Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Page 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2004 11
Meatloaf
hræðir villisvín
íbúar í þorpi einu í Serbíu
hafa fundið upp nýja aðferð
til að halda villisvín-
um frá ökrum sín-
um. Þeir hafa komið
upp hátölurum við
akrana og spila þar
rokktónlist á fullu
allan sólarhringinn.
Það virkar. íbúar
þorpsins, sem liggur
í Sokolovica fjöllunum, segja
að þeir hafi fundið upp á
þessu eftir að einn þeirra fór
að spila Meatloaf við vinnu
sína og tók efúr því að
villisvínin létu akra hans í
friði. Nú eru villisvínin alveg
horfin úr héraðinu.
Hræddari
við köngu-
lær en
hryðjuverk
Skordýr af ýmsum teg-
undum eins og köngulær
og kakkalakkar eru það
sem Bretar eru hræddastir
við þessa daganna.
Hryðjuverkaárásir koma
svo í öðru sæti samkvæmt
könnun sem gerð var
meðal 1.000 fullorðinna í
Bretlandi. í þriðja sæti
voru snákar og lofthræðsla
kom þar á eftir en dauðinn
skipar fjórða sætiö. Og
heimsókn til tannlæknis
var í fimmta sæti rétt á
undan nálum og öðrum
oddmjóum hlutum.
Kóngurinn
í hamborg-
araáti
Indónesinn Ezra
Nicholas er kóngurinn
þegar kemur að hamborg-
araáti. Hann getur troðið
upp í sig rúmlega þremur
hamborgurum án þess að
kyngja. Þessi
ára piltur setl
heimsmet
um helg-
ina er hon-
um tókst að troða þremur
hamborgurum og fjórðung
af þeim fjórða upp í sig án
þess að kyngja eða spýta
þeim út. Þar með sló hann
met Johnny Reitz sem að-
eins tókst að troða sléttum
þremur hamborgurum upp
í sig. Eftir metið heyrðist
Ezra hrópa upp: „Já ég er
hamborgarakóngurinn!"
Playboy
vill enn fá
Sarandon
Leikkonan Susan Sar-
andon hefur enn og aft-
ur verið beðin um að
sitja fyrir nakin í Playboy
og það þótt hún sé nú
orðin 58 ára þriggja
barna móðir. Og hún
hefur neitað beiðni
tímaritsins með þeim
rökum að slíkar myndir
væru pínlegar fyrir syni
sína. Susan segir í sam-
tali við blaðið Access
Hollywood að Playboy
hafi gengið á eftir henni
árum saman en án ár-
angurs. „Ég hef fengið
fullt af hádegisverðum
út úr þessum tilraunum
þeirra," segir Susan. „En
ég get ekki gert þetta
núna þar sem bömin
mín myndu ganga frá
mér.“
Þorgerður Katrín verður að lesa þetta!
Ég og konan mín lentum í
óskemmtilegri reynslu fyrir
skömmu. Eftir að við giftum okkur,
á gamlársdag 2003, þá fóm að ber-
ast inn um lúguna hjá okkur bréf
frá innheimtudeild RÚV þess efnis
að við ættum sjónvarp af gerðinni
Teitur Atlason
Guðfræðinemi átti
einu sinni sjónvarp
sem nú er ónýtt.
Knessel, sem hafí verið keypt árið
1993. Tækið er löngu ónýtt. Konan
mín greiddi þó um það bil tíu þús-
und krónur í þeirri von um að ljúka
rnálinu. En nú hófust rukkanir
RÚV fyrir alvöru. Það var eins og
Knessel tækið hefði gengið aftur á
sorphaugunum í Gufunesi. Brot-
inn skjárinn sýndi Borgþór veður-
fræðing veifa veðurprikinu með
hvassri sveiflu í áttina að okkur
hjónum. Jón Múli kynnti jazz í
þættinum „Að handan“. Við skrif-
uðumst á við innheimtudeild RÚV
og reyndum að sanna sakleysi okk-
ar. Þó kom að því að bjallan
hringdi heima hjá okkur. Þar var
komin „leitarkona" frá RÚV og
vildi hún kanna híbýli okkar hjóna.
Við vísuðum henni á braut með
þeim orðum að Knessel tækið væri
ónýtt og eina tækifærið fyrir hana
að hafa upp á því væri í gegnum
Þórhall miðil. Leitarkonan fór því á
braut ill í skapi og með formæling-
um. Mér sýndist hún vera í lörfum
og ganga hokin við staf.
Svona starfar hin nútímalega
stofnum RÚV. Þetta minnir veru-
lega á tilveruna í kommúnistaríkj-
unum núverandi og fyrrverandi.
Starfsmaður á vegum ríkisins kem-
ur heim til fólks og snuðrar um hí-
býli þess. Já og kíkir undir rúm.
Nú vona ég að Þorgerður
Katrfn sé að lesa því hún verður að
lesa þetta: Sjálfstæðisflokkurinn
stærir sig af því að vera flokkur
sem sé andsnúinn ríkisafskiptum.
Ef þetta eru ekki ríkisafskipti, að
snuðra um heimili fólks í leit að
forboðnum heimilistækjum, þá
heiti ég Þuríður Pálsdóttir og
starfa sem óperusöngkona.
Lífsstílsgúrúinn Martha Stewart hefur skipt Versace-kjólnum út fyrir fangabúning.
Hún hefur nú hafið afplánun á fimm mánaða fangelsisdómi sínum í fangelsinu í
Alderson, Virginíu. Aðrir fangar ganga með stjörnur í augunum yfir þvi að vera
samfangar einhverrar þekktustu konu Bandaríkjanna.
Lífsstflsgúrúinn Martha Stewart eyddi þriðja degi sínum í fang-
elsi við að spila Scrabble, stunda létta garðyrkjuvinnu og heilla
samfanga sína.
Þannig hefst grein um fangelsis-
vist Mörthu Stewart í dagblaðinu
New York Daily News nú eftir helg-
ina. Á fostudag skipti Martha á Ver-
sace-kjólnum og fangabúning og
hóf afplánun á fimm mánaða fang-
elsisdómi sínum í Alderson í Virgin-
íu. Dóminn hlaut hún fyrir að ljúga
til um hlutabréfakaup á sínum veg-
um.
Stewart virðist ætla að koma sér
vel fyrir í fangelsinu en venjulega
eyðir hún helgum sínum í hópi
hinna frægu og ríku í Bandaríkjun-
um. Aðrir fangar í Alderson ganga
um með stjörnur í augunum yfir því
að vera í sama fangelsi og ein
þekktasta kona í Bandaríkjunum.
Dóttirin í heimsókn
Annars kom dóttirin Alexis í
heimsókn til móður sinnar í fangels-
ið á sunnudag ásamt óþekktum
manni og eyddu þau þrjú töluverð-
um tíma í gestasalnum ásamt öðr-
um föngum og gestum þeirra. Þau
borðuðu hádegismat úr sjálfsala í
salnum og létu U'mann h'ða með þvi
að spila Scrabble.
Einnig eyddi Martha töluverðum
tíma í að spjalla við aðra fanga og
gesti þeirra. „Hún veifaði til mín og
ég veifaði til baka," segir ungur
strákur sem hitti Mörthu er hann var
að heimsækja móður sína. „Hún
klappaði á öxlina á mér og systir mín
hrópaði upp: Vá Martha Stewart
snerti þig!“
Eiginmaður annars fanga segir
að Martha standi sig vel í fangelsinu.
„Hún er ekki bitur. Hún vill bara af-
plána dóm sinn sem fyrst," segir
hann.
Ekki bara gleði og spil
En lífið fyrir hina 63 ára gömlu
Mörthu í Alderson er ekki bara gleði
og spil. Þótt fangarnar þar hafi
ákveðið frelsi um helgar er keyrt á
ströngu prógrammi alla virka daga.
Þú ferð á fætur kl. 6 á morgnana og
ljósin eru slökkt kl. 10 á kvöldin. Eins
og aðrir fangar verður Martha að
skila 35 tímum af vinnu í hverri viku
og fær lítið greitt fyrir.
Hún hefur enn ekki
fengið að vita hvað
hún mun vinna
við í fangelsinu
en það getur
verið allt fræa
því að skúra
gólfin til þess
að skræla
kartöflur
næstu fimm
mánuðina.
Kemst kakí
ítísku?
Og blaða-
maður New
York Daily
News varpar fram
þeirri spurningu
hvort víðar kakí-buxur
og grænar skyrtur kom-
ist nú í tísku eftir að Martha er
farin að klæðast þessu á hverj-
um degi? Og hvað með hvítu
strigaskóna sem fylgja með?
Ef einhver getur komið
þessum fatnaði á tísku
kortið er það
Martha Stewart
Martha Stewart Aðrir fangar í
Alderson ganga um með stjörn-
ur í augunum yfir þvi að vera i
sama fangeisi og ein þekktasta
kona í Bandarikjunum.
Snyrtifræðingur segist ástkona Beckham
Klumpur á jakka Bush í einvíginu
Beckham aftur í hjá-
konukvörn
DannieOa Heath, 22 ára snyrti-
fræðingur, hefur sagst hafa tvisvar
átt í kynlífssambandi við David
Beckham nú í sumar og haust.
Victoriu mun vera mjög brugðið yfir
þessum yfirlýsingum Heath sem
hún taldi tO vinkvenna sinna. Beck-
ham-hjónin hafa gefið út sameigin-
lega yfirýsingu um að þau séu orðin
þreytt á fólki sem reynir að þéna fé á
kostnað íjölskyldunnar.
í viðtali við dagblaðið DaOy Mirr-
or um helgina segir Heath að hún
hafi tvisvar rúOað í rúminu með
Beckham. Fyrst í ágúst og síðan fyrir
tveimur vikum síðan. Um munn-
mök hafi verið að ræða í bæði skipt-
in, fyrst hann á henni og síðan öfugt
í síðara skiptið.
Það sem er skrýtið við þessa frétt
nú er lýsingin á því hvernig Victoria
kynnti þau tvö fyrr í ár þegar
Rebecca Loos hafði verið sem mest í
fjölmiðlum. Victoria á að hafa sagt:
„David þetta er DannieOa, DannieOa
þetta er David - þið hafið sennOega
riðið nú þegar."
Var þetta svindl
eða skothelt vesti?
Klumpur aftan á jakka George
Bush í fyrsta einvígi hans og John
Kerry hefur sett í gang orðróm um
að hann hafi svindlað í einvíginu.
Sagt er að um útvarpssendi hafi
verið að ræða og að Bush hafi feng-
ið svör sín frá aðstoðarmanni bak-
sviðs í einvíginu. Aðrir halda því
fram að Bush hafi verið í skotheldu
vesti.
Kosningastjórar Bush neita báð-
um staðhæfingum og segja að þetta
sé bara klæðskerasaumurinn á
jakkanum. Á myndum sem dreift
hefur verið á netinu telja menn sig
sjá þennan dularfuOa ldump undir
jakkanum á baki Bush og sýnist sitt
hverjum um af hverju hann sést á
myndunum. „Það er ekkert undir
jakkanum," segir Nicolle Devinish
Babe á móti Bush Við erum orönir þreyttir
á Bush og birtum hér mynd, i staðinn, af
heimsíðunni Babe á móti Bush.
blaðafuOtrúi kosningabaráttu
Bush. „Sennilega var þetta bara
krumpa í efninu."