Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 62
6. Nóv. Karen S. Olafsdóttir i Stykkishólmi, ekkja
verzl.manns Knud Schiött (t. 8/4 1806).
9. Eirikur Eiriksson, dhrm., bóndi á Reykjum á Skeið-
um (f. 9/1 1807).
15. Sigurður Jónsson, sýslumaður í Snæfellsness- og-
Hnappadalssýslu (f. 1S/io 1851).
24. Des. Tómas Hallgrímsson, læknir, kennari við lækna-
skólann í Reykjavík (f. 25/12 1842).
27. Tómas Eggertsson, bóndí á Ingjaldshóli (f. 14/s 1822).
Erá f. á. (1892) Erlendur Olafsson hókbind. á Akureyri.
Dáinn 23. des. (f. 1814).
Jóm Borgfirðingur.
Leiðbeining
fyrir lántakendur við landsbankann.
Landsbankinn lánar gegn 1. veðrjetti í fasteign,
lengstan tima 10 ár, með árlegri afborgun. Hann lánar
einnig gegn 2. veðrjetti litlar upphæðir til skamms tima,
t. d. hálft ár, ef veðið er gott, og sjerstakar ástæður
eru til þess.
Enn íremur lánar bankinn gegn handveði, og gegn
ábyrgð 2 manna, sem bankastjórnin álítur fullnægjandi.
Hann lánar einnig gegn ábyrgð sveita- og bæjarfjelaga.
Sömuleiðis til prestakalla.
Bankinn kaupir og selur víxla og ávísanir, hvort
sem greiðslustaðurinn er hjer á landi eða erlendis.
Einnig innheimtir hann fyrir aðra víxla og ávísanir.
Easteignir þær, sem bankinn tekur að veði gegn
láni, eru jarðir og hús i kaupstöðum, en hann lánar
ekki, nema sjerstakar ástæður mæli með, gegn veði í
húsi, sem fylgir jörð, eða stendur í smákauptúni, og þá
að eins til fárra ára.
Til þess að ián veitist gegn veði í fasteign útheimt-
ist, að eignin sje virt til peninga af 2 óvilhöllum mönn-
um, sem lögreglustjóri nefnir til. Þegar hús eru sett
að veði, þarf' að vátryggja þau í vátryggingarfjelagi,
sem hefir umboðsmann í Éeykjavik. Með lánbeiðninni
þarf að fylgja veðbókarvottorð sýslumanns, og vottorð
hans um eignarheimild. Þegar lántakandi eigi á veðið
sjálfur, en hefir f'engið það iánað bjá öðrum til veðsetn-
ingar, þarf' áteiknun hlutaðeigandi lögreglustjóra á veð-
leyfið.
Ef lántakandi, vegna fjarlægðar, getur ekki sjálfur
skrif'að undir skuldahrjefið í bankanum, getur hann gefið
(52)