Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Síða 22
Af halastjöriram þessum er Halley’s hin eina, sem verður
sýnileg með bevum augum; hún sást síðast 1835. Biela’s hefur
ekki sjest sem halaBtjarna síðan 1852; þar á móti sást mikill
fjöldi stjörnuhrapa 27. nóv. 1872 og 1885, þegar jörðin var á
vegi halastjörnunnar. það uppgötvaðist fyrst 1880 að Tempels
III. kemur í Ijós á vissum tímum.
Af halastjðrnum þeim, sem koma í ljós á vissum tímum, er
von á Encke’s og Brorson’s aptur 1895. þess má þó geta, að Bror-
son’s ekki sást hin tvö síðustu skipti, 1884 og 1890, sem von var
á henni í sólnánd, svo verið getur, að hún nú sje tvfstruð eins og
Biela’s, og þessvegna ekki lengur til sem halastjarna.
Arið 1893 færði 4 halastjörnur. I, fundin 19. Nóv. 1892
af Brooks í Ameriku, og er þess getið í almanakinu 1894; en
af því hún ekki kom í sólnánd fyr enn á árinu 1893, er hún
talin með þessa árs halastjörnum; hún var ekki merkileg í neinu
tilliti. II, fundin af Kordame í Ameríku 8. Júlí og Quénisset
nálægt Parísarborg 9. Júlí 1893, en var annars sjeð af öðrum
áður. Hún var sýnileg með berum augum er hún fannst, álíka
hjört og stjarna af 4. stærð og hafði nokkurra mælistiga langan
hala, en skömmu seinna hvarf hún í kveldbjarmanum. III fannst
17. Maí 1893 ;af Finlay á Góðrarvonarhöfða. Halastjarna, er
Finlay fann 1886 hafði braut, er þótti benda á, að umferðartími
hennar um sólu væri nálægt 7 árum, og eptir reikningi 6Ínum
fann Finlay hana nú aptur. Hún er þessvegna sett fyrir fullt
og allt á listann yflr halastjörnur þær, sem koma í ljós á vissum
tímum. IV fannst 16. Okt. 1893 af Brooks í Ameríku og var
að engu markverð.
PLANETURNAE 1895.
Merkúrius er svo nærri sólu, að hann sjaldan sjest með
berum augum. Lengst austur frá sól er hann 9. Febr., og
gengur hann þá undir 2 stundum eptir sólarlag, 4. Júní, er
hann gengur undir um sólaruppkomu, og I. Okt., en þá gengur
hann undir með sólu. 24. Marts, 22. Júlí og 10. Nóv. er hann
lcngst vestur frá sól, en sjest aðeins kringum hinn síðastnefnda
dag; þá kemur hann upp 2^ stundu undan sólu. 1. og 10. Febr.
er Merkúríus rjett fyrir norðan Venus, 8. Júní |0 fyrir norðan
Júpíter, og 20. Nóv. l 0 fyrir suunan Satúrnus.
Venus er ósýnileg um áramótin, en kemur bráðum í ljós á
vesturlopti, og skín sem hveldstjarna þangað til í lok Júní-
mánaðar, að hún aptur hverfur i kveldbjarmanum. Reyndar er
hún lengst austur frá sól 11. Júlí og skin með mestum ijóma
nálægt 14. Agúst, en hún er þá svo sunnarlega á lopti að hún
ekki sjest á íslandi. Eptir að hafa gengið milli sólar og jarðar
19. Sept., kemur hún i ljós sem morgunstjarna um hina þrjá