Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Flóttabörn fá
skólavist
Börn þeirra sem
sækja um hæli á
íslandi fá skólavist í
Reykjanesbæ á með
an umsókn fólksins
skoðuð. Hefur sú
staða nú komið upp i
fyrsta sinn að bam á grunn-
skólaaldri er hér við þessar
aðstæður. Bam á að hafa
dvalið að minnsta kosti í
einn mánuð áður en til
skólagöngu kemur. Hæhs-
leitendur stoppa allt frá
einum sólarhringi upp í
nokkra mánuði. Þetta
kemur fram á heimasíðu
Reykjanesbæjar.
Vill sanna
faðerni
Fimmtíu og sex ára
karlmaður hefur höfðað
mál fyrir héraðsdómi til
að fá viðurkennt að hann
sé sonur föður síns. Mað-
urinn höfðar málið gegn
bömum mannsins sem
hann telur vera föður sinn
en er nú látinn. Maðurinn
vill láta ættingja meints
föður síns gangast undir
DNA-próf til að sanna
ættemi sitt. Málið var
tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavfkur í gær.
Lögreglan
skoðar Sturlu-
sprengju
Lögreglan á Höfn í
Homaflrði hefur gert ffum-
athugun á sprengingum í
Almannaskarði. Vinnueftir-
litið rannsakar málið
líka. Sjö menn vom
hætt komnir þegar
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
sprengdi síðasta haftið
í jarðgöngum þrettán
mínútum fyrr en ætl-
að hafði verið. Einar Sigur-
jónsson, lögreglumaður á
Höfn, segir að búið sé að
gera ffumathugun en svo
verði það í höndum lög-
reglustjórans að ákveða
hvort málið verði rannsakað
frekar.
Óðinn Snorrason, Suðurhólum í Breiðholti, segist hafa orðið fyrir alvarlegri lík-
amsárás í hefnd fyrir smávægilega skuld vegna kaupa á tveimur lítrum af landa.
Myndbandsupptökur sýna hvernig þrír menn standa yfir Óðni liggjandi. Lögreglu-
rannsókn virðist árangurslaus.
.
„Hann hótaði mér
mánuðum saman og
sagðist vita hvaða
leið ég labbaði."
Sigurbjöm Víðir Eggertsson, yfir-
maður ofbeldisbrotadeildar, sagði
að ef eitthvað saknæmt hefði átt sér
stað yrði væntanlega unnið eftir því
en vísaði að öðm leyti á Katrínu
Hilmarsdóttur hjá lögffæðideild lög-
reglunnar sem sagðist í gær ekki
hafa farið yfir málið.
Tilgáta Óðins er þó sú að tiltek-
inn maður í Kópavoginum hafi hrint
af stað árásinni. Hann vísaði lögregl-
unni á sölu mannsins á smyglvarn-
ingi. „En seinast á miðvikudag sagði
mér maður að hann hefði keypt
sígarettur hjá honum,“ segir Óðinn.
jontrausti@dv.is
„Fyrir tvo lítra af landa er vinstri handleggurinn á mér ónýtur,"
segir Óðinn Snorrason, sem varð fyrir árás þriggja manna í
Breiðholti í mars síðastliðnum. Óðinn kærði árásina, en rann-
sdkn lögreglunnar lauk nýverið með því að enginn var grunaður
um athæfið.
Óðinn kveðst þess fullviss að
maður sem seldi honum tvo h'tra af
gölluðum landa hafi fyrirskipað
árásina, en honum var hótað um
margra mánaða skeið áður en ráðist
var á hann. „Ég keypti oft smyglaðar
L&M-sígarettur af manni í Kópavogi
sem ég þekki aðeins að fyrra nafni.
Svo kom til að við vorum að fara út á
sjó nokkrir saman að veiða á stöng.
Eg átti bara einnlítra af vodka handa
okkur fjórum og fannst það svolítið
lítið. Þessi maður í Kópavoginum
sagðist geta reddað því. Hann bauð
mér tvo lítra af landa en þetta var
þvílíkur viðbjóður að við urðum fár-
veikir af þessu. Svo ætlaði hann að
fara að rukka fyrir þetta en ég sagð-
ist ekki borga fyrir veikindi," segir
Óðinn, sem eftir það fékk á sig ítrek-
aðar hótanir. „Hann hótaði mér
mánuðum saman og sagðist vita
hvaða leið ég labbaði."
Skuldin var um þrjú þúsund
krónur, en viðurlögin áttu eftir að
kosta hann notin af vinstri hönd-
inni. „Það eru fjögur meginbrot í
handleggnum og síðan klofnuðu
stubbarnir. Ég get ekki einu sinni
haldið á innkaupapoka. Ég var ör-
yrki fyrir og þetta var í rauninni það
eina sem var nokkurn veginn heilt
hjá mér,“ segir hann. Ráðist var á
Óðinn við Bakaríið Brauðberg við
Hraunberg í Breiðholti. Upptökur
öryggismyndavélar sýna þegar þrír
menn stumra yfir Öðni þar sem
hann liggur óvígur við endann á
tröppum, þar sem honum hafði ver-
ið hent niður. Hins vegar sést ekki á
upptökunum hvað gerðist, þar sem
á myndavélunum kviknar við hreyf-
ingu, en það tekur nokkra stund.
Málið er farið til lögfræðideildar
Lögreglunnar í Reykjavíkur og er þar
enn. Stefán Örn Guðjónsson rann-
sóknarlögreglumaður segir hins
vegar að enginn sérstakur sé grun-
aður í málinu. Hann vildi ekki gefa
upp hvort eitthvað saknæmt hefði
sést á myndbandsupptökunum.
Óðinn Snorrason Eröryrki og
varð nokkuð drykkfelldur eftir
aö hann missti eiginkonu slna.
Tveir lítrar afgölluðum landa
kostuðu hann handlegg þegar
ráðist var á hann fyrir skuldina.
JMÍllllM.
Mölvuöu handlegginn
íypir 3000 króna skuld
Jónas Friðrik Guðnason,
skáld og skrifstofumaður á
Raufarhöfn.
„Það er ósköp rólegt á Raufar-
höfn og stilla í veörinu. Annars
fáum viö alla flóruna hérna,
þó aö viö fáum yfirleitt minna
afþess- _________
Landsíminn
vind- ..............
gangi. Viö vissum ekkert um
rússnesku herskipin hér fyrir
utan fyrr en við sáum þetta í
fréttunum og ég hefekki heyrt
neina umræðu um þau hérna.
Manni heyrist þeir hafaoft
verið þarna áður. Þetta var
ekkert skrítiö í gamta daga
meðan Kaninn varþarna með
stöð, þá voru þeir þarna að
njósna. En hvað þeir eru að
þvælast þarna núna, það veit
maður ekki. Rússar eru óút-
reiknanlegir og hafa alitaf
verið. Við erum bara að vinna í
menningarhátíð sem verðurí
lok mánaðarins og vonum að
Rússarnir fari ekki að spilla
því."
Frank segir tíma barnsins runninn upp
Fæðingunni komið af stað í dag
„Hún er komin ellefu daga fram
yfir áætlaðan tíma,“ segir Frank
Höybye Christensen, sem á von á
sínu fyrsta barni með sambýliskonu
sinni, Katrínu Gunnarsdóttur. Fyrir
á Katrín son sem er níu ára.
„Hún er orðin mjög þreytt,“ segir
Frank sem reiknar með að Katrín
verði lögð inn í dag og fæðingin sett
í gang.
Eins og fram kom í viðtali DV við
Katrínu fyrir tæpum tveimur vikum,
eru helmingslíkur á að nýja barnið
verði dvergur. Bæði Frank og móðir
hans eru dvergar. Katrín segist vera
búin að sætta sig við það að barnið
hennar verði dvergvaxið.
Meðgangan hefur gengið vel
þrátt fyrir að barnið sé nú komið
talsvert fram yfir hefðbundinn með-
göngutíma. Rannsóknir benda til
þess að barnið sé eðlilegt, enda
fóstrið talið vera yfir 15 merkur.
Frank segir mikla eftirvæntingu í
fjölskyldunni eftir nýja barninu:
„Það er allt tilbúið hérna
heima fyrir barnið, við
sitjum bara og bíðum eft-
ir því að það fæðist," seg-
ir Frank sem
er sjálfur
kominn í
fæðingaror-
lof eins og
kærastan,
hún
Katrín.
Komin 11
daga fram-
yfir Katrín
Gunnarsdótt-
irerorðin
þreyttá
langrimeð-
göngu.
Gömul kona fann
keflaðan Kínverja
„Það var gömul kona sem var hér
á dansleik hjá eldri borgurum sem
lét okkur vita af þessu," segir starfs-
maður Ölvers, sem fann keflaðan
mann af asískum uppruna fyrir utan
veitingastaðinn í Alfheimum á
sunnudagskvöldið.
„Maðurinn var h'mdur á höndum
og fótum með plastlími sem hann
hafði losað að hluta til. Hann var
með límband fyrir munninum og
talaði í símann í gegnum límbandið
þegar við fundum hann. Við ætíuð-
um að losa af honum hmbandið
þegar við komum að honum, hann
harðbannaði okkur það, öskraði og
veinaði þegar við reyndum að leysa
hann," segir starfsmaðurinn, sem
telur ekki færri en fimm lögreglubfla
hafa komið á svæðið auk sjúkrabíls.
Starfsmaðurinn segir unga
Glæsibær Kínverji vafinn í límband fannst
fyrir utan Glæsibæ þegar dansleikur eldri
borgara var þar innandyra.
íslenska konu sem augljóslega
þekktí til mannsins hafa komið
hlaupandi á staðinn: „Þetta var nú
allt saman hálffáránlegt. Mér sýnist
þetta hafa verið einhvers konar svið-
setning hjá manninum til þess að
fanga athygli konunnar. Það tókst
honum svo sannarlega."