Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 11. JÚNl2004 Fókus DV ,-.VV ' ‘yjqk* I Beastie Boysídag Þóþeir hafi þroskast mikiðer enn 1 stutt / ruglið hjá þeim... „Það eru ekki nema tvö alvarleg lög á plötunni, en þetta eru líka al- varlegir tímar og við tölum um það," segir Adrock, einn af með- limum Beastie Boys, um nýju plöt- una þeirra, To the 5 Boroughs sem kemur út á mánudaginn. En hann bætir við: „Það er samt ekki eins og þetta sé einhver þung og alvarleg plata. Það er fullt af rugli líka." Það var víst aldrei hætta á öðru... Byrjuðu í pönkinu (. Beastie Boys voru fyrstu hvítu rappararnir sem vöktu einhverja at- hygli að ráði. Hljómsveitin byrjaði reyndar sem harðkjarna pönk- hljómsveit. Hún var stofnuð árið 1981 af þeim Adam Yauch (öðru nafni MCA) á bassa, Kate Schellen- bach á trommur (hún varð síðar meðlimur í Luscious Jackson), gít- arleikaranum John Berry og söngv- aranum Mike Diamond (öðru nafni Mike D). Þau ákváðu að stofna hljómsveit eftir að hafa séð harð- kjarnapönksveitina Black Flag spila á tónleikum. Þau gerðu ekki ráð fyr- „ ir því að bandið mundi endast nema í svona 2-3 tónleika, en ákváðu að kýla samt á það. Fyrsta útgáfan þeirra var smáskffan Pollywog Stew sem kom út árið 1982 hjá smáfyrirtækinu Ratcage Records. Ári seinna var liljómsveit- in farin að fikta við hip-hop, enda eiga pönk og hip-hop margt sam- eiginlegt, t.d. að láta vaða og gera -* hlutina sjálfur hvort sem maður kann eitthvað á græjurnar eða ekki. 12 tomman The Cookie Puss kom út 1983. Á henni var John Berry hættur, en Adam Horovitz (Adrock) kominn í staðinn. Ári seinna hætti Kate og Beastie Boys varð það tríó sem allir þekkja: Adrock, MCA og Mike D. Þeir gáfu út smáskífuna Rock Hard/Beastie Groove árið 1994. Hún var tekin upp af Rick nokkrum Rubin, en hann átti eftir að hafa mikil áhrif á sveiúna. Brandari sem sló í gegn Beastie Boys gerði samning við Def Jam árið 1985. Þá kom út smá- skífan She’s on It/Slow & Low. í fyrrnefhda laginu sömpluðu þeir AC/DC en það síðarnefnda var eft- ir rappsveitina Run DMC. Nokkru seinna voru meðlimir Beastie Boys eitthvað að fíflast í stúdíóinu og bjuggu til paródíu af rokklagi í stfl við Möúey Crue. Rick Rubin komst í upptökurnar og setti inn alvöru trommu og gítarsánd. Lagið þótti sniðugt og hljómsveitin gerði myndband við það í snatri með aðstoð nokkurra góðra vina og fyrr en varði var þessi brandari orðinn að hittara úti um allan heim. Lagið var auðvitað Fight for Your Right (to Party). Fyrsta stóra Beastie Boys-platan, Licensed to 111 fór í fyrsta sæti bandaríska vinsælda- listans (fýrst rappplatna) og seldist í yfir 5 milljón eintökum (fyrst rappplatna...). Á plötunni voru nokkur lög sem blönduðu saman rokki og hip-hoppi, þ.á m. lagið No Sleep Till Brooklyn, en í því spilar Kerry King, gítarleikari Slayer. Hann spilaði lflca með hljómsveitinni á tónleikaferðum á árunum 1986-87. Annars var fyrsta rokk-samplið sem hljóm- sveitin notaði gítarriff úr Led Zeppelin-laginu The Ocean í lag- inu Cookie Puss... „Dark Side of the Moon hip- hoppsins" Eftir velgengni Licence to 111 og skrauúega tónleikaferð í kjölfarið Plöturnar • Licensed to 111 (1986) • Paul’s Boutique (1989) • Check Your Head (1992) • 111 Communication (1994) • Hello Nasty (1998) • To the 5 Boroughs (2004) Og líka: • Some Old Bullshit (1994) - gömlu pönklögin. • The Sounds of Science (1999) - safnplata með bestu lög- unum og forvitnilegu dóti. • VideoAnthology-TheCriter- ion Collection (2002) • -DVD-pakki með myndbönd- unum o.fl. voru Beasúe Boys búnir að fá nóg af ruglinu. Þeir slitu sambandinu við Rick Rubin og Def Jam og fluttu til LA þar sem þeir tóku upp sína næstu plötu. Hún hlaut nafnið Paul’s Bouúque og kom út hjá Capitol árið 1989. Hún olli aðdá- endum nokkrum vonbrigðum, en öfugt við fýrstu plötuna fékk hún góða dóma gagnrýnenda. Hún seldist ekki næstum því eins mikið og fyrri platan, en er í dag af mörg- um talin besta Beastie Boys-plat- an. Hún var pródúseruð af The Dust Brothers (sem seinna vöktu athygli fyrir vinnu sína með Beck) og er stundum kölluð „Pet Sounds eða Dark Side of the Moon hip- hoppsins", enda er þetta einstök veisla með grúví sömplum (allt frá soul og fönki til Johnny Cash) og flottu sándi. Næsta Beastie Boys-plata, Check Your Head, kom út 1992 og fékk góðar móttökur og seldist ágætlega. Það sama má segja um 111 Communication sem kom út 1994. Á henni var m.a. lagið Sabotage, en myndband Spike Jonze við það lag er enn í dag talið eitt af flottustu myndböndum allra tíma. Fimmta Beastie Boys-platan, Hello Nasty, kom svo út 1998. Hún fékk líka góða dóma. Beastie Boys virðist vera fyrirmunað að gera vonda plötu... Óður til New York-borgar Nýja Beastie Boys-platan, To the 5 Boroughs, er sannkölluð New York-plata. Meðlimir Beastie Boys eru allir frá New York, koma frá vel stæðum gyðingaheimilum. Þeir fluttu til LA seint á níunda áratugnum, en sneru aftur til NYC 1997. Nafnið á plötunni vísar í fimm stjórnarumdæmi NewYork- borgar, Manhattan, Brooklyn, Bronx, Queens og Staten Island. Lagið An Open Letter to NYC er eins konar mat á stöðu borgarinn- ar eftir 11. september 2000 og á umslaginu er teikning af skýja- kljúfum Manhattan. Það vekur at- hygli að tvíburaturnarnir eru á myndinni. Hljómsveitin prófaði teikningar án turnanna, en þeir segja að þær hafi bara ekki verið að virka sjónrænt séð. Auk þess hefði það sennilega bara vakið meiri athygli ef turnarnir hefðu ekki verið á myndinni... En text- arnir fjalla ekki bara um New York-borg. George Bush fær á baukinn og svo eru líka bulltextar inni á milli... Tónlistarlega er To the 5 Boroughs ósvikin hip-hop plata. Hún er að nokkru leyti unnin með plötusnúðnum Mixmaster Mike, en þetta er fyrsta platan sem hljómsveitin pródúserar sjálf. Og eins og til að undirstrika New York þemað nota þeir sampl úr gamla Sugarhill Gang-smellnum Rapp- er’s Delight í laginu Triple Trouble. Virkar fínt eins og flest sem þessir kappar láta sér detta í hug... Frá villingum til dýrlinga UndanfaiTn ár hafa Beastie Boys verið þekktir sem miklir hugsjóna- menn og baráttumenn fyrir friði og frelsi. Þeir hafa haldið röð af tónleik- um til styrktar málstað Tíbet, þeir stigu fram til þess að mótmæla súíð- inu í írak í mars í fyrra og þeir bönn- uðu meira að segja Prodigy að hita upp fyrir sig fyrir nokkrum árum af því að þeir vildu ekki að lagið Smack j My Bitch Up væri spilað á sömu tón- leikum og þeir spiluðu á. Heilagir menn eða hvað? Ekki alveg. í upphafi ferilsins voru Beastie Boys hinir mestu vill- ingar. Þeir komu fram á tónleikum með fáklæddar go-go stelpur dans- andi í búrum og uppblásin risatippi á sviðinu. Þeir röppuðu um hluti eins og „að taka dóttur lögreglu- stjórans með homaboltakylfú" og þeir voru alvarlega að spá í að kalla fýrstu plötuna sína „Don’t Be A Faggot". Þeir vom líka þekktir fyrir ósæmilega hegðun á tónleikaferða- lögum. Á fyrstu tónleikaferðinni þeirra um Breúand komst sú saga á kreik að þeir hefðu verið að skopast að börnum með hvítblæði í heim- sókn á barnaspítala og í framhaldi af því sló dagblaðið Daily Mirror því upp á forsíðu að það þyrfti að hand- taka þessi ógeð og koma þeim úr landi. Sagan um hvítblæðið var víst uppspuni, en hins vegar viðurkenna þeir að hafa gert ýmislegt annað, t.d. henú Adrock kjúkling út um hótel- glugga í hausinn á manni með kúlu- hatt....

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.