Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Page 16
16 MÁNUDAGUR 27. JÚNl2004
Fréttir DV
Þór/KA/KS náði
stigi gegn ÍBV
Eitt skot, eitt
mark, eitt stig
Eyjastúlkur töpuðu tveimur
dýrmætum stigum í topp-
baráttu Landsbankadeildar
kvenna í gær þegar þær gerðu
jafntefli, 1-1, gegn Þór/KA/KS á
Akureyri. Segja má þó að
Eyjastúlkur hafi verið heppnar
að ná í eitt stig úr því sem
komið var því þær náðu að
jafna metin á 93. mínútu þegar
Elín Anna Steinarsdóttir fylgdi
eftir aukaspyrnu frá Olgu
Færseth.
Hin komunga Laufey
Björnsdóttir náði forystunni
fyrir norðanstúlkur á loka-
mínútu fyrri hálfleiks úr eina
skoti liðsins í leiknum eftir
langt útspark Söndm
Sigurðardóttur, markvarðar
Þórs/KA/KS, sem var best á
vellinum.
Olga Færseth, framherji ÍBV,
var ósátt þegar DVræddi við
hana.
„Þetta fór heldur betur
öðmvísi heldur en við ætluð-
um. Þetta var aumingjaskapur í
okkur allan leikinn og við vor-
um ekki spila okkar bolta. Við
höfum átt okkar toppleiki og
svo dettum við niður en eftir
leikinn á móti Stjörnunni á
dögunum þá héldum við að
þetta væri komið en svona fór
þetta. Við getum
sjálfum
kennt
þennan leik.
Þegar menn
spila ekki
með hausinn
í lagi þá boð-
ar það ekki
gott.“
Olga.
ÞÓR/KA/KS-ÍBV 1-1
5. umf. - Akureyrarvöllur -20. júnf
Mörkin:
1 -0 Laufey Björnsdóttir 45.
skot úr teig Sandra Sigurðard.
1-1 Elín Anna Steinarsdóttir 90.
skot úr markteig Olga (frák.)
Boltar Þór/KA/KS:
Sandra Sigurðardóttir @©@
Áslaug Baldvinsdóttir
Margrét Guðný Vigfúsdóttir
Þóra Pétursdóttir
Laufey Björnsdóttir @
Boltar ÍBV:
Marla Guðjónsdóttir @
Michelle Barr ®
Tölfræðin:
Skot (á mark): 1-20(1-10)
Varin skot: Sandra 9 - Claire 0.
Horn:1-13 Rangstöður: 1-8.
Aukaspyrnur fengnar: 6-11.
BEST Á VELLINUM:
Sandra Sigurðardóttir, Þór/KA/KS
K O N U R
LANDSBANKADEILD
Staðan:
Valur 4 4 0 0 18-1 12
IBV 5 3 2 0 29-3 11
Breiðablik 4 3 0 1 7-10 9
KR 4211 15-7 7
FH 4 0 0 4 2-29 0
Markahæstar:
Margrét Lára Viðarsdóttir, (BV 10
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 7
Hólmfrlður Magnúsdóttir, KR 6
Olga Færseth, IBV 5
Elln Anna Steinarsdóttir, IBV 5
Næstu leikir:
Stjarnan-FH Þri. 22. júní
Fjölnir—Valur Þri. 22. júní
KR-Breiðablik Þri. 22. júní
Portúgalar og Grikkir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum
Evrópumótsins í Portúgal eftir æsispennandi lokaleiki í A-
riðli í gær. Spánverjar sátu eftir með sárt ennið.
Spánverjar gerðu enn eina ferðina í brækurnar á stórmóti í
knattspyrnu í gær þegar þeir töpuðu fyrir Portúgölum, 1-0, í
lokaumferð A-riðils á Evrópumótinu í Portúgal en þetta tap
þýðir að liðið situr eftir með sárt ennið og er á leiðinni heim.
Þetta spænska lið er skipað frábærum knattspyrnumönnum en
svo virðist sem spænska veikin hafi öðlast nýtt líf og nýja
merkingu - nú fara knattspyrnumenn þjóðarinnar á taugum
þegar mikið liggur við.
Spánverjum nægði jafntefli í
leiknum gegn Portúgölum í gær-
kvöld til að komast áfram. Portú-
galar þurftu hins vegar sigur og það
sannaðist að það er oft betra að
mæta þannig til leiks. Heimamenn
hófu leikinn með stórsókn frá fyrstu
mínútu og það var ljóst hvað þeir
ætluðu sér. Spánverjar voru aftur á
móti eins og hræddir hérar, bugaðir
af fyrri reynslu á stórmótum, þar
sem vætningarnar hafa verið miklar
en árangurinn enginn. Ekkert mark
var þó skorað í fyrri hálfleik þótt
Portúgalar hefðu verið betri aðilinn.
Luis Felipe Scolari, þjálfari
Portúgala, gerði síðan breytingu á
sínu liði sem átti eftir að skila sér.
Hann tók Pedro Pauleta af velli og
setti markahrókinn Nuno Gomes
inn á í staðinn. Gomes hafði aðeins
verið inn á vellinum í tólf mínútur
þegar hann þakkaði Scolari traustið
og skoraði mark sem átti eftir að
reynast dýrmætt. Hann fékk
boltann frá Luis Figo, lék að
vítateignum og þrumaði boltanum
neðst í hornið, óverjandi fýrir Iker
Casillas, markvörð Spánverja.
Spánverjar settu meiri kraft í
sóknina eftir markið en virtust
einhvern veginn aldrei lfklegir til að
jafna metin. í staðinn voru það
Portúgalar sem fengu gullin
tækifæri til að auka forystuna.
Costinha skallaði yfir úr dauðafæri
eftir frábæran undirbúning Nuno
Valente og Raul Bravo,
varnarmaður Spánverja, bjargaði
skoti Maniche á marklínu.
Lokaflautan gall, Portúgalar
fögnuðu en Spánverjar lögðust í
grasið með skítinn upp á bak - enn
eina ferðina höfðu þeir klikkað.
Rosalega stoltir
Luis Figo, fyrirliði Portúgala, var í
skýjunum eftir leikinn.
„Við erum rosalega stoltir. Við
unnum vel í dag og það er frábært
að vera kominn í átta liða úrslit. Það
er alltaf mikil pressa á gestgjöfunum
í svona móti og auðvitað hafði hún
áhrif á okkur. Fyrsti leikurinn gegn
Grikkjum var ekki nógu góður af
okkar hálfu en síðan þá höfum við
bætt okkur í hverjum leik og það
verður fróðlegt að fylgjast með því
hvað við gerum í átta liða
úrslitunum," sagði Figo.
Inaki Saez, þjálfari Spánverja,
sem verður væntanlega
atvinnulaus, þegar þetta er lesið,
var með böggum hildar eftir leikinn.
„Ástríðan var öll þeirra megin.
Við fengum góð færi en boltinn vildi
bara ekki fara inn. AUir leikmenn
liðsins liggja í þunglyndi þessa
stundina því við ætluðum okkur
stóra hluti á þessu móti.“
Pressulausir Rússar
Rússar spiluðu eins og kóngar í
byrjun gegn Grikkjum enda var lítil
pressa á þeim. Þeir gátu ekki komist
áfram og það var strax á 2. mínútu
sem þeir náðu forystunni með
marki frá Dmitri Kirichenko,
fljótasta mark í sögu Evrópumótsins
í knattspyrnu. Stundarfjórðungi
síðar skoraði Dmitri Bulykin annað
mark Rússa og allt leit vel út fyrir
Spánvexja sem voru á þeim tíma á
toppi riðilsins. Grikkir spýttu hins
vegar I lófana, minnkuðu muninn í
2-1 og voru þá komnir í þægilega
stöðu.
„Það tók okkur smá tíma að
komast inn í leikinn en við höfum
gert Grikkland að aðalumræðuefni
knattspyrnuáhugamanna I
heiminum," sagði Theodoros
Zagorakis, fyrirliði Grikkja, eftir
leikinn gegn Rússum og bætti við að
hann og félagar hans hefðu efht þau
loforð sem gefin voru fyrir
keppnina.
oskar@idv.is
„Við erum rosalega
stoltir. Við unnum vel
í dag og það er frá-
bært að vera kominn í
átta liða úrslit."
Maður kvöldsins
Nuno Gomes, framherji Portúgala. Þessi
frábæri framherji kom inn á sem varamaður i
hálfleik og hafði aðeins verið inn á í tólf
mínútur þegar hann skoraði sigurmarkið.
A-riðill
EM i fótbolta
Rússland 2-1 Grikkland
1-0 Kirichenko, skot (2.)
2-0 Bulykin, skalli (17.)
2-1 Vryzas, skot (43.)
Tölfræðin:
18 Skot 12
9 Skot á mark 4
8 Varin skot markvarSa 2
10 Skot innan taigs 7
5 Horn 8
21 Aukaspyrnur f engnar 19
1 Rangstöður 5
6 Gul spjöld 2
0 RauB spjöld 0
52% Bolti innan liBs 47%
MAÐUR LEIKSINS:
Viacheslav Malafeev, Rússlandi
A-riðill EMífótbolta
-----------------------
" 0-1
‘ (0-0)
Spánn 0-1 Portúgal
0-1 Nuno Gomes, skot (57.)
Tölfræðin:
6 Skot 15
2 Skot á mark 6
4 Varin skot markvarBa 2
6 Skot innan teígs 10
9 Hom 11
28 Aukaspyrnur fengnar 26
3 Rangstöður 3
3 Gul spjöld 2
0 Rauð spjöld 0
46% Bolti innan liðs 54%
MAÐUR LEIKSINS:
Nuno Gomes, Portúgal
Fastir liðir eins
og venjulega hjá
Schumacher
Þýski ökuþórinn Michael
Schumacher kom fýrstur í mark í
Indianapolis-kappakstrinum í
Formúlu 1 sem fram fór í gær. Það
þykir reyndar ekki vera fréttnæmt
um þessar mundir en merkilegra
var að ellefu bílar heltust úr
lestinni og Ralf Schumacher var
fluttur á sjúkrahús þar sem hann
er til skoðunar. Rubens Barri-
chello, sem ekur einnig fyrir
Ferrari, hafnaði í öðru sæti og
væri réttast fýrir forráðamenn
Formúlunnar að afhenda Schu-
macher titil ökuþóra strax og
Ferrari titil bílasmiða, slíkir eru
yfirburðimir hjá þessum frábæra
Þjóðverja og ítölsku bflasmið-
unum.
Ferrari og Ferrari Ferrari hefur haft algjöra yfirburöi
sem Ferrari-bíiamir tveir eru fyrstir hefur veriö atgeng: