Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 1 9. JÚLÍ2004
Sport DV
Einn stærsti leikur sumarsins fer fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í kvöld þegar liðið í öðru sæti
Landsbankadeildarinnar, FH, tekur á móti toppliði Fylkis. Síðast þegar Fylkismaðurinn Björgólfur
Takefusa spilaði í Krikanum skoraði hann þrennu en það var fyrir Þrótt í fyrra. Það hefur engum leik-
manni nema Björgólfi tekist síðan Daninn Tommy Nielsen fór að spila í vörn Hafnarfjarðarliðsins.
Ekki leiðinlegt aö setja
brjú kvikindi aftur
Leikurinn í kvöld verður þriðja tilraun FH til þess að komast á
toppinn en þeim hefur mistekist að ná toppsætinu í síðustu
tveimur umferðum. Það er því mikið undir fyrir bæði lið en
Fylkir nær fimm stiga forystu á Hafnarfjarðarliðið nái þeir að
landa stigunum þremur sem eru í boði. Það verður áhugavert að
fylgjast með baráttu Björgólfs og Tommy í Krikanum í kvöld en
miðað við frammistöðu Björgólfs þar í fyrra má fastlega reikna
með því að hann verði í gjörgæslu hjá Dananum sterka í kvöld.
„Það er virkilega fín stemning
fýrir leiknum hjá okkur Fylkis-
mönnum en þetta verður mjög
erfitt," sagði Björgólfur í samtali við
DV Sport í gær. „Það eru allir leikir
erfiðir en við klárum mjög erfitt
prógramm eftir að þessum leik lýkur
en þá erum við búnir að spila úti
gegn ÍA, KR og FH. Það væri ekki
leiðinlegt að sigra og skilja FH-
ingana eftir fimm stigum á eftir
okkur.“
Eins og áður segir fór Björgólfur á
kostum með Þrótturum í Krikanum
í fyrra er þeir unnu FH, 4-1. Hann
skoraði þrjú mörk og lék á alls oddi.
„Þetta er mjög skemmtilegur
völlur og við Þróttararnir vorum að
spila vel þarna í fyrra. Það væri
ekkert leiðinlegt að endurtaka
leikinn og setja þrjú kvikindi þarna
aftur. Það verður aftur á móti ekkert
auðvelt enda FH-ingarnir með
hörkulið," sagði Björgólfur sem
fannst ekkert leiðinlegt að rifja
upp leikinn í fyrra.
Eins og áður segir þá hefur
enginn leikmaður nema
Björgólfur náð að setja þrennu á
FH síðan Tommy Nielsen
byrjaði að stjórna vörninni.
Hvernig er að spila gegn
Dananum sterka?
„Það eru allir varnarmenn
erfiðir en miserfiðir. Það er
Björgólfur um Tommy...
„Hann skilur leikinn
mjög vel og stýrir
vörninni með glans.
Tommy er fastur
fyrir en ekkert
„dirty". Hann er
bara virkilega góður
spilari.
erfitt að glíma við FH-vörnina því
Tommy stýrir henni eins og
hershöfðingi. Ég lendi nú
ekki oft í klónum á
honum þar sem hann
„sweepar“ mikið. Hann
dekkar ekki mikið en ég
lendi meira í Sverri. Það
„sweepa“ fáir eins vel og
Tommy gerir. Það er
rosalega erfitt að
hafa hann
þarna á
bak
við
og þurfa að komast fram hjá honum
líka,“ sagði Björgólfur um Tommy
og FH-vörnina en hvaða tilfinningu
hefur hann fyrir þessum leik?
„Mín tilfinning er mjög góð. Það
er góð stemning í hópnum og það
eru allir klárir í verkefnið. Þetta er
mikill stórleikur en það er samt
ekkert stress í mönnum. Ef við
spilum okkar leik þá ættum við að
geta náð þrem stigum."
Björgólfur hefur jafiiað sig af
meiðslum og verður með í
leiknum sem og
Húsvíkingurinn Guðni
Rúnar Helgason sem
hefur verið ffá í
nokkrar vikur vegna
meiðsla.
„Við verðum að fá
þrjú stig í þessum leik
til þess að ná Fylki.
Þetta verður verulega
erfiður leikur og kemur
á þeim tíma sem
álagið er hvað
mest á okkur.
Þetta er
klárlega sex
stiga leikur
fyrir okkur og
hann verður að
vinnast," sagði
danska
vamartrölhð
Tommy
Nielsen sem
man vel eftir
því er
Björgólfur
kom og skoraði
þrjú mörk gegn
þeim síðast í
Krikanum.
„Já, ég man vel
eftir þessum leik og
að hann lék út á
kantinum í þeim leik
en ekki upp á toppi eins
og hann gerir núna.
önnur ástæða fyrir því
að ég man svona vel eftir
leiknum er að ég hef aldrei
tekið þátt í leik þar sem við
áttum eins mörg færi án þess
að skora. Það var svo með
ólíkindum að við skyldum
tapa leiknum 4-1. Menn trúðu
vart því sem hafði gerst eftir
leikinn," sagði Tommy, sem
skoraði eina mark FH í leiknum úr
vítaspyrnu."
Tommy og félagar réðu vel við
Björgólf í fyrri leik FH og Fylkis í
sumar en Tommy gerir sér vel grein
fyrir því að það þarf að hafa góðar
gætur á Björgólfi.
„Hann er mjög hættulegur
leikmaður. Ef hann á góðan dag en
við ekki þá munum við lenda í basli
en ef það er öfugt þá verður þetta
ekki mikið vandamál. Þetta snýst allt
um dagsformið,"
sagði Tommy
sem er ekki í
vafa um
mikilvægi
leiksins í
kvöld.
„Ég held að
ef við vinnum
ekki í kvöld að
þá eigum við ekki
mikla möguleika á
að vinna
deildina. Við
verðum S
Tommy um Björgólf..
„Snjall leikmaður og
alltaf hættulegur.
Má aldrei líta af
honum. Skilur
leikinn ákaflega vel
og býr til góð tæki-
færi fyrir félaga sína
í Fylkisliðinu."
væntanlega í
toppbar-
áttunni en ég
tel að við
getum ekki unnið
deildina ef við
töpum þessum leik.
Ef við vinnum aftur á
móti þá eigum við
bullandi möguleika á
að fara alla leið. Þetta
er sex stiga leikur því
það er allt undir hjá
okkur," sagði Tommy
Nielsen.
henry@dv.is
,Það eru allir leikir erfiðir en við klárum mjög
erfitt prógramm eftir að þessum leik lýkur en þá
erum við búnir að spila úti gegn ÍA, KR og FH. Það væri
ekki leiðinlegt að sigra og skilja FH-ingana eftir fimm
stigum á eftir okkur.
Q%
Fimm
töp FH í
röð
FH-ingar
taka á móti
toppliði Lands-
bankadeildar
karla í kvöld og
hafa tækifæri til að
komast á toppinn
þriðju umferðina
íröð. FH-ingar
eiga svo
sannarlega
harma að
hafiia gegn
Árbæingum
endahafa
Fylkismenn
unniðþáfimm
sinnum í röð í
deildinni og
markatalan í
þeim leikjum er
2-llFylkiívil.