Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Síða 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 19. JÚU2004 13
í dag kemur út bókin „Kárahnjúkar með og á móti“ eftir Ómar Ragnarsson. Þar er fjallað um ýmsa
þætti virkjunarinnar og rök færð með og á móti. Meðal annars kemur fram að virkjunin muni valda
mestu óafturkræfu, neikvæðu umhverfisáhrifum sem um getur vegna einnar framkvæmdar.
f dag kemur út hjá JPV útgáfunni bókin „Kárahnjúkar með og á
móti“ eftir Ómar Ragnarsson. Þar veltir höfundur upp þeirri
spurningu hvort virkjunin sé þjóðþrifamál eða þjóðarharm-
leikur.
Ómar skiptir bókinni upp þannig
að á víxl er rætt um kosti og galla
ýmissa þátta varðandi virkjunina
auk þess sem ítarlega er farið í sög-
una að baki framkvæmdunum og
greint er frá svipuðum virkjunum í
öðrum heimshlutum. í lokin dregur
Ómar saman helstu rök með og á
móti og birtast þau orðrétt hér á síð-
unni.
f kaflanum „Skömmin mun uppi
um þúsundir ára“ segir m.a. að
virkjunaráformin hafi ekki komist á
dagskrá fyrir síðustu kosningar
vegna þess að eitt stærsta efnahags-
lega fíkniefiiapartí í sögu þjóðarinn-
ar var að hefjast. „Síðustu kosningar
snerust um það hvernig ætti að eyða
hinum skjótfengna gróða og því
komst Kárahnjúkavirkjun ekki að í
kosningabaráttunni," segir í kaflan-
um. „Og öllum líður svo vel í þenslu-
vímunni, það er svo gaman. Þeir
sem reyna að andæfa eru kallaðir
vinstrisinnaðir öfgamenn. En þá er
horft framhjá því að erlendis eru það
ekkert síður harðir hægrimenn sem
hafa farið fremstir í því að berjast
Rökin með
• Kárahnjúkavirkjun erstærsta fram-
kvæmd Islandssögunnar og mesta
þjóðþrifamál hérá landi um þessar
mundir.
• Hún bætir við útflutningstekjur,
tryggir uppbyggingu á Austurlandi og
hagvöxt sem er undirstaða gróandi
þjóðlífs og leggur nauðsynlegan
grundvöll að getu þjóðarbúsins til að
standa undir góðu velferðarkerfi og
framförum á öllum sviðum.
• Hún er liöur íæskilegri þróun skyn-
samlegrar og sáttavænlegrar landnýt-
ingar I samræmi viö eðlilegar þarfir nú-
tímaþjóðfélags.
• Með henni leggja Islendingar skerfaf
mörkum til að minnka áhrifafút-
blæstri gróðurhúsalofttegunda.
• Hún kemur ekki I veg fyrir stofnun
þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. Lands-
virkjun og Alcoa hafa lýstyfir vilja til að
stuðla að stofnun hans og Alcoa hefur
boðið myndarlegt fjárframlag I því
skyni. Virkjunin getur þannig veriö for-
senda uppbyggingar þjóögarðsins og
dæmi um það hvernig virkjanir og
þjóðgarðar geta farið velsaman.
• Velhefur tekist til með upphaf fram-
kvæmda og framundan ermikið fram-
kvæmdaskeið með fullkomnustu tækni.
Héðan afer allt tal um að hætta við
hana fráleitt og skaðlegt þvl það myndi
skaða það traust sem nauðsynlegt er
að þjóðin hafi f samningum og sam-
skiptum við útlendinga.
• Flestum ftnnst að málið sé til lykta
leitt. Er ekki tlmabært að hætta deilum
um hana og sameinast um að þessi
framkvæmd heppnist sem best.
fyrir nýrri sýn í nýtingu landgæða og
þegar skoðanakönnun um Kára-
hnjúkavirkjun sumarið 2002 var
brotin til mergj-
ar sást að stærsti
pólitíski hópur-
inn sem var á
móti hvað
höfðatölu snerti
var í Sjálfstæðis-
flokknum."
Óafturkræf
áhrif
í kaflanum
„Úreltar hug-
myndir um nýt-
ingu“ kemur
fram að Kára-
hnjúkavirkjun
hefur í för með
sér mestu gróðureyðingu sem ein
framkvæmd hefur valdið í sögu
þjóðarinnar. Síðar í kaflanum segir
meðal annars: „Kárahnjúkavirkjun
mun verða sú framkvæmd íslands-
sögunnar sem hefur í för með sér
mestu óafturkræfu, neikvæðu um-
hverfisáhrif sem um getur og á eftir
að stórskaða fjárhagslega þá verð-
mætu ímynd íslands sem ekki verð-
ur mæld í þyngdar- eða orkueining-
um.“
Siv Friðleifsdóttir
Þeirri spurningu er
varpað fram hvort
ráðherrann hafi ekki
skilið muninn á óaft-
urkræfum og aftur-
kræfum áhrifum
Níðstöng um okkur sjálf
í bókinni er fjallað ítarlega um
framu'ðarsýnina á virkjunarsvæðinu
en ljóst er að mikill jökulframburður
mun safnast saman á næstu fjögur
hundruð árum í miðlunarlónið og
víðar sem gera mun virkjunina
gagnslausa. „En hvernig sem allt
velfist er ljóst að eftir fáar aldir
stendur virkjunin eftir gagnlaus eða
framleiðir brot af orkunni sem hún
framleiddi í upphafi og svæðið fyrir
innan hana verður rjúkandi jökul-
leirur, ömurlegasta og stærsta
minnismerki sem nokkur kynslóð
íslendinga hefur reist um sjálfa sig.“
Og síðan er spurt: „Er það svona níð-
stöng um okkur sjálf sem við viljum
Mótmæli Margar mót-
mælagöngur voru haldnar
gegn Kárahnjúkavirkjun
þegar málið var Imeðför-
um Alþingis.
enda okkar en við tókum við
því þótt raunin sé þveröfug til
lengri tíma hfið og það kallað
landvinningur sem í raun er
afsal á landi," segir í bókinni.
að standi við fótskör
Vatnajökuls í stað
þeirrar lágmyndar
hjalla, gljúfra og
fossa sem staðið hef-
ur á þessum fótstalli
og sagt sögu jökuls-
ins á einstæðan hátt
til þessa.“
Skildi Siv ekki af-
leiðingarnar?
Töluvert er ijallað um aðkomu
Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra að málinu og úrskurð hennar
um að virkjunin skyldi byggð. Þeirri
spurningu er varpað fram
hvort ráðherrann hafi
ekki skilið muninn á
óafturkræfum og aft-
urkræfum áhrifum
eða bara kosið að
þræta fyrir hann.
„Með úrskurði um-
hverfisráðherra er
varpað ljóma lýtaað-
gerðar á skurðaðgerð-
ina, sagt að við skilum
landinu í betra
ásigkomu-
lagi til
afk-
om-
Vigdís hefði hafnað
frumvarpinu
Eins og raunar hefur kom-
ið fram í DV hefði Vigdís
Finnbogadóttir fyrrverandi forseti
íslands beitt synjunarvaldi sínu
gegn frumvarpinu ef hún hefði verið
áfram í embætti. „Skilaboðin eru
skýr. Það liggur ljóst fýrir að Vigdís
hefði ekki undirritað frumvarp um
Kárahnjúkavirkjun hefði það ver-
ið lagt fyrir hana sem forseta.
Það hefur hún nú staðfest."
Og síðar í sama kafla er
rætt um að virkjunin er
ekki einsdæmi um óaft-
urkræfa eyðileggingu á
landi. „Rauðhólarnir við
Reykjavík voru eyðilagðir
fyrir tímabundinn ávinn-
ing. Einnig einstaklega
fallegir gígar á Hellisheiði.
Virkjanir við Sog, Þjórsá og
Tungná eru hinsveg-
ar að mestu leyti
afturkræfar. „En
Kárahnjúkavirkj -
un veldur lang-
mestu og hroða-
legustu eyði-
leggingu á
landi sem
menn munu
minnast í
framtíð-
inni.“
Rökin á móti
• Kárahnjúkavirkjun er mesta um-
hverfishneyksli Evrópu á slðari timum.
Hún á eftir að skaða Imynd lands og
þjóðar og valda óbætanlegu tjóni á
svæði sem gæti orðið stærsti,
frægasti og sérstakasti þjóðgarður
Evróþu.
• Hún felur Isér mesta afsal og missi
lands og landgæða I fslandssögunni
og þegar til lengri tíma er litið, og
með henni sýnir ein kynslóð Islend-
inga öðrum kynslóðum meiri vald-
nlðslu en dæmi eru um.
• Óllklegt er að nokkur önnur vest-
ræn þjóð myndi leyfa svona virkjun I
landi sinu.
• Dæmi erlendis frá sýna að án virkj-
unar fengist meiri ávinningur með
miklu minni tilkostnaöi til uppbygg-
ingar atvinnu og fjölþættrar menn-
ingar. Framkvæmdir hafa ekki minnk-
að atvinnuleysi íþeim mæli sem að
var stefnt. Græðgi og skammgróða-
hugsun ráða för og spáð er samdrætti
að framkvæmdum loknum.
• Virkjunin verður óbætanlegt
skemmdarverk á Vatnajökli, dýrmæt-
asta náttúruundri Islands, og um-
hverfi hans.
• Umhverfisröskun er aðeins orðin
agnarbrot afþvl sem siðar verður og
enn er hægt að hætta við virkjunina
og fresta gangsetningu álvers.Alcoa
er vantþvl að aðdragandi álvers taki
tfu ár. Nóga hagkvæma og umhverfís-
vænni orku er að finna annars staðar.
• Minna tapast en græðist þótt hætt
sé við. Eða ætlum við að láta sem ekk-
ert sé og haga okkur líkt og Neró, sem
sagt er að hafi spilað á fiðlu meðan
Róm brann?