Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Side 36

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Side 36
yfir öllu Jpýzkalandi. — Svo er sagt, að þá er Moltke frjetti að Mac Mahon hefði tekið sig upp úr herbúð- unum við Cnálons, og haidið í norðaustur til þess að hjálpa Bazaine úr herkvíum við Metz, hafi Moltke gengið einn saman frá herbúðum Prússa, þá er lokið var miðdegisverði, en er hann hafi komið aptur, hafi hann boðið að leggja þegar af stað, til þess að kvía Frakka. f>að Iætur að líkindum, að keisarinn gleymdi ekki Moltke er hann uthlutaði heiðurstnerkjunum meðal herforingja sinna í ófriði þessum og sigurglaumnum er friðurinn var saminn, enda var Moltke gjörður að greifa, og »feltmarskálk« (æðsta herforingja) og sæmd- ur stórkrossi járnorðunnar, en 1879 var honum veitt orðan pour la merite, með mynd Friðriks 2. Hafði Moltke þá verið herforingi í 60 ár. Fyrir utan herstörf sín var Moltke einnig þing- maður á ríkisdegi Norður-jpýzkalands 1867, og alls fýzkalands eptir að það var orðið að einu keisara- dæmi, en 1872 varð hann þingmaður í öldungadeild (senati) Prússlands. Hallaðist hann að skoðunumapt- urhaldsmanna, talaði ekki opt, en fylgdi þeim málum af kappi, er hann átti við, einkum hermálaskipun rík- isins. Haun andaðist níræður að aldri, 25. apríl 1891, og var jarðarför hans gjörð með svo mikilli viðhöfn, að konungi hefði mátt sæma. Yms rit eru til eptir Moltke, svo sem #Brjef um ástandið og viðburði á Tyrklandi 1835—1839« og »ó- friðinn milli Bússa og Tyrkja í Evrópu 1828—1829« o. fl. Enn fremur átti hann mikinn þátt í ritum þeim, er herforingjaráð Prússa hefir gefið út um ítalska stríð- ið 1859 og styrjaldir þær, er Prússar áttu í á árunum 1834—1870, og þykja öll rit hans bera vott göfuglynd- is og skarpskyggni. Moltke var kvæntur, en missti konu sína 1868 og varð þeim hjór.um ekki barna auðið. Eptir það bjó hann með systur sinni og síðar með frænda sínum, Moltke kaptein, er hann gekk í föður stað. f>eim er þekktu lítt Moltke greifa, virtist hann þur og fáskipt- inn í viðmóti, en tryggasti vinur vina sinna, var hann alla æfi. Máltæki Moltkes: »Erst wagen denn wagen«, o: (30)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.