Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Síða 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ2004 29
Hljómsveitin The Flavors er skipuð valinkunnum tónlistarmönnum sem spila
melódískt og kántrískotið popp-rokk. Þeir halda tónleika í kvöld í tilefni af útgáfu
fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Go Your Own Way.
sé ekki hægt
indi við ein-
rfum síðan öðr
að dropa inn/‘
The Flavors fcru
komnir I samband
, við erlenda útgefend■
ur og stefna á tón-
leikaferð í útlöndum
i seinna á þessu ári.
„Það er alltaf jafn erfitt að lýsa
tónlistinni sem maður er að spila.
En við erum allir sammála því að
þetta sé melódískt og kántrískotið
popp-rokk,“ segir Sigurjón Brink,
söngvari The Flavors sem heldur
útgáfutónleika í Loftkastalanum í
kvöld. „Ég held að það sé ekki hægt
að líkja þessu bandi við einhverja
aðra hljómsveit. Við leggjum upp
með melódíska músík og leyfum
síðan öðrum steftium að dropa
inn." Spurður af hverju lögin séu
sungin á ensku segir Sigurjón að
það sé gild ástæða fyrir því. „Við
viljum eins og aðrir komast í snert-
ingu við stærri markaði og það er
markmið okkar sem hljómsveit að
verða stærri og betri en við erum í
dag. Við höfum verið innilokaðir í
eitt og hálft ár, tekið tónleika af og
til, en við höfum unnið baki brotnu
við að semja góð lög og æfa þau.
Við erum þegar komnir í samband
við fyrirtæki úti sem hefur
sýnt okkur áhuga og við
stefnum á að fara út seinna
í sumar eða haust."
Hljómsveitin er ekki
eins og margar aðrar skip-
aðar æskuvinum en þeir
hafa, hver og einn, verið að
spila með þekktum hljóm-
sveitum áður en leiðir
þeirra lágu saman í The
Flavors. Pálmi Sigurhjart-
arson er landsþekktur
hljómborðsleikari og hefur leikið
með Sniglabandinu í mörg ár,
Benedikt trommari tók við af Axel í
200.000 naglbítum og Matthías hef-
ur verið vinsæll session-spilari und-
anfarin ár og spilar nú í Chicago en
var áður í Kentár og South River
Band. „Platan er tilbúin og við höf-
um nýlokið við að taka upp mynd-
band við lagið Go Your Own Way
sem við vonumst til að geta sýnt í
kvöld á útgáfutónleikunum."
Spurður um framhaldið í sumar
segir Sigurjón að þeir muni að sjálf-
sögðu spila um allt land en þeir séu
samt sem áður tónleikaband sem
eingöngu spili sitt eigið efni. „Við
ætlum að kynna plötuna vel og tók-
um meðvitaða ákvörðun um að
gefa plötuna út í sumar. Jólamark-
aðurinn er erfiður þó að flestar
plömr seljist um það leyti. Á jólun-
um er erfiðara að komast í fjölmiðla
og það er hætt við að maður týnist í
hringiðunni. Bubbi Mortens á jóla-
markaðinn og við ætlum bara að
leyfa honum að eiga þann markað."
Hljómsveitanöfn sem byrja á
The og enda á -s hafa verið vinsæl
og The Flavors er enginn aukvisi á
þeim bænum. Sigurjón segir að það
hafi nú samt bara verið tilviljun.
„Það er ekkert á bak við þetta nafn.
Einhvern veginn datt þetta inn. Það
er alltaf jafn erfitt að finna nafn og
þetta hélst einhvern veginn. Menn
gera grín að hljómsveitanöfnum
fyrst en svo venst fólk þessu."
Tónleikarnir byrja klukkan níu í
kvöld í Loftkastalanum en húsið
opnar klukkan átta. Miðaverð er
1.000 krónur.
Bubbi getur átt
Vandræðaskvísan Britney Spears neitaði að hitta börn Bono eftir tónleika í Dublin
en tók hins vegar nágrannabörnum Colins Farrell opnum örmum.
Britney móðgaði börn Bono
Britney Spears hefur enn og aftur tekist að
komast í fjölmiðla án þess að tónlist hennar sé til
umræðu. Seinasta útspil stúlkunnar var þegar
hún spilaði í Dublin á írlandi, heimabæ hljóm-
sveitarinnar U2. Stúlkan kom í einkaflugvél ásamt
nýjasta grúpppeyjanum sínum, Kevin Federline,
og strunsaði beint upp á hótelsvítuna með 10 líf-
vörðum og fylgdarliði. Fyrir utan að krefjast þess
að Brown Thomas fatabúðin yrði opnuð prívat og
persónulega fyrir hana fór hún ekki út fyrir húss-
ins dyr í marga daga. Á tónleikinn stúlkunnar
vom meðal annarra börn Bono, söngvara U2, sem
vildu ólm hitta dívuna eftir tónleikana. Britney
var hins vegar á öðru máli og neitaði staðfastlega
að hitta krakkanna og laug því að hún væri of
þreytt. Sjónarvottar segja að börnin hafi verið
mjög sár og móðguð. Þeir sömu og urðu vitni að
dónaskapnum í Britney sáu stúlkuna hins vegar
stuttu síðar hleypa nágrönnum leikarans Colin
Farrell og börn-
um þeirra bak-
sviðs, að því er
virtist hress og
kát. Það hefur
ef til vill eitt-
hvað með það
að segja að
Britney átti í
ástarsambandi við Colin Farrell
og hefur viljað koma sér í mjúkinn hjá nágrönn-
um hans en ekki er víst að það hafi farið eins vel í
aumingja Kevin Federline sem samkvæmt heim-
ildum gerði ekki annað alla ferðina heldur en að
halda á innkaupapokum fröken Spears.
Stjörnuspá
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er
62 ára í dag. „Manninum er ráðlagt að
átta sig á því hvenær
hann heldur aftur af
sér og hvenær hann
ætti að hlusta betur
á hjarta sitt. Undir-
meðvitund hans
lætur hann án efa
vita hvert stefnir
þessa dagana," segir í
stjörnuspá hans.
Jón Kristjánsson
VV MnsbemnQ0.jan.-18.febr.)
Þú ættir að skilgreina hvers þú
þarfnasttil að renna stoðum undir já-
kvæða eigínleika í fari þinu en þannig
öðlast þú skilning á því sem gefur lífi
þínu gildi. Þú munt eflaust hagnast á
ófyrirséðan hátt ef þú ert fær um að gefa
huga og hjarta lausan tauminn hérna.
FiskarnirfD. febr.-20. mars)
Kannaðu tilfinningar þínar vel
þessa dagana og lærðu að kannast við
þær og skilgreina þær hverju sinni.
M
T
Hrúturinn c21.mars-19.aprn•>
Með þínu einstaka næma inn-
sæi og sannleiksást getur þú kennt öðr-
um margt um tilveruna. (einkalífinu
virðist þú hins vegar eiga margt eftir
ólært en þegar viðskipti eiga í hlut
ganga hlutirnir sannarlega upp.
ö
NaUtÍð (20. aprll-20. mal)
Þú virðist vera treg(ur) til að
gefa þig af öllu hjarta því innra með þér
óttast þú um sjálfstæði þitt. Þú ert jafn-
vel hrædd(ur) við að sleppa þeim tök-
um sem felast í að hafa fulla stjórn á að-
stæðum og vera á valdi eigin langana.
Tvíburarnir (2;. mai-2i.]úni)
Stjarna þ(n birtist hér mein-
laus en sýnir óvænt grimmd þegar hún
er undir álagi þessa dagana.
Krabbinng2.jM-22jii;i)_________
Stjarna krabbans telur sig lík-
lega standa mörgum Ijósárum framar
en náunginn og verður það síst dregið í
efa hér. En þér er enn og aftur ráðlagt
að huga betur að náunganum því styrk-
ur þinn birtist öflugur hér.
Ljónið® .júlí-22.ágúst)
Athugaðu þessa dagana
hvernig hvert svar kemur hugsunum
þínum til skila. Þú ættir að tileinka þér
að vera heiðarleg(ur) í samskiptum þín-
um við ástvini þína þegar líðan þín er
annars vegar.
ITA Nieyfan (23. ágúst-22.sept.)
' Sjálf þitt er stórt og mjög við-
kvæmt og þú reynir að virðast ekki
særð(ur) um þessar mundir með því að
reiðast. Þjálfaðu þig í að umgangast
aðra og tjáðu þig á uppbyggilegan hátt
í stað þess að bæla tiifinningar þínar.
Vogin (21 sept.-2lokt.)
Helgin fram undan færir þér
góðar fréttir en þú virðist þrá eitthvað
meira en þú hefur öðlast í dag og ert
jafnvel ekki viss hvað það er sem þú
leitar eftir. Þér ber að vita að dulinn til-
gangur er bak við allt sem þú upplifir
og framkvæmir.
Sporðdrekinn u4.oia.-21.niv.)
Treystu eingöngu á eigin
dómgreind þegar ákvarðanir eru annars
vegar og á það sér í lagi við helgina
fram undan. Þú ættir að horfast í augu
við staðreyndir og hætta að ýta ástvin-
um þínum ómeðvitað frá þér. Hugaðu
vel að gildismati þínu.
/
Bogmaðurinn (22.nfc-2Ues.j
Þú ert fædd(ur) undir merki
spámannsins og kennarans og því er
það jafnvel köllun þín að gefa ráð varð-
andi sannleikann en fyrst verður þú að
læra hvernig koma megi honum til
skila án þess að náunginn taki það per-
sónulega. Það býr frelsi í heiðarleikan-
um og þú ert án efa meðvitaður/með-
vituð um það.
Steingeitin (22.
Þú ert meðvituð/meðvitaður
um hvaða áhrif þú hefur á aðra og ert
jafnvel oft hálfspennt(ur) af þægilegri
eftirvæntingu þegar stjarna þín birtist
allan ársins hring. Þú ert fædd(ur) til að
njóta, kæra steingeit.
SPÁMAÐUR.IS
Z