Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKJÓBER 2004
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Birgitta er mjög metnaðarfuii,
jákvæð og skemmtileg. Hún
hefur húmor fyrir sjálfri sér og
hefurjákvæð og uppbyggileg
áhrifá alla í kringum sig.
Birgitta er hreinskilin, góð-
hjörtuð og hefur mikla
útgeisiun.
Birgitta er senuþjófur í
eldhúsinu. Hún er þrjósk og
svolitið óstundvís.
„Hún Birgitta er alger
sólargeisli. Hún er svo
yndisleg að það hálfa
væri nóg. Hún er hrein-
skilin, góðhjörtuð og
samkvæm sjálfri sér. Hún hefur
trú á sínum hugmyndum og er
óhrædd við að láta drauma
sína rætast. Hún hefur mjög
uppbyggileg og góö áhrifá
fólkið í kringum sig. Maður
reynir ekkert að finna galla á
vinum sínum, en ætli það sé
ekki bara að hún slær mér alltaf
við l eldhúsinu."
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
vinkona.
„Birgitta er frábær karakt-
er, Ijúfog þægileg í við-
móti. Hún hefur mjög
góða nærveru og mikla
útgeisiun. Ofboðslega
samvinnufús. Hún er alltafað
bæta við sig í söngnum. Hún
hefur mikla tilfinningu fyrirþvi
sem hún er að gera. Held hún sé
nánast gallalaus, nema hún er
kannski svolítið óstundvis."
SigriÖur Beinteinsdóttir, söngkona og
söngkennari.
„Birgitta er mjög metn-
aðarfull. Hún er jákvæð
og skemmtiieg. Hún er
mjög þrjósk, en það get-
ur náttúriega líka verið
galli. Birgitta er frábær vinur.
Hún getursamið skemmtilega
texta, finnur oft góða húkka.
Hún er líka öll að koma til í
lagasmíðunum og verður bráð-
um mjög góður lagasmiður.
Hún hefur húmor fyrir sjáifri sér
og er aiger stuðbolti. Hún er
svolítið óstundvís."
Vignir Snær, gitarleikari írafárs.
Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir er fædd
28.júlí 1979 á Húsavik, þar sem hún bjó
fyrstu átján árævi sinnar. Hún sló f gegn í
söngvakeppni framhaldsskólanna þar sem
hún söng fyrirhönd framhaldsskólans á
Laugum. Síðan lá leið hennar til Reykjavík-
ur þar sem hún fékk hlutverk ÍABBA-sýn-
ingu Gunnars Þórðarsonar á Broadway.
Hún tók við afírisi Kristjánsdóttur sem
söngkona írafárs og hefursíðan verið ein
skærasta poppstjarna landsins.
Lögreglan gerði leit í þremur húsum hjóna á Hellissandi og fann mikið vopnabúr
auk flkniefna í harðlæstum, eldvörðum skáp. Karlmaðurinn neitaði í gær að tjá sig
um vopnsafnið við yfirheyrslur hjá lögreglu. Vopnin eru flest óskráð og sum þeirra
jafnframt ólögleg hérlendis. Hjónin voru bæði starfandi í bænum.
Lögreglan í Snæfellsbæ gerði rassíu í þremur húsum og tveimur
bflum á Hellissandi vegna vitneskju um fflcniefnamisferli um
helgina. Við húsleit fannst mikið af fíkniefnum, fjöldi hættulegra
vopna, skot með sprengioddi og tól til fíkniefnaneyslu.
„Við fengum aðstoð ríkislög-
reglustjórans við leitina. Það er ekki
á hverjum degi sem við förum þrjár
húsleitir í röð og á okkar mælikvarða
er þetta mjög stór aðgerð," segir
Ólafur Guðmundsson, lögreglu-
maður á Hellissandi.
Kúlur með sprengioddi
Málið komst til kasta lögreglunn-
ar þegar hjón á fertugs- og fimm-
tugsaldri, sem voru á leiðinni í bíl frá
Reykjavík með lítilræði af
amfetamíni og maríjúana, voru
handtekin á Snæfellsnesi. í kjölfarið
var gerð leit í öðrum bíl þeirra, á
heimili þeirra og tveimur öðrum
stöðum sem þau hafa til umráða.
Tveir rifflar, þrjár haglabyssur og
tvær skammbyssur fundust hjá fólk-
inu. Einnig skotfæri, meðal annars
kúlur með sprengioddi, og hm'far.
Lögreglumenn frá Tollstjóranum í
Reykjavík og Borgamesi tóku þátt í
rassíunni, auk tveggja leitarhunda.
Neitar að tjá sig
Ólafur segir karlmanninn neita
„Það er ekki á hverj-
um degi sem við för-
um þrjár húsleitir í
röð og á okkar mæli-
kvarða erþetta mjög
stór aðgerð."
að tjá sig og þeir hafi enga skýringu á
þessum fjölda vopna. Við húsleitina
lagði lögreglan einnig hald á eldvar-
inn skáp sem þeim tókst að opna
seint í gær. í honum voru 80 grörnm
af maríjúana, helmingurinn í
neyslueiningum og talsvart magn af
skotfærum.
„Okkur sýnist að þetta sé vopna-
safti en við vitum það ekki ennþá,"
segir Ólafur sem þykir líklegra að um
söfnunaráráttu sé að ræða frekar en
að tilgangurinn hafi verið að nota
vopnin. Flest vopnin voru óskráð
og/eða ólögleg en margar byssurnar
eru vissulega safngripir.
Allir góðkunningjar
Aðspurður hvort Snæfellsbær sé í
dag öruggari eftir hinn mikla fund
segist Ólafur ekki vita til þess að
bærinn hafi nokkurn tímann verið í
hættu. Hjónin unnu bæði í bænum
og voru ekki, að mati Ólafs, góð-
kunningjar lögreglunnar.
„f svona litíum sveitarfélögum
þekkja samt allir alla," segir Ólafur.
„Þú kemst vart hjá því að vera góð-
kunningi okkar."
Vopnabúr Hjón á Heli-
issandi söfnuðu þessu
vopnabúri sem gert var
upptækt um helgina.
Annríki
ráðherra
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra hyggst
leggja fram fjöl-
mörg frumvörp
og þingsályktun-
artillögur á
haustþinginu.
Meðal þeirra
er lagafrumvarp
um öryggis-
mönnun fiski-
skipa, frumvarp um úthlut-
un leyfa vegna þriðju kyn-
slóðar farsíma, frumvarp
um rannsóknarnefnd
umferðaslysa, frumvarp
um breytingu á umferðar-
lögum, frumvarp um skip-
an ferðamála og frumvarp
um breytingu á lögum um
fólksflutninga, vöruflutn-
inga og efnisflutninga.
Fjórtán mánaöa fangelsi fyrir kókaínsmygl
Kókaín-Litháa stungið inn
Zilvinas Kikilas, tuttugu og
þriggja ára Lithái, var í gær dæmdur
í fjórtán mánaða fangelsi fyrir kóka-
ínsmygl. Hann játaði fyrir dómi að
hafa flutt inn tæp 300 grömm af
kókaíni til landsins. Kikilas var grip-
inn í Leifsstöð við komuna til lands-
ins í lok ágúst. Hann var með kóka-
ínið innvortis og var ákærður fyrir að
flytja inn fíkniefni sem ætíuð voru til
sölu hér á landi með hagnaði.
Gæsluvarðhaldsvist Kikilasar í
einn og hálfan mánuð var dregin frá
refsingunni. Hann var líka dæmdur
til að greiða málsvarnarlaun til verj-
anda síns, Guðrúnar Sesselju Árna-
dóttur.
Kókaínið sem Kikilas flutti til
landsins var mjög hreint og því væri
Zilvinas Kikilas Varmeð 300grömm af
kókaíni í maga sínum og þörmum.
allt að því hægt að fjórfalda þau 300
grömm áður en efnið væri selt á göt-
unni. Hann var með efnið í um 80
kúlum sem hann hafði gleypt. Hann
var með töluvert meira af fíkniefti-
um innvortis en Vaidas Jucevicius
sem fannst látinn í höfninni í Nes-
kaupstað.
Litháinn kom í gegnum Kaup-
mannahöfn. Hann átti flugmiða til
baka nokkrum dögum síðar. Maður-
inn var tekinn við reglubundið toll-
eftirlit. Glöggum lögreglumanni í
ffkniefnadeildinni á vellinum þótti
maðurinn þess legur að rétt væri að
kanna hvort hann væri með óhreint
mjöl í pokahorninu. Þá kom í ljós að
hann var með eitthvað falið innvort-
is. Hann var fluttur á sjúkrahús þar
sem hann skilaði 80 hylkjum, eða
300 grömmum, af kókaíni. Dæmt
verður í málinu á mánudaginn.
Stórsekt á
fullan öryrkja
Liðlega tvítugur öryrki, sem
tekinn var öðru sinni drukkinn
við akstur, á að greiða 160 þúsund
krónur í sekt og er sviptur öku-
réttindum í fjóra mánuði. Hann á
líka að greiða lögmanni sínum 40
þúsund krónur. Maöurinn vildi fá
afslátt af sektinni vegna slæmrar
ijárhagsstöðu sinnar og lítilla
möguleika á að afla tekna. Hér-
aðsdómur Reykjaness segir
manninn ekki hafa stutt ósk sína
nægum gögnum til að
t hægt sé að víkja frá
1 stöðluðum refsingum
í slíkum málum.
Hann greiddi 50
þúsund í sekt í
: sams konar máli
jí fyrra.