Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Side 10
7 0 FIMMTUDAGUR 24. JÚNl2004
Fréttir DV
Þorgerður Katrín er falleg, gáf-
uð og hefur nýtt möguleika
sína í lífinu til fullnustu. Hún
hefur náð þeirri stöðu sem
hún er í alfarið á eigin verð-
leikum. Hún hefur náð tölu-
verðum árangri í störfum
sínum og þykir nákvæm,
skynsöm og skelegg.
Hana vantar ennþá næga
grimmd og hörku til aö
takast á viö sviðsljós fjöl-
miöla. Alveg sama hversu
oft prinsessan bætir undir
dýnuna, hún mun alltaf
finna fyrir bauninni. Hún er
ekki vön að mæta mótbyr í
lifinu og kann illa aö
höndla mikla gagnrýni eins
og hún hlaut til dæmis í fjöl-
miðlamálinu. Þá þykir hún
kröfuhörð.
„Þorgerður Katrin er afskaplega
heilsteypturog frambærilegur
stjórnmálamaður. Það
er gott að eiga samstarf
við hana á hinum
pólitíska vettvangi. Hún
veit alltafhverju hún vill
fá áorkað og er ákveðin
og fylgin sér Iþvl sem hún tekur
sér fyrir hendur. Hinsvegar tekur
hún ætíð fullt tillit til samstarfs-
manna sinna."
Birgir Ármannsson þingmaður og félagi
Þorgerðar í Sjálfstæðisflokknum.
„Það er mjög gaman að þvl að
takast á við hana á þingi. Hún
er mjög fylgin sér og málefna-
leg I þvi sem hún tekur sér fyrir
hendur og það er gott
að vinna með henni.
Sem persóna erhún
mjög skipuleg og skel-
egg. Ég vann með henni
I allsherjarnefnd og það var
ánægjulegt samstarf, gott að
skiptast á skoöunum við hana
og ekkert verra að rlfast við
hana. Helsti galli hennar erað
hún er ofboðslega hlynnt foryst-
unni I flokknum."
Guðrún Ögmundsdóttir andstæðingur
Þorgerðar á þingi.
„Systir min er afskaplega greind
og skemmtileg kona. Hún hefur
alltafverið mjög skipulögð og
fylgin sér. Hvað per-
sónuleikann varðar er
hún félagslynd en hefur
samt aldrei verið I vand-
ræðum með að vera ein
með sjálfri sér. Ég held
að hún leiti mikið I náttúruna til
þessa enda jaröbundin per-
sóna."
Karitas Cunnarsdóttir, eldri systir og
samstarfskona Þorgeröar í mennta-
málaráðuneytinu.
Þorgeröur Katrín er fædd í Reykjavík 4. okt.
1965, dóttir hjónanna Gunnars H. Eyjólfs-
sonarleikara og Katrlnar Arason deildar-
stjóra hjá Flugmálastjórn. Eignmaöur
hennar er Kristján Arason viöskiptafræö-
ingur og eiga þau þrjú börn. Aö loknu lög-
fræöiprófí 1993 vann hún sem lögfræöing-
ur hjá Lögmönnum Höföabakka 1993-
1994. Yfírmaöur samfélags- og dægur-
máladeildar Rlkisútvarpsins 1997-1999.
Þingmaöur 1999. Skipuö menntamálaráö-
herral desember l-sl.
Fasteignasalar munu framvegis þurfa aö lúta mun strangari kröfum en áður. Ný
lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa taka gildi í haust. Áöur gátu allir fengið
réttindi eftir stutt námskeið. Nú þarf tólf mánaða starfsreynslu áður en hægt er að
komast á námskeið. Og til að komast á námskeiðið þarf stúdentspróf.
Fasteignasalar undir
strangt eftirlit ríkisins
Eftir rúma þrjá mánuði verða fasteignasalar að undirgangast
mun strangari reglur um starfshætti og eftirlit með þeim en
hingað til hefur tíðkast. Félag fasteignasala fagnar nýjum lögum
um fasteignaviðskipti.
„Lögin eru gríðarleg réttarbót,“
segir Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, um ný
lög um fasteignaviðskipti sem Al-
þingi samþykkti í maí.
Þurfa að vera stúdentar
Að sögn Björns Þorra hafði Félag
fasteignasala óskað eftir endur-
skoðun löggjafar um nokkurra ára
skeið. Viðar Már Matthíasson laga-
prófessor hafi loks samið frumvarp
að beiðni Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra. Lögin taki gildi
1. október í haust:
„Helstu breytingarnar eru að
menntunar-
kröfur fast-
eignasala
eru
auknar
veru-
lega,"
. segir
M Björn
ISjmY Þorri.
„Áður
Wjí íj gátu allir
|||7 farið á
jHP stutt
Spr námskeið,
7 án tillits til
rr.or.nt-
Björn Þorri Viktorsson „Eftidits-
nefndin hefur rlkar heimildir til rann-
sókna og henni ber að framkvæma eft-
irlitið eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti
með hverjum einasta fasteignasala,"
scgir formaður Félags fasteignasala.
„Þessi kafli laganna
mótast mjög afþeim
vandræðamálum sem
uppi hafa verið í
greininni."
unar. Viðkomandi þurfti einungis
að sýna fram á þrjátíu daga reynslu
og sitja tiltölulega stutt námskeið.
Samkvæmt lögunum er gerð krafa
um tólf mánaða starfsreynslu áður
en menn fara á námskeið. Og til að
komast á námskeiðið þarf stúd-
entspróf. Námið er þannig komið
inn á háskólastig."
Aðskilji fé skjólstæðinga
Bjöm Þorri segir ennfremur gert
ráð fyrir að fasteignasalar haldi sér-
staka fjárvörslureikninga og haldi fé
skjólstæðinga sinna frá eigin fé, rétt
eins og lögmenn þurfa að gera.
„Þessa reglu hefur sárlega skort
hingað til,“ segir hann.
Þá segir Björn Þorri að stofnuð
verði nefnd sem hefur eftirlit með
að störf og starfshættir fasteigna-
sala séu í lagi og að farið sé eftir
reglum og opinberum kröfum.
„Þessi kafli laganna mótast mjög af
þeim vandræðamálum sem uppi
hafa verið í greininni," segir hann.
Fjársvikarar í fasteignasölu
Nokkuð hefur verið um það á
síðustu árum að fasteignasalar hafi
Fasteignir Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að fasteignasalarhaldi sérstaka fjárvörslureikn-
inga og haldi fé skjólstæðinga sinna frá eigin fé.
komist í kast við lögin vegna
fjársvika eða meintra svika.
Bjarni Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fasteignasölunnar Holts, var í
mars síðastliðnum dæmdur í þriggja
og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa
með fjárdrætti, skjalafalsi og
fjársvikum haft rúmar hundrað
fimmtíu og átta milljónir af við-
skiptavinum Holts.
Þá hefur Lögreglustjórinn í
Reykjavík ákært Finnboga Kristjáns-
son, fyrrverandi fasteignasala og
eiganda Fasteignasölunnar Fróns,
fyrir fjárdrátt og umboðssvik.
Einnig hefur lögreglustjóri ákært
Helga Magnús Hermannsson, sem
rak fasteignasöluna Óðal og síðar
Óðal & Framtíðina, fyrir fjársvik og
skjalafals.
Fælingarmáttur öflugs
eftirlits
„Eftirlitsnefndin hefur ríkar
heimildir til rannsókna og henni ber
að framkvæma eftirlitið eigi sjaldnar
en á þriggja ára fresti með hverjum
einasta fasteignasala. Varla eru
dæmi um svona íþyngjandi eftirlit
annarsstaðar," segir Björn Þorri.
„Það er mikill fælingarmáttur í því
að eiga von á eftirlitsnefndinni,"
segir Björn Þorri. „Þetta kemur sér
mjög vel fyrir stéttina og þessum
lögum fagna langflestir fasteignasal-
ar. Þeir binda um leið miklar vonir
við að það komist betra skikk á
rekstrarumhverfi fasteignasala en
verið hefur. Það þarf að vera al-
vörueftirlit og alvöruúrræði til að
bregðast við.“
Forsvarsmenn verkalýðsfélaga segja stjórnmálaflokka fjarlægjast félögin
Össur og Steingrímur fengu dúsu og þegja
„Stjómmálaflokkamir hafa verið
að fjarlægjast okkur og í desember
kom það glögglega ffam þegar stung-
ið var upp í forsvarsmenn stjórnar-
andstöðuflokkanna dúsu á sama
tíma og neitað er að hækka laun op-
inberra stofnana á okkar vegum til
jafns við aðra opinbera starfsmenn,"
segir Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur verkalýðsfélags Húsavíkur og mat-
vælasviðs Starfsgreinasambandsins.
Aðalsteinn hefur gagnrýnt stjórn-
málamenn - og þá ekki síst vinstri
flokkana tvo á þingi - fyrir að hafa
fjarlægst verkalýðsbaráttuna með
þeim afleiðingum að stéttabarátta
eigi vart orðið málsvara á þingi.
Sjálfum var Aðalsteini boðið að
taka sæti á listum þriggja flokka fýrir
síðustu alþingiskosningar. Sam-
kvæmt traustum heimildum var þar
um að ræða alla þáverandi, sem eru
einnig núverandi, stjórnarandstöðu-
flokka. Aðalsteinn hafnaði boðinu að
sögn vegna anna. Hann á sem kunn-
ugt er sæti í bæjarstjóm Húsavíkur.
Aðalsteinn segir hugmyndir hafa
komið upp innan verkalýðshreyfing-
arinnar um að gera skurk í þessum
málum. Hann leggur áherslu á að í
öllum flokkum eigi að vera talsmenn
vinnandi stétta. í ff étt í DV fyrir viku
kom fram að á fundi í Stefnu, félagi að að mönnum,"
vinstri manna á Akureyri, sem Aðal- segir Aðalsteinn
steinn sat sem gestafýrirlesari á dög- Baldursson.
unum hefði hann reifað hugmynd helgi&dv.is
um stofnun sérstaks framboðs verka-
lýðsáhugamanna. Aðalsteinn segir
þá hugmynd þó ekki langt komna.
„Mín sýn er sú að verkafólk hafi
sterka talsmenn í öllum flokkum og
það teldi ég affarasælast.
Annars er hinn kosturinn
að stofha sérstakan verka-
mannaflokk en sá mögu-
leiki hefur ekki verið sér-
staklega á dagskrá þó
vissulega hafið það hvarfl-
Aðalsteinn Baldursson For-
maður Verkalýösfélags Húsavík-
ur, semhér ber merki Samfylk-
ingarinnar í barminum, segir af-
skiptaleysi stjórnarandstöðunn-
ar algjört gagnvart verkafólki.
Stokkaðu upp fjármálin
- með hagstæðu fasteignaláni
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum, sem er kjöriö til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við
skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur
fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13A, hringt i síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ðæmi um mánaðarlega greiðslubyrði
af 1.000.000 kr.*
/ $0% ■
| '7n%<r
Vextir % 5,40% 5,95% 6,50% 7,50%
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580
Alborquncir Irtiiýt • 4.500 4.960 5.420 6.250
*Lán med jafngreiösluaöferd án veröbóta