Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Qupperneq 18
78 MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ2004
Sport jyv
Þórey Edda Elísdóttir bætti íslands- og Norðurlandamet sitt um 6 sentimetra á
ÞRÓUN ÍSLANDSMETSINS
Þórey Edda Elísdóttir FH stökk 4,60 metra í stangarstökkskeppni, sem fram fór í
Madríd á Spáni á laugardagskvöldið og bætti Norðurlanda- og íslandsmet sitt,
sem hún setti í júní, um 6 sentimetra. Þórey Edda varð í öðru sæti á mótinu á
eftir heimsmethafanum Svetlönu Feofanovu, sem stökk 4,80 og gerði tilraun til
að stökkva 4,90 metra og setja nýtt heimsmet.
Þórey Edda fór yfir 4,60 í annarri
tilraun. Pólska stúlkan Monika
Pyrek stökk einnig yfir 4,60 en þurfti
þrjár tilraunir. Eldra Norður-
íandamet Þóreyjar Eddu var 4,54
metrar en það setti hún á móti í
Kassel í Þýskalandi 11. júní.
Þórey Edda hefur þar með bætt
íslands- og Norðurlandamet Völu
Flosadóttur um tíu sentimetra á
rúmum mánuði og er því greinilega
komin í mjög gott form fyrir
ólympíuleikana sem fara fram í
Aþenu í næsta mánuði.
Góð þróun hjá Þóreyju
Það hefur verið mjög gaman að
fylgjast með þróun mála hjá Þóreyju
Eddu upp á síðkastið og það að hún
er farin að standast spennuna sem
fylgir stóru mótunum. Þórey Edda
setti metið á laugardaginn á einu af
stigamótum Alþjóðafrjálsfþrótta-
sambandsins þar sem hún glímdi
við alla bestu stangarstökkvara
heims og hún stenst pressuna með
glæsibrag og kemst á pall.
Annað sem kemur hér inn í
myndina er sá stöðugleiki sem Þórey
Edda er farin að búa yfir en aðeins
Qórum dögum áður en hún bætti
Norðurlandametið hafði hún
stokkið 4,50 á móti í Salamanca á
Spáni og sigrað með glæsibrag. Á því
móti gaf hún ákveðin skilaboð um
það sem koma skyldi enda var hún
mjög nálægt því að fara yfir 4,60 sem
hún síðan bætti úr á mótinu í
Madrid í fyrrakvöld.
Þórey Edda endaði eins og áður
sagði í öðru sæti á mótinu og þetta
var í þriðja sinn í þeim fimm
stigamótum sem eru að baki þar
sem hún kemst á verðlaunapall.
Hún er því komin með annan fótinn
inn á úrslitamótið í haust.
Úr skugga Völu
Þórey Edda var í mörg ár í skugga
Völu Flosadóttur en með framgöngu
sinni í sumar er engin spurning hver
er íslenska stangarstökksdrottn-
ingin. Það tók Völu aðeins fjóra daga
að taka af henni fyrsta íslandsmetið
fyrir sex árum síðan en með þessum
frábæra árangri í sumar er ólíklegt
að einhver annar en hún sjálf bæti
metið í næstu framtíð.
Næst á dagskrá hjá Þóreyju Eddu
er meistaramótið hér heima og þar
fær landinn tækifæri til að fylgjast
með okkar fremsta frjálsíþrótta-
manni í dag spreyta sig. ooj@dvJs
Hefur bætt sig
um 15cm(sumar
Þórey Edda Ellsdóttir hefur
tvlbætt Islands- og Noröur-
landamet sitt I stangarstökki I
sumar og jafnframt bætt sinn
besta órangur um 15
sentimetra. Þórey stökk
4,60 metra á stigamóti
Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins sem fram
fór I Madrid um helgina.
hjá Þóreyju
stigamóti Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins en mótið fór fram í Madrid. Þórey Edda
fékk silfurverðlaun og aðeins heimsmethafinn Svetlana Feofanova stökk hærra.
4,60
Norðurlandame
fslandsmetið í stangarstökki
kvenna hefur fallið sjö sinnum á
síðustu sex árum þar af tvisvar
sinnum í sumar eftir að það stóð
óhaggað í tæp fjögur ár.
Þórey Edda Elísdóttir náði í fyrsta
sinn að bæta eigið fslandsmet en
þetta er í þriðja sinn á hennar ferli
sem hún setur nýtt (slandsmet.
Þróun fslandsmets kvenna í
stangarstökki frá 1996:
4,17 Vala (28.9.1996)
4,18 Þórey Edda (28.5.1998)
4,20 Vala (1.6.1998)
4,31 Vala (9.6.1998)
4,36 Vala (13.6.1998)
4,50* Vala (25.9.2000)
4,54* ÞóreyEdda (11.6.2004)
4,60* Þórey Edda (17.7.2004)
Einnig Norðurlandamet.
Kezman fagnar markinu Mateja Kezman opnaöi markareikning sinn fyrir Chelsea á
laugardaginn þegar hann skoraði gegn Ozford eftir undirbúning Eiðs Smára Guðjohnsen.
Ólíkt gengi úrvalsdeildarliðanna í æfingaleikjum um helgina
Arsenal skoraði tíu en Chelsea eitt
Jose Mourinho stýrði Chelsea í
fyrsta sinn á laugardaginn þegar
félagið sótti 2. deildarlið Oxford
heim í vináttuleik. Ekki er hægt að
segja að frumsýning Portúgalans
hafi verið með einhverjum
glæsibrag því eftir mikinn barning
þá endaði leikurinn með jafntefli,
1-1.
Eiður Smári Guðjohnsen var í
framlínu Chelsea ásamt hinum
nýkeypta Mateja Kezman og náðu
þeir vel saman. Eiður Smári lagði
upp markið fyrir Kezman og þeir
voru hvor um sig nokkrum sinnum
nálægt því að skora í leiknum.
Fjölmarga leikmenn vantaði í lið
Chelsea og hafði Mourinho sagt
fyrir leikinn að hann liti á hann sem
21. æfingu liðsins á undir-
búningstímabilinu. Hann sagði
eftir leikinn að úrslitin skiptu ekki
máli. „Leikmenn mínir voru
þreyttir áður en leikurinn byrjaði
en þeir lögðu sig fram og ég er
ánægður með það. Það skipti öllu
máli að fá alvöruleik og það tókst,“
sagði Mourinho.
Markaveisla hjá Arsenal
Arsenal lenti ekki í sömu
vandræðunum og Chelsea gegn
utandeildarliðinu Barnet. Arsenal
lék einnig án þeirra leikmanna sem
spiluðu á EM en það kom þó ekki í
veg fyrir að þeir færu með sigur af
hólmi, 10-1.
Leikurinn byrjaði þó ekki
gæfulega fyrir ensku meistarana því
Barnet komst yfir á 12. mínútu með
marki frá Graham sem skaut
framhjá spænska markverðinum
Manuel Almunia sem lék sinn
fyrsta leik fyrir Arsenal. Það stóð þó
ekki lengi því spænski framherjinn
Jose Antonio Reyes skoraði þrennu
í fyrri hálfleik, Dennis Bergkamp
skoraði eitt og Hollendingurinn
Robin van Persie, sem var einnig að
leika sinn fyrsta leik fýrir Arsenal,
skoraði einnig eitt mark áður en
flautað var til hálfleiks.
í síðari hálfleik bætti Bergkamp
einu marki við, Francis Jeffers, sem
kom inn á sem varamaður í hálfleik,
skoraði þrennu á tíu mínútum og
varamaðurinn Quincy skoraði
tíunda og síðasta markið. Ólafur
Ingi Skúlason spilaði síðustu
tuttugu mínúturnar hjá Arsenal.