Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Qupperneq 26
DR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
vn. atr. um almanök:
1. gr. Brjóti nokkur j>að einkaleyfi, sern Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa ut almanök,
annaðhvort rneð því að flytja til Islands eða selja útlend
alrnanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, Jrá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæint [jví sem ákveðíð er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831) ^ }>au almanök eru og
upptæk, sem fmnast hjá jreirn hinum seka, og gjaldi þar
á ofan | rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn heftr selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
inannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
lalið.
3. gr. Öll nrál, sem rísa af að einkaleyíi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak petta kostar ðinnfest 10 aura, on innfest 11
aura, allsta.ðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að sclja hvert á 8 aura öinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs
loka 1895 ; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.