Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1884, Page 71
iagur Haríu íueyjar. Jesús sjálfur átti, eptir sögusögninni, að
oafa sótt sál hennar og borið hana í faðminura til himna, en
Postnlarnir allir báru lík hennar til grafar, nema Tómas, sem ekki
var viðstaddur. Maríumessa þessi var í tölu hinna stærri helgi-
“aga á íslandi fyrrum, sem sjá má á skipun Magnúsar byskups
wssurarsonar um kirkjusiðu (1224) og fleiru.
, 10. Eochus var guðhræddur maður, sem stöðvaði drepsóttir
^iðsvegar með bænum sínum. Hann fæddist í jVIontpellier og
nafði rauðan kross á bqósti, þegar hannkomúrmóðurlifi. J>egar
£ nnga aldri gjörðist hann fráhverfur heiminum og tignarstöðn
Peirri, er honum var ætluð, en gaf sig allan við föstum ogbæna-
naldi. Tvítugur misti hann foreldra sína, gaf þá fátækum mönn-
"in aleigu sína, og hóf ferð um Frakkland og Italíu, til þess að
stöðva drepsótt, er þá geisaði yfir löndin. Loksins varð hann
Sálfur veikur af sótt þessari, en náði sjer þó aptur eptir miklar
Þjáningar. J)á fór hann til þýzkalands, en þar hugðu menn hann
^era njósnarmann og vörpuðu honum í diflyssu. þar sat hann í
ár, þangað til hann dó 1327. Við dauða hans kom helgi hans
ham, og kirkja var byggð til heiðurs honum. J)egar kirkju-
fundurinn í Constanz stóð yfir (1414), geisaði drepsótt mikil.
Menn álcölluðu þá hinn heilaga Eochus og drepsóttin stöðvaðist
Þegar. penna dag, árið 1247, var gefið út brjef Vilhjálms _kar-
'fínála, sem hafði svo mikil áhrif á kirkjuleg málefni í Noregi og
ú Islandi.
17. Anastasius var byskup, sem leið píslarvættisdauða í Persíu.
22. Symphorianus var ungur maður eðalhorinn; hann var
Uppi á 3. öld e. Kr. Foreldrar hans höfðu alið hann upp í guðs-
ótta og góðum siðum. Einu sinni var hátíð haldin tíl heiðurs
Tið ástargyðjuna Venus, en Symphorian vildi með engu móti til-
biðja hana. Hann var því hnepptur í fangelsi og hart haldinn
unihríð og síðar hálshöggvinn, ánð 270. Með þessum degi byij-
aði haustið eptir tímatali Guðbrands byskups, sem sjá má af
vísu þessari, sem stendur í almanaki hans:
Clemens vottar vetur,
yorar á stóli Pjetur,
Úrban sumar setnr,
Symphorian haust getur.
23. Zachæus var yfirmaður tollheimtumanna á Gyðingalandi.
Hann klyfraðist upp í mórbeijatije, til þess að sjá Krist, þegar
liann hjelt innreið sína í Jeríkó. (Luc. 19,i-io).
24. Bartholomeusmessa er, að því er menn hyggja, nefnd eptir
Bartholomeusi, einum af hinum 12 postulum Iírists. _Hann á að
hafa flutt fagnaðarhoðskapinn í Austurlöndum; sumir segja, að
Það hafi verið í Suður-Arabiu, og þangað á hann að hafa flutt
Matteusar guðspjall á hebresku; aðrir segja, að hann hafi prje-
dikað í Armeniu og Litlu-Asíu. Sagan segir, að heiðnir prestar
hafi ákært hann fyrir konungi nokkrum, Astyagesi að nafni, og
að hann hafi fyrst látið misþyrma lionum ógurlega o_g síðau
krossfest hann. En Bartliolomæus hjelt áfram á krossinum aö
PÚedika um Krist, og því var hann tekinn ofan aptur, fleginn
(<n)