Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2004, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 11 Ekki bensín í Kaplakrika Atlantsolía mun ekki fá að koma fyrir sjálfsaf- greiðslustöð fyrir bensín í horni lóðar FH við Flatahraun í Kaplakrika. Olíufyrirtækið fékkekki heimild skipulagsnefndar til að gera deiliskipulags- breytingu sem fæh í sér rétt til að nýta hluta lóðarinnar undir stöðina. Skipulags- nefnd synjaði umsókninni þar sem hún væri ekki ekki í samræmi við aðalskipulag bæjarins. Innbrot í bifreiðar Á sunnudagsmorgun voru grunsamlegar mannaferðir við bifreiðir í Engihjalla í Kópavogi. Lögregla fór á vettvang og handtók einn mann, grunaðan um að hafa brotist inn í a.m.k. eina bifreið á stæðinu. Eftir hádegi var tilkynnt um innbrot í bifreið við Álfhólsveg og úr henni stolið fjölda geisladiska og bassaboxi. Skömmu síðar var brotist inn í bíl við Smáralind. Logskar kerru frá flutningabíl Ökumaður flutningabif- reiðar á vesturleið frá Eyja- fjöllum lenti í að kerra sem hann var með í drætti fauk á hlið- ina vegna óveð- ursins á mánudag. Óhappið varð við bæinn Þorvalds- eyri. Bóndinn á Þorvaldseyri kom ökumanni flutn- ingabifreiðarinnar til að- stoðar en ekki var hægt að losa kerruna frá bílnum og því brá bóndinn á það ráð að sækja logsuðutæki og logskar hann kerruna lausa þannig að bíllinn komst áfam. Kerran var látin liggja þar sem hún var komin utan vegar og ekki mögu- leiki að reyna að ná henni upp á veg eins og veður var á þessum tíma. Hlegið að fótboltaliði Fótboltaliðið FC Wijtschale í Belgíu hefur fengið á sig 58 mörk í tveimur leikjum. Liðið er orðinn uppáhalds- brandari Belga með þessari frammistöðu sinni. Það tapaði með 28 mörkum gegn engu í leik um síðustu helgi en helgina þar á undan tapaði Uðið með 30 mörkum gegn engu. Bæjarblaðið hefur reiknað út að liðið fái á sig mark að meðaltaii fjórðu hverja mínútu sem það leikur. Þrátt fyrir að hafa aðeins skorað fjögur mörk og fengið á sig 139 mörk í fyrstu átta leikjum sín- um eru meðlimir FC Wijtschale síður en svo á þeim buxunum að gefast upp. Mars Elslanger, talsmaður liðsins, segir: „Þeir elska fótbolta." Hef trú á Viggó Ég hef mikla trú á Viggó Sigurðs- syni sem landsliðsþjálfara í hand- bolta. Við spörkuðum saman í Ár- manni í gamla daga. Hann er grimmur hann Viggó en landsliðið þarf mann sem þorir að taka ákvarð- anir og stendur með þeim. Gummi Óli Ómar Ólafsson bindur miklar vonir við Viggó Sigurðsson sem landsliðsþjálfara í handbolta. Leigubílstjórinn segir var orðinn of mikiili vinur strákanna og hætti að þora að taka á þeim, lét þá ráða of miklu. Ég held að Viggó leyfi þehn ekld að komast upp með svoleiðis, hann hleypir þeim ekki eins að sér þótt hann sé góður félagi. Ég hef mikla trú á að hann nái ár- angri með strákana. Óli Stefáns er náttúrlega á heimsmælikvarða en við eigum marga aðra góða stráka. Mér finnst alveg skelfilegt til dæmis að Logi Geirs sé ekki að spila með. Það hefur verið einhver fyia þama en það er um að gera að nýta menn eins oghann. Ég þekki ekki af hverju Viggó var látinn hætta hjá Haukum en hann er orðinn mjög vanur þjálfari, bæði hérna heima og í Þýskalandi. Hann hlýtur að fá Óla til að hætta við að vera ekki með á næstu mótum, er hann ekki farinn að draga í land? Hann var náttúrlega þreyttur á því að þurfa að draga vagninn allt mót- ið. Viggó verður að fá tvö ár með lið- ið til að ná árangri en svo verða menn líka að átta sig á því aö það þýðir ekki að kenna þjálfaranum um aÚt sem illa fer, til dæmis voru strák- amir andlausir í Aþenu. Veturinn skall á með látum á sunnudaginn og sýndi mátt sinn með því að lama samgöngur og skemma mannvirki. Veðurstofan spáir því að vindurinn gangi niður á föstudag. Hitinn verður svipaður því sem nú er og áfram verður norðanátt. ^lnnanlandsflug lamað ^ Allt flug innanlands lá niðri meðan á óveðrinu stóð fyrir utan tvær ferðir miOi Reykjavíkur og Akureyrar í fyrrakvöld. Reynt var að fljúga tU EgOsstaða en flugvél- inni var snúið við vegna veðurs- ins. MiUUandaflug gekk hins vegar áfaUalaust. Og engin stórvand- ræði urðu vegna veðursins á höf- uðborgarsvæðinu. Malbikið af á Fróðárheiði Svo mfldll var veöurofsinn á utanverðu Snæfellsnesi að mal- bfldö á veginum um Fróðárheiði varö undan að láta. Alls munu yfir 100 metrar af malbfld hafa flagnaö upp úr veginum og fokið í burtu. Kolófært var um Staðar- sveit og Fróðárheiði sökum veð- ursins. Bruni í Breiðuvík Eldur kom upp í fjárhúsinu að bænum Knerri í Breiðuvík á SnæfeUsnesi meðan veðrið var hvað verst á þessum slóðum í fyrrinótt. Um 600 fjár, að mestu sláturlömb, fórust í eldsvoðan- um. SlökkvUiði SnæfeUsbæjar tókst með miklu harðfýlgi að komast á staðinn og bjarga íbúðarhúsinu á bænum frá brunanum en það er í 50 metra fjarlægð frá fjárhúsinu. Vind- hraðinn á þessum tíma sló upp í tæpa 50 metra á sekúndu í verstu hviðunum. Engan sakaði. Flutningabíll valt í gærmorgun barst lögregl- unni á EgUsstöðum tilkynning um að vöruflutningabíll hefði oltið á Þjóðvegi 1 í Múlanum í Jökuldal. Ökumaðurinn var einn í bflnum og sakaði ekki. Menn frá næsta bæ komu honum tU aðstoðar. Víða mátti sjá yfirgefna bfla á þessum slóðum eftir að ökumenn höfðu gefist upp á að aka þeim í veðurofsanum enda iUfært eða ófært á öUum vegum á þessum slóðum. —— ii.M.n.. Þjóðveg 1 lokað Þjóðvegi 1 frá Skeiðará að Lómagnúp var lokað í gær eftir að brúin yfir Núpsvötn fór að gefa sig undan veðurofsanum sem þarna hefur geisað. Brúargólfið rifnaði upp að hluta og því var ákveðið að loka vegin- um. í gær var viðgerðarflokkur í viðbragðs- stöðu en gat ekki hafið viðgerð fyrr en seint í gærkvöldi þar sem ekki var stætt á brúnni vegna veðurs. '----q Norræna kom ekki Norræna kom ekki tfl Seyðisfjarðar í gærmorg- un eins og áætlun gerði ráð fyrir. Sökum veðurs- ins og þess að aUir vegir voru ófærir á Austurlandi var ákveðið að Norræna léti ekki úr höfn í Færeyj- um. Norræna mun koma síðar í vUornni en þetta er í annað sinn í haust sem áætlun ferjunnar raskast vegna veðurs. Þá eru dæmi um að tré haf rifnað upp með rótum í Neskaup- stað. Rúta fauk á hvolf Tæplega 30 manns slösuðust er rúta fauk út af veginum undir Akraflalli snemma í gærmorgun og lagðist á hvolf. AUs voru 45 starfsmenn Norðuráls á Grundartanga í rútunni er slysið varð. Mjög hvasst var undir fjallinu og rútan því á mjög hægum hraða er vindhveUur svipti henni út af veginum og á hvolf. Starfsmennirnir sem slösuð- ust voru fluttir á sjúkrahús- ið á Akranesi en tveir þeirra til Reykjavflcur tU nánari skoðunar. Ekki var hægt að komast með þá suður fyrr en um 11-leytið sökum veðursins. /bakið fauk í heilu lagi Veðurofsinn í Vestmannaeyjum náði hámarki á mánudag er þak ímexhússins fauk af í heUu lagi. Brak úr þakinu dreifðist víða um bæinn. Björgunar- sveitum tókst að safna mestu af brakinu saman um daginn en auk þess þurfti að binda niður þakið á Kaffi kró. Vindhraðinn á Stórhöfða fór mest í 43 metra á sekúndu síðdegis á mánudag en snarpar vindhviður voru í bænum allan gærdaginn. Tveir menn fastir heilan dag Björgunarsveitir frá EgUsstöðum og Reyðarfirði voru sendar aft- ur inn í Fagradal á mánudag eftir að saknað var tveggja manna sem vitað var að höfðu ætlað um dalinn um morguninn. Björgunarsveit- armenn fundu mennina síðdegis en þeir voru þá fastir við Skriður fyrir ofan Reyðarfjörð og höfðu verið þar aUan daginn. Þurftu björg- unarsveitarmenn meðal annars að fara yfir snjóflóðasvæði og þvera nokkra litlar snjóflóðaspíjur sem höfðu faUið úr GrænafeUi. Aftakaveður í Vík Björgunarsveitin Vflcverji í Vflc í Mýrdal stóð í ströngu aUa fyrrinótt við að bjarga verð- mætum og fergja niður þök á húsum sem voru í hættu. Raf- magn fór af húsum í Mýrdal um kvöldmatarleytið í fýrra- kvöld en í Vflcurþorpi var raf- magn aUa nóttina. Viðgerðar- menn komust upp á ReynisfjaU um hádegisbiUð og rafmagn var komið á síðdegis í gær. Rafmagnslaust víða Rafmagnið fór af í Suðursveit og á Ör- æfum í veðrinu og skammta varð rafmagn á Höfh í Homafirði þar sem díselvélar vom keyrðar. Rafmagn komst aftur á um hádegið í gær. Byggðalínan bUaði við Almannaskarð en viðgerðarflokki frá RarUc tókst að gera við línuna eftir hádegi í gær. Snjó byrjaði að hlaða niður á rafmagnslín- ur á Héraði f gærdag og oUi það vandræð- um þar og í Fljótsdal. Sigöldulínan til Kirkjubæjarklausturs sló út og erfitt var að sjá hvar sú bUun varð en reUmað var með að hún kæmist inn aftur í gærkvöldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.