Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 26
F 26 FÖSTUDAGUR 71. JÚNÍ2004 Fókus DV < Áríð 2001 heillaði Elling okkur uppúr skónum. Nú er komið frábært sjálfstætt framhald þar sem Elling fer í fri til sólarlanda ásamt móður sinni. Norskt grin uppá sitt besta. SÝND I STÓRA SALNUM kl. 6 og 9 5.40 og 10 TÓUCHING THE VOID kl.S 1ÍDASTA SINN ) SÝND kl. 6 og 9 SÝNDkl. 6, 8ogl0 SmfíRfíXLBÍÓ SÝNDkl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11 v.-TNSKUTAi; SÝND kl. 4, 6, 8 og 10.10 SÝND kl. 5, 8 og 11 - SÝND I LÚXUS VIP kl. 5.8 og 11 Enginn Evrópuhúi var skaðaður nivðan á (Ókum myiwl.ninu.tr %tóð. Ceggjuð griuniynd Irá framlcideudum Koad Tríp" og "Old School". i VAN HELSING kl. 5.30, 8 og 10.30 DREKAFJÖLL kl. 3.45 Á sumrin er upplagt að bretta upp ermamar og dytta að þvf sem kom illa undan vetri. Eitt slíkt er að mála grindverkið eða annað f kringum húsið sem þarfnast andlitslyft- ingar. Harpa Sjöfn er með allt sem til þarf fyrir málningarvinn- una og fagmannleg ráðgjöf fylg- ir hverjum kaupum. f dag fer Föstudagsflipp Hins hússins í gang og ungt fólk mun skemmta gestum og gangandi i miðbænum í dag. Uppákomur verða á Ing- ólfstorgi, Austurstræti, Austurvelli og Lækjartorgi. Ein af sum- arplötunum f ár verður eflaust nýja platan með Fatboy Slim. Platan er víst ólík fyrri plötum kappans og sjálfur segir hannaðflest lög- in séu tilvalin fyrir heimilið og bflinn. Væntanlega tilvalin plata fyrir Selfossgæj- ana til að „blasta" á rúntinum. Og talandi um það. Hægt er að fá 1500 watta keilu í Nesradíó á litlar 35.000 krónur og magnara á 80.000 og þá á bara eftir að smíða boxið utan um allt heila klabbið og þú ert kominn með eitt flottasta bfla-bft- box bæjarins. Tónlist • Hljómsveitin Byltan spilar í versluninni 12 Tónar, Skóla- vörðustíg 15, klukkan 17. Byltan er skipuð ungum herramönnum sem leika rokk og ról. • Breska hljómsveitin Starsailor leikur á NASA klukkan 20, uppselt. • Gítarleikaramir Andrés Þór og Jón Páll Bjamason leika djassslag- ara úr ýmsum áttum á Kaffi Naut- hól í Nauthólsvík klukkan 21. Að- gangur er ókeypis. • Vinýl, Hoffinan og Victory or Death spila á Grand Rokk klukkan 22. Þorvaldur Þorsteinsson með sýningu í Hafnarhúsinu og helgar lcelandair herbergi Klisjurnar rótgrónari en viö kærum okkur um að viðurkenna „Nei, ekki í þeim skilningi sem ég heyri lagðan í spurninguna," segir Þorvaldur Þorsteinsson aðspurður hvort hann sé genginn á hönd Mammoni. í dag er opnuð mikil yfirlitssýning á verkum hans í Hafn- arhúsinu. Það er Listasafn Reykja- víkur sem stendur fyrir sýningunni en í einu stærsta verki sýningarinn- ar segir að hann hafi virkjað Icelandair til samstarfs sem felst í að upplýsa gesti um hvaða sýn fyrir- tækið hefur dregið upp af íslandi á erlendum vettvangi til að gefa sem eftirsóknarverðasta mynd af landi og þjóð. „Eg er að reyna, á heiðarlegan hátt, að horfast í augu við þá mynd sem ég sjálfur hef af landinu mínu og þar með sjálfum mér sem hluta af því. Ég hef komist að því að hún er glettilega skyld þeirri mynd sem við höfum iðulega gagnrýnt hjá Icelandair, það er þessari glans- mynd. Og ég er að reyna að vinna úr því á heiðarlegan hátt.“ Icelandair hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa í kynningum gert út á karlrembuleg sjónarmið. „Já, verkið byggir á sýnishornum þeirra mynda sem brugðið hefur verið upp af ís- landi undanfarin tvö ár. Og þar á meðal er „Dirty Weekend" auglýsing- in umdeilda. Ég greini ekkert sjálfur heldur bara sýni Lífið eftir vinnu • Sveiflukonungurinn Geirmund- ur Valtýsson heldur uppi sveiflunni á Kringhikránni. • Dj Benni spilar á Hverfisbam- um. • SSSól skemmtir á Players í Kópavogi. • The Hefners skellir sér I diskógallann og heldur uppi stuð- inu á Gauknum. Frítt inn. • Búðabandið spilar á Prikinu. • Dj Extream verður á De Palace í mjyu stugj Leikhús • Edith Piaf eftir Sig- urð Pálsson er sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins klukkan 20. • Vesturport sýnir Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare á htla sviði Borg- arleikshússins klukkan 20. • Græna landið eftir Ólaf Hauk Símonarson er sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins klukkan 20. Opnanir* * Sýningin „Eddu- kvæði" verður opnuð í Bókasal Þjóðmenningarhúss klukkan 17. Á sýningunni verða fjölbreyttar útgáf- þorvaldur Þorsteinsson Veltirþví meðal annarsfyru á sýningusem opnaridag i hvaða áhrif kynntngarefni lcetandair hafi. ur af Eddukvæðunum. Sýningin stendur út ágústmánuð. • Yfirgripsmikil sýning á verkum Þorvalds Þorsteinssonar verður opnuð í Listassafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi klukkan 20. Þar getur að líta blöndu af gömlum og nýjum verkum, myndbönd, innsemingar og hljóðverk sem gerast utan veggja sýningarsalanna. • Sigríður Elva Sigurðardóttir opnar sýningu í Listmunahomi Ár- bæjarsafns. Hún sýnir famað og fylgihluti úr þæfðri ull. Sýningin verður opin til 18. júní. bæði auglýsingar og dæmi um ljós- myndir sem liggja til gmndvallar auglýsingunum. Ég set þetta svo í ákveðið samhengi með Jónasi Hall- grímssyni og Kjarval vegna þess að við höfum öll sæst á þá hugsun að Jónas hafi gefið okkur sjálfsmyndina á 19. öld og Kjarval breytt henni í aðra mynd á þeirri 20. Til dæmis gef- ið okkur hraunið og sætt okkur við það. Ég velti upp þeirri spurningu hvort Icelandair hafi tekið við þessu hlutverki sjálfsmyndagerðar samtím- ans - sé sá aðili sem hefur mótað sjálfsmynd okkar núna á sama hátt og Jónas og Kjarval gerðu á sínum tíma. Ef við horfum heiðarlega á þetta, hvað finnst mönnum um þá hugsun? Er einhver önnur mynd til í raun og veru?" Þorvaldur segir aðkomu fyrir- tækisins skemmtilega og óvenju- lega. „Það kemur ekki inn sem kostunaraðili, fyrirtæki sem er að reyna að borga sig inn á menning- arivðburð í þeim tilgangi að slá sér upp (sem er út af fyrir sig hið besta mál), en í þessu tilfelli á það ekki við. Ég kynni þá til sögunnar sem gerendur í listfræðilegu samhengi. Þeir gefa okkur, hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá sjálfsmynd sem er þrátt fyrir allt hugsanlega sönnust í dag.“ Klisjurnar eru líklegast þrátt fyrir allt rótfastari en við viljum viður- kenna, segir Þorvaldur sem mun svo sitja fyrir svörum í listamanna- spjalli á sunnudag klukkan þrjú í Hafnarhúsinu. jakob@dv.is Uppákomur. Fúttog tjútt er frumsýnt í Leikhúskj allaranum klukkan 22 með uppistandi Þor- steins Guðmundssonar í bland við nokkra stutta vídeó- sketsa í leikstjórn Sindra Páls Kjartanssonar. Að því búnu tek- ur við tónlistar- flutningur undir nafninu Topprugl þar sem Árni Sveinsson og Gísli Galdur þeyta skíf- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.