Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Page 24
24 MÁNUDACUR 7 9. JÚLl2004
Fókus DV
Slowblow
Slowblow
★ ★★"i
Smekkleysa
Það er engu líkara en að
þeir Dagur Kári Pétursson
og Orri Jónsson sem skipa
Slowblow séu að passa sig á
Plötudómar
að ofþreyta örugglega ekki
aðdáendur sína. Þrjár plötur
á 10 árum og álíka margir
tónleikar og þar af leiðandi
alltaf stórviðburður þegar
þeir hreyfa sig. Þessi nýja
plata þeirra er í einu orði
sagt ffábær. Þetta er ein af
þessum plötum sem manni
finnst vera fuUkomnar, hver
tónn í þessum 10 lögum er
nákvæmlega eins og hann á
að vera. Þetta er að mestu
lo-fi rólegheitarokk með
smá þjóðlagakeim, upp-
hugsað og útsett af smekk-
vísi (aldrei ofhlaðið) og
kryddað með flottum smá-
atriðum (saumavélataktur-
inn í Within Tolerance,
blístrið í lokalaginu etc.).
Hljómurinn er líka ótrúlega
flottur. Langbesta íslenska
platan á árinu til þessa.
Trausti Júlíusson
Það er mikil gróska í
óháða hipp-hopp geiranum
og nokkrar frábærar útgáf-
ur starfandi sem dæla út
fínu efni með reglulegu
millibili. Þar á meðal má
nefna Lex, Stones Throw og
útgáfuna sem gefur út plöt-
una sem hér er tii umfjöll-
unar. Definitive Jux. 3:16-
The 9th Edition er gerð af
rapparanum Murs sem er
búinn að vera nokkuð lengi
starfandi á vesturströnd
Bandaríkjanna og pródús-
ernum 9th Wonder sem á
að baki nokkra neðan-
jarðarsmelli og sem Jay-Z
fékk til að gera fyrir sig lag-
ið Threat á Black Album.
Samstarf þeirra veldur ekki
vonbrigðum. Taktarnir eru
frísklegir og hvunndags-
rímurnar hjá Murs eru
skemmilegt mótvægi við
rembinginn í frægustu
rappstjörnunum.
Trausti Júlíusson
“1.(7) OutKast-
Roses
2. (~) Terror Squad -
Lean Back
3. (2) Scissor Sisters -
Laura
4. (7) Block Party -
Little Thoughts
5. (4J TheHives-
Walk Idiot Walk
6. (-)Ý Shystie -
One Wish
"7.(10) The Concretes -
You Can't Hurry Love
8. (3) Lloyd Banks -
On Fire
9. (91 TheDelays-
Stay Where You Are
anna í The Hives. Hún heitir Tyrannosaurus Hives og hefur
fengið ágætar viðtökur gagnrýnenda. Trau
aði þessa vel klæddu og vinnusömu sveit.
Tónleikaútgáfa
með The Rapt-
ure
Þó að sænska hljómsveitin The
Hives hafi starfað síðan 1993 þá var
leið hennar á toppinn mjög hröð
þegar menn fóru loks að veita henni
einhverja athygli að ráði fyrir tveim-
ur árum. Þá kom platan Your New
Favourite Band út hjá Poptones út-
gáfunni í Bretlandi og á augnabliki
var The Hives orðin heitasta nýja
rokksveitin í heiminum...
Your New Favourite Band var
safn af lögum af fyrstu tveimur
Hives-plötunum, Barely Legal
(1997) og Veni, Vidi, Vicious (2000). í
dag kemur út þriðja eiginlega Hives-
platan, Tyrannosaurus Hives. Hún
er þeirra fyrsta plata með nýju efni í
fjögur ár og fyrsta platan eftir að þeir
urðu frægir og margir spenntir að
heyra hvernig þeim hefur tekist upp.
„Við vitum allt um „þriðju plötu
álögin“,“ segir gítarleikarinn Nichol-
aus Arson í nýlegu viðtali. „Þriðja
platan er oft vafasöm. Það er þá sem
Mjómsveitir missa það. Við vissum
þetta þegar við byrjuðum á plöt-
unni. Við sögðum alltaf að við
myndum bara gera þrjár plötur og
hætta svo til þess að verða ekki lé-
legir. En við erum reyndar mjög
hrifnir af nýju Hives plötunni."
Trommuleikarinn Chris Dangerous
bætir við: „Og hver veit nema við bil-
umst algerlega og gerum fjórðu plöt-
una“...
Meðlimir The Hives eru ekki ein-
ir um að vera ánægðir með Tyrann-
osaurus Hives. Platan hefur fengið
fína dóma í flestum helstu tónlistar-
miðlunum. Það er eitt atriði sem
kannski skilur á milli The Hives og
margra annarra rokksveita sem hef-
ur skotið upp á stjörnuhimininn.
Þeir eru sérstaklega vinnusamir. Þeir'
spila ekki bara á tónleikum og taka
upp plötur. Þeir eru líka sjálfir um-
boðsmenn sveitarinnar, sjá um
lingu, samningsger
peningamál og skipuleggja fundi og
viðtöl. Þeir ákváðu á einum fundin-
um að þeir ætíuðu að leggja mjög
hart að sér til þess að tryggja að
þriðja plata þeirra yrði góð. „Það er
bein tenging á milli þess að vera
duglegur í vinnu og vera góður í ein-
hverju,“ segir Pelle Almqvist söngv-
Iggy, Devo og Kraftwerk
Tónlistin á Tyrannosaurus Hives
sver sig í ætt við tónlistina á fyrri
plötunum. Þetta eru hressilegir
rokkslagarar og áhrifín frá Rolling
Stones, Iggy Pop og breska pönkinu
eru enn á sínum stað. En það eru
líka breytingar þó smávægilegar séu.
Sum laganna sækja í nýbylgjusveitir
eins og Devo (önnur frábær sveit
með smekk fyrir hljómsveitarbún-
ingum) og XTC. The Hives segjast
sjálfir reyndar hafa verið undir áhrif-
um frá Kraftwerk á plötunni. Chris
Dangerous tjáir sig um það. „Ef þú
forritar takt á trommuheila þá verð-
ur útkoman ekkert mjög spennandi,
en ef þú spilar á trommurnar eins og
þú væri trommuheili en heldur samt
mannlega þættinum inni þá er það
áhugavert." Og jú. Þó að það sé ekk-
ert sem lfkist Kraftwerk á Tyrann-
osaurus Rex, þá eru sumir taktarnir
svolítið vélrænir...
_ TónleikarNewYork
r . T' pönk-fönksveitarinnar
t The Rapture á Airwaves
( r' fyrir tveimur árum eru
svo rómaðir að það er
lygasögu líkast. Nú geta
þeir sem efast tékkað á bandinu
sjálfir því að út er komin DVD-
plata með sveitínni sem inni-
heldur efni frá þremur tónleik-
,um í Bowery Ballroom í New
York í desember í fyrra. Mynd-
böndin þeirra fylgja með.
Arthur „Killer"
Kane alíur
Arthur „Killer“ Kane bassa-
leikari hinnar margffægu New
York glam-rokk sveitar New
York Dolls dó úr hvít-
blæði í síðustu viku.
Sveitin hafði mikil
áhrif m.a. bæði á \ ★ i J&,
Kiss og Ramones. i-
Arthur er fjórði með- '
hmurinn sem fellur frá, tromm-
arinn Billy Murcia sukkaði sig í
hel 1971, en gítarleikarinn
Johnny Thunders og trommar-
inn Jerry Nolan dóu 1991, sá
fyrri úr of stórum skammti af
heróíni, sá seinni úr hjartaáfahi.
Bowie á
toppnum
Samkvæmt upplýsingum frá
Billboard er Ðavid Bowie sá tón-
listarmaður sem hefur halað inn
mestum peningum með tón-
leikahaldi á árinu. 722.158 áhorf-
endur hafa séð hann á 82
_ tónleikum og veltan
f*- komin upp í ríflega 45
tajl milljónir dollara. Hann
er samt í pásu núna af
heilsufarsástæðum. Næstir
á Ustanum eru Bette Midler,
Simon & Garfunkel, Shania
Twain, Prince, Rod Stewart og
Metalhca.
Villtustu tónleik-
ar sögunnar?
Tónleikar psychobiUy-pönk-
sveitarinnar The Cramps
á Napa State geðveikra-
spítalanum í júní 1978 »T:
eru nýkomnir út á DVD,
en þefr hafa lengi verið
fáanlegir í mislélegum
bootíeg-útgáfum. Meðlimir
Cramps voru orðnir leiðir á gáfu-
mönnunum sem mættu á pönk-
tónleika í New York og ákváðu að
spUa fyrir hömlulausari áhorf-
endur. Þetta eru einhveijir viUt-
ustu tónleikar sögunnar.
Van Hunt slær í gegn meö fyrstu plötu sinni
Arftaki Prince?
Van Hunt Er búinn ad stimpla
sig rækilegn inn á poppkortid.
Tónlistarmaðurinn Van Hunt er nýbúinn
að gefa út sína fyrstu plötu setn heitir einfald-
lega \’an Hunt. Þessi 27 ára Atíanta-búi þylcir
hafa búið tU ótrúlega þroskað og vel heppnað
byijendaverk.
Van Hunt er alinn upp í Ohio hjá föður
sinum sem stóð víst i ýmsu misjöfnu, var
málari þegar þanniglá á honum, en líka dólg-
ur og bóhern. Pabbinn hafði rrúkinn áhuga á
tónlist og Yan litli ólst þess vegna upp við
eðal-soui, fönk og r&b. Tónlistaráhrifin hafa
greinUega síast inn þ\i að tónlistin á plötunni
hans er einmitt sambland af soul. poppi. r&b
og fönki. Honutn hefur verið líkt \ið menn
eins og Slv Stone, Curtis Mayfield, D Angelo
og Prince.
Van b\Tjaði að spila á gítar og semja lög
strax á unglingsánmum og hefur unnið með
\nisum tónfistarmönnum undanfarin ár
(þ.á.m. Dionne Farris og Joi), en í f\Tra fannst
honum kominn tfrni tii að stíga sjálfur fram í
sviðsljósið. Þá gerði hann santning við
Capítol og platan kom svo út í vor. Alicia Keys
er mikill aðdáandi og segir að liann sé „einn
af ótrúlegustu og hæfiieikaríkustu tónlisttu-
mönnunum" sem hún þekkir.
3 / 9
' flfj
ii-Jm
m