Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
GunnarSmári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
Mikael Torfason
Fréttastjórar
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, slmi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslng-
ar auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot Frétt ehf.
Prentvlnnsla: Isafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins (stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
Tékkland 2
1 Hluti af hvaða
landi var Tékkland áður?
2 Hvað heitir forseti lands-
ins?
3 Hvað heitir höfuðborg
Tékklands?
4 Hversu margir eru íbúar
landsins?
5 Hvað er landið stórt, mið-
að við ísland?
Svör neöst á síöunni
Kviðdómur í
Argentínu
Buenos Aires Herald
skýrir frá því að argent-
ínska ríkisstjtírnin undir
forystu Kirchners forsæt-
isráðherra hafi nú lagt
fram frumvarp til laga
um nýjungar á dómskerf-
inu. Argentínskt dóms-
kerfi hefur lengi þótt
óburðugt, enda undir
áhrifum frá langri herfor-
ingjastjórn. Helst þeirra
nýjunga sem frumvarpið
felur í sér er að Kirchner
vill láta taka upp kvið-
dómendakerfi, eins og
tfðkast í Bandankjunum,
Bretlandi og víðar en
hingað til hafa dómarar
kveðið upp úr um sekt
eða sakleysi, líkt og hér á
íslandi. Hið nýja kerfi á -
ef það verður samþykkt
af argentínska þinginu -
að eyða grunsemdum um
að dómarar taki ákvarð-
anir sínar á ankannaleg-
um forsendum en spilling
hefurveriðmikil.
Bæheimur
Tékkland, þarsem búa svo
góöir fótboltamenn, næryfir
þaö svæði sem til forna hét
- og heitir raunar enn - Bæ-
heimur. Það nafn er komiö
frá Rómverjum sem kölluðu
svæðiö Boiohaemia eftir
Boii-ættbálknum sem bjó
bak við fjöllin sem umlykja
svæðið. Boi-ar þessir voru
sennilega keltneskir en á
fyrstu öldunum eftir Krist
tók slavneskur ættbálkur að
ryðja Keltunum burt. Það
voru Tékkar. Svæðið hét
áfram Bæheimur og gekk á
ýmsu I sögu þess; oft var
það undir yfirráðum Þjóð-
verja. Þegar slav-
nesk þjóðernis-
stefna tók að rísa
Málið
á 19. öld og landið fékk
sjálfstæði, ásamt Slóvakíu,
við lok fyrri heimsstyrjaldar
varð nafn Tékka ofan á sem
þjóöaheiti. Auk Bæheims
nær Tékklandyfir svæði sem
á erlendum málum nefnist
Moravía en Mæri á Islensku.
Svör vlð spumingum:
1. Tékkóslóvaklu -1 Vadav Klaus - 3.
Prag - 4. Rúmar tíu milljónir - 5. Tékkland
er um það bil þrlr Ijórðu af stærð (slands.
■o
CTl
>
O)
■o
Kraftaverkið
Meðan fótbolti sundrar þjóðum
Evrópu samþykktu landsfeður 25
ríkja í Evrópu stjómarskrá álfunnar
í tæplega 350 greinum.
Meðan fótboltabullur með málaða
þ jóðfánaliti í andlitinu drekktu
þjóðsöngvum keppninauta í bauli, ákváðu
landsfeður evrópskan forseta,
utanríkisráðherra og rfkissaksóknara.
Meðan enskir drykkjusjúklingar urðu sér
eins og venjulega til skammar á götum í
Portúgal leystu landsfeðumir erfiða hnúta
og höfnuðu kröfu páfans um að geta
kristinnar trúar í stjórnarskránni. Síðast en
ekki sízt afgreiddu þeir vægi atkvæða milii
ríkja og fólksfjölda í evrópskum kosningum.
Landsfeður í Evrópu em komnir langt
fram úr lýðnum, sem baular á þjóðsöngva
annarra ríkja og drekkur frá sér ráð og rænu
á opinberum vettvangi. Landsfeðumir hafa
sameinað álfú, sem vUI ekki sameinast.
Síðan eiga þeir eftir að selja fótboltalýðnum
og öðrum aimenningi niðurstöðuna.
Næsta vor tekur evrópska stjórnarskráin
gUdi, að vísu ekki fyrir öll lönd. Bretar og
Danir munu líklega fella plaggið í
þjóðaratkvæðagreiðslum, alveg eins ogþeir
vÚdu ekki vera með í evrunni.
Evrópusinnuðu rfldn með Frakkland og
Þýzkaland í fararbroddi munu staðfesta
stjómarskrána.
Tveggja hraða Evrópa fær aukna
staðfestingu. Fremst fara rfldn, sem taka
allan pakkann. Eftir fylgja nokkur rfld, sem
spyma við fótum og vilja varðveita leifar af
fullveldi sínu. Norðmenn munu fyrr eða
síðar stökkva í þann fiokk og sldlja
íslendinga og Serba eftir utan
Evrópusambandsins.
Lausn fannst á öUum ágreiningsefiium
evrópsku leiðtoganna nema nafii nýs
framkvæmdastjóra. Það kemur í lok
mánaðarins. Afrekið vann Bertie Ahern,
forsætisráðherra írlands, sem tók fyrir hálfu
ári við formennsku í Evrópu af ftalanum
SUvio Berlusconi, sem hafði klúðrað
dæminu fyrir hálfu ári.
Ahern er eindregin andstæða leiðtoga á
borð við Berlusconi og Davíð Oddsson, sem
ekki finna sættir, heldur snapa fæting við
aUt og aUa. Það em menn á borð við Ahern,
sem hafa með seiglu framleitt evrópskt
samstarf undanfarna áratugi og komið því á
blússandi ferð sem efiiahagsundur
heimsins.
Gallinn við þessa frægðarsiglingu
Evrópusambandsins er, að fólkið í
aðUdarríkjum þess skUur aUs ekki, hvað því
hefur verið fært með sameiginlegri mynt,
sameiginlegum markaði og ekki sizt
sameiginlegum reglugerðum, sem almennt
em Utnar Ulu auga af fótboltabuUum og
öðrum almenningi í Evrópu.
Evrópusambandið á nú aðeins eftir einn
þröskuld. Það á eftir að selja fólki þá
staðreynd, að sambandið er kraftaverk, sem
hefúr fært álfúnni almenna velmegun og
mun gera það áfram.
Jónas Kristjánsson
Topphjóð í handbolta
Á Múrnum velú Katrfn Jakobsdótt-
ir fyrir sér íslensku þjóðemi í tilefni af
þjóðhátíðardeginum. Hún virðisthafa
verið á ferð í Danmörku og vimar í
samtal sitt við dansk-tyrkneskan
leigubílstjóra:
„Undanfarin ár hafa íslenskir
ffæðimenn rætt mikið um þjóðemi og
velt fyrir sér íslensku þjóðemi í því
samhengi. Hvað gerir íslendinga að
þjóð? er sívinsæl
spuming í þessum
fræðum og ljóst að
svörin em mörg.
Reyndar sýna fé-
lagsvísindalegar
rannsóknir að fólk
hefúr mjög mis-
munandi hug-
myndir um hvað
geri íslendinga að þjóð. Margir nefiia
tungumálið en svo hefur hver og einn
sínar hugmyndir. Það er hangikjöúð,
lakkrísinn, íslenska vatnið, álfatrúin,
íslendingasögumar, Bubbi Morthens,
birkitréð, lóan, sauðkindin eða Hrafii
Gunnlaugsson.
Reyndar veltir maður eiginlega
aldrei fyrir sér hvað geri mann að Is-
lendingi nema helst þegar maður hitt-
ir úúendinga. Þeir spyija þá gjaman
um land og þjóð og svör íslendingsins
em oft harla skrýtin enda oftast fúnd-
in upp á staðnum.
Dansk-tyrkneskurleigubílstjóri: ís-
land, já, erkait þar.
íslendingun Já, alltaf ægilega kalt
(þótt hann viú að á íslandi sé nú 15
súgahiú).
DÚ: Já, búið þið í snjóhúsum.
í: Ha, nei, nei. Við búum í blokkum.
Nema þeir sem búa í... uuu... einbýl-
ishúsum.
DÚ: Emð þið með á EM í fótbolta?
í Ha, nei, við erum sko betri í hand-
bolta en fótbolta. Við erum sko topp-
þjóð í handbolta.
DÚ (áhugalaus): Ha, handbolta? Ég
horfi aldrei á svoleiðis.
í (sveittur; horfir aldrei á handbolta):
Við fslendingar elskum handbolta.
DÚ: En er fallegt á fslandi.
í (aldrei komið út fyrir Reykjavík): Já,
náttúran er einstök. Þama em jöklar
og fullt af svona... uuu, ósnortinni
náttúm. Mosi og svona. (í árásarhug)
Miklu fjölbreyttara en í Danmörku.
DtL Já, Danmörk er ekkert spes.
í (glaður): Nei, hún er sko ekkert sér-
stök.
Dtk En emð þið í Evrópusamband-
inu?
Fyrst og fremst
í Nei.
DtL Emð þið of lítil til að vera með?
í (móðgaður): Nei, við erum of sjálf-
stæð.
DtL Jahá. En hvemig em íslendingar?
í (hikandi): Þeir em harðgerir og
stoltir, elska bókmenntir og sofa úú í
náttúrunni á sumrin. Svo em þeir
alltaf í sundi og drekka mikið.
DtL Ætli það sé ekki veðrið sem gerir
ykkur svona?
í (hugsi): Jú, kannski bara.
DtL Kannski kem ég einhvem tíma til
íslands.
í (sigri hrósandi yfir þessari góðu
landkynningu): Þú verður ekki svik-
inn af því! Þá verðurðu að fá þér...
uuuu... brennivín og hákarl! (Kyngir,
hefur aldrei smakkað brennivín og
hákari).
DtL Það verð ég að muna að gera.
Jæja, hér er Kastmp.
í (feginn): Takk, takk, sjáumst á ís-
landi!
Svona er þjóðemið margrætt.
Vigdís til bjargar!
VIGDfS FINNBOGADÓTTIR skaust með övæntum hætti fram i sviösljós
þjóðmölaumræðunnar um daginn þegar hún neitaði að afhenda Grímu-
verðlaun I fiokki barnaleikhúss afþeirri einkenniiegu dstæðu að fyrirtæk-
ið Baugur styrkti verðiaunahótíðina. Þótt ekki hafi allir skilið allsendis röksemdir Vigdisar
viröist sem hún hafi taiið að efhún sem fyrrverandi forseti íslands iéti svo mikið sem sjó sig ó
hdtlð sem Baugur kostaði að einhverju leyti, þd yrðiþað túlkað sem einhvers konar stuðn-
ingur hennar við Baug. Og enginn grunur um slíkan stuðning mætti vakna vegna þess að
Baugur stæði í eldlinunni i uppistandinu vegna fjölmiðlalaga Davíðs Oddssonar.
ÞETTA VAR ALLT SVOLÍTIÐ EINKENNILEGT mdl og ekki fyrir okkur að skitja. Hallgrim-
ur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður komst svo að orði í teiknimyndasögu i
Fréttablaðinu að með þessu hefði Vigdís hlotið verðlaun fyrir„bestan afleik ifyrrverandi
aðalhlutverki“. Sumum þótti þannig Vigdls hafa hlaupið nokkuð d sig en sem betur fer d
hún líka slna aöddendur og stuðningsmenn.
Þar fara fremstir i flokki gdrungar d Baggalút.is en þeir hafa samið lag til heiöurs Vigdisi
og birta d heimasiðu smni sem annars er farin Isumarfrí. Iformdla stendur:
BAGGALÚTUR FÆRIR ÞJÓÐINNI hér nýttstuöningslag, en með þvf viljum við hvetja
frú Vigdisi Finnbogadóttur til að koma þjóð sinni til bjargar og gefa enn d ný kost d sér
sem þjóðhöfðingi islenska lýöveldisins.
Þaö er Islandsvinurinn Tony Ztarbiaster sem flyturlagið I félagi við Dúettinn Kvartett...
Sérlegar og innilegar þakkir fd [meöal annarsj frú Vigdís fyrir innbldstur og að vera til
Textinn er svo svohljóðandi:
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Vigdis Finnbogadóttir þú varst alltaf uppdhalds forsetinn minn þú varst betren Albert Guðmundsson flengdir hann og Guðlaug Þorvaldsson hver var þessi Pétur Thorsteinsson ? Vigdís Finnbogadóttir þú varst alltaf uppdhaids forsetinn minn þú varst alltafl svo smartri dragt gullna hdrið fagmannlega lagt það er meir en hinir gdtu sagt ég vit þú vitir að við söknum þín - Vigdis og að við erum ekki söm dn þín - Vigdis ó elsku Vigdis viltu lofokkur að fara aftur fram? þú varst betren Svenni og Ásgeir betren Stjdnog Óli bdðir tveir þú varst llka sætari en þeir Vigdís Finnbogadóttir þú varst alltaf uppdhaids forsetinn minn