Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 19
W Sport
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ2004 19
Það er hinn 17 ára KR-ingur Kjartan Henry Finnbogason sem er leikmaður umferðarinnar hjá DV
Sporti að þessu sinni. Kjartan átti góðan leik þegar KR lagði ÍA. Hann var sívinnandi og ógnandi og gaf
hinum sterku varnarmönnum Skagamanna aldrei frið þó svo að honum hafi ekki tekist að skora.
Skemmtilegast aö skora
Kjartan Henry var algjörlega óþekktur fyrir þetta tímabil. Meiðsli
framherja KR-inga gerðu það síðan að verkum að hann var
nánast eini framherji félagsins sem var heill heilsu þegar
tímabilið byrjaði og því fékk hann tækifæri í byrjunarliðinu. Það
tækifæri hefur hann gripið báðum höndum og ég held að það sé
á engan hallað þegar sagt er að hann hafi verið besti leikmaður
liðsins í fyrstu fimm leikjum íslandsmótsins. Hann hefur í raun
gert allt sem hægt er að ætlast til af framherja nema að skora
mörk. Það er það eina sem hann á eftir að gera í sumar og
mörkin eiga vafalítið eftir að koma í næstu leikjum.
þar á eftir. Ég er ungur og fljótur að
ná mér.“
Eins og áður segir hefur Kjartan
„Er það ekki eitthvað ofmat hjá
ykkur?" sagði Kjartan Henry af
mikilli hógværð þegar honum voru
færð tíðindin. „Mér finnst ég eiga
miklu meira inni en ég sýndi í
þessum leik. Það eina sem maður
getur er að berjast, tækla og leggja
sig allan fram og vonandi nægir
það.“
Kjartan hefur á köflum þótt
svolítið ákafur í leik sínum og fyrir
vikið hefur hann fengið nokkur
spjöld í gegnum tíðina. Hann slapp
þó við spjald gegn Skagamönnum
en það stóð reyndar tæpt.
Tók skemmtilegar dýfur
„Já, það munaði ekki miklu.
Maður sem er örugglega tvisvar
sinnum þyngri en ég lét sig ekki
muna um að taka nokkrar skemmti-
legar dýfur þegar ég þjarmaði að
honum," sagði Kjartan og átti þar við
Skagamanninn Reyni Leósson sem
kvartaði sáran undan Kjartani í
leiknum og sérstaklega þegar Kjartan
sparkaði boltanum eitt sinn út af en
Reynir vildi að hann sparkaði
boltanum beint til leikmanns ÍA.
„Þeir áttu nú reyndar innkast fyrir
þannig að það breytti lidu. Ég sagði
það við hann og þá þagnaði hann
bara. Þeir voru eitthvað að öskra
„fair play“ en ég gerði það sem mér
fannst rétt að gera.“
Kjartan er vel meðvitaður um
sinn leikstíl og það kemur honum
ekki á óvart að varnarmenn
deildarinnar láti hann fara í
taugarnar á sér.
„Auðvitað er
pirrandi að hafa 17
ára gutta framan í sér
með einhvern kjaft
og hroka. Annars er
það ekkert mál
fyrir mig að
þjarma að
varnarmönnum
heilan leik. Ég er í
mjög góðu
hlaupaformi og
eins og Willum
segir þá get ég
alveg hlaupið tvo
leiki," sagði
Kjartan en þá
þarf hann
reyndar að vera
heill. Það er
hann ekki núna
því hann varð að fara
af velli fyrir leikslok gegn ÍA en
hann verður þó ekki lengi frá.
Fljótur að jafna mig
„Ég fékk smá högg frá varnar-
manni ÍA en það er ekkert alvarlegt.
Ég veit ekki hvort ég verð klár á
laugardaginn en ég ætti að vera klár
„Auðvitað erpirrandi að hafa 77 ára gutta framan ísér
með einhvern kjaft og hroka. Annars er það ekkert mál
fyrir mig að þjarma að varnarmönnum heilan leik. Ég er
í mjög góðu hlaupaformi og eins og Willum segir þá get
ég alveg hlaupið tvo leiki."
Átta nýliðar í liði 5. umferðar Landsbankadeildarinnar
Fulltrúar frá átta félögum í liðinu
„Öllþessi mikla og jákvæða umfjöllun hefur
komið mér á óvart. Sérstaklega þar sem ég er
ekki enn búinn að skora. Ég er náttúrlega
fremstur og á að skora. Þótt maður sé búinn
að leggja upp og svona erþað ekkert eins
gaman og að skora."
nánast komið eins og
stormsveipur inn í deildina en
hefur honum gengið betur
en hann átti von á í
upphafi?
„Já, ég verð að játa
það. Öll þessi mikla
og jákvæða
umfjöllun hefur
komið mér á
óvart.
Sérstaklega
þar sem
ég er
enn
búinn að
skora. Ég
náttúrlega
fremstur og á að
skora. Þótt maður sé
búinn að leggja upp og
svona er það ekkert eins
gaman og að skora. Ég bíð
ennþá þolinmóður eftir
fyrsta markinu og það er
ekkert annað hægt að
gera en að halda áfram
að reyna. Þetta hlýtur
að fara að koma.“
Dreymt um þetta
Margir efnilegir
leikmenn hafa átt erfitt
með að höndla álagið sem
fylgir því að koma úr
unglingaflokkum upp í
meistaraflokk. Kjartan
Henry er ekki einn þeirra
og hann segist lítið spá í
breytingarnar sem
þessu fylgja.
„Ég finn ekkert
mikið fyrir því.
Frá því
maður var lítill hefur mann dreymt
um að spila fyrir allt þetta fólk hér á
KR-vellinum. Tilfinningin er góð
þegar maður loksins er kominn
þangað en maður er samt ekkert að
pæla í því þegar maður er í
eldlínunni. Þá er það bara boltinn
og í raun er þetta ekkert öðruvísi en
að spila á þessum velli með 2. flokki
þar sem eru örfáar hræður í
stúkunni. Samt er þetta miklu meiri
alvara, meiri harka og reyndari
menn sem maður er að spila á móti.
Það var til að mynda ekkert grín að
spila á móti Skagamönnunum
Gulla og Reyni."
Berst fyrir mínu sæti
KR-liðið þótti mjög andlaust í
fyrstu leikjum mótsins en leikmenn
liðsins sýndu loksins almennilega
baráttu gegn Skagamönnum.
Hvernig stendur eiginlega á því?
„Ég veit það ekki alveg. Við
vitum alveg að liðin berjast gegn
okkur en einhverra hluta vegna
höfum við ekki alveg náð upp réttu
stemningunni. Framhaldið leggst
mjög vel í mig þótt það séu mjög
margir leikir í þessum mánuði. Það
verður mikið áíag en við léttum
aðeins af okkur álaginu með sigri á
Skaganum og nú verðum við að
halda áfram á sömu braut,“ sagði
Kjartan, sem veit vel að hlutirnir
geta breyst fljótt í knattspyrnu-
heiminum.
„Ég verð líka að halda áfram að
berjast fyrir minni stöðu í liðinu því
nú fara menn að koma úr meiðslum
og þá verður maður að standa sig ef
maður vill spila. Það er það sem
mér finnst skemmtilegast og ég
mun ekki gefa mitt sæti eftir
baráttulaust," sagði Kjartan Henry.
henry@dv.is
Lið 5. umferöar í Landsbankadeildinni
Það er fjölbreytt flóra af
leikmöhnum í liði 5. umferðar
Landsbankadeildarinnar hjá DV
Sporti.
KR-ingar eiga flesta leikmenn,
eða þrjá, en þeir unnu frækinn sigur
á ÍA. Kjartan Henry og Kristinn voru
bestu menn vallarins og Gunnar
Einarsson átti ákaflega góðan leik í
vöminni.
Keflvfldngar eiga tvo fulltrúa þótt
þeir hafi ekki leikið sérstaklega vel
gegn Vfldngum. Haraldur Guð-
mundsson var sem klettur í vöminni
og Ólafur Gottskálksson sá með
góðri markvörslu til þess að Vödngar
komust ekki á blað. Vflcingurinn
Grétar Sigfinnur Sigurðsson var
einnig öflugur í þeim leik og kemst í
liðið að þessu sinni.
Vamarmaðurinn Atli Sveinn
Þórarinsson er orðinn hættulegasti
sóknarmaður KA-manna en hann
bjargaði stigi fyrir þá gegn Grindavík
í leik þar sem Sinisa Kekic átti enn og
aftur mjög góðan leik.
Einar Þór Dam'elsson og Baldur
Bett vom á meðal fárra leikmanna
sem spiluðu vel í leik FH og ÍBV og
eiga vel skilið sæti í liðinu eftir þessa
umferð sem var nú ekki upp á marga
fiska enda fengu aðeins fjórir leik-
menn einkunnina 5.
Andri Fannar Ottósson stóð sig
mjög vel gegn Fylki og sá til þess að
Fram fengi annað stigið í þeim leik.
Hann kom sterkur inn af bekknum,
breytti gangi leiksins og skoraði
dýrmætt mark.
HaraldurGi mundsson(2)
Ólafur Gottskálksson}
Kefíavík