Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Síða 31
r»V Síðast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 18.MAÍ2004 31
Hlutverk stjórnmálamanna
Stjórnmálamenn setja óneitan-
lega mikinn svip á þjóðmálaumræð-
una, enda hafa ákvarðanir þeirra og
gjörðir mikil áhrif á líf allra. Rlfist er
um virkjanaframkvæmdir, ráðning-
ar, lagasetningar, skattprósentur,
úthlutanir, niðurgreiðslur og for-
gangsröðun í hinum og þessum
málaflokkum og sjaldan ríkir full-
komin sátt. Stjórnmálamenn eru
gjarnan gerðir að blórabögglum í
þessu samhengi þótt þeir h'ti lfldega
flestir á sig sem skjólstæðinga kjós-
enda sinna og reyni að vinna í sam-
ræmi við það.
Lexían af umræðunni
Ef einhvern lærdóm er að draga af
þjóðmálaumræðunni síðustu vikur
Margir sem kvarta og
kveina undan ríkis-
stjórninni núna telja
jafnvel að stjórnmála-
menn eigi að hafa enn
meiri völd en þeir
hafa i dag, en á hinn
bóginn tilheyra öðr-
um flokkum en Sjálf-
stæðis- og Framsókn-
arflokkL Lexían i
þeirra huga er sú að
Davíð Oddsson sé
geðstirður maður og
þar við sitjL
Geir Ágústsson
vill að ríkið hafi sem ®
mirmst völd yfir lífi Rp'® 1
sínu. \
Kjallari
og mánuði ætti hann að vera að
stjórnmálamönnum má ekki fela of
mörg verkefni, og helst engin mikil-
væg verkefni. Þeir þurfa ekki að taka
tillit til allra sjónarmiða þótt ákvarð-
anir þeirra hafi áhrif á aUa. Þeir geta
ekki haldið öllum boltum á lofti og
þar með ekki myndað fullkomna sátt
í samfélaginu um eitt né neitt. Þetta
er það sem aðgreinir hið opinbera frá
hinum frjálsa markaði. Við getum
skipt um viðskiptabanka ef okkur
mislflcar vaxtakjörin og kjörbúð ef
okkur mislíkar verð á niðursoðnum
baunum, og þannig þaggað niður í
eigin umkvörtunum. Við eigum hins
vegar erfiðara um vik að skipta um
rfldsstjóm þótt okkur mislfld kjörin
sem hún býður, nema auðvitað með
því að skilja alla vini og vandamenn
eftir á landinu og flytja til útlanda. Til
að komast nær því að skapa einhvers
konar sátt liggur því beint við að
fækka þeim hlutverkum sem em á
hendi stjórnmálamanna. Hlutverk
stjómmálamanna ætti fyrst og fremst
að snúast um að skapa umgjörð sem
allir geta starfað og lifað í, að sem
mestu leyti eftir eigin höfði, en með
þeim afleiðingum að fleirum h'ði bet-
ur lengur en ella.
Traustið lifir samt
Nú þykist ég viss um að margir
muni ekíd deila þeirri skoðun með
mér að fækkun á verkefnum stjórn-
málamanna leiði til betri sátta um
gjörðir þeirra. Margir sem nú tala
sem hæst um spillingu, ósanngjarn-
ar lagasetningar og vafasamar
mannaráðningar á rfldsstarfsmönn-
um eru ekki á þeim buxunum að um
sé að kenna röngum forsendum bak
við ýmsar ákvarðanir stjórnmála-
manna. Margir sem kvarta og kveina
undan ríkisstjórninni núna telja
jafnvel að stjórnmálamenn eigi að
hafa enn meiri völd en þeir hafa í
dag, en á hinn bóginn tilheyra öðr-
um flokkurp en Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokki. Lexían í þeirra
huga er sú að Davíð Oddsson sé geð-
stirður maður og þar við sitji. Hvern-
ig má það vera að stjórnmálamenn
njóti alltaf slflcs trausts að það nægi
hreinlega að skipta um þá reglulega
til að sætta landsmenn? Ekki sé ég
að slflcur þankagangur sé innblásinn
af mikilli skynsemi og yfirvegun.
Fækkum verkefnum stjórn-
málamanna
Hvað sem líður hinu endalausa
trausti á stjórnmálamönnum, þrátt
fyrir að þeir hafi aldrei nokkurn
tímann getað sætt alla á meðan þeir
taka ákvarðanir fyrir alla, þá ætla ég
samt að leyfa mér að stinga upp á
einu: Fækkum verkefnum stjórn-
málamanna, svo þeir geti sinnt
þeim verkefnum betur sem eftir
standa. Við getum valið hvaða dag-
blöð við lesum, banka við stundum
viðskipti við og bfl við kaupum, en á
meðan ákveða stjórnmálamenn
hvaða kjöt við borgum fyrir og
hvaða iðgjöld við greiðum hvaða
aðila í heilbrigðistryggingar. Stjórn-
málamenn meina vel og vilja að öll-
um líði sem best, en þeir geta
hreinlega ekki haft yfirsýn yfir vilja
og langanir þeirra sem lesa þessi
orð, og hvað þá allra annarra. Vald
yfir sjálfum sér ætti að vera hverj-
um manni feikinóg. Sem minnst
vald í sem fæstum málum ætti að
vera hverjum stjórnmálamanni
feikinóg.
Hvar eru þau nú
Steinunn
Sæmundsdottip
Steinunn Sæmundsdóttir varð
landsþekkt á áttunda áratugnum
fyrir frábæra frammistöðu á skíða-
mótum. Steinunn fór á tvenna
ólympíuleika, í Innsbruck 1976 og
Lake Placid 1980. Flenni gekk vel á
báðum leikum en hennar besti ár-
angur er sennilega 18. sætið á
heimsmeistaramóti. Steinunn
gerðist síðar afrekskona í golfí-
þróttinni og keppti á heimsmeist-
aramótum og Norðurlandamótum
auk móta hér heima. Hennar sveit
náði þriðja sætinu á Norðurlanda-
móti í eitt skiptið.
Árið 1989 útskrifaðist Steinunn
með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun frá
Háskóla íslands. Hún er einn sjö
eigenda sjúkraþjálfunar Styrks.
„Sjúkraþjálfunin er mjög gefandi
starf enda árangurinn svo oft mik-
ill og gleðilegur," sagði Steinunn í
samtali við DV í gær. Hún segist
enn stunda skíðaíþróttina en nú
sem fjölskylduskemmtun.
-r
• Vefritið deiglan.com, hið frjáls-
lynda og hægrisinnaða, heldur
sínu striki þrátt fyrir
að ritstjórarnir Þór-
lindur Kjartansson
og Borgar Þór Ein-
arsson séu í fullu
starfi hjá Frétta-
blaðinu. Þeir bjóða
jafnan upp á skoð-
anakönnun og nú eru lesendur
ritsins beðnir um að leggja mat á
hvaða lið ber sigur af hólmi í ís-
landsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu. Þegar þetta er skrifað þá
eru Skagamenn efstir með 18 pró-
sent atkvæða, FH-ingar í öðru sæti
með 12 prósent. Skammt á eftir
eru svo KR-ingar með 11 prósent
en Fylkismenn eru aðeins með 3
prósent. „Aðrir" eru með 13 pró-
sent samtals...
Bolti eða sprengja
íVesturbænum?
Stuöningsmaöur KR skrifar.
Sumarið komið, sumardagurinn
iýrsti í Vesturbænum var þegar KR tók
á móti FH úr Hafnarfirði í fyrsta leik ís-
landsmótsins. Spennandi að sjá hvern-
ig KR kæmi undan vetri. Liðið hefur
ekki verið sannfærandi í vetur, þrátt
fyrir viðunandi úrslit. Leikur KR hefur
Lesendur
einkennst af taugaveiklun og kannski
hræðslu við Willum Þór þjálfara, sem
stendur og öskrar á leikmenn sem þora
ekki annað en gera eins og þjálfarinn
segir, lflct og fótbolti gangi bara út á það
að hafa þjálfarann góðan. Leikurinn,
fótboltinn það er að segja, hjá KR-lið-
inu er löngu hættur að vera skemmti-
legur. Spilaður er vamarbolti, sem
minnst áhætta tekin en mörkin og
skemmtanagildi leiksins em í lágmarki.
En þetta brást samt illa á laugardag-
inn. Liðið lék illa, engin mörk og engin
stig höfðust út úr þessum m'tíu mínút-
um, og allra síst skemmtun. Willum
veit greinilega hvernig hann vill að lið-
ið spili og og er í viðbragðsstöðu á lín-
unni ef leikurinn þróast ekki eftir hans
höfði. Liðið þorir ekki að taka áhættu
og menn em í því að sparka boltanum
sem lengst frá sér svo þeir geti ekki gert
fleiri mistök. Eins og það væri hræði-
legt ef liðið reyndi að spila boltanum,
hann gæti þá tapast, Willum gæti
skammast og öskrað úr sér æðamar í
hálsinum.
Þegar maður horfir á leikinn ofan úr
stúkunni þá sér maður ekki lið, heldur
sér maður 11 skíthrædda einstaklinga
sem hvetja ekki hver annan, hjálpa ekki
hver öðrum, hvorki í vörn eða sókn.
Berjast og vinna saman? Það var ekki
upp á teningnum, frekar eins og menn
væm að sparka sprengju sem væri al-
veg við það að springa. Willum æptí há-
stöfum ef ske kynni að einhver tæki
upp á því að reyna eitthvað annað en
þjálfarinn hefur lagt upp með. Hann
virðist ekki hvetja þegar illa gengur
heldur virðist hann brjóta meira niður.
Þannig verður til hræðsla.
En við stuðningsmenn KR erum
þeir bestu á íslandi, við erum flestir og
oftast háværastir, í gegnum súrt og
sætt. Við bmgðumst ekki þegar þurrku-
tíðin stóð yfir og við bmgðumst ekki
tímabilið 2001 þegar liðið var næstum
fallið. En það er ekki hægt að bjóða
okkur upp á svona fótbolta endalaust.
Né heldur fólkinu í kringum liðið, og
hvað þá leikmönnunum sjálfum.
PortahleSpas
VANGUARD er vinningshafi Consumers Digest Best
Buy verðlaunanna sérlega orkusparandi pottur. I
honum eru alls 31 nuddstútur og tvö sæti með
frábæru nuddi fyrir bak, háls og axlir. Til að gera
slökunina enn fullkomnari er Ijósleiðaralýsing með
5 þrepa stillingu og lækjarniður úr svo kölluðum
WellSpring. Verð kr. 670.000
HotSprtng*
Vangtiard*
Fjöldi fullorðinna:
Stærð:
Lítrafjöldi:
Tónlist:
2,20m x 2,20m - hæð 91 cm.
1.514 Iftrar.
Tilbúinn fyrir SpAudio
hljómflutningstæki með útvarpi
og geislaspilara.
31 nuddstútur.
Vinyl klæðning, vel einangruð.
SKAehf
Gagnheiði 40
800 Selfoss
Sími 482 3200
Bfli ISLEIFUR
|\/| JÓNSS0N
Bolholti 4-105 Reykjavík
Sími 568 0340 • www.isleifur.is
Nuddkerfi:
Ljok:
i
j i — | | ! mmnl i M i
6 |jll 1
1 III j M ;
! .... . ;
{ ^ ■ | i
X