Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDACUR 20. OKTÓBER 2004 3 ^óðix^' Bannað að setja rimla fyrir Gunnar Helgi Kristinsson Prófessorinn við heimili sitt á I Brekkustíg. Kjallaragluggar við Brekkustíg Prófessorshjónin á Brekkustíg mega ekki setja rimla fyrir kjallaragluggana og ætla að beita annarri lausn sem ekki þarfleyfi fyrir. Hjónin Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmála- ffæði, og María Jónsdóttir mega ekki setja handrið á ljósakassa fyrir utan heimili sitt á Brekkustíg. Gunnar Helgi og María vildu fá leyfi byggingafulltrúa Reykjavíkur fyrir lágu handriði á brún ljósakassans undir kjall- aragluggum sfnum, við gangstéttina austan við íbúðarhúsið þeirra á Brekkusú'g 4A. Byggingafulltúinn hafiiaði erindinu í gær með vísan í um- sögn sem aflað var hjá gatnamálastjóra. Fulltnii hans hafði komið á staðinn og ályktað að ekki væri unnt að heimila slíkt handrið á gangstéttinni við Brekkustíg. María segir að hið svokallaða handrið hafi í raun átt að vera rimlar fyrir kjailargluggana. „En við vorum nú reyndar eiginlega hætt við þetta áður en þessi neitun kom. Við fengum ráð hjá arkitekt um aðra lausn á málinu sem ekki þarf að sækja um leyfi fyrir," segir María. í gær sagði DV frá ungu pari, Arnrúnu Ósk Björnsdóttur og Halldóri Snæ Bjarnasyni, sem keypt hafa íbúð í fjölbýlishúsi í Stórholti. Þeim hefur verið neitað um að opna úr stofu sinni á fyrstu hæð og ofan í geymsluherbergi sem þar er beint fyrir neðan. Þau þurfa því að fara út úr íbúð sinni og fram á stigagang í sameigninni til að komast ofan í herbergið sem þau eiga í kjallaranum. Borgaryfirvöld segja það myndu verða verra fyrir þau að gera gat í gólfið milli hæðanna eins og þau hafi óskað eftir. Sjálf segjast Arnrún og Halldór ekkert botna í þeirri ályktun yfir- valda. Og raunar ætti borgaryfirvöldum ekki að koma við hvernig þau innrétta sín eigin híbýli. Margir þeir sem farið hafa halloka í viðskiptum sínum við skipulags- og byggingafulltrúa borgarinnar hafa beðist undan að tjá sig um málið í DV. Ástæðan er einföld: Þeir hafa einfald- lega farið sínu fram þrátt fyrir heimild yfirvalda skorti. Sumir segja það gert eftir að þeir hafi orðið þess áskynja af borgar- starfsmönnum að kerfið muni snúa blinda auganu að óleyfis- framkvæmdum - svo framarlega sem enginn kæri. Spurning dagsins Er karlar hæfari en konur? Betra að vinna meðkonum „Sjálfri finnst betra að vinna með konum. Það ernú yfirleitt einstaklingsbundið og hefurkannskiminna með kyn að gera." Hólmfríður Petersen rekstrarstjóri. „Nei, þeir eru ekki hæfari. Það er ekkert hægt að setja þetta þannig upp. Þetta er bara einstak- lingsbundið." Valý Þorsteinsdóttir, starfs- maður Krakkalands í Kringl- unni. „Það hefég ekki nokkra trú á. Ekki svo mér finnist. Ég er flugvirki og við erum loksins búnir að fá nokkrar konur inn í stéttina. Ég fagna því." Einar Knútsson flugvirki. „Sumar konur eru hæfarien karlar eins og sumir karlar geta verið hæfari en kon- ur.“ Þröstur Ríkharðsson sölu- maður. „Það fereftir því í hverju það er. Karlar eru betri í ein- hverju og kon- ur eru hæfari í öðru. Ég held að þeirséu ekkert hæfari yfir höfuð." Einar Einarsson málari. Katrín Júlíusdóttir mótmælti kröftuglega skipan Geirs H. Haarde í nefnd á vegum ríkisins um stofnanir þess. Geir valdi einungis karla í nefndina og afhenti Katrín ríkisstjórninni Jafnréttisáætlun þingsins máli sínu til stuðnings. Bera af öðrum kjötætum Hjá matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna hafa menn reiknað út hveijir í heiminum koma í sig einna mestu af keti á ári hverju. Hér er listi yfir þær tíu þjóðir sem eta mest af kjöti á ári hveiju, miðað við höfðatölu: Lönd 1. Bandarfldn 2. Danmörk 3. Spánn 4. Ástralía 5. Nýja-Sjáland 6. Austurríki 7. Kýpur 8. Mongólía 9. Frakkland 10. Kanada Kíló af kjöti á mann á ári 122.3 114.8 113.8 110.4 106.8 106,6 106,2 103,7 99,9 99,8 Gæðum heimsins er þó svo mjög misskipt og smekkur manna að sama skapi misjafn að samkvæmt skýrslu matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar er heildar- kjötneysla mannkyns á ári ekki nema 38,1 kg á mann mann og er þó Ijóst að sumir láta það aldrei inn fyrir sfnar varir og aðrir sárasjaldan. „VIÐ SJAUM EKKI HLUT- INA EINS OG ÞEIR ERU HELDUR EINS OG VIÐ ERUM.“. Það er staðreynd... ...að barnið á Never- mind-plötu- umslagi sveitarinnar Nirvana heit- ir Spencer Eldon. Alþingismaðurinn aj geðlæknirinn Sóiveig Pétursdóttir, alþingismaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, er systir Hannesar Péturssonar, prófessors ogyfirmanns geðlækningasviös Landspítalans. Sólveig er fædd 1952 og Hannes 1947. Foreldrar þeirra eru Pétur Hannesson deildarstjóri og G uðrún Árnadóttir húsmóðir. Sammæðra hálfbróðir Sólveigar og Hannesar er Grétar Vilhelmsson, sem fæddur er 1943. - STÆRf) J75/70R13 075/65 Rld J85/6^Ri4 J«5/65 RlfT | G „ | || TILBOÐSDEKK L5.10QJ I 5,9501 faiSOl [7.280 R OTRULEGT VERÐ! HJOLBARÐAR ERU EITT VEIGAMESTA ÖRYGGISTÆKI BÍLSINS VERSLAÐU HJÁ FAGMÖNNUM FOLKSBILADEKK • JEPPADEKK WILD COUNTRY WILDCAT DURANGO POWER KING MICHELIN WANLI COOPER O.FL. Söluaðilar Tilboðsdekkja: Gúmmívinnustofan Skipholti 35 105 Reykjavík Gúmmívinnustofan Réttarhálsi 2 110 Reykjavík Hjólbarðastöðin ehf. Bíldshöfða 8 110 Reykjavík Hjólkó ehf. Smiðjuvegi 26 200 Kópavogi Hjólbarðaþjónusta Magnúsar ^ Gagnheiði 25 f 800 Selfoss Bæjardekk Langatanga 1A 270 Mosfellsbæ 580 1500 Eitt símanúmer! Höfðadekk ehf. Tangarhöfða 15 110 Reykjavík Vélsmiðja Hornafjarðar hf. Áslaugarvegi 2 780 Höfn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.