Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Side 15
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004 1S
Steindór^Ander-
sen Kvæoamað-
Ur fer fyrir fimmtudags-
göngunni á Þingvöllum í
kvöld. Hann fræðir göngu-
menn um rímnakveðskap og
hráefni rímnaskáldanna með
því að rifja upp Ölkofrasögu,
söguna af Þórhalli á Þór-
hallsstöðum sem seldi þing-
mönnum öi fyrir 1000 árum eða svo og tókst á við
höfðingja. Steindór kveður Ölkofrarfmur Gísla Kon-
ráðssonar og gefst göngumönnum kostur á að kveða
með honum. Lagt verður af stað frá Flosagjá kl. 20.
Kanadíski rs
..unaurinn Lisa
________lurinn_________
MOOre segir frá rithöfunda-
ferli sínum í Norræna húsinu f
dag kl. 17. Lisa er þekktust fyrir
smásögur sínar en hún hefur
einnig unnið fyrir sjónvarp og út-
varp. Hún er frá St. John á Ný-
fundnalandi og með henni í för
er kvikmyndagerðarmaður sem
vinnur að heimildarmynd um
hana en líka tvö eylönd, ísland
og Nýfundnaland. Tvær eyjar
með ríkan menningararf, af
hverju blómstrar önnur en hin
#
7
ekki?
Listasumar a
L AkureYri
stenaur yTirogá
heitum fimmtudegi f
Deigiunni í kvöld spilar
hljómsveitin „Hljóð í
skrokkinn" swingmúsík í
anda Lesters Young, Bens Webster og Colemans
Hawkins. Hljómsveitina skipa þeir bræður Óskar sax
og Ómar gítar Guðjónssynir, Erik Qvick trommur og
Ólafur Stolzenwald kontrabassi. í Ketilshúsinu sýna
Auður Vésteinsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir og Sigríður
Ágústsdóttir undir yfirskríftinni „Nítjándi júní“. Auður
vefur, Björg málar og Sigríður vinnur í leir. Sýningin
stendur til 4. júlí.
Smiðir Stonehenge
trá Wales
Leifarsjö
manna fund-
ustádögunum
í bronsaldar-
gröfskammt
frá Stonehenge I Wiltskíri á
Englandi. Sýnt þykir aö þar hvfl-
ir fjölskylda steinhöggvara sem
vann við að reisa Stonehenge
fyrir4.300 árum. Lengi hefur
verið vitað að björgin í stein-
hringinn koma frá Wales suð-
vestanverðu, en rannsóknir á
tönnum fjölskyldunnar hafa
leitt í Ijós að hún er uppruninn
á sama svæði. Menn draga af
þessu þá ályktun að þegar
steinhringurinn varí smíðum
þótti ekki aöeins rétt að flytja
grjótið í hann alla leið frá
Wales, nokkrar kynslóðir fag-
manna í steinhöggi komu með
líka. Sumarsólstöður voru sl.
mánudag, en þá sýna sólar-
geislarnir sérstök töfrabrögð
við Stonehenge og komu 30
þúsund manns saman þar að
þessu sinni til að verða vitni að
göldrunum.
Blúshærinn
Ólafsfjörður
Jassklúbbur Ólafsfjarðar heldur
Blúshátíð í bænum á föstudag
og laugardag, en hún erævin-
lega haldin síðustu helgina í
júní. Ólafsfjarðarbær, fyrirtæki
og stofnanir gera klúbbnum
kleift að halda hátíðina. Á
föstudag koma m.a. fram Vinir
Dóra, KK, Páll Rosinkranz, Kalli
Bjarni og ungliðar Ólafsfjarðar
en á laugardag mætirBlús-
kompaniið með Magnúsi Eiríks-
syni, Pálma Gunnars-
syni og gestum en
Halldór Bragason
og Guðmundur Pét-
ursson spila með
ungliðunum.
verðurstarf-
rækt blús-
vinnustofa
með Hall-
Guðmundi.
Stórkostleg
heimildarmynd
„Það er töluvert síðan ég sá
Amercan Splendor en mér dettur
hún strax í hug. Þetta er stórkostlega
vel gerð heimildar-
mynd og persón-
ustúdía á Harvey
Pekar og hans
frábærlega ömur-
lega lífi. Ég var
upprifinn."
EgUIHeiðarAnt-
on Pálsson, leikarí og
leikstjórí.
Gott í bíó
Helga Ingólfsdóttir semballeikari kveður Sumartónleika í Skálholtskirkju á 30.
starfsárinu. Hún hefur verið listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá upphafi.
Rótiöst hátíð svo ná
get ég glöð kvatt
„Þetta er góð tilfinning, því starf-
semin er í blóma," segir Helga Ing-
ólfsdóttir semballeikari sem staðið
hefur fyrir Sumartónleikaröðinni í
Skálholtskirkju í 30 ár. „Starfsemin
hefúr fest rætur og þó ég kveðji núna,
ætla ég fylgja henni áleiðis og leggja
drög að rótfestunni í framtfðinni."
Hugmyndin kviknaði í Skál-
holtskirkju
Árið 1975 var Helga nýkomin
heim eftir langa dvöl í útlöndum. „Ég
var stödd í Skálholtskirkju þegar ég
fékk hugmynd að sumartónleikun-
um, ég hreifst mjög af kirkjunni og sá
í hendi mér að hún hentaði vel til tón-
leikahalds. í þá daga lá eiginlega öll
menningarstarfsemi á landinu í dvala
á sumrin en ég fékk Elínu Guð-
mundsdóttur semballeikara og Man-
úelu Wiesler flautuleikara í lið með
mér. Fyrsta tónleikaröðin náði yfir
íjórar helgar, fjórir til fimm tónlistar-
menn sáu um dagskrá sem frumflutt
var á laugardegi og endurtekin á
sunnudegi. Aðsóknin var nokkuð
dræm í byrjun. Nú ná Sumartónleikar
í Skálholtskirkju yfir fimm helgar, 60-
70 tónlistarmenn koma fram á hverju
sumri, að jafnaði eru tvennir tónleik-
ar á laugardeginum og aðrir þeirra
endurteknir á sunnudegi. Nú fyllist
kirkjan af fólki um hverja helgi, þar
hálpast allt að; saga staðarins heillar
og kirkjan sjálf með sinn ágæta
hljómburð," segir Helga Ingólfsdóttir
semballeikari.
Dagskráin um helgina
Staðartónskáld þessa fyrstu tón-
leikahelgi í Skálholti er Jón Nordal og
klukkan 14 á laugardag verður fium-
flutt nýtt söngverk eftir hann, fyrir
kór, óbó, slagverk og orgel. Verkið
nefnist „Gamla klukka í jörðu" og er
nafiiið sótt í Ævisögu síra Jóns Stein-
grímssonar eldklerks. Sönghópurinn
Gríma syngur, Eydís Franzdóttir spil-
ar á óbó, Steef van Oosterhout á slag-
verk og Douglas A Brotchie á orgel.
Klukkan 15 flytja svo hljóðfæraleikar-
ar og sönghópurinn Gríma „Þýðan eg
fögnuð finn", verk eftir Báru Gríms-
dóttur, Elínu Gunnlaugsdóttur,
Hildigunni Rúnarsdóttur og Mist Þor-
kelsdóttur. Klukkan 17 stígur svo fram
nýstofnaður kör, kammerkórinn
Carmina og flytur söngverk eftir
franska endurreisnartónskáldið
Josquin Desprez undir stjóm Áma
Heimis Ingólfssonar. Sú dagskrá
verður endurtekin kl. 15 á sunnudag.
18. aldar kaffiborð og mið-
aldakvöldverður
Skálholtsstaður lætur ekki sitt efdr
liggja þegar gestir á Sumartónleikum í
Skálholtskirkju og aðrir eiga í hlut.
Hægt er að setjast við kaffiborð að
hætti Valgerðar Jónsdóttur biskups-
frúar í lok 18. aldar. Hún var ekkja
Hannesar biskups Finnssonar og
rausnarhúsfreyja í Skálholtí. Kvöld-
verð er svo hægt að fá í anda Þorláks
biskups helga í lok 12. aldar. Upp-
skriftir em sóttar í elsta matreiðslurit
úr norðanverðri Evrópu. Það kom út
um aldamótin 1200 og er til í íslenskri
uppskrift. Úr þeirri fomu bók koma
kryddsósur, vín og kökur kvöldsins, en
auk þess em rammíslenskir réttir á
boðstólum. Veislustjóri flytur söguleg-
ar skýringar á tilurð réttanna, en mið-
aldakvöldverðinn þarf að panta fyrir-
fiam.
Magnús Björnsson í Hafnarborg
Búinn að vera með Ijósmynda-
dellu í hálfan sjöunda áratug
Magnús Bjömsson sýnir um
þessar mundir ljósmyndir í kaffi-
stofu Hafiiarborgar, lista- og
menningarmiðstöðvar Hafnar-
fjarðar. „Þetta em myndir frá síð-
ustu tveimur árum," segir Magnús,
„og allar teknar hér í Hafnarfirði og
það sunnan lækjar. Ég er dálítill
dellukarl svona, gef mér góðan
tíma í að fylgjast með pörunartíma
fuglanna, bíð eftir rétta skýjafarinu
yfir höfninni og fylgist með dorg-
veiðikeppni ungmennanna. Ég er
búinn að vera með ljósmyndadellu
frá fermingu, tel mig hafa náttúr-
lega skynjun á myndefnið en er
ekki skólagenginn í faginu. Ég byrj-
aði að læra en þar vom menn að at-
ast í nútímanum í stað þess að feta
sig fram í tímann. Ég vildi læra allt
um stafræna ljósmyndun en mér
stóð það ekki tll boða. Svo ég hætti
bara," segir Magnús Bjömsson.
Ljósmyndasýning hans í Hafnar-
borg stendur til 12. júlí.
Ljósmyndarinn Marisa Navarro
Arason sýnir sín verk í aðalsal
Hafnarborgar þessa dagana, Anna
Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunn-
arsdóttir sýna textflverk í Sverrissal
og í Apóteki Hafnarborgar sýnir
Jaana Partanen tvö myndbands-
verk.
Magnús Björnsson
Hefur náttúrulega
tkynjun á myndefnið.