Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ2004 Fréttir DV Drottningunni ekki skemmt Bresku drottningunni var ekki skemmt þegar hún heyrði af leikríti sem fjallar um mann sem verður ástfanginn af geitinni sinni. Elizabeth mætti í hátíðarkvöldverð með þekktustu sviðsleik- urum Bretlands og eftir að hún hafði lýst yfir ánægju sinni með upp- færsluna á My Fair Lady við Jonathan Pryce, frægan breskan leikara, spurði hún hann hvað hann ætlaði að gera næst. Þegar hann sagði henni frá leikritinu, sem fjallar um eld- heitt ástarsamband milli manns og geitar, lyftist augabrún drottningarinnar og greinilegt var að henni leist illa á hugmyndina. Fékk eyju í afmælisgjöf Hinrik prins heldur upp á 70 ára afmæli sitt í dag. Af- mælisgjafirnar eru þegar farnar að streyma að og eru ekki af verri endanum. Háttsettur yfirmaður ríkisstjórn- arinnar gaf prínsinum óbyggða eyju sem staðsett er 1.400 km suður af norðurpólnum. Eyjan var fyrst kortlögð árið 1905 af frönskum og belgísk- um landkönnuðum og hefur hingað til verið köllum Franska eyjan Nú hefur hún hins vegar fengið nafnið Prins Hinriks eyja. Beitti fyrrverandi kærustuna ofbeldi Bróðir Mette-Marit krónprinsessu Nor- egs hefur verið dæmdur í 60 daga fangelsi og til að greiða fyrrverandi kærustu sinni 40 þúsund norskar krón- ur í skaðabætur. Hæstiréttur dæmdi Espen Hoiby fyrir að hafa beitt fyrrver- andi kærustu sína grófu ofbeldi. Espen, sem starfaði sem háttsettur flugmaður, vildi ekkert segja um málið en viðurkennir ekki að hafa sparkað og barið í liggjandi konuna. „Við töluðum saman og ekkert annað,“ sagði hann í réttinum. Indíana Ása Hreinsdóttir fylgist með kóngafólkinu á föstudögum og læturblátt blóðið streyma með stíl. indiana@dv.is Vel heppnuð brúðkaups- ferð Friðrik og Mary Donaldson eru komin heim eftir vel heppnaða brúðkaupsferð. í gær óskuðu þau svo Jóakim prins til hamingju með 35 ára afmælið. Brúðkaupsferðin varði í 24 spennandi daga og hefur Mary fengið fallegan brúnan lit á húðina. Síðar í mánuðnum ætía hjónin í heimsókn til Grænlands og segja kunnugir að Mary bíði spennt enda sé landið gjörsamlega ókunnugt henni. Nú er hins vegar kominn tími til að opna brúð- kaupsgjafirnar og eru þær ekki af verri endanum. Vantar alla spennu í sambandlð Margir telja að endalok ástar- sambands Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles séu í nánd. Parið hefur hist laumulega síðustu 34 árin en nú þegar öll leyndin sé farin sé öll spenna horfin einnig. Kunnugir segja að Camilla vilji helst halda sér fyrir utan sviðsljós- ið en Karl sé orðinn leiður á að hanga með henni heima, hann vanti meiri spennu og fjör. „Karl sagði mér að þau mundu aldrei giftast," sagði vinur prinsins. „Fiér áður fyrr var hún hinn forboðni ávöxtur en nú þegar þau búa sam- an sem maður og kona stendur sambandið á völtum fótum." Erótískar lýsingar í skáldsögu fósturmóður Mary Donaldson valda uppnámi í Dan- mörku. Helstu sérfræðingar í málefnum konungs^ölskyldunnar telja að bókin muni þó ekki skaða virðingu krúnunnar. wmv Fósturmóðir Maríu Dana- prinsessu hefur gefið út erótíska skáldsögu sem komin er út á dönsku. Flestir Danir muna eftir Susan Moody veifandi til almúgans á svölum Amalíuborgar en hafa nú fengið tækifæri á að kynnast henni á allt annan máta. Danskir sérfræð- ingar í málefnum konungsfjöl- skyldunnar velta nú vöngum yfir hvort bókin, sem þykir mjög gróf í kynlífslýsingum, geti skaðað virð- ingu fjölskyldunnar. Þrátt fyrir að kynlíf og krúnan hafi ávallt verið vel aðskild málefni telur Claus Bjorn, sérfræðingur í konunglegum mál- um, að bókin muni ekki skaða höll- ina. „Susan er ekki líffræðileg móð- ir Maríu. Hún er kona föður hennar og þar er nauðsynleg fjarlægð kom- in. Ef móðir hennar hefði skrifað bókina hefði málunum verið allt öðruvísi háttað.“ Aðrir sérfræðingar benda á að svo lengi sem hún blandi ekki Danmörku, konungs- fólki eða þeim heimi sem hún hefur nú fengið lítillega að kynnast, inn í sögur sínar ættu bækur hennar ekki að skaða. Lífstílssérfræðingurinn Henrik Byager er sammála Bjorn og segir að þar sem bókin ali ekki á of- beldi gagnvart manneskjum né dýr- um sé hún skaðlaus og bendir á að verra væri ef María sjálf hefði skrif- Susan Moody Bókin hennar Italski garður- inn erkomin út á dönsku og inniheldur afar ítarlegar kynlifslýsingar. að þessar erótísku lýsingar. „Þegar maður er þjóðareign eru skorður á hversu mikið maður má gefa af sér, sínum löngunum og þrám. Bókin, ítalski garðurinn, er komin í sjö- unda sæti danska bókavinsældar- listans og allt lítur út fyrir að Susan Moody verði vellrík fyrir vikið. Bókaútgáfan sem gefur bókina út viðurkennir fúslega að sú staðreynd að fósturmóðir krónprinsessunnar sé höfundurinn sé ástæðan fyrir velgengninni. „Okkur hefur gengið -ljómandi vel í sölunni og allt lítur út fyrir að bókin muni komast á toppinn því áhug inn er mikill." Á sama tíma og ítalski garðurinn kom út gaf Ari Behn út bók- ina Bakgarður inn. Ari er eigin- maður norsku prinsessunnar Mörthu Lovísu. í hans bók segir frá samkyn- hneigðum krúnuerfingja og inniheldur bók- in ítarlegar kyn- lífslýsingar. Bókaútgáfa þeirrar bókar hugsar sér gott til glóð- arinnar eftir að hafa heyrt sölutölur á ítalska garðinum. Krónparið Sérfræðingar telja aðþar sem Susansé ekki líf- fræðiteg móðir Maríu muni bókin ekki skaða konungsfjöl- skyiduna. Yfir tvöhundruð ára hjarta fær konunglega jarðarför. Hjartað er talið tilheyra syni Loðvíks XVI konungs og Maríu Antoinette drottningar sem hálshöggvin voru 1793. Hjarta fær konunglega jarðarför Konungleg jarðarför var hafdin í Frakklandi fyrir son Loðvíks XVI konung og Antoinette drottningar. Hjarta sem mjög líklega er talið tii- heyra konungssyninum var lagt til hinstu hvílu í París. Loðvík Karl (Louis-Charles) lést af völdum berkla í fangaklefa árið 1795 þegar hann var aðeins 10 ára, tveimur árum eftir að foreldrar hans voru hálshöggnir. Örlög hans voru mönnum hugleikin í nær tvær aldir, þar til hjartað var sett í DNA-rann- sókn árið 2000. Erfðafræðin sýnir að hjartað til- heyri afkomendum konungshjónanna. Á þriðju- daginn var hjartanu komið fýrir nálægt grafreit foreldranna í konunglega kirkjugarðinum í Saint Denis. Meira en tvö þúsund manns mættu til at- hafharinnar og meðal gesta voru margir úr evr- ópsku konungsfjölskyldunum. DNA-rannsóknin hefur nú hrakið þær sögusagnir að konungserfing- inn hafi á einhvern hátt sloppið úr fangelsinu. Læknirinn sem framkvæmdi krufninguna á bam- inu geymdi hjartað í sérútbúnum vasa, en læknanemi stal síðar vasanum. Þegar neminn lést úr berklum skilaði ekkja hans hjartanu aftur til læknisins. DN A Rannsóknir hafa leitt í Ijós að hjartað hafi tilheyrt erf- ingja frönsku krúnunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.