Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Qupperneq 3
r
W Fyrst og fremst
MÁNUDACUR 21. JÚNl2004 3
-TZmHÍáK
Sigríður Ágústsdóttir
skrifstofumaður á
Englandi. „Kom til að
kaupa Sjálfstætt fólk í
kilju en er dottin í upp-
flettirit um heimsarki-
tektúrinn."
Á bólakaf í
bókabúðum
Agóðviðrisdögum lifhar margdáin miðborgin við, fólk situr á úti-
kaffihúsum, röltir um stræti og torg með ís, skoðar myndimar
af íslendingum á Austurvelli eða gefur öndunum. En sumum
halda engin bönd þegar bókabúðir em annars vegar, þeir hreinlega
verða að fara inn og grúska.
Sigríður Ágústsdóttir skrifstofumaður á Englandi er í stuttu fríi
heima og í blíðunni í gær lá hún yfir bók um heimsarkitektúrinn í
Eymundsson.
„Maðurinn minn er finnskur og við ákváðum að prófa að
búa í þriðja landinu. Hingað í Eymundsson kom ég til að leita að
Sjálfstæðu fólki Laxness í kilju og
fann hana. Ég er mjög ánægð með
það. Það er betra að ferðast og flytja
milli landa með bækur á kiljuformi. En nú er ég allt í einu kom-
in á bólakaf í einhvers konar Atlas um arkitektúr heimsins. Hér
Skyndimynd
i'MfM
t -'-j í
m
4
má sjá athyglisverð hús um víða veröld og ég er komin að Norður-
löndunum. Áhugi minn á arkitektúr vaknaði þegar ég bjó í Finn-
landi, þeir vinna margir svo skemmtilega inn í og með náttúruna
og umhverfið þar. Það vantar hér heima. Annars hef ég verið að
læra bókmenntafræði við HÍ og ef allt gengur að óskum, ætti ég að
útskrifast í haust.“
Sigríður segist ákaflega veik fyrir bókabúðum.
„Já, ég dett inn í þær alls staðar. Þær eru líka afls stað-
ar að verða svo vistlegar, þar getur maður í friði og ró
skoðað í hillur, flett bókum, blöðum og tímaritum. Og
þótt ég fari yfirleitt í bókabúðir til að leita að einhverju
sem mig hefrir lengi langað í, endar þetta svona; áður en
ég veit af er ég komin á bólakaf í einhverjar allt aðrar
bækur," sagði Sigríður Ágústsdóttir, skrifstofumaður á
Englandi í stuttu fríi heima og dottin inn í bókabúð.
Spurning dagsins
Fær Astþór
Magnússon of litla athygli fjölmiðla?
Agressívur brjálæðingur
„Nei hanrt fær alveg yfirdrifíð afathygli. Maður er orð-
inn hundleiður á honum og ég held hann sé búinn að
missa marks. Hann hefur alltafhaft nokkuð til síns máls
en er búinn að eyðileggja það. Ég myndi frekar líta á
Gandhi eða einhvern þannig
sem friðarpostula en ekki
svona agressívan brjálæðing. IhA. Æk-:
Hann er óvinur friðarboðskaps
ins, enginn friðarsinni."
Snorri Ásmundsson
myndlistarmaður
„Nei, ég held
ekki. Ég held að
hann sé búinn
að fá sinn
skammt og vel
það. En ætli
Ástþóri Magn-
ússyni finnist
öll sú athygli sem hann hefur
fengið vera afhinu góða?"
Ólafur Egill Egilsson leikari
„Nei, ég er alveg búin að fá nóg
afhonum og ég held að hann
ætti að hafa sig
hægan. Ég sé
ekki að hann
fái eitthvað
minni athygli
en hver annar,
þetta er orðið
ágætt hjá hon-
um."
Sólveig Zophaníasdóttir feg-
urðardrottning
„Nei, ég vil nú
ekki skrifa það
á fjölmiðla-
fólkið. Það fer auðvitað minna fyrir
honum en það
er bara í takt
við áhuga fólks á hans fram-
boði held ég. Fjölmiðlar sýna
honum ekki minni áhuga vegna
þess að þeir séu eitthvað að
hefta hann, alls ekki."
Steinunn Vala Sigfúsdóttir,
stigavörður í Gettu betur.
„Nei, hann
færþað bara
ekki neitt.
Hannáað
fara að nýta
þessa at-
hygli sem hann fær i eitthvað
annað en að kvarta yfír því
hvað hann fær litla athygli."
Vilhjálmur Goði Friðriksson
leikari
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur kvartað yfir því
undanfarið að hann fái of litla athygli fjölmiðla.
TÍU STÆRSTU LONDIHEIMI
1. Rússland 17,075,400 ferkílómetr-
ar, 170 sinnum stærra en ísland. fbúar:
146 milljónir. Höfuðborg: Moskva.
2. Kanada 9,330,970 ferkflómetrar,
93 sinnum stærra en ísland. (búar: Rúm-
lega 31 milljón. Kanda er í 35. sæti yfir
fjölmennustu þjóðir heims þótt landið
sé næststærst að flatarmáli. Höfuðborg:
Ottawa.
3. Kína 9,326,410 ferkílómetrar,
einnig 93 sinnum stærra en (sland. (búar
árið 2002:1,256,167,701. Höfuðborg:
Peking.
4. Bandaríkin 9.166,600 ferkíló-
metrar eða 91 sinni stærri en fsland. (bú-
ar: 275 milljónir. Höfuðborg: Washington
í Columbíu-héraði.
5. Brasilía 8,456,510 ferkílómetrar
eða 84 sinnum stærri en ísland. (búar
eru um 174 milljónir. Höfuðborgin heitir
Brasilía.
6. Ástralía 7,617,930 ferkílómetrar,
76 sinnum stærri en (sland. Hér er átt
við eyríkið Ástralíu en ekki heimsálfuna
Eyjaálfu sem stundum er kölluð Ástralía.
(búar eru 19 milljónir og er landið í 53.
sæti yfir fjölmennustu ríki heims. Enda
er Ástralfa sérlega strjálbyggð. Höfuð-
borgin er Canberra.
7. Indland 2,973,190 ferkílómetrar
eða 29 sinnum stærri. (búar eru rétt
rúmur milljarður enda landið þéttbýlt.
Höfuðborgin er Delí.
8. Argentína 2,736,690 ferkílómetr-
ar, eða aðeins svolítið minna en Indland
en íbúar „aðeins" rúmar 37 milljónir.
Höfuðborgin heitir Buenos Aires.
9. Kasakstan 2,717,300 ferkíló-
metrar, 27 sinnum stærra en ísland. (bú-
ar ekki nema tæpar 17 milljónir og þrátt
fyrir alit landflæmið er landið aðeins í
56. sæti yfir fjölmennustu ríkin. Höfuð-
borgin er smáborgin Astana.
10. Súdan 2,376,000 ferkflómetrar
sem þýðir að 23 (slönd þarf til að fylla
landrými þess. (búar eru tæpar 36 millj-
ónir. Khartúm er höfuðborgin.
í 10.-20. sæti eru - f þessari röð - Alsír, Lýðveldið Kongó, Mexíkó, Sádi-Arabía,
Indónesía, (ran, Líbía, Mongólía, Perú og Tsjad.
“RKYNSÍAN” ER IIFJTID SEM FOLKGEFUR
MISTÖKUM SÍ.NUM. OSCAR WiLDi-
Þrístökkvarinn,
spjótkastarinn og
sjónvarpsstjarnan
Simmi áStöö 2 er einn vinsælasti sjónvarpsmaöur landsins um þessar mundir og færist slfellt i
aukana eftir að hann hætti meö 70 mínúturþar sem hann taldi augljóslega af-
farasæiast aö þykjast vera vitlausari en hann greinilega er. Simmi eryngsti
sonur eins mesta afreksmanns Isiendinga í íþróttum, Viihjátms Einars-
sonarþrlstökkvara, sem hlaut silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í
Melbourne 1956.Með konu sinni, Geröi Unndórsdóttur, á Vilhjálmur
sex syni: Rúnar prófessor (fæddur 1958), Einar framkvæmdastjóra
(1960), Unnar kennara (1961), Garðar framkvæmdastjóra (1965),
Hjálmar viðskiptafræðing (1973) og Simma eða Sigmarsem er ör-
verpiö.fæddur 1977. Aföðrum sonum VilhjálmserEinarvitaskuld
þekktastur en hann var afreksmaður mikill ispjótkasti og meöal bestu
manna heims i sinni grein fyrir um það bil hálfum öðrum áratug.
P
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Liverpool
Meðlimir Liverpool-
klúbbsins
fá 10% afslatt
S - XXL treyja
kr. 6.490,-
JS - JL treyja
kr. 5.990.-
S “ XXL stuttb.
kr. 3.190.-
JS-JL stuttb.
kr. 2.990..
Búningurinn er kominn!
Jói útherji
knattspyrnuverslun m
Ármúla 36, Reykjavík, sími 588 1560
www.joiutherji.is - sendum í póstkröfu