Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ2004
Siðast en ekki síst DV
Rétta myndin
A árbakkanum við Sogið hefur gamail sumarbú-
staður vikið fyrir nýju húsi sem senn verður reist.
Móðgaður byssumaður
Útivistarparadís höfuðborgar-
svæðisins er Heiðmörk og í góðviðr-
inu býsna vinsæll staður. Þeir sem
leggja þangað leið sína rekast hugs-
anlega á þetta skilti þar sem gestir
eru boðnir velkomnir og nokkrar
reglur áréttaðar sem vert er að hafa í
heiðri. Nú er það svo að margir ís-
lendingar þola einfaldlega ekki regl-
ur og hér er mynd sem staðfestir þá
tilhneigingu rækilega. Undir „Virð-
t _ ■■i um reglur" er talað um að
i T V,iP ekki megi kveikja elda,
sleppa hundum og hestum lausum,
hirða rusl og úrgang og svo framveg-
is. Síðast en ekki síst er svo: „Með-
ferð skotvopna er óheimil." Þessi
setning hefur verið eins og blaut
tuska framan í þann sem þarna var á
ferð með haglabyssuna. Svo mjög
hefur sá reiðst og/eða móðgast
þessari dónalegu afskiptasemi að
hann hefur umsvifalaust hlaðið
byssu sína og sundurskotið skiltið.
Það er eitthvað við þetta sem er svo
íslenskt.
Sundurskotið skilti í Heiðmörk
Efgrannter skoðað má finna I reglu-
verkinu„Meðferö skotvopna óheimil.“.
Líkast til hefur það verið eins og blaut
tuska í andlit haglabyssumannsins
sem þarna átti leið um.
• Hjónin Friðrik Klemenz Sophus-
son, forstjóri Landsvirkjunar, og
Sigríður Dúna Kiist-
mundsdóttir mann-
fræðiprófessor hafa
fengið samþykki
skipulagsyfirvalda í
Reykjavík fyrir því
að stækka og betr-
umbæta hús sitt á
Bjarkargötu 10. Þau
ætía að hækka og breyta þaki, koma
fyrir gluggum á suðurhlið og inn-
rétta vinnustofu í bílskúr. Þess utan
ætía þau að lagfæra steyptar tröpp-
Síðast en ekki síst
ur á norðurhlið hússins. Engar at-
hugasemdir bárust frá nágrönnum
þegar málið var í kynningu þar fyrir
tíu dögum...
• Háskóli íslands útskrifaði met-
fjölda í Laugardalshöllinni um helg-
ina þegar hátt í þúsund manns út-
skrifuðust með lokapróf. Meðal fjöl-
margra aðstand-
enda þeirra sem
luku prófum voru
ráðherrarnir
Bjöm Bjamason
og Geir Hilmar
Haarde en synir
þeirra luku próf-
um. BjamiBene-
dikt Bjömsson gerði það gott því
hann hlaut ágætiseinkunn í
meistaraprófi í íslensku...
• Páll Skúlason rektor hélt athyglis-
verða lokaræðu sem margir skildu
sem netta ádrepu á stjómarherrana
sem oftar en ekki em kenndir við
valdníðslu. En svo er að sjá sem
rektor hafi orðað gagnrýni sína fim-
legaþví Bjöm
Bjamason dóms-
málaráðherra-
ráðherra varð
fýrir hugljómun
um það að mál-
staður hans og
Davíðs Oddsson-
ar í stríði þeirra
við Baug og tíð-
indi honum
tengd væri herferð hinna dyggu
boðbera réttíætisins og málstaður
sjálfstæðismanna í fjölmiðlamálinu
því gegnheill. Margir aðrir í salnum
fengu annars konar tilfinningu und-
ir ræðu rektors sem auðvitað þarf
að gæta orða sinna svo háskólinn
verði ekki fyrir hnjaski...
FLOTT hjá Þórólfi Arnasyni aö þora
að setja upp Ijósmyndasýningu á Austur-
velli í óþökk Halldórs Blöndal, forseta
Alþingis. Frábært framtak hjá honum
og mögnuð sýning.
Séra Gunnar Sigurjónsson
SlerkasO prestur í heimi
„Ég er nú að fara á taugum yfir
þessu, ég svaf ekkert í nótt,“ sagði
séra Gunnar Sigurjónsson í samtali
við DV nokkrum klukkustundum
áður en hann lagði í tilraunina við
heimsmetið í íþróttahúsi Digra-
ness.
Gunnar var að sækjast eftir tití-
inum Sterkasti prestur í heimi eða
The Most Powerful Pastor in the
World og náði titilinum.
„Ég tók titilinn af bosníska prest-
inum Ante Ledic, sem ber að vísu
titilinn The Strongest Clergyman in
the World," sagði sr. Gunnar í sam-
tali við blaðamann eftir að hann
hafði slegið heimsmet séra Ledic,
sem lyft hafði hundrað tuttugu og
sjö kílóum. „Þegar Ledic setti metið
voru ekki teknar neinar myndir og
það eru ekki til staðfestir dómar um
heimsmetið. Ég gerði þetta með
löglegum hætti og með viður-
kenndum dómurum. Um þá hlið
mála sáu Kári Elíasson lyftinga-
kappi og Kraftíyftingasambandið,"
segir sr. Gunnar sem ætíar sér að fá
heimsmetið skráð í heimsmetabók
Guinness.
„Bosníski presturinn Ante Ledic
vinnur meðai annars að því að eyða
fordómum milli múslima og krist-
inna og er hataður fyrir bragðið.
Það er tvisvar búið að reyna að
drepa hann,“ segir sr. Gunnar og
bætir við að íþróttir og viðburðir
geta dregið athyglina að þeim mál-
um sem skipta meira máli en svona
keppnir. Kapp séra Ante Ledic snýst
um að draga athygli að því sem
hann er að vinna að og hann skorar
á aðra presta að keppa við sig.
„Mitt takmark er að varpa ljósi á
séra Ledic og það sem hann er að
gera,“ segir sr. Gunnar.
Séra Gunnar Sigurjónsson
Tók titilinn afbosníska prestinum Ante Ledic.
Veðrið
Lárétt: 1 nauðsyn, 4
hljóð, 7 matreiðir, 8 geðj-
ast, 10 heiti, 12 kvendýr,
13 ritfæri, 14 steinteg-
und, 15 brún, 16 forboð,
18 nabbi, 21 kvenmanns-
nafn, 22 hamagangur, 23
skegg.
Lóðrétt: 1 viðmót, 2 drif,
3 slétta, 4 hugsunarhátt,
5 gjafmilda, 6 eyktamark,
9 vömb, 11 froða, 16
skrokk, 17 gagn, 19 mag-
ur, 20 beita.
Lausn á krossgátu
u6e oz 'jAj 61 'J°u ,
'|oq 91 'enejj 11 'bjjsj 6 'uou 9 'ejo s '6ue6e>|uec| y 'jpuaneg £ '>|aj z '|ad l mýJO1
■uoj6 zz 'ijæ| ZZ 'áuppo IZ 'BOJe!
'uueq 91 '663 st 'je6e yi '|jjs £L '>|JJ ZL 'ujeu oi 'e>|j| 8 'Jep|3 L 'u6ocj y 'pgcj l :«?J'