Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Qupperneq 7

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Qupperneq 7
dæld niður í hana. Flest eru andesítlög- in, a. m. k. fimm, í stálinu við jarð- gangamunnann að sunnan. Ástæðan fyrir þessum mismunandi fjölda hraun- laga er m. a. sú, að í borholunum var hvergi farið í gegnum andesítsyrpuna, svo og að hvergi í hlíðum skarðsrimans eru algerlega hrein stál. Að auki kemur það til að hraunlögin leggjast á misvíxl eða jaðra saman, t. d. að yngra hraun hefur runnið í lægð milli tveggja eldri laga. Á þennan hátt má einnig skýra misþykkt einstakra setlaga, þ. e. að þau hafi sópast saman við hraunjaðra eða í lægðir milli hraunstrauma. Aldur andesítsyrpunnar í Oddsskarði hefur verið ákvarðaður eftir kalí-argon- aðferð, og reyndist hann vera 11,9 ± 0,3 milljón ár (sbr. grein eftir Harald Sigurðsson: Nýjar aldursákvarðanir á íslensku bergi. Náttúrufræðingurinn 38. árg. bls. 187—193). Að andesítlagasyrp- unni verður vikið nánar hér á eftir, enda eru Oddsskarðsgöngin í henni. Ofan á andesítlögunum er um 45 m þykk syrpa af gráleitum blágrýtislögum (syrpa G). Blágrýtislögin eru 3—7 m að þykkt, en á milli þeirra eru misþykk, rauðlituð setlög. Þessi jarðlagasyrpa er víðast hulin skriðu, svo að ekki er unnt að rekja einstök lög í henni. Ofan á blágrýtislagasyrpunni G er um 45 m þykkt, beltað hraunlag (syrpa D). Hraunlag þetta myndar rimann í háskarðinu, en það er gert úr þunnum helluhraunslögum (dyngjuhraun) (Sjá mynd 1). Öll eru hraunlögin í Oddsskarði stuðluð. Stuðlarnir eru allstórir en nokkuð óreglulegir. Andesithraunlögin eru mjög glerkennd og straumflöguð, svo að þau klofna við veðrun (eða sprengingar) í flögur. Sjá mynd 2. Á ntilli hraungosa mun oft hafa liðið alllangur tími og þá myndast millilög. Þau eru flest keimlík að útliti og aðal- lega gerð úr eldfjallaösku og berg- mylsnu, einkum fínsandi og leir, en auk þess eru misþykk veðruð gjalllög undir og þó einkum ofan á hraunlögunum, svo sem jafnan er í apalhraunum, en öll hraunlög á Oddsskarðssvæðinu hafa storknað sem apalhraun nema í syrpu D sem er dyngjubasalt. Við mælingu á jarðlagahalla í Odds- skarði var stuðst við öskulag (Asö) sem er í rauðu setlagi milli andesítlaganna AN og AO í borholunum 1, II, III og einum mælipunkti sunnan í skarðinu, svo og í tveim mælipunktum norðan í skarðinu. Reyndist hallinn á þessu lagi vera um 3° til V10°S. Brotalínur eru fáar og smávægilegar á Oddsskarðssvæðinu. Tvö misgengi eru í rimanum á háskarðinu. Annað er um 80 m austan raflínunnar (fjarlægðir mæld- ar eftir suðurbrún rimans) og er vestri barmur genginn niður um 2 m. Hitt mis- gengið er um 280 m austan raflínunnar. Að auki eru fáeinar sprungur í skarðs- rimanum og var ein þeirra í göngunum opin og var glufan um 5—10 cm víð. Berggangar eru fáir á hinu athugaða svæði. í skarðsrimanum eru tveir bas- altgangar, og umhverfis þá er nokkuð um basaltæðar. Annar er um 280 m, en hinn um 320 m austan raflínunnar. Við vestari ganginn (280 m) er 2 m misgengi, austurbarmur genginn niður. Gangarnir eru aðeins 25—50 cm breiðir. Auk þess eru þrír basaltgangar suðvestan til á svæðinu. Tveir eru 1 m að breidd, en sá þriðji um 10 m. Brotalínur og basalt- gangar á Oddsskarðssvæðinu stefna allajafna N eða NNA. Þó hefur opna sprungan i göngunum stefnuna A—V. Berg meðfram basaltgöngum og brota- línum er lítið raskað. Berggrunnur á Oddskarðssvæðinu er allþéttur. Mest öll úrkoma rennur af á yfirborði sem ár og lækir. Úrkoma, sem fellur á hlíðar móti norðri og austri, get- ur þó sigið niður í hraunlögin og runnið sem grunnvatn undan jarðlagahallanum og komið fram í Iindalínum suðvestan til í fjöllum á mörkum millilaga og hraunlaga. Nokkurt vatn seytlar um sprungur (brotalínur) og í glufum með- fram berggöngum og kemur frant sem lindir neðar i hlíðum. Vatnaskil eru unt háskarðið svo að grunnvatn á svæðinu er lítið. í jarðgöngunum seytlar nokkurt vatn um opna sprungu um 50 m frá suðurmunna og gegnum borholur í norðanverðum göngunum. Jarðlögin í Oddsskarði upp í andesít- lögin, og að þeim meðtöldum, mvnduð- ust við upphleðslu fornrar megineld- stöðvar sem kennd er við Reyðarfjörð eða Helgustaði. Þetta er m. a. ástæðan fyrir því hversu jarðlög eru óregluleg og fjölbreytileg þarna og að einstök lög verða ekki rakin langar leiðir. Andesítlögin, sem jarðgöngin liggja í, virðast liafa runnð í nokkuð hlíðbrött- um dal með norðurstefnu. Vesturhlíð þessa forna dals er óþekkt en jarðgöng- in liggja hins vegar nálægt austurhlíð hans og ná því efri hraunlögin lengra til austurs í samræmi við fyllingu dalsins með hraun- og setlögum. Þetta var m. a. ástæða til þess að jarðgangalína var færð um 20 m til vesturs miðað við Ieið I eins og hún hafði verið könnuð með borunum. Á þennan hátt var talið að fá mætti þykkari hraunlög til að gera jarð- göngin í og forðast losaralegt, gamalt skriðuefni milli hrauns og hlíðar í hin- um forna dal. JARÐLÖG OG AÐSTÆÐUR í JARÐGÖNGUNUM Eftir að gögn úr jarðfræðirannsókn- unum frá 1964 og 1970 höfðu verið met- in, svo og tillit tekið til snjómælinga í Oddsskarði 1964—71, var jarðganga- leiðin ákveðin. Gangaleiðin var færð um 20 m til vesturs frá leið I, en jarðlög á þessari leið voru þekkt úr tveim bor- holum, borholu I 95 m og borholu II 380 m frá jarðgangamunna að sunnan, og sniðum við suðurmunna og norður- munna. Einnig var ákveðið að göngin skyldu unnin frá munna Eskifjarðar- megin (suðurmunna) upp á móti halla. Áætlað var að jarðgöngin yrðu 595 m Myncl 2. Hrolið og flagað andesít við syðri munna Oddsskarðsganga (Eskifjarðarmegin). — Ljósm.: Björn A. Harðarson. TÍMARIT VFÍ 1984 — 69

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.