 þar sem staðan í úrslita-
einvíginu um fslandsbikarinn er
1-1 eftir tvo fyrstu leikina.
Heimavöllurinn hefur heldur ekki
getað státað af 100% sigurhlutfalli
síðan 1995.
Staðan eftir tvo fyrstu leikina:
1997 Keflavík-Grindavlk 2-0
1998 KR-Njarðvík 0-2
1999 Keflavík-Njarðvík 1-1
2000 Grindavík-KR 1-1
2001 Njarðvík-Tindastóll 2-0
2002 Keflavík-Njarðvík 0-2
2003 Grindavlk-Keflavlk 0-2
2004 Snæfell-Keflavík 1-1
Gengi heimaliða í fyrstu tveimur:
1995 100%
1996 0%
1997 50%
1998 50%
1999 0%
2000 50%
2001 50%
2002 50%
2003 50%
2004 100%
SNÆFELL-KEFLAVÍK 1-1
Keflvíkingar hafa betur I tölfræð- inni þótt einvígi þeirra og Snæfellinga standi jafnt.
Úrslit leikjanna:
Snáefell-Keflavík 80-76
Keflavík-Snæfell 104-98
Leikhlutar:
1. leikhluti Keflavík+10
2. leikhluti Snæfell +13
3. leikhluti Keflavík +4
4. leikhluti Keflavik +1
Tölfræðisamanburður:
Sókn:
Stig Keflavik 180-178
Sóknarfráköst Jafnt 30-30
Skotnýting Keflavík 45%-42%
Vltanýting Keflavík 78%-67%
Tapaðir boltar Keflavík 29-30
3ja stiga körfur Snæfell 17-8
Stig frá bekk Keflavík 39-14
Hraðaupphlaupsstig Keflavík 42-31
Vöm
Fráköst Keflavík 86-82
Varin skot Keflavík 20-12
Stolnir boltar Keflavík 26-15
Villur Snæfell 34-45
Frammistaða Snæfellingsins Hlyns Bæringssonar í úrslitakeppninni er stórbrotin
Hefurtekið
Hlynur Bæringsson hefur
slegið í gegn í úrslitakeppninni
enda hrífur frammistaða hans
alla sem á horfa; samherja,
mðtherja og hlutiausa. Hlynur
hefur skorað 16 stig og tekið
18,7 fráköst að meðaltali í sjö
leikjum Snæfellinga til þessa
og hefur náð tvennu í öllum
leikjunum sjö.
Allt frá því í fyrsta leik gegn
Hamri þar sem hann tók 18 fráköst
hefur Hlynur gert andstæðingum
sínum lífið leitt undir körfunum og
þá sérstaklega í sókninni en Hlynur
er nánast með jafnmörg fráköst í
sókn (62) ogvörn (69).
Það vekur líka mikla athygli að
131 frákast
Hlynur hefur aðeins tekið 67 skot og
nær því nánast sóknafrákasti fyrir
hvert skot sem hann tekur á
körfuna. f síðustu þremur leikjum
hefur Hlynur tekið 30 sóknarfráköst,
tíu í hverjum leik, og leikirnir eru þar
með orðnir fjórir í úrslitakeppninni
þar sem Hlynur hefur tekið yfir U'u
sóknarfráköst.
Hlynur hefur tekið fimm
fráköstum fleiri að meðaltali en
næsfi maður og þegar litið er á
sóknarfráköstin þá er hann með
tvöfalt fleiri sl£k að meðtali en næsfi
maður.
Framlagsjafna Hlyns í úrslita-
keppninni er upp á 31,3 sem er
frábært en auk stiganna 16 og
frákastanna 18,7 er Hlynur með 2,9
stolna bolta, 1,9 stoðsendingar og
1,4 varin skot að meðaltali í leik.
í sjö leikjum
16 stig og 18,7 fráköst f leik Hlynur
Bæringsson hefurátt frábæra úrslitakeppni
með Snæfellsliðinu.
HLYNUR I (VIIKLUM HAM
Hlynur Bæringsson hefur átt
frábæra úrslitakeppni með Snæfelli
eins og sjá má vel hér fyrir neðan.
Stig Hlyns eftir leikjum:
Hamar, 1. leikur 13(71%*)
Harhar, 2. leikur 16(50%)
Njarðvík, 1. leikur 19(55%)
Njarðvík, 2. leikur 10(38%)
Njarðvík, 3. leikur 19(44%)
Keflavík, 1. leikur 12(50%)
Keflávik, 2. leikur 23 (42%)
•Skotnýting
Fráköst Hlyns eftir leikjum:
Hamar, 1. leikur 18(11**)
Hamar, 2. leikur 18(7)
Njarövík, 1. leikur 28(9)
Njarðvík, 2. leikur 12(5)
Njarðvík, 3. leikur 16(10)
Keflavík, 1. leikur 20(10)
Keflavík, 2. leikur 19(10)
** Sóknarfráköst