Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Blaðsíða 14
74 FIMMTUDACUR 24. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Hundsum
fokdýr bió!
Einkennilegt hvað er
orðið dýrt að fara í bíó.
Miðinn í bíó kostar nú heil-
ar 800 krónur sem eru tæp-
ar tvær vídeóspólur og vart
Neytendur
verjandi lengur fyrir stórar
ijölskyldur að lyfta sér upp
með því að kíkja í bíó. Það
má vel vera að það sé dýrt
að kaupa til landsins bíó-
myndir til sýninga og ég ef-
ast ekki um að kostnaður
við að mubblera upp alla
þessa bíósali á undanförn-
um árum hefur reynst dýr.
Hins vegar er með það eins
og annað að mér finnst
stórfurðulegt hvers vegna í
ósköpunum bíógestir í
landi þar sem fólk stundar
bíóhúsin jafn grimmt og
hér skuli þurfa að borga
tæpan þúsund kall, með
poppi og gosi, fyrir bíóferð-
ina. Ég fór á dögunum í bíó
eins og svo oft áður og fyrir
það greiddi fjölskyldan
tæpar flmm þúsund krón-
ur, sem er að mínu mati al-
veg út úr kú.
Mér finnst furðulegt að
engum skuii hafa dottið í
hug að opna bíó fyrir okkur
„pöpulinn" þar sem minna
yrði lagt upp úr letistráka-
sætum og leysigeislasýn-
ingum en miðinn þar með
ódýrari sem því nemur.
Eins fmnst mér stórfurðu-
legt að þrátt fyrir að á höf-
uðborgarsvæðinu séu nú
sex talsins er miðinn alls
staðar jafn dýr. Ég geri mér
sosum grein fyrir því að
hluti húsanna sé á sömu
hendi vafinn en hitt er eins
víst að samkvæmt öllum
kenningum ætti þó sú litia
samkeppni sem til staðar er
að tryggja samkeppni og
þar með mismunandi verð,
en ó nei. Tæpast fer nú
undirmönnuð Samkeppn-
isstofnun að ráðast til at-
lögu við bíóstjórana en þá
reynir á okkur neytendur
að taka höndum saman og
sleppa bíóunum.
• Holta kjúklinga-
leggir og kjúkiingalæri
eru á tiiboðsverði í
Bónus, kílóið kostar
299 krónur í stað 449
kr. áður. FjaUagrillkjöt
er líka á tilboðsverði og
villikryddað lambalær-
ið kostar 857 krónur kílóið. Bónus
samlokumar eru sem fyrr á aðeins
99 krónur. Ali beikon, krydduð
svínarif og vínarpylsur fást einnig á
tilboðsverði.
• Þín verslun er með koníakslegna
svínasteik á aðeins 958 krónur kfló-
ið í stað 1.198 áður. SS Ostapyls-
umar em seldar á 662 krónur
kflóið og hvítlaukspylsur frá
sama fyrirtæki em á 662 krónur
kflóið. Þá em Pik-Nik kartöflu-
strá á 159 krónur í
stað 198 áður og
Freyju Hrís, 200 g,
fæst á 279 krónur í stað
299.
• Nýherji er með EM tilboð
á myndvörpum fyrir heimil-
ið. Sá ódýrasti er Toshiba ETl *
með 800x600 upplausn og Éfkf*-
breiðtjaldsformi. Lampaend- ’v
ing er 4 þúsund stundir og
loftfesting gildir. EM tilboðs
verð á þessum grip er 119
þúsund krónur. Fleiri
tegundir em á tOboði í
versluninni.
y j, • Þótt sól skíni í heiði þessa
dagana eru Hagkaupsmenn
^^^W'búnir undir rigninguna. í Hag-
kaupum fást nú Elka pollajakkar
með endurskini og pollabuxur á
krakka og kostar hvor flík aðeins
1.699 krónur.
• Markið er með „dömudaga" og
býður 15% afslátt af reiðhjólum
fyrir dömur. Um er að ræða
Bronco, Scott USA og Giant
hjól og er verðið frá 17.850
til 32.130 eftir því hvaða
tegund er valin.
• Guðjón Bergmann er
með tveir fyrir einn til
boð á jóga í sumar.
Hægt er kaupa tvo
mánuði fyrir einn í
opnum jógatímum og
einnig er hægt að
fara í ókeypis
prufutíma.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu á þriðjudögum og fimmtudögum.
Hvað erum við að kaupa þegar við veljum fulla þjónustu á .
bensínstöðum olíufélaganna? Erum við að borga mun hærra
verð fyrir það eitt að nenna ekki út úr bílnum okkar eða er
eitthvað innifalið í fullri þjónustu sem fólk veit almennt ekki
um? DV bjallaði á nokkrar bensínstöðvar sem auglýsa fulla
þjónustu og komst að því að upplýsingar um þjónustuna er
hvergi að finna á stöðvunum.
Hvað er fnll þjðnusta?
Þegar keypt er full þjónusta á
bensínstöðvum er oft erfitt að átta
sig á því hvað sé í raun verið að
borga fyrir. Áður en greiðslukortin
hófu innreið sína fólust að sjálf-
sögðu þægindi í því að geta rétt seð-
il út um gluggann til slöngutemjar-
ans, eins og bensínafgreiðslumenn
eru gjarnan nefndir, en eftir kort er í
raun erfitt að sjá hver gróðinn er
annar en sá að sleppa við að skvetta
á sig bensíni. Eða hvað?
Á heimasíðu Olíufélagsins Esso
kemur fram að verðmunur á lítra af
95 oktana bensíni með fullri þjón-
ustu annars vegar og ódýrasta verðs
í sjálfsafgreiðslu hins vegar sé 11
krónur á lítrann, 110,9 krónur
ftúl þjónusta en 100 kr.
lægsta sjálfsaf-
greiðsluverð.
Þetta þýðir með
öðrum orðum að il
full þjónusta sé 11
krónum dýrari en'
sjálfsafgreiðslan. En
hvað skýrir þennan
mun og hvað færðu ^
fyrir 10 kallinn á lítrann
þegar fyllt er?
Samkvæmt upplýs-
ingum frá vaktstjóra Esso
stöðvarinnar við Geirsgötu
er innifalið í fullri þjónustu
þar að dæla bensíni á bílinn,
athuga loft í dekkjum, olíu,
vatn á vatnskassa og rúðu
vökva auk þess sem framrúðan er
þrifin. Ekki liggja frammi upplýsing-
ar um þessi atriði við dælur á stöð-
inni né í versluninni.
Sömu sögu er að segja af bensín-
stöðvum Olís sem bjóða fulla þjón-
ustu. Samkvæmt upplýsingum frá
Olís er verðmunur þar tæpar 10
krónur með sömu forsendum og hjá
Esso, 111,9 krónur full þjónusta en
101,9 kr. sjálfsafgreiðsla en ekki
liggja fyrir upplýsingar um verð með
þjónustu á heimasíðu Olís l£kt og hjá
Esso.
Hjá Olís í Hamraborg fengust
þær upplýsingar
Full leynileg þjónusta Full þjón-
usta bensínstöðvanna inniheldur
margs konar þjónustu viðskiptavin-
um til hægðarauka en engar upp-
lýsingar liggja þó fyrir á benslnstöð-
um um hvað sé innifalið Ifuilri
þjónustu sem er allt að 11 krónum
dýrari en sjálfsafgreiðslan.
að inni í verðinu væri innifalin at-
hugun á olíu, vatni, lofti í dekkjum,
rúðuvökva auk framrúðuþrifa.
Einnig sjá afgreiðslumenn um peru-
skipti sem hægt er auk þess að
skipta um rafgeyma þar sem þeir eru
seldir og því er við komið. Auk þess
tók vaktstjórinn í Hamraborg fram
að kurteisi væri innifalin í verði fullr-
ar þjónustu, en því er reyndar geng-
ið út frá sem vísu á hinum stöðun-
um.
Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu Skeljungs býður fyrirtæk-
ið sama verð og Esso á fullri þjón-
ustu, 110,9 kr., en lægsta verð í
sjálfsafgreiðslu hjá Skeljungi
er 103,9 kr. Verðmunur á
„fullri þjónustu" og
sjálfsáfgreiðslu er því
sléttar 7 krónur. Hjá
Shell-stöðinni á Reykja-
víkurvegi sem býður
lægsta sjálfsafgreiðsluverð
stöðva Shell fengust þær
upplýsingar að innifalið í
fullri þjónustu þar sé athug-
un á lofti, vatni, ohu og rúðu-
vökva og ffamrúðuþrif. Auk
þess aðstoðar starfsfólk við-
skiptavini við skipti á perum,
rafgeymum og því sem hægt er
ef ekki þarf verkfæri til þess arna.
Engar upplýsingar liggja fyrir á
Shell-stöðvunum um hvað „full
þjónusta“ feh í sér.
helgi@dv.is
Algengt verð á ýsu í roði er rúmar 800 krónur
Soðningin á tilboði
Hátt verð á fiski og ekki sístýsu fer
fyrir brjóstið á mörgum en víða eru
tilboð hjá fisksölum sem vert er að
athuga nánar.
Melabúðin við Hagamel býður
viðskiptavinum sínum soðninguna á
sérstöku tilboði alla mánudaga en þá
er hægt að fá ýsu í roði á 499 krónur
kflóið sem er talsvert ódýrara en al-
Gamalt & Gott Flestir sem einhvem tíma hafa smakk-
að áfengi þekkja timburmennina sem fylgja harkalegri áfengis-
neyslu. Til em ýmis ráð til að bæta heilsuna og
Þjóöverjum þykir til dæmis gott að borða steiktar
pylsur eftir kenderí. Finnar mæla hins vegar með
saltsíld sem skolað er niður með vodka. Austur-Evr-
ópumenn em líka á því að saltað fiskmeti sé allra
meina bót á meðan Kanadamenn telja gott að rífa í
sig franskar kartöflur með kjötsósu og ostbitum. Þá
segir sagan að í Tyrklandi kjósi múslimar jógúrt með
hvítlauk þá sjaldan þeir ganga gegn lögum kórans-
ins. Gyðingar em sagðir losna við timburmennina
með því að borða feita pylsu með fyrsta bjómum.
gengasta verð á sams konar flökum.
Að sögn starfsfólks í Melabúðinni er
sá háttur hafður á þessa daga að við-
skiptavinum gefst kostur á að kaupa
sér þjóðarréttinn á lægra verði ef
framboð á ferskum fiski er nægilegt.
Samkvæmt upplýsingum frá fisk-
sölum er algengt verð á sömu vöm
milli 800 og 900 krónur svo það er til
mikils að vinna að skella sér út á
Mela eftir soðningunni á mánudög-
um.
Fiskbúðin Vör við Höfðabakka er
líka með tilboð á ýsu. Ef þú kaupir
tvö klló af ýsu eða fiskbollum færðu
tvö kíló af kartöflum og tvo htra af
Frissa Fríska appelsínusafa með á
1.450 krónur. Hægt er að velja um
ýsu og fiskbollur sér eða saman í til-
boðinu hjá Vararmönnum.
Samkvæmt upplýsingum frá öðr-
um fisksölum sem leitað var til velta
tilboð að mestu á framboði á ýsu og
öðmm tegundum á fiskmörkuðum
en að sögn eins fisksala sem Neyt-
endasíðan ræddi við er svokallað
Bæði mollar oy
miðbær betri
„Ég held að ég verði að segja að ég
versli ekki á einum sérstökum stað
umfram annan og finnst bæði stóru
og litlu búðirnar á horninu jafn góð-
ar ef því er að skipta," segir sjón-
varpskonan skemmtilega Valgerður
Matthiasdóttir, eða Vala Matt. "Ég
fer nokkuð jafnt að versla í stóru
verslunarmiðstöðvunum og mið-
bænum enda er stemningin og and-
inn svo skemmtilega mismunandi á
báðum stöðum að hvort tveggja get-
ur verið voða huggulegt," segir Vala.
Hún segist reyna að versla reglulega
lífrænar matvörur og þá
séu tvær búðir i sér-
stöku uppáhaldi hjá
sjónvarpsstjörnunni.
"Þegar ég kaupi líf-
rænar vörur fer ég i
Heilsuhúsið og Ygg-
drasil enda gott úr-
val á báðum stöðum
af hollum og lífræn-
um vörum," segir
Vala Matt.
Hvað kosta
gallabuxur?
DV kannaði verð á gallabux-
um í nokkrum tískuvöruversl-
unum landsins. Mismunandi
úrval er af tegundum í búð-
unum og eru því mismunandi
verð. Hér er gefið upp ódýr-
asta og dýrasta verðið á
hverri tegund. Ódýrustu bux-
urnar eru Dickie*s í Smash og
þaer dýrustu eru Diesel buxur
í Sautján.
Levi's búðin
Levi 's
Sautján
Diesel
Miss
Deres
Levi’s
Diesel
Wrangler
Smash
Levis
Carart
Dickie ’s
Centrum
Lee
Wrangler
Calvin Klein
Retro
Frá Melabúðinni Soðningin ertæplega
helmingi ódýari hjá Melabúöarmönnum á
mánudögum. Fisksalar segja tilboð sín fara
eftir framboði á mörkuðum sem helst mikið i
hendur við tíðni á flutningi svokallaös„flug-
fisks" vestur og austur um haf. DV-mynd GVA
Ameríkuflug, þar sem fersk ýsa er
flutt með flugi vestur um haf,
skeinuhætt neytendum hvað verð
varðar vegna þess hversu framboðið
á fiskmörkuðum minnkar í takt við
flugið.
Fyrir þá sem vilja annars konar
sjávarafurðir er rétt að benda á að
frosið hrefnukjöt er á sérstöku til-
boði í dag og á morgun í Fiskbúðinni
Álfheimum og Svalbarða í Hafnar-
firði. Hrefnan, sem ku vera kjörin á
grillið, er á 390 krónur kílóið.
8.990-12.990 kr.
7.900- 21.900 kr.
60 9.900- 15.900 kr.
8.990- 12.990 kr.
7.990- 19.990 kr.
9.990 kr.
10.900- 11.900 kr.
8.900- 13.900 kr.
3.900 - 4.900 kr.
8.900 - 9.900 kr.
9.900 kr.
12.900-15.900 kr.
8.900 - 9.900 kr.
8.900- 15.900 kr.
9.990-11.990 kr.
8.900- 12.900 kr.